24 stundir - 09.05.2008, Blaðsíða 64
24stundir
Sæktu um besta kortið fyrir þig á www.americanexpress.is eða í síma 575 5900
er útgefandi American Express® á Íslandi
Kortið sem kemur þér út
Þetta er kortið sem gefur þér
flesta vildarpunkta af öllum
greiðslum heima og erlendis.
Það er fljótlegasta leiðin til
að safna upp í flugmiða.
? Camilla Sigmundsdóttir er 90 ára ogbýr á dvalarheimili aldraðra á Þingeyri. Ísumar verður heimilinu lokað í mánuðog þá verður Camilla að flytja til Ísa-fjarðar. Hjúkrunarforstjórinn segir aðþví miður séu ekki til peningar til aðborga afleysingafólki. Þess vegna verðurgamla fólkið á Þingeyri flutt nútíma
hreppaflutningum frá heimili sínu.
Í fréttum í 24 stundum í vikunni
sagðist Camilla vilja vera kyrr á Þingeyri.
Hún óttast að þunglyndi muni hvolfast
yfir hana, og sagðist fá tár í augun við til-
hugsunina um að þurfa að yfirgefa Þing-
eyri í sumar.
Ég þekki ekki Camillu Sigmunds-
dóttur persónulega, en ég veit að á Þing-
eyri er hún hvers manns hugljúfi og hef-
ur í áratugi verið einn af máttarstólpum
samfélagsins þar. Og þegar ég rakti sam-
an ættir okkar í Íslendingabók sá ég að
hún er fædd 5. ágúst 1917. Hún er eldri
en fullveldi Íslands.
Besti mælikvarðinn á samfélag er
hvernig það býr að gamla fólkinu. Gæti
Geir Haarde hugsað sér, í nafni þjóð-
hagslegrar hagkvæmni, að vera fluttur
einsog hver annar böggull vestur í Búð-
ardal? Eða Ingibjörg Sólrún austur á
Þórshöfn? Finnst þeim nóg að eiga
heimili 11 mánuði á ári?
Nei, samfélag sem ekki getur haldið
litlu elliheimili opnu nema 11 mánuði
telst varla fullveðja. Góðu fréttirnar fyrir
Camillu eru þær að þetta mál heyrir
undir heilbrigðisráðuneytið. Guðlaugur
Þór hefur þegar sýnt hvað í honum býr.
Tárin hennar Camillu
Hrafn Jökulsson
skrifar um gamalt fólk
og hreppaflutninga
YFIR STRIKIÐ
Hvar
áttu
heima?
24 LÍFIÐ
Albert Maysels sýnir fræga heim-
ildamynd sína um The Rolling
Stones á Skjaldborg-
arhátíðinni.
Frumkvöðull heim-
ildamynda á Íslandi
»56
Friðrik Ómar og Regína bjóða upp
á persónulega þjónustu og keyra
sjálf með nýju plötuna
sína í búðirnar í dag.
Eurobandið dreifir
plötu sinni sjálft
»62
Hljómsveitin vinsæla er ekki leng-
ur starfandi og ekki vitað hvort,
eða hvenær, hún verður
gangsett á ný.
Trabant ekki
starfandi
»58
● Sign á
Download
„Mér finnst sú
staðreynd að ég
er að fara að
spila á sama sviði
og Kiss út í
hött,“ segir
Ragnar Zolberg
en sveit hans Sign hefur verið
valin til þess að spila á Down-
load festival, einni stærstu
þungarokkshátíð heims, í júní.
Ragnar segist ætla að reyna að
taka í hönd goða sinna í Kiss en
leyfir sér þó ekki að vera bjart-
sýnn í þeim efnum og er ekki
reiðubúinn til þess að gera allt
til þess.
● Konur standa
saman 11. maí
Þetta er afrakstur
af kvennaráðstefn-
unni í New York
fyrr árinu, segir
Margrét K. Sverr-
isdóttir, formaður
Kvenréttinda-
félags Íslands. Þar vöktu íslenskar
konur athygli með utanrík-
isráðherra í fararbroddi. Banda-
rískar konur vildu að við yrðum
með í þessum fjölþjóðlega gjörn-
ingi, Konur standa saman. KFRÍ og
fleiri kvennasamtök tóku áskorun
um þátttöku og ætla að standa
saman í þögn í þrjár til fimm mín-
útur fyrir börn í heiminum. Karlar
mega að vera með, segir Margrét.
● Í hnallþór-
urnar Þetta verð-
ur fyrsta ferða-
helgi sumarsins
og líklegast verða
margir í sum-
arbústöðum.
Hins vegar er
mjög stór hópur
að fara á Hvannadalshnjúk með
Ferðafélaginu,“ segir útivist-
armaður og ritstjórinn, Páll Ás-
geir Ásgeirsson, um væntanlega
hvítasunnuhelgi. Sjálfur ætlar
hann í fermingarveislu á Ak-
ureyri. „Til að sukkjafna tek ég
hlaupaskóna með.“
Ritstjórn
Sími: 510 3700
ritstjorn@24stundir.is
Auglýsingar
Sími: 510 3700
auglysingar@24stundir.is
Hvað ætlar þú að
gera í dag?
- kemur þér við