24 stundir - 09.05.2008, Page 19
24stundir FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2008 19
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Rafskutlur
-umhverfisvænn ferðamáti
FÉOGFRAMI
vidskipti@24stundir.is a
Hér á Spáni er nánast allt
kaffi blandað sykri við
brennsluna til að gera það
ódýrara.
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@24stundir.is
Þegar Kári Sverrisson og eiginkona
hans, Guðrún Þorgrímsdóttir,
héldu til Spánar fyrir tæpu ári til
þess að leita að húsi til að dvelja í
að sumarlagi fengu þau viðskipta-
hugmynd sem olli því að Spán-
ardvölin varð miklu lengri en fyr-
irhugað var. Þau komust nefnilega
að því að hvergi var hægt að fá
gott kaffi á kaffihúsum og sáu þess
vegna tækifæri til að bæta úr því.
„Hér á Spáni er nánast allt kaffi
blandað sykri við brennsluna til að
gera það ódýrara. Fyrirtækin hér
viðurkenna þetta. Þetta kaffi er
verra fyrir magann auk þess sem
bragðið verður annað. Spánverjar
eru hins vegar farnir að kynnast
alvörukaffi og eru hrifnari af því.
Sumir hafa hoppað hæð sína þeg-
ar við höfum greint frá því að við
ætlum að bjóða upp á vinsæla
kaffidrykki eins og til dæmis fra-
puccino, capuccino og latte. Hér
hefur til dæmis hvergi verið hægt
að fá frapuccino. Spánverjar eru 5
árum á eftir öðrum í kaffimenn-
ingunni. Þeir hafa ekki fengið
kennslu í því hvernig á að laga
kaffi á réttan hátt,“ segir Kári sem
um árabil hefur starfað hjá við-
skiptafyrirtækjum á Íslandi.
Mikil eftirvænting
Hann segir stefnt að því að
opna 2 til 3 kaffihús í Alicante á
þessu ári undir merkjum Te &
Kaffi sem mun eiga 20 prósent í
félaginu. „Við munum eiga 80
prósent í félaginu. Í náinni fram-
tíð geta svo Spánverjar keypt sér-
stakt leyfi til þess að opna kaffihús
undir okkar merkjum. Nú þegar
hafa ýmsir sýnt þessu áhuga. Við
vorum í 6 mánuði að leita að
hentugu húsnæði undir fyrsta
kaffihúsið hér í Alicante þar sem
við vildum vera miðsvæðis. Með-
an á leitinni stóð spurðist þetta út
og menn vildu fá okkur á fund
sinn til að ræða um möguleika á
samstarfi. Það ríkir mikil eftir-
vænting hér,“ greinir Kári frá.
Fyrsta kaffihúsið í Alicante und-
ir merkjum Te & Kaffi verður
opnað í júní. „Við munum bjóða
upp á ýmsar nýjungar í mat og
öðrum drykkjum. Við ætlum að
bjóða upp á alls konar samlokur
sem Spánverjar hafa ekki séð áður
og sushi-bakka,“ segir Kári.
Mikill uppgangur í Alicante
Mikill uppgangur er í Alicante,
að sögn Kára. „Hér er verið að
reisa niðri við sjóinn eitt stærsta
hótelið á Spáni fyrir viðskipta-
menn. Hér er stærsta kvikmynda-
verið í Evrópu. Verið er að þre-
falda stærð flugvallarins hér.
Ýmsar keðjur hafa verið opnaðar
hér að undanförnu og það hefur
um leið verið brjálað að gera.
Markaðurinn hér krefst þess að fá
eitthvað nýtt og meira.“
Kári og Guðrún ráðgera að
opna kaffihús í fleiri borgum
Spánar þegar fram líða stundir.
Flutningarnir á kaffi frá Íslandi til
Spánar verða þess vegna tíðir og
miklir. Að sögn Kára er gert ráð
fyrir að kaffið verði flutt með
skipum.
Opna kaffi-
hús á Spáni
Kaffihús undir merkjum Te & Kaffi opnað í Alicante
Í Alicante Kári Sverr-
isson segir Spánverja
bíða spennta eftir því að
fá alvörukaffi.
➤ Te & Kaffi kaupir kaffibaunirerlendis frá og ristar þær hér
á landi. Blandað er eftir eigin
uppskriftum, að sögn Hall-
dórs Guðmundssonar, sölu-
stjóra kaffihúsa fyrirtækisins.
KAFFIFRAMLEIÐSLAN
MARKAÐURINN Í GÆR
!""
!"#
$
%
&#
'()*+
'
,
-./.
0#1
2
345
#"
" 61
"(##
(7
81
!"# "
+9#/
'
01 - -
:
-
;#
1
-/
!
: -
0 -< =
$
'
>4?@>4>A@
3BBA5CC
55>?4@@@4
A?55?@CC
@@4@B4?D@
>5@5CC
>>>D?5A>@
@AABA@C>?
3>B33@@??
3@?A>BA
3A@3A3DC
>5>A35A44
,
3CAB@?CC
4A5CC
C
C
A>?B>D3
@?D@DBA
,
D@43D>B5
,
D433CCC
?DCDAA5
,
,
>CCA@ADCC
,
,
@E>4
33ECC
>CE@5
4E33
>4EB5
D>ECC
D>E45
@B5ECC
D@E35
BDEBC
AE43
>>E?3
3E5B
B5E@C
>EDB
4E@D
D3?E5C
>5@CECC
33>ECC
,
>A?E5C
,
DDECC
,
,
,
55A5ECC
>CECC
,
@ED4
33EA5
>CE?A
4EA3
>@ECC
D>E?C
D>E?C
@BBECC
D@E55
B3E?C
AE4@
>>E?@
3E4D
B4ECC
>E3>
4E@@
DA>E5C
>5?CECC
33@ECC
CE?5
>5DECC
,
D>E?C
@E35
,
,
55BCECC
,
4ECC
/
- A
D
D4
D>
A5
5
?
?>
34
A
>3
35
,
?
>
,
,
>3
>C
,
A4
,
5
>
,
,
@
,
,
F#
-#-
?5DCC?
?5DCC?
?5DCC?
?5DCC?
?5DCC?
?5DCC?
?5DCC?
?5DCC?
?5DCC?
?5DCC?
?5DCC?
?5DCC?
45DCC?
?5DCC?
?5DCC?
@5DCC?
3CADCC?
?5DCC?
?5DCC?
55DCC?
?5DCC?
>C3DCC?
?5DCC?
@5DCC?
4>DDCC@
DD?DCC@
?5DCC?
@5DCC?
@3DCC?
● Mest viðskipti í Kauphöll OMX
í gær voru með bréf Glitnis, fyrir
um 800 milljónir króna.
● Mesta hækkunin var á bréfum
Atlantic Petroleum, eða 3,35%.
Bréf Færeyjabanka hækkuðu um
2,04%.
● Mesta lækkunin var á bréfum
Exista, eða 1,81%. Bréf Eimskipa-
félagsins lækkuðu um 1,18% og
bréf Landsbankans um 1,08%.
● Úrvalsvísitalan lækkaði um
0,36% í gær og stóð í 4.923 stig-
um í lok dags.
● Íslenska krónan veiktist um
2,10% í gær.
● Samnorræna OMX40-
vísitalan hækkaði um 0,02% í
gær. Breska FTSE-vísitalan hækk-
aði um 0,16%, en þýska DAX-
vísitalan lækkaði um 0,06%.
Hrunið á spænska húsnæðismark-
aðnum er meðal annars sagt vera
vegna þess að margir geta ekki
greitt lánin sem þeir tóku fyrir
kaupum á fasteignum. Fast-
eignasalinn Heidi Ch. Bråteng,
sem selt hefur fasteignir við
strendur Spánar í yfir 20 ár, segir
fallið á markaðnum hafa verið allt
að 25 prósent á undanförnum
tveimur árum. „Það þýðir að möguleikar eru á að gera mjög góð kaup
ef maður er heppinn,“ segir fasteignasalinn í viðtali á vefsíðunni aften-
posten.no. Sem dæmi nefnir hann að íbúðir sem kostuðu 400 þúsund
evrur fyrir 18 mánuðum kosti nú 300 þúsund evrur. Mesta verðhrunið
hefur verið inni í landinu þótt það hafi reyndar fallið á sumum stöðum
við strandlengjuna, að því er haft er eftir fasteignasalanum Agnar D.
Carlsen. Hann bendir þeim sem vilja fjárfesta í fasteign á Spáni á að
auðveldast sé að leigja út fasteignir sem eru við golfvelli. ibs
Markaður kaupenda
Fasteignajöfurinn Michael Ezra
frá Úganda í Afríku gekk nýlega
frá kaupum á Airbus A380 far-
þegaþotu sem hann ætlar að hafa
til einkanota, að því er greint er
frá á vefsíðu Daily Monitor.
Gert er ráð fyrir að flugvélin
verði tilbúin til afhendingar árið
2010 og muni kosta 410 milljónir
dollara eftir að hún hefur verið
innréttuð að þörfum kaupand-
ans. Greint er frá því að í flugvél-
inni verði skrifstofur, ráð-
stefnusalur, karókísalur, bíósalur,
fjögur svefnherbergi og heilsu-
lind. Í því rými sem farangur er
venjulega geymdur í verður rými
fyrir starfsmenn og þrjá bíla.
Ezra, sem er 34 ára, er annar ein-
staklingurinn sem ætlar að nota
A380 sem einkavél. Hinn er
prinsinn Al Waleed Bin Talal frá
Sádi-Arabíu. ibs
Airbus A380
til einkanota
Heimsmarkaðsverð á olíu náði
sögulegu hámarki í gær þegar
tunnan kostaði tæpa 124 dali.
Hækkunin kom þrátt fyrir
óvæntar fréttir af því að birgðir
Bandaríkjamanna væru meiri en
áður var haldið. Olíuverð hefur
hækkað um 25% frá ársbyrjun og
hafa sérfræðingar spáð því að
verðið kunni að hækka í 200 dali
á tunnu innan skamms. aí
Olíutunnan nærri
124 dölum
Birkir Hólm Guðnason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Ice-
landair. Birkir hefur starfað hjá félaginu um árabil, nú síðast sem
svæðisstjóri þess á Norðurlöndum, með aðsetur í Kaupmannahöfn. Í
fréttatilkynningu segir að Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair
Group, hafi að undanförnu einnig stýrt Icelandair, en láti nú af því
starfi til að einbeita sér að stjórnun Icelandair Group.
Nýr framkvæmdastjóri hefur einnig verið ráðinn hjá Icelandair Cargo,
Gunnar Már Sigurfinnsson, en hann tekur við starfinu af Pétri J. Ei-
ríkssyni. Gunnar Már hefur verið framkvæmdastjóri sölu- og mark-
aðssviðs Icelandair undanfarin þrjú ár, en við því starfi tekur Helgi
Már Björgvinsson. Þá hafa Árni Hermannsson og Erlendur Svavarsson
verið ráðnir framkvæmdastjórar á sviði leiguflugs og flugvélaviðskipta
hjá Icelandair Group. aí
Miklar hræringar hjá Icelandair
Hagnaður japanska bílarisans
Toyota dróst saman um 28% á
fyrsta ársfjórðungi. Hagnaðurinn
nam 316,8 milljörðum jena, jafn-
virði 232 milljörðum króna, sam-
anborið við 440,1 milljarð jena á
fyrsta ársfjórðungi í fyrra. aí
Minni hagnaður