24 stundir - 09.05.2008, Blaðsíða 62

24 stundir - 09.05.2008, Blaðsíða 62
62 FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2008 24stundir Skeifunni17 • Smáralind • Akureyri • Ísafirði • Egilsstöðum • Vestmannaeyjum • Selfossi • Hafnarfirði (Bókabúð Böðvars) Allt fyrir skrifstofuna undir 1 þaki „Sjálfstæðismenn leyfa Ólafi borgarstjóra að leika lausum hala og standa fyrir hverri hall- æris- uppákomunni á fætur annarri, til að borgarbúar verði guðslifandi fegnir þegar Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson verður aftur borgarstjóri.“ Björgvin Valur bjorgvin.eyjan.is „Í alvöru talað þá er orðið frekar þreytandi að hlusta á fjölmiðla lýsa Obama sigurvegara próf- kjörsins. Ekki að Obama sé ekki búinn að vinna. […] Það eina sem gerðist í raun í gær er að við erum einum degi nær því að Hillary þurfi að játa sig sigraða. Sem gerist fyrr en síðar.“ Freedomfries www.eyjan.is/freedomfries „Mér sýnist það vera sífellt auð- veldara að fá nafnbótina meistari. „Meissstari Megas mun syngja Passíusálmana“ […] Svo var Bubbi kallaður „meistari“ OG „kóngur“ í sömu málsgreininni í FBL í dag. Ég veit ekki einu sinni hvort ég myndi gefa Bubba sveinspróf.“ Bobby Breiðholt balladofbob.blogspot.com BLOGGARINN Eftir Birgi Örn Steinarsson biggi@24stundir.is Svona er líf þeirra í Euroband- inu þessa dagana. Beint úr rækt- inni í viðtöl, sjónvarpsupptökur eða upp í bíl að keyra út nýju breiðskífu sína This is My Life beint í næstu búð. Þau Friðrik Ómar og Regína hafa ákveðið að gera allt sjálf og finna svo sannarlega fyrir því. „Við byrjum daginn á því að fara með fyrstu eintökin út í pósthús,“ segir Friðik. „Þá kemst platan sem fyrst á þessa helstu staði úti á landi. Ég gleymi auð- vitað ekki Dalvík.“ Nóg að gera Eurobandið lét pressa 5.000 eintök af nýju plötunni og ætlar að koma sem flestum stykkjum í umferð áður en það heldur út til Serbíu á mánudagsmorgun. Svo má reikna með að það selji heil- mörg eintök þegar það kveður yngstu kynslóðina í Smáralind á morgun klukkan tvö með söng og áritunum. „Við erum með nokkra vini að hjálpa okkur við þetta. Held að við séum fjögur eða fimm talsins. Með okkur eru Grétar Örvars, sem gefur út með okkur, og María Sveinsdóttir.“ Vinir þeirra halda svo áfram dreifingunni eftir að Eurovision- hópurinn heldur út. Gærdagurinn fór í það að tryggja öll 5.000 eintökin úr fram- leiðslu og svo í upptökur fyrir Kastljósþátt í Ríkissjónvarpinu. Æfingar eldsnemma Nú eru tæpar tvær vikur í að Eurobandið keppi í forkeppni Eurovision en það verður fyrst á svið í seinni umferð for- keppnarinnar þann 22. maí næstkomandi. Þetta þýðir að það verður líka alltaf fyrst á svið á æfingum fyrir keppnina en þær hefjast um miðja næstu viku. „Við þurfum að vakna eld- snemma á hverjum einasta degi. En það þýðir bara að við verðum búin fyrr og getum gert það sem við viljum,“ segir Friðrik og það má greina til- hlökkunartón í röddu hans. Eurobandið bættist nýverið í hóp þeirra íslenskra stórlista- manna er kjósa að hunsa öll útgáfufyrirtæki og gefa út sjálf- ir og bæta þannig sín kjör. Eurobandið á ferð og flugi Dreifa plötunni sjálf í búðirnar Það er mikið ys og þys á þeim Regínu og Friðriki Ómari þessa síðustu daga á klakanum áður en þau halda út til Serbíu. Í dag dreifa þau plötu sinni í búðir, í eigin persónu. Grétar Örvars Leggur hönd á plóg. Eurobandið Er með afar persónulega þjónustu í viðskiptum 24stundir/Frikki HEYRST HEFUR … Í dag mætast Mugison og Sprengjuhöllin á Íslend- ingaslóðum í Kanada. Þessar tvær vinsælustu sveitir landsins um þessar mundir koma nefnilega báðar til með að spila á íslensk-kanadísku menningarhátíð- inni Núna/Now í Winnipeg í kvöld. Það má því bú- ast við góðu Íslendingapartíi í Vesturheimi, en einnig leikur Jóhann Jóhannsson á tónleikunum. bös Herbert Guðmundsson er víst langt kominn með nýja plötu sem kemur til með að heita Spegill sálar- innar. Þrátt fyrir íslenskan titil verða lögin þó öll á ensku. Á plötunni kveður við nýjan tón, því Her- bert styðst ekki við neinar tölvur og jafnvel gospel- kóra í einhverjum lögum. Hann hefur raðað í kringum sig úrvalsliði hljóðfæraleikara en 17 ára sonur hans spilar á píanó í nýja bandinu. bös Vegfarendur á Austurvelli í gær urðu varir við tö- kulið frá SagaFilm og hafa kannski velt því fyrir sér hvað hafi verið þar á seyði. Samkvæmt heimildum 24 stunda var verið að skjóta fyrstu atriðin í nýjum sakamálaþætti Óskars Jónassonar er mun bera nafnið Svartir englar. Á tökustað sást einnig til Árna Sveinssonar kvikmyndagerðarmanns, en ekki er vitað um hlutverk hans. bös Eftir nokkurra mánaða aðhald og daglegar heimsóknir í ræktina passar Dr. Gunni ekki lengur í lit- ríku Hawaii-skyrturnar sínar, sem hann er þekktur fyrir að klæðast. Eftir að hafa lagt á sig að klæðast alltaf nýrri Hawaii-skyrtu í spurn- ingaþáttunum sálugu, Popppunkti, er ekki undarlegt að fólk leiti til hans þegar það vantar upplýsingar um hvar sé hægt að kaupa sér eina slíka. Núna þarf Doktorinn ekki að benda þeim sem spyrja langt, því hann hefur ákveðið að selja skyrt- urnar sínar, eða „havæ-tjöldin“ eins og hann kallar þær núna eftir að hann léttist um rúm 15 kíló. „Ég hef bent fólki á Spúútnik og Elvis þegar það hefur spurt mig hvar það fái svona en svo er það bara rugl,“ segir Dr. Gunni. „Það kemur og fer hvað þetta þykir kúl. Núna er þetta ekki kúl og fæst því hvergi. Það hringdu í mig stórir menn sem voru á leið til Belgíu með fyrirtækinu sínu á árshátíð þar sem þemað var Hawaii. Þannig að ég rétti þeim hjálparhönd sem hlýðinn borgari.“ Skyrtur úr sjónvarpinu Þá segist Doktorinn hafa fengið þá hugmynd að selja restina af skyrtunum. Þær eru um 20 talsins og Doktorinn hefur verið í þeim öllum í sjónvarpinu. „Sala á skyrtunum hefst innan fárra daga og ég ætla að setja þetta flott upp á síðunni minni,“ segir Doktorinn að lokum. Áhugasömum um stórar Hawa- ii-skyrtur er því bent á að fylgjast með síðunni, www.this.is/drgunni. biggi@24stundir.is Bloggsíða Dr. Gunna að breytast í fatabúð? Selur Hawaii- skyrturnar sínar Dr. Gunni Hlustar á System of a Down í ræktinni. „Þeir hafa tekið af mér 10 kíló.“ Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Su doku 5 6 3 8 7 9 4 1 2 7 8 4 5 1 2 3 6 9 9 2 1 3 4 6 8 5 7 2 3 6 1 5 7 9 8 4 1 9 8 6 3 4 2 7 5 4 5 7 9 2 8 6 3 1 3 4 2 7 6 5 1 9 8 6 7 9 4 8 1 5 2 3 8 1 5 2 9 3 7 4 6 Þú fyrirgefur, en ég finn hvergi hattinn þinn! 24FÓLK folk@24stundir.is a Ef einhverjir hakkarar eru að ráð- ast á Val þá segi ég eins og í Sturl- ungu: Þar vegast þeir sem ég hirði aldrei þótt dræpust. Var Fram að hakka Val í sig? Vísir.is greindi frá því í gær að óprúttnir tölvuþrjótar hefðu „hakkað“ sig inn á heimasíðu íþróttafélagsins Vals. Einar Kárason er harður stuðningsmaður Fram en lengi hefur andað köldu á milli þessara tveggja íþróttafélaga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.