24 stundir - 09.05.2008, Síða 15
24stundir FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2008 15
Borgarstjóri og ráðherrarsettu upp sparisvipinn ámorg-
unfundi í Fjöl-
skyldu- og hús-
dýragarðinum í
fyrradag, þar sem
átakinu „Hjólað í
vinnuna“ var hleypt
af stokkunum í sjötta sinn. Að
loknum fundinum, þar sem hinir
háu herrar brýndu almenning til
dáða í átakinu, var haldið af stað á
fákunum. Að sögn viðstaddra nær
áhugi Ólafs F. Magnússonar á
hjólreiðum þó ekki lengra en svo,
að það fyrsta sem hann sagði þeg-
ar hann mætti á staðinn var: „Fæ
ég svo ekki lánað hjól?“ Að sögn
sjónarvotts fékk hann lánaðan
„einhvern garm sem glamraði ein-
hver ósköp í, og var nærri dottinn
á hausinn enda greinilega ekki
hjólað í marga áratugi“.
Ráðherrarmunueinnig hafa
staðið sig misvel í
hjólamennskunni.
Kristján Möller
samgönguráðherra gerði sér lítið
fyrir og kom hjólandi úr Kópavogi
í Laugardal. Að fundinum lokn-
um hélt hann ferð sinni áfram
hjólandi, alla leið í ráðuneytið sem
staðsett er í miðbænum. Þórunn
Sveinbjarnardóttir umhverf-
isráðherra var því miður ekki jafn
dugleg. Segja viðstaddir hana hafa
látið skutla hjólinu í Laugardalinn
kvöldið áður, og aðeins haft fyrir
því að setjast á það á meðan hún
hjólaði út á bílastæði KSÍ, þar sem
einkabílstjórinn góði beið hennar.
Gam-alreyndirborg-
arstarfsmenn eru
ýmsu vanir þegar
kemur að sviðsetn-
ingu ráðamanna á
atburðum. Þegar
þeir sáu í hvers konar sýndarveru-
leika stefndi, rifjaði einn þeirra
upp að Árni Þór Sigurðsson, sem
þá var forseti borgarstjórnar, sást
fyrir fáeinum árum mæta til við-
líka athafnar á dýrindis borgarbíl
með hjól í skottinu. Hann settist á
það rétt á meðan ljósmyndarar
smelltu af og henti því aftur í
skottið að fyrirsætustörfum lokn-
um. Nú er spurning hvort fjöl-
miðlamenn sjálfir hafi tekið þátt í
sviðsetningunum; slíkt lofar ekki
góðu þessa dagana.
hlynur@24stundir.is
KLIPPT OG SKORIÐ
Hvað er eiginlega í gangi í
Reykjavík? Hver er stefnan og
hvað ræður för? Reykvíkingar og
landsmenn allir eiga annað og
betra skilið en þann glundroða
sem nú ríkir. Stjórn Reykjavík-
urborgar er ekki lengur sá bros-
legi farsi sem hófst við borg-
arstjórnaruppreisnina í janúar
heldur sorglegur stjórnsýsluharm-
leikur. Borgarstjóri örflokks, rú-
inn trausti, veður áfram án sam-
ráðs við nokkurn. Borgarstjórinn
raðar viðhlæjendum á jötuna og
trampar í leiðinni á því góða fólki
sem vinnur við stjórnsýslu borg-
arinnar og í stofnunum hennar.
Framboð umfram eftirspurn
Og sexmenningarnir hlæja
með. Þeir byrjuðu að hlæja
með í janúar þegar þeir sáu
glitta í tækifærið til að komast
til valda og enn er hlegið með,
þó að glitti í einstaka tár. Það
var engin og er engin eftir-
spurn eftir núverandi borgar-
stjóra og hans áherslum. Það
voru engar biðraðir eða mót-
mælagöngur þegar hann tók
við. Fólk stóð ekki á torgum
og hrópaði: „Niður með
meirihlutann, við viljum Ólaf
F. sem borgarstjóra.“ Fram-
boðið er langt umfram eftir-
spurn og Sjálfstæðisflokkurinn
vissi þetta, en áhuginn á völd-
unum varð bæði skoðunum og
prinsippum yfirsterkari.
Flokkurinn hefur sýnt ótrúleg-
ar valdaklær sínar út um allt
land upp á síðkastið þar sem
miklum hagsmunum er fórnað
fyrir fólk sem hefur lítið fram
að færa til að þjónusta íbúa,
heldur þráir það eitt að kom-
ast til valda.
Áhöfnin stekkur frá borði
Ástandið í Reykjavík er orðið
þannig að lykilfólk við stjórn
borgarinnar, þeir sem ekki voru
ráðnir í gegnum pólitísk hrossa-
kaup, hugsar sér til hreyfings. Það
er engin stefna í gangi og það er
grátlegt að fylgjast með gali borg-
arfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um
að þeir hafi leyst borgina úr
hlekkjum glundroða og stjórnleys-
is í janúar. Með svona vini, hver
þarf óvini geta borgarbúar spurt
sig. Það lítur nefnilega út fyrir að
borgin sé í raun stjórnlaust rekald
í augnablikinu. Áhöfnin stekkur
frá borði og þá reynir á að skip-
stjórinn sé heill og með fulla at-
hygli í brúnni. Því miður held ég
að óhætt sé að fullyrða að Ólafur
F. Magnússon sé með hugann við
annað þessa dagana en að stýra
fleytunni, að minnsta kosti virðist
skipið vélarvana á leið í strand.
Lagabreyting óskast
Vandinn liggur meðal annars í
því að ekki má boða til kosninga
í Reykjavík án tafar. Það þarf að
breyta lögum og óvíst er hvort
þingmenn Sjálfstæðisflokks
styddu slíka lagabreytingu. En
það verður að láta á það reyna.
Eina leiðin út úr þessum ógöng-
um er að Sjálfstæðisflokkurinn
rísi upp og axli ábyrgð. Skipstjór-
inn verði sendur í frí og við taki
einstaklingur sem geti komið í
veg fyrir að skipið strandi. Þjóð-
stjórn verði mynduð með öðrum
flokkum í borgarstjórn sem komi
sér saman um framkvæmdastjóra
næstu tvö árin eða þar til hægt
verður að boða til kosninga.
Eyðilegging núverandi meiri-
hluta á stjórnkerfi borgarinnar er
nefnilega viðameiri en fólk gerir
sér grein fyrir. Víða heyrast neyð-
aróp innan úr stjórnkerfinu frá
fólki sem hefur um árabil þjónað
hagsmunum borgarbúa. Það er
gríðarlega mikilvægt að glata ekki
þessum mannauði og við þessu
verður að bregðast. Nýlegar
mannaráðningar, ummæli um
skipulagsmál og fjarvera þegar
taka þarf mikilvægar ákvarðanir
eru meðal ástæðna þess að áhöfn-
in yfirgefur nú skipið. Það þýðir
ekki að standa uppi í pontu og
reiðast þeim sem benda á stjórn-
leysið heldur verður að bregðast
við og það strax. Við verðum að
biðla til Sjálfstæðisflokksins að
hann láti einu sinni af valdhroka
sínum og sjái lengra en til hádeg-
is á morgun. Ef flokkurinn gerði
það myndi hann fatta að það er
björt framtíð í henni Reykjavík –
en þó aðeins ef flokkurinn axlar
ábyrgð. Borgarstjóri verður að
víkja.
Höfundur er áhugakona
um alvöru stjórnmál
Hann bara verður að víkja
VIÐHORF aHelga Vala Helgadóttir
Borgarstjór-
inn raðar við-
hlæjendum á
jötuna og
trampar í
leiðinni á því
góða fólki
sem vinnur við stjórn-
sýslu borgarinnar og í
stofnunum hennar.
FÓTBREMSAN GÓÐA
vinsælu dönsku götuhjólin
Hvellur
Smiðjuvegur 30
- Rauð gata
200 Kópavogi
Sími: 577 6400
www.hvellur.com
Sumarið er komið
Hjólum í vinnuna
á Kildemoes Arctic Spas Faxafeni 9 (ATH: aðkoma í kjallara bakhús)
Sími 554 7755 www.arcticspas.is & www.heitirpottar.is
Næst besti
pottur í heimi!!
Nokkrar staðreyndir um gæði pottanna.
• 3,5 hestafla dælur.
• TruGard hitari 4,4 kw, einn sá besti á markaðinum.
• Lokið þolir 1000 kg.
• Öflugt Ozon hreiniskerfi fylgir öllum okkar pottum.
• Botninn eru úr trefjagleri, (rotnar eða fúnar ekki.)
• 100% músheldur.
• Opnanlegar aðgangslúgur frá öllum hliðum.
• Gegnheill cedrusviður.
• Lífstíðarábyrgð á skelinni, sem er úr trefjagleri.
• 5 ára ábyrgð á öllum mótorum, rafkerfi.
• 24 tíma öflugt hreinsikerfi.
Arctic Spas eru framleiddir í Kanada.
Þola -50 gráður frost og henta einstaklega vel
íslenskum aðstæðum.
Vissir þú að Arctic
Spas eru hvað
hagkæmastir í
rekstri af öllum
pottum framleiddum
í heiminum!!
TB
W
A\
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
\
S
ÍA
Komdu til okkar,
taktu með
eða borðaðu
á staðnum
Alltaf góð
ur!
Kjúklingastaðurinn
Suðurveri
Nú er
orðin
n stór