24 stundir


24 stundir - 09.05.2008, Qupperneq 12

24 stundir - 09.05.2008, Qupperneq 12
12 FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2008 24stundir Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@24stundir.is Í dag undirritar Soffía Vagnsdóttir, oddviti K-listans og fyrrverandi formaður bæjarráðs Bolungarvík- ur, ásamt systkinum sínum 400 milljóna króna samning við þýsku ferðaskrifstofuna Kingfisher Rei- sen. Í samningnum er kveðið á um smíði 25 húsa og 25 báta fyrir ferðamenn sem koma í stangveiði til Bolungarvíkur. „Þetta er samn- ingur til fimm ára og á tímabilinu munum við byggja hér 25 hús í anda gömlu verbúðanna. Það er verið að hanna þau inn í umhverf- ið. Bátarnir eiga að taka fjóra til sex stangveiðimenn sem koma hingað og leigja hús og bát í eina viku. Uppbygging í Bolungarvík í tengslum við verkefnið hljóðar upp á tæpar 300 milljónir króna,“ greinir Soffía frá. Öfund og afbrýði Hún segir þau systkinin eiga bænum gjöf að gjalda. „Það var frá- bært að alast hér upp og við viljum eiga þátt í að gæða samfélagið lífi. Verst er hins vegar þegar samfélagið tekur upp á því að éta sjálft sig inn- an frá. Ég á þá við ef menn fyllast öfund og afbrýði vegna umfangs- mikilla framkvæmda annarra.“ Soffía, sem er skólastjóri grunn- skólans í Bolungarvík, kveðst hafa velt því mikið fyrir sér hvað geti mögulega hafa legið að baki sam- starfsslitum A-listans við K-listann í apríl síðastliðnum. „Ég gerði mér ekki grein fyrir því að ég þætti of fyrirferðarmikil, eins og beinlínis hefur verið lýst yfir. Oddviti A- listans, Anna Guðrún Edvardsdótt- ir, sagði að samningur minn og systkina minna við Íslenska aðal- verktaka um að veita þeim mönn- um sem vinna að gerð ganga milli Bolungarvíkur og Ísafjarðar fæði og húsaskjól hefði verið kornið sem fyllti mælinn. Ég hafði ekki áttað mig á því að hún og hennar fólk hefðu verið með mæliglös á borð- inu sem þau tíndu sandkorn í. Við- horf mitt til verka er hins vegar þannig að ég fer ekki í fýlu þótt ég fái ekki mínu framgengt. Ég segi skoðun mína og held svo áfram að vinna að því sem þarf. Auðvitað kostar það fé að framkvæma. Að segja að við höfum verið óábyrg í fjármálum eru hræðilega veik rök. Ef framkvæmdir eru stöðvaðar verður stöðnun sem er versti óvin- ur þróunar.“ Opnað fyrir stóriðju Klausa í málefnasamningi nýrrar bæjarstjórnar A- og D-lista í Bol- ungarvík varð tilefni enn frekari vangaveltna Soffíu. „Í þessum nýja málefnasamningi er opnað á möguleika á stóriðju á Vestfjörð- um. Ég verð að viðurkenna að ég hrökk svolítið í kút við þá tilhugs- un að markmiðið hafi mögulega verið að nota mig og Grím Atlason, fyrrverandi bæjarstjóra, sem blóra- böggla og skella okkur út eins og skákmönnum af taflborðinu til að koma hugmyndinni um olíu- hreinsunarstöð áleiðis. En þótt ég sé komin í minnihluta og Grímur sé ekki lengur bæjarstjóri eru radd- ir okkar ekki hættar að heyrast. Vestfirðingar þurfa ekki olíu- hreinsistöð. Ef Íslendingar sækja um undanþágu vegna mengunar- kvóta eru þeir að móðga landið sitt. Olíuhreinsistöð myndi eyðileggja þorskeldi hér og starfsemi sprota- fyrirtækja sem vinna afurðir úr náttúrunni.“ Breytt nálgun við sjóinn Soffía kveðst viss um að Bolvík- ingar rífi sig upp úr lægðinni sem gengið hefur yfir. Hún tekur það jafnframt fram að ýmsir eigi ef til vill erfitt með að venjast tilhugs- uninni um breytta atvinnuhætti. „Nálgunin við sjóinn er til dæmis að breytast. Í stað þess að borga sjó- mönnum fyrir að fara um borð og sækja fiskinn koma menn að utan og borga okkur fyrir að fá að fara um borð í bátana til að veiða fisk. Samningurinn sem undirritaður verður í dag snýst um þess háttar þjónustu.“ Erlendu ferðamennirnir eiga einnig að fá að kynnast menningu staðarins, að sögn Soffíu. „Við systkinin erum öll tónlistarfólk og við ætlum að bjóða ferðamönnum upp á tónlist og stuð á meðan þeir dvelja hér.“ Hundraða milljóna króna samningur  Soffía Vagnsdóttir í Bolungarvík semur við þýska ferðaskrifstofu um smíði 25 húsa og 25 báta Fer ekki í fýlu Soffía Vagnsdóttir segir skoðun sína og held- ur svo áfram að vinna að því sem þarf. ➤ Meirihlutasamstarfi A-lista ogK-lista í Bolungarvík var slitið 21. apríl síðastliðinn. ➤ Fulltrúar A-lista og D-listamynduðu nýjan meirihluta 24. apríl. SAMSTARFSSLITIN ROSAAFSLÁTTURsem kve›ur ni›urver›bólgudrauginn - flegar flú kaupir parket! Krókhálsi 4 • Sími 567 1010 • www.parket.is R†MINGARDAGAR ROSALEGIR Veggflísar Gólfflísar Vi›arparket Plastparket Vaskar BlöndunartækiA›eins í nokkra daga ! E in n t v e ir o g þ r ír 2 8 7. 21 0 Anna Guðrún Edvardsdóttir, oddviti A-listans í Bolungarvík og núverandi formaður bæjarráðs, vísar því á bug að samstarfsslitin við K-lista hafi verið vegna skiptra skoðana um olíuhreinsistöð. ,,Við viljum bara skoða þessi mál frá öll- um hliðum en ekki loka á þau með því að segja nei. Það verður aldrei farið út í stóriðju nema lög og reglugerðir heimili það.“ Anna leggur áherslu á að vax- andi ágreiningur hafi verið innan meirihlutans um ýmis mál sem ekki hafi farið hátt. ,,Okkar áhrif innan meirihlutans fengu sífellt minna vægi eftir því sem leið á samstarfið. Fulltrúar K-listans töldu okkur hafa gert óheyrilegar kröfur vegna þess að við vorum með minna atkvæðamagn á bak við okkur en þeir. Það virðist sem þessi slit vegna ágreinings og trún- aðarbrests hafi komið á óvart. Þetta kom sjálfstæðismönnum hins veg- ar ekki á óvart vegna þess að bæj- arfulltrúi K-listans var farinn að viðra sig upp við D-listann og segja að samstarfið við A-listann gengi erfiðlega. Í mínum huga er það ekkert annað en trúnaðarbrestur þegar farið er að ræða við minni- hlutann í stað þess að ræða við samstarfsaðilann.“ ingibjorg@24stundir.is Oddviti A-listans í Bolungarvík Slitin ekki vegna olíuhreinsistöðvar Oddvitinn Við viljum bara skoða þessi mál frá öllum hliðum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.