24 stundir - 09.05.2008, Qupperneq 24
24 FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2008 24stundir
Eftir Sigurð Boga Sævarsson
sigbogi@simnet.is
„Við ætlum í loftið með vef þar
sem borgararnir geta fengið flesta
þá þjónustu sem er í boði á næstu
lögreglustöð. Þar má sem dæmi
nefna umsóknir á leyfum s.s. til
skemmtanahalds og fleira. Þetta
er framtíðin; í löndunum í kring-
um okkur er þjónusta lögreglu
mjög að þróast í þessa átt,“ segir
Jónas Ingi Pétursson, fram-
kvæmdastjóri rekstrar hjá rík-
islögreglustjóra.
Vettvangur fyrir ábendingar
Allmörg ár eru síðan vefsetrið
www.logreglan.is var sett upp. Þar
má nálgast fréttir, ýmsar almenn-
ar upplýsingar og ýmis eyðublöð
fyrir þau leyfi sem lögreglan sér
um útgáfu á. „Nú þarf að uppfæra
þennan vef, enda eru möguleikar
hans býsna takmarkaðir miðað
við hvað nú eru gerðar kröfur
um,“ segir Jónas.
Meðal þess sem verður á hinum
nýja vef verður sérstök gátt þar
sem fólk getur komið á framfæri
málum sem lögreglunni ber að
hafa umsjón með eða afskipti af.
„Við hugsum þetta sem vettvang
borgaranna til að koma með
ábendingar um hugsanleg lögbrot
eða annað. Í dag koma margir
ábendingum á framfæri til dæmis
með því að senda tölvupóst til
einstakra lögreglumanna eða
hringja í fíkniefnasímann eða 112.
Vefurinn getur einnig nýst mjög
vel sem gátt fyrir ábendingar til
lögreglunnar,“ segir Jónas.
Hann bætir við að einnig sé
ætlunin sú að almenningur geti í
fyllingu tímans nálgast á vefsetr-
inu upplýsingar um sig og sitt;
svo sem færslur í upplýsingar um
eigin ökuferil eða aðrar skráðar
upplýsingar hjá lögreglu. Í þessu
sambandi sé þó mikilvægt að öll-
um öryggisatriðum sé fullnægt og
þar séu rafræn persónuskilríki,
sem væntanleg eru í sumar, lyk-
ilatriði.
Lögin á netinu
Netið er heill heimur út af fyrir
sig. Þar - ekki síður en í raun-
heimum - er mikilvægt að fylgt sé
skráðum sem óskráðum lögum.
Bendir Jónas þar meðal annars á
Noreg en þar hafa lögreglumenn
vaktað fjölsóttar spjallrásir með
tilliti til þess hvort þar séu barna-
níðingar eða aðrir slíkir á sveimi.
Þá starfrækir ítalska lögreglan
stöð sem hvergi er til nema á net-
inu og hefur það verkefni fengið
sérstaka viðurkenningu Evrópu-
sambandsins. Til þessa og margs
fleira sé horft í netmálum íslensku
lögreglunnar þar sem þjónusta
við borgarana er útgangspunktur.
Nýtt vefsetur lögreglunnar í smíðum
Þjónustan er
útgangspunktur
➤ Gagnvirkur vefur lögregl-unnar í hönnun.
➤ Vettvangur fyrir ábendingarog upplýsingar um ökuferil.
➤ Leita fyrirmynda hjá netlögg-um ytra.
NÝR LÖGREGLUVEFURAlmenningi opnast fjöl-
margir möguleikar til
gagnvirkra samskipta á
nýju vefsetri lögregl-
unnar sem tekið verður í
notkun síðar á þessu ári.
Mynd/sbs
Góð þjónusta „Geta fengið flesta þá
þjónustu sem er í boði á næstu lög-
reglustöð,“ segir Jónas Ingi Pét-
ursson, framkvæmdastjóri rekstrar hjá
ríkislögreglustjóra.
Neyðarvegabréf skulu því aðeins
gefin út að umsækjandi hafi ekki
getað nýtt sér hraðafgreiðslu við
útgáfu almenns vegabréfs.
Hafa ber hugfast að neyð-
arvegabréf eru ekki ákjósanlegustu
ferðaskilríki sem völ er á og duga
engan veginn sem fullgild skilríki
til langdvalar erlendis.
Tollgæslan í Flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar, sýslumenn, íslensk
sendiráð og ræðismenn Íslands er-
lendis annast útgáfu á neyð-
arvegabréfum. Neyðarvegabréf
gilda aldrei lengur en í 12 mánuði.
Handhafa neyðarvegabréfs ber að
skila því til lögreglu við komu til
landsins. Umsækjendum er bent á
að hafa meðferðis tvær myndir og
að ætla sér góðan tíma ef sækja á
um neyðarvegabréf við brottför frá
landinu.
Nánari upplýsingar veitir Toll-
gæslan í síma 425-0659 allan sólar-
hringinn.
Unnt er að framlengja vegabréf
sem nýlega hefur runnið út, þó
ekki lengur en svo að uppruna-
legur gildistími þess framlengist
um eitt ár. Sýslumenn og íslenskar
sendistofnanir erlendis annast
þessa þjónustu umsækjendum að
kostnaðarlausu á auglýstum af-
greiðslutíma.
Standi valið milli þess að fram-
lengja eldra vegabréf eða gefa út
neyðarvegabréf skal eldra vegabréf
framlengt.
Af vefnum logreglan.is
Neyðarvegabréf er mögulegt
Gilt vegabréf Til að forðast
vandræði er best að athuga
vegabréfið sitt í tíma áður en
haldið er til útlanda.
Eftir Sigurð Boga Sævarsson
sigbogi@simnet.is
Rafrænu skilríkin verða á debet-
kortum og verða notuð til auð-
kenningar og rafrænna undir-
skrifta, t.d. í heimabönkum, í
samskiptum við skattayfirvöld, á
rafrænum spjallrásum, í rafrænum
viðskiptum og fleira en möguleikar
með notkun slíkra skilríkja eru
margvíslegir. Útfærslan á útgáfu
skilríkjanna rafrænu er sú að á
hverju debetkorti verður komið
fyrir örgjörva sem geymir m.a.
skilríki með upplýsingum um
hlutaðeigandi aðila eða ein-
stakling, rétt eins og önnur skilríki.
Með því að leggja kortið í kortales-
ara, sem tengdur verður t.d. við
heimilistölvu, má nálgast ýmsa
þjónustu sem er að finna eða verð-
ur að finna á netinu en væri að
öðru leyti lokað fyrir.
Sá sem þú segist vera
„Fyrstu rafrænu skilríkin á de-
betkorti verða gefin út í sumar og
svo fer þetta verkefni á fullt skrið
með haustinu,“ segir Angantýr
Einarsson, skrifstofustjóri rekstrar-
og upplýsingaskrifstofu fjár-
málaráðuneytisins. Hlutverk ráðu-
neytisins í verkefninu er meðal
annars að byggja upp traust og
tryggja öryggi við útgáfu skilríkja.
„Það sem hér hangir á spýtunni
er að auðvelda aðgengi að rafræn-
um upplýsingum, stuðla að örugg-
um samskiptum og gera fyr-
irtækjum og einstaklingum kleift
að skrifa undir ýmsa gjörninga
með rafrænum hætti,“ segir Ang-
antýr. „Samskiptin þurfa að vera
örugg, rekjanleg og tryggja þarf
heilleika gagna, svo ekki sé hægt að
efast um að þú sért sá sem þú seg-
ist vera eða að upplýsingum sé
breytt í meðhöndlun aðila án þess
að þær séu rekjanlegar.
Þróunin er hröð
Íslendingar taka virkan þátt í
hinni rafrænu stjórnsýslu. Má í því
sambandi benda á að nú fylla út og
skila um 90% landsmanna skatt-
framtölum sínum á netinu og er
það hlutfall hvergi hærra. Þá fara
samskipti almennings og sveitarfé-
laganna stöðugt vaxandi. Má þar
nefna að margir nota sér þjón-
ustugáttina rafræna Reykjavík á
vefsetri borgarinnar.
Nokkuð er síðan útgáfa raf-
rænna skilríkja hófst í Eistlandi.
„Reynsla Eista á þessu sviði er af-
skaplega góð og þróunin er mjög
hröð,“ segir Angantýr sem vonast
til að tækniframfarir í rafrænum
samskiptum opni enn fleiri mögu-
leika en nú eru til staðar. Tækni
dagsins í dag bjóði upp á gagnvirk
samskipti til dæmis við skatta-
yfirvöld og heimabanka. Gangi allt
að óskum verði almenningi þó
væntanlega mögulegt að nálgast
þjónustu sýslumanna, Trygg-
ingastofnunar og hugsanlega heil-
brigðisstofnana en það sé þó und-
irorpið því að persónuöryggi og
rekjanleiki í öllum samskiptum séu
að fullu tryggð.
Rafræn skilríki „Auðvelda að-
gengi að rafrænum upplýsingum,“
segir Angantýr Einarsson, skrif-
stofustjóri í fjármálaráðuneytinu.
Útgáfa rafrænna skilríkja hefst í sumar
Stuðla að öruggum
samskiptum
Útgáfa rafrænna skilríkja,
sem gilda munu í rafræn-
um samskiptum almenn-
ings, fyrirtækja og stofn-
ana, hefst í sumar. Um er
ræða samstarf fjár-
málaráðuneytis og banka
og sparisjóða.
➤ Rafræn skilríki verða á debet-kortum og notuð til auðkenn-
ingar. Örgjafi í hverju korti.
➤ Skrifa undir ýmsa gjörningameð rafrænum hætti.
RAFRÆN SKILRÍKI
Á vefnum logreglan.is er hægt
að fræðast um sektir við umferð-
arlagabrotum og punktamissi. Á
vefnum segir: Umferðarpunktar
eru viðurlög við umferðarlaga-
brotum. Þetta á ekki við um öll
umferðarlagabrot, heldur eru tínd
til þau brot, sem varða öryggi í
umferðinni.Veittir eru 1 til 4 um-
ferðarpunktar fyrir brot, allt eftir
eðli þess. Flestir umferðarpunktar
eru fyrir akstur gegn rauðu ljósi og
ofsaakstur eða 4 talsins. Umferð-
arpunktar eru óstaðfestir í upphafi,
eða þar til lögreglan telur umferð-
arlagabrot sannað og stofnað hefur
verið mál í málaskrá lögreglu
vegna þess. Lögreglustjóri á síðan
nokkra kosti á að ljúka málinu.
Hann getur boðið þeim brotlega
upp á að ljúka málinu með
greiðslu sektarboðs í formi
greiðsluseðils, sent sektargerð og
boðið þeim brotlega upp á að við-
urkenna brot sitt og samþykkja
viðurlög með nafnritun sinni eða
hann getur gefið út ákæru. Um-
ferðarpunktar hafa ekki vægi fyrr
en þeir eru staðfestir.
Sjá nánar á vef lögreglunnar,
logregla.is.
Umferðarpunktar
Ekki fara yfir á rauðu