24 stundir - 09.05.2008, Blaðsíða 52
52 FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2008 24stundir
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@24stundir.is a
Ég hef lengi verið stuðningsmaður þess að
fjölga liðum í efstu deild og fagna þessari
breytingu mjög. Að mínu viti gerir þetta mótið
fjörugra og skemmtilegra fyrir alla aðila.
Sú staðhæfing Kevin Keeg-an að Newcastle sé millj-ón mílur
frá því að geta
keppt við stóru
liðin í Englandi
hefur farið fyrir
brjóstið á
launagreiðanda
hans og eig-
anda liðsins Mike Ashley. Var
Keegan kallaður á teppið vegna
þessa enda ástæðurnar fyrir
þessu bili milli Newcastle og
hinna stóru fyrst og fremst fjár-
hagslegar að mati þjálfarans.
Yfirlýsing Keegan hefur vakið
mikið viðbrögð í landinu öllu
og skiptast menn mjög í tvö
hópa, sammála eða ósammála.
Fastlega er búist við aðTékkinn Pavel Nedvedtilkynni í
vikunni um að
hann hætti
knatt-
spyrnuiðkun
eftir þetta
tímabil. Ned-
ved sem lengi
hefur staðið í eldlínunni á Ítalíu
með Lazio og Juventus er orð-
inn 35 ára og samningur hans
rennur út í lok maí.
Til voru þeir stjórn-armenn Barcelona semhefðu
getað fyrirgefið
Frank Rijka-
ard dapurt
gengi í vetur ef
til hefði komið
sigur á erki-
fjendunum
Real Madrid á útivelli. Það
tækifæri rann hratt út í sandinn
og íþróttaleiðarar spænskra
blaða tala um hreina hneisu
fyrir Börsunga enda fór leik-
urinn 4-1. Þó enn séu tveir leik-
ir eftir á Spáni er alveg ljóst að
punktur hefur verið settur við
störf Hollendingsins og hann
hverfur frá sem fyrst.
Annar valtur stjóri, Sven-Göran Eriksson hjáMan-
chester City, er
þegar orðaður
við önnur félög
og þar efst á
blaði eru lands-
lið Mexíkó og
portúgalska
liðið Benfica. Sjálfur hefur Sví-
inn ekkert gefið út um framtíð
sína og flestar getgátur í fjöl-
miðlum að mestu byggðar á
veikum eða litlum heimildum.
Eigandi Inter Milan þykistþess fullviss að RobertoMancini
þjálfari verði
áfram stjóri
liðsins en
Mancini til-
kynnti afsögn
sína fyrir
nokkru og
hugðist hætta að lokinni leik-
tíðinni á Ítalíu. Bendir nú allt
til þess að honum hafi snúist
hugur og að hann verði áfram.
Stjóri Tottenham er ekki afbaki dottinn. Eftir aðDavid
Villa hafnaði
samningi sneri
Juande Ramos
sér að Samuel
Etóo hjá Barca.
Umleitanir
standa yfir.
„Þetta er vafalítið erfiðasta
ákvörðun sem ég hef tekið um
ævina,“ segir niðurbrotin
Dagný Linda Kristjánsdóttir
skíðadrottning, en hún hefur
orðið að hætta skíðaiðkun
vegna þrálátra meiðsla í fæti.
Hefur hún glímt við meiðslin
síðan í október síðastliðnum
án þess að fá bót meina sinna
og þarf hún að fara í aðgerð
ætli hún að halda áfram en sú
aðgerð er bæði áhættusöm og
engin trygging er fyrir bata.
„Því ætla ég ekki í hana heldur
hætta þessu í bili og kannski
ef þetta batnar með hvíld set
ég skíðin undir mig aftur ein-
hvern daginn en nú sný ég
mér að einhverju öðru. En
auðvitað líður mér ekki sem
best með þetta enda hef ég
eytt ellefu árum í sportið og
vonaðist eftir að taka þátt á
næstu Ólympíuleikum.“
Sorglegur
endir
Ekki aðeins hafa kínversk
stjórnvöld lyft miklu grett-
istaki í undirbúningi fyrir Ól-
ympíuleikana í sumar heldur
hefur um árabil verið rekin
grimm afreksstefna þar í landi
og gæla Kínverjar við að
heimamenn vinni fleiri gull á
leikunum en Bandaríkja-
menn, sem alla jafna taka flest
gullverðlaunin. Fræðingar í
þessum efnum telja líklegt að
markmiðið náist og setji Kína
þannig á stall helstu íþrótta-
þjóða heims.
Gullið heillar
Tímabil annars íslensks
íþróttamanns er í uppnámi en
Birgir Leifur Hafþórsson kylf-
ingur dró sig úr keppni á
Opna ítalska mótinu sem
hófst í gær vegna meiðsla. Eru
það sömu axlarmeiðsl og hafa
hrjáð hann nokkuð reglulega
um tveggja mánaða skeið og
virðist hann ekki ná sér vel af
þeim. Alvarlegt mál enda
tímabil hans á Evróputúrnum
hartnær hálfnað og hann
langt frá því að tryggja sér
áframhaldandi keppnisrétt
eða ná góðum árangri al-
mennt á túrnum.
Áfall fyrir
Birgi Leif
SKEYTIN INN
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@24stundir.is
„Ég gef ekkert fyrir að Grindavík
eigi að falla samkvæmt helstu spám
vegna þess að klisjan allir leikir eru
erfiðir á jafnt við nú og áður og
ekkert síður gegn Grindavík,“ segir
Logi Ólafsson, þjálfari KR, sem á
morgun mætir Grindvíkingum í
fyrsta leik sínum í Landsbanka-
deildinni þetta sumarið.
Hópurinn?
„Ástandið er hvorki verra né
betra en ég bjóst við en almennt
eru menn í góðu ástandi. Tveir
leikmenn eru meiddir og úti þess
vegna en aðrir klárir í bátana á
morgun. Margir leikmenn hafa
fengið að prófa sig að undanförnu
og svo kemur í ljós hver þeirra fær
kallið í fyrsta leik.“
Grindavík?
„Það er svo með þessa deild að
allir geta unnið alla og þeir eru ekk-
ert undanskildir. Allt getur gerst í
fótbolta og lið á borð við Grindavík
getur á góðum degi lagt öll lið hvar
sem þau sitja í deildinni í það og
það skiptið. Þeir eru með ágætan
hóp og við vanmetum þá ekki eitt
augnablik.“
Deildin?
„Ég hef lengi verið stuðning-
maður þess að fjölga liðum í efstu
deild og gleðst yfir þeirri þróun. Að
mínu viti gerir þetta mótið
fjörugra og skemmtilegra fyrir alla
aðila og ég sé ekkert nema jákvætt
við þetta.“
Spáin?
„Erfitt að spá mikið en ég get
sagt að við í Vesturbænum verðum
afar sáttir ef spáin um þriðja sætið
gengur eftir.“
Þriðja sætið yrði
góður árangur
Ekkert vanmat í Vesturbænum fyrir leikinn gegn Grindavík
➤ Gengi KR ásíðustu leiktíð
var hörmung-
arsaga og lið-
ið í raun hepp-
ið að sleppa
við fall.
➤ Hávær krafaer frá stuðningsmönnum að
liðið verði á ný meðal þeirra
bestu í deildinni.
FYRIR ÁRI
Sjaldséð sjón Aðdáendur og
leikmenn KR fengu ekki mörg til-
efni til fagnaðar á síðustu leiktíð.
Morgunblaðið/Ómar
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@24stundir.is
„Staðan gæti satt best að segja
verið betri hjá mér svona rétt fyrir
mót,“ segir Milan Stefán Jankovic,
þjálfari nýliða Grindvíkinga í
Landsbankadeildinni. Ekki aðeins
er liði hans spáð neðsta sætinu og
falli á nýjan leik eftir sumarið í
flestum könnunum hingað til
heldur eru þrír nýir leikmenn
hans nýlentir á landinu og taka
þátt í sinni fyrstu æfingu í dag.
Hópurinn?
„Ólíkt öðrum félögum er hóp-
urinn minn minni en á síðustu
leiktíð og margir hafa yfirgefið
okkar herbúðir. Til stóð að fá
hingað fimm sterka leikmenn er-
lendis frá en það hafa verið nokk-
ur vandræði og tveir þeirra koma
ekki og hinir þrír æfa með okkur
fyrsta sinni í dag. Ég verð að nota
fleiri stráka úr 2. flokki í sumar
vegna þess en það er ekkert endi-
lega slæmt.“
KR?
„Mér finnst alltaf gaman að
koma á KR-völlinn og þó ég sé
kannski ekkert yfir mig bjartsýnn
á góð úrslit gegn þeim þá verður
þetta upplifun fyrir strákana mína
og þeir munu allir sem einn leggja
sig fram veit ég.“
Deildin?
„Þótt hópurinn hjá okkur sé
ekki eins breiður og áður þá fagna
ég fjölgun liða. Meiri skemmtun
og meiri möguleikar að ná sér aft-
ur á strik þó slæmt tímabil gangi
yfir.“
Spáin?
„Botnbaráttan verður harðari
með fleiri liðum en mér finnst
líklegt að sömu lið berjist á
toppnum og í fyrra nema ég á von
á KR sterkari en þá.“
Vanir öllum þess-
um hrakspám
Þjálfari Grindavíkur bjartsýnn en raunsær fyrir tímabilið
➤ Grindavíkvann fyrstu
deildina í
fyrra,
➤ Þeirra að-alsmerki er
heimavöll-
urinn en þar
töpuðu þeir aðeins einum
leik allt síðasta tímabilið.
FYRIR ÁRI
Upp, upp mín sál Grindvíkingar eru eðlilega
glaðir með veruna í efstu deild en þrautin
þyngri verður að halda þeirri stöðu.
24stundir/Kristinn
LANDSBANKADEILDIN 2008 KR - Grindavík laugardagur 10. maí