24 stundir - 09.05.2008, Blaðsíða 39

24 stundir - 09.05.2008, Blaðsíða 39
24stundir FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2008 39 Frumkvöðlar um allt land Auk þess segir Kristín að Impra haldi alls konar námskeið fyrir frumkvöðla út um allt land sem sé stuðningur við nýsköpun á lands- byggðinni. „Impra er nauðsynlegur hlekkur í nýsköpunarumhverfinu enda eru þar veittir ýmsir styrkir, til dæmis frumkvöðlastuðningur,“ segir Kristín og bætir við að Impra sé í Reykjavík, á Akureyri og með útibú á Höfn, í Vestmannaeyjum og á Ísafirði. „Þar eru starfsmenn sem ferðast mikið milli staða úti á landi.“ Kristín segir að það sé mismun- andi hvernig fólk nýtir sér þjón- ustu Impru og nefnir eitt dæmi: „Ef fólk ætlar að stofna fyrirtæki í upplýsingatæknigeiranum þá getur það komið hingað í handleiðslu. Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu svanhvit@24stundir.is Impra var stofnuð árið 1998 en deildin er til leiðsagnar fyrir frum- kvöðla og lítil fyrirtæki og er því deild innan Nýsköpunarmið- stöðvar Íslands. Kristín Halldórs- dóttir, verkefnastjóri hjá Evrópu- miðstöð Impru, segir mjög mikið um að fólk leiti til Impru eftir að- stoð og upplýsingum. „Þetta er þáttur í stuðningsumhverfi ný- sköpunar sem kemur að stofnun fyrirtækja og nýjum áhugaverðum hugmyndum. Við sjáum um átak til atvinnusköpunar, veitum styrki og stöndum að stuðningsverk- efnum. Auk þess höldum við alls kyns námskeið sem miða að stofn- un fyrirtækja og eigin reksturs og einna vinsælast þar er Brautargengi sem er námskeið fyrir konur sem vilja hrinda viðskiptahugmynd í framkvæmd og hefja eigin at- vinnurekstur. Brautargengi er haldið tvisvar sinnum á ári og það komast alltaf færri að en vilja.“ Til dæmis er Evrópumiðstöðin tengd hópi í Evrópu sem nær utan um alla upplýsingatækni þar. Þar er hægt að komast í sambönd við aðila í öllum Evrópulöndunum ef menn vilja flytja út sína þekkingu eða fá þekkingu annars staðar frá. Enda er upplýsingatækni þannig að það er alltaf nauðsynlegt að fylgjast með öllu nýju.“ Leiðsögn fyrir frumkvöðla, lítil og meðalstór fyrirtæki Nauðsynlegur hlekkur í nýsköpun 24stundir/Kristján ➤ Impra veitir öllum frum-kvöðlum og litlum og með- alstórum fyrirtækjum á Ís- landi leiðsögn, sama í hvaða atvinnugrein þau starfa. ➤ Impra starfrækir Frum-kvöðlasetur hjá Nýsköp- unarmiðstöð Íslands þar sem er mögulegt að fóstra níu ný fyrirtæki sem byggja á sér- stöðu og nýsköpun. ➤ Upplýsingasetur hefur starfs-aðstöðu í húsnæði Impru að Borgum á Akureyri en rekstur þess gerir almenningi kleift að leita sér upplýsinga um hugverkaréttindi. ➤ Heimasíða Impru erwww.nmi.is/impra en þar má finna margvíslegar upplýs- ingar um starfsemina. IMPRAImpra er deild innan Ný- sköpunarmiðstöðvar Ís- lands sem er til leiðsagn- ar fyrir frumkvöðla, lítil og meðalstór fyrirtæki en á heimasíðu Impru má finna margvíslegar upp- lýsingar um starfsemi deildarinnar og styrkja- úthlutun. Brautargengi Eitt vinsælasta nám- skeiðið hjá Impru er Brautargengi sem er fyrir konur sem vilja hrinda viðskiptahugmynd í framkvæmd og hefja eigin atvinnurekstur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.