24 stundir - 09.05.2008, Page 6

24 stundir - 09.05.2008, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2008 24stundir Eftir Frey Rögnvaldsson freyr@24stundir.is Árni M. Mathiesen fjármálaráð- herra sagði á fundi með stjórn Landssambands landeigenda 16. apríl síðastliðinn að hann hefði lagt áherslu á að við þjóðlendukröfur á vestanverðu Norðurlandi ætti ekki að ganga á þinglýst landamerki jarða nema í algjörum undantekn- ingartilfellum. Mat lögfræðinga landeigenda sem hafa farið yfir kröfurnar er hins vegar að gengið sé á þinglýst landamerki í tugum tilfella. Lögmaður ríkisins í þjóð- lendumálum vísar því hins vegar á bug. Telja ekki staðið við fyrirheit Þjóðlendukröfur ríkisins fyrir vestanvert Norðurland, á svoköll- uðu svæði 7a, voru birtar 28. mars síðastliðinn. Landssamtök landeig- enda sendu í kjölfarið frá sér yf- irlýsingu þar sem vonbrigðum var lýst yfir því hve hart væri gengið fram í kröfugerðinni. Á aðalfundi samtakanna 14. febrúar lýsti Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra því yfir að ríkið myndi „að nokkru leyti fara hægar í sakirnar en hingað til hefur verið stefnt að“ í þjóðlendu- málum. Telja landeigendur að við þau fyrirheit hafi ekki verið staðið og ekki standist heldur að ekki hafi verið gengið á þinglýst landamerki nema í undantekningartilfellum. Í tilkynningu frá fjármálaráðherra er hins vegar fullyrt að í öllum tilfell- um sé stuðst við þinglýst landa- merki nema þar sem þinglýsingar ná til jökla eða almenninga enda hafi Hæstiréttur ekki fallist á slíkar kröfur fram til þessa. Jafnframt sé kröfugerð á núverandi svæði mun afmarkaðri en áður hafi verið talin þörf á enda sé það í anda breytinga á verklagi sem gerðar hafi verið til- lögur um á síðasta ári. Undarlegt ósamræmi Örn Bergsson, formaður Lands- samtaka landeigenda, segir undar- legt ósamræmi milli orða ráðherra og krafnanna sem lagðar voru fram. „Það virðist eins og embætt- ismenn ráði bara kröfugerðinni þvert á vilja ráðherra. Í það minnsta er ekkert samræmi milli þess sem ráðherra hefur sagt á op- inberum vettvangi, til dæmis á að- alfundi okkar, og þess sem síðan er lagt fram.“ Örn segir það líka vonbrigði að öflun gagna hafi ekki verið betri en raun var á. „Því var lofað að áður en þessi þjóðlendukrafa yrði lögð fram væri búið að afla betri og meiri gagna en hafði verið gert áð- ur. Kröfugerðin hefði orðið ná- kvæmari ef svo hefði verið en við sjáum að það liggja nákvæmlega sömu gögn á bak við þessar kröfur og verið hefur. Það virðist vera lítið annað en landamerkjabréf jarðanna sem liggur til grundvallar. Við vorum að vona að það myndi vera meira kjöt á beinunum.“ ÞEKKIR ÞÚ TIL? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á frettir@24stundir.is Telja ósamræmi í orðum og efndum ÞJÓÐLENDUKRÖFUR Á VESTANVERÐU NORÐURLANDI Útmörk svæðisins Mörk þjóð- lendukrafna Akureyri Hofsjökull Hofsós Sauðarárkrókur Varmahlíð ➤ Því svæði á vestanverðuNorðurlandi sem tekið var til umfjöllunar í Óbyggðanefnd var skipt upp í tvo svæði að ósk fjármálaráðherra. ➤ Eftir á að gera kröfur í nyrðrihluta svæðisins. Þar er meðal annars um að ræða Trölla- skagann allan og hluta af Húnavatnssýslum. ÞJÓÐLENDUKRÖFUR  Landssamtök landeigenda telja að gengið sé á þinglýst landamerki tuga jarða í þjóð- lendukröfum á vestanverðu Norðurlandi  Segja embættismenn ráða ferðinni Eftir Þóru Kristínu Þórsdóttur thorakristin@24stundir.is Ef halda ætti uppi þeirri þjónustu sem nú er veitt íbúum þjónustu- íbúða á Tjörn á Þingeyri á meðan starfsfólk Tjarnar er í sumarfríi, þyrfti að ráða fimm einstaklinga í tímabundin störf, að sögn Erlu Ástvaldsdóttur forstöðumanns Tjarnar. Er þá um að ræða matseld, þrif, þvotta og að starfsmaður sé þar á vakt allan sólarhringinn. „Ég veit ekki hvar við ættum að finna þetta starfsfólk. Við höfum lengi leitað að starfsmanni í eldhús á leikskóla hér á Ísafirði en ekki gengið,“ segir Margrét Geirsdóttir, forstöðumaður skóla- og fjöl- skylduskrifstofu Ísafjarðarbæjar. Hún leggur þó áherslu á að lausn muni finnast í málinu og ekki standi til að skerða þjónustu sem veitt er íbúum þjónustuíbúðanna. „Þegar fólk flyst úr sínum íbúð- um yfir í þjónustuíbúðir er það að kaupa ákveðið öryggi og það er sveitarfélagsins að tryggja að það sé veitt,“ segir hún. Kostnaður meiri en sparnaður Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði, kveðst afar ósáttur við þá ákvörðun HÍ að loka öldrunar- deildinni í fjórar vikur og veita þá íbúum þjónustuíbúðanna ekki til- Ráða þyrfti fimm starfsmenn í tímabundin störf á Tjörn á Þingeyri Óvíst að afleysingafólk finnist heyrandi þjónustu. „Ef kostnaðurinn er ástæðan- hefði Heilbrigðisstofnunin getað talað við okkur um að við tækjum meiri þátt í honum í sumar. Þeir gerðu það ekki,“ segir hann. Hann kveðst ekki hafa reiknað út hvað kostnaðurinn verði hár enda ekki ljóst hvaða leiðir verði farnar til að leysa málið. „Ég er samt sannfærður um að kostnaður bæjarins verði á endanum hærri en það sem stofnunin sparar,“ segir hann. HVAÐ VANTAR UPP Á? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á frettir@24stundir.is Friðbjörn Garðarsson lög- maður sem fer með mál fjölda landeigenda á vestanverðu Norðurlandi segir að það sé sitt mat að það séu gerðar þjóðlendukröfur í þinglýstar jarðir í tugum tilfella. „Það er mjög augljóslega verið að ganga á eignir manna. Það er undarlegt að það skuli vera farið svona að þar sem fjár- málaráðherra hefur talað fyrir því að það verði gengið fram af meiri varfærni en hefur ver- ið gert. Það er eins og það sé ekki tekið mark á því.“ Lögmaður landeigenda „Gengið á eignir manna“ Andri Árnason lögmaður rík- isins í þjóðlendumálum vísar því á bug að verið sé að ganga á þinglýst landamerki í kröfu- gerðinni „Þetta er bara túlkun þeirra lögfræðinga sem vinna fyrir landeigendur. Það eru gerðar kröfur um land sem ekki er þinglýst í örfáum til- fellum og þá er tekið fram að ekki sé fallist á slíkar lýsingar. Um þessi mál öll mun svo Óbyggðanefnd úrskurða.“ Lögmaður ríkisins „Bara túlkun lögfræðinga“ Það er Stærsta dreifikerfið inn um lúguna í dag St

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.