24 stundir - 09.05.2008, Qupperneq 28
28 FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2008 24stundir
Eftir Sigurð Boga Sævarsson
sigbogi@simnet.is
„Okkar stefna er sú að innan fjög-
urra ára geti fólk nálgast alla þjón-
ustu Tryggingastofnunar rafrænt,
ef því hentar svo,“ segir Bragi L.
Hauksson, verkefnastjóri raf-
rænnar stjórnsýslu hjá TR. Trygg-
ur, þjónustuvefurinn nýi, mun
bjóða upp á þann möguleika að
hægt verði að senda inn hvers
kyns umsóknir og fá mál afgreidd
þannig. Einnig á fólk að geta
skoðað gögn og stöðu sinna mála
á vettvangi TR.
Smalar saman gögnum
„Tryggur, líkt og traustur fjár-
hundur, mun þegar fram líða
stundir einnig smala saman öllum
gögnum og samskiptum viðkom-
andi við TR. Lykilatriðið er þó að
fólk hefur val. Áfram verður hægt
að fá þjónustu með því að mæta á
afgreiðslustaði stofnunarinnar
enda þótt rafræn þjónusta ætti að
vera besti kosturinn fyrir stærstan
hluta viðskiptavina,“ segir Bragi
og bætir við að rafræn skilríki
muni létta og efla rafræna stjórn-
sýslu. Lítil útbreiðsla þeirra hafi
þó allt of lengi verið notuð sem
afsökun fyrir slælegri frammi-
stöðu stofnana við að bjóða við-
skiptavinum þjónustu yfir netið.
Margt sé hægt að gera án raf-
rænna skilríkja og þar sé þjónusta
skattkerfisins gleggsta dæmið.
„Auðkenning inn á Trygg verð-
ur til að mynda í samvinnu við
forsætisráðuneytið og vefsetrið
island.is og ríkisskattstjóra.
Fólk mun geta auðkennt sig með
sama veflykli og það nýtir við
skattframtal en um leið og al-
menn dreifing rafrænna skilríkja á
debetkortum hefst verður einnig
boðið upp á auðkenningu með
þeim hætti. Rafræn undirskrift
með rafrænum skilríkjum getur
verið mikilvæg í sumum tilvikum
en undirritun með veflykli er oft
nægjanleg, þótt hún hafi ekki
óhrekjanleika undirskriftar með
rafrænum skilríkjum.“
Ábendingar og stuðningur
TR er með öflugan upplýs-
ingavef en möguleikar hans til
gagnvirkra samskipta eru litlir.
Hægt er að sækja um Evrópska
sjúkratryggingakortið á vefnum
og apótek hafa um árabil getað
sent lyfseðla rafrænt til TR og
sjúkraþjálfarar reikninga sína. Nú
verður hins vegar gerð bragarbót á
sem ætti að geta leyst úr mörgum
flækjum. Í dag þurfa lífeyrisþegar
til dæmis að senda inn á pappír
tekjuáætlanir sem bótagreiðslur
þeirra reiknast út frá, séu drög
sem send eru út ekki rétt. Nú
munu lífeyrisþegar geta sent þess-
ar áætlanir beint yfir netið og
njóta ábendinga og stuðnings þar.
Áætlun og útreikningur strax
„Ef viðskiptavinir eru með
aukatekjur sem hafa áhrif á
greiðslur þá sjá þeir áhrifin strax
með bráðabirgðaútreikningi sem
hægt er að fá hvenær sem er við
útfyllingu tekjuáætlunar,“ segir
Bragi og heldur áfram:
„Þá getur fólk gert sín plön í
samræmi við útreikning og sent
nýja áætlun ef aðstæður breytast.
Von okkar hjá TR er sú, að þetta
geti dregið úr því að greiðslur til
viðskiptavina okkar séu of eða
van. Sjaldnar komi til þess að fólk
fái bakreikninga vegna of-
greiðslna. Þá ætti nýr vefur sömu-
leiðis að geta dregið úr papp-
írsvafstri. Hluti upplýsinga frá
heilbrigðisstofnunum sem skipta
máli vegna afsláttarkorta berst nú
þegar rafrænt til TR og unnið er
að því að þétta það enn frekar.
Allar upplýsingar um viðkomandi
sem streyma til okkar, til dæmis í
formi kvittana, verða í framtíð-
inni aðgengilegar fyrir við-
skiptavini á Trygg. Þjónusta og
persónuvernd togast oft á, en það
má hugsa sér að viðskiptavinur
geti einnig að einhverju marki
stýrt aðgangi heilbrigðisstarfs-
manna að gögnum um sig. Gögn-
in sjálf þurfa ekki endilega að vera
á einhverju korti, en gætu verið
aðgengileg í krafti rafrænna skil-
ríkja yfir netið.“
Barnabörnin hjálpa
Tölvuþekking fólks er misjöfn
og nýting rafrænnar þjónustu
markast vitanlega af því. Bragi
Hauksson segir kannanir sýna að
tölvulæsi viðskiptavina TR sé
nokkru lakara en gengur og gerist,
en starfsfólk stofnunarinnar mun
standa þétt við bakið á við-
skiptavinum og aðstoða þá. Tím-
inn vinni sömuleiðis með þróun-
inni
„Fyrir nokkrum árum hefði ég
helst haft áhyggjur af þeim elstu,
en reynsla mín úr starfi hjá rík-
isskattstjóra segir mér að eldra
fólk tileinkar sér tæknina býsna
hratt og þá gjarnan með aðstoð til
dæmis barnabarnanna og nú skila
90% landsmanna framtali sínu á
netinu. Með vel uppbyggðum
þjónustuvef TR með góðu að-
gengi fyrir fatlaða verður sömu-
leiðis mun auðveldara að gera
hlutina rafrænt en á pappír og all-
ar leiðbeiningar eru skýrari. Auð-
vitað munu alltaf einhverjir vilja
koma á afgreiðslustað og því fólki
höfum við betri tök og tíma til að
sinna þegar þeim fjölgar sem nýta
sér hin rafrænu þægindi.“
Rafræn stjórnsýsla í þróun hjá TR
Tryggur boðar
bragarbót
➤ Öll þjónusta rafræn innanfjögurra ára.
➤ Áhrif aukatekna sjáist strax.
➤ Allar upplýsingar aðgengilegar.
FRAMTÍÐINMikil þróunarvinna á
sviði rafrænnar stjórn-
sýslu og gagnvirkra sam-
skipta á sér stað hjá
Tryggingastofnun rík-
isins. Nýr þjónustuvefur
fer í loftið á næstunni.
Kristjana Guðbrandsdóttir
dista@24stundir.is
Rafræn Reykjavík er einkasvæði
íbúa á vef Reykjavíkurborgar
(www.reykjavik.is) þar sem hægt er
að sækja um þjónustu borgarinnar.
Rafræn Reykjavík hefur verið frá
árinu 2004 og er nú í fararbroddi
varðandi rafræna stjórnsýslu hér á
landi. Á vefsvæðinu Rafræn
Reykjavík er hægt að sækja um
byggingarleyfi, leikskólapláss,
ferðastyrk í gegnum Reykjavík
Loftbrú og eignaskiptayfirlýsingu,
svo nokkrar umsóknir séu nefndar.
Fjórar umsóknanna eru algagn-
virkar. Það eru umsóknir um
grunnskóla, tónlistarskóla, frí-
stundaheimili og sumarstörf hjá
Vinnumiðlun ungs fólks.
20.000 manns á mínum síðum
Íbúar geta skráð sig inn í Raf-
rænu Reykjavík, fyllt út umsókn
rafrænt og fylgst með afgreiðslu
hennar. Með því að fara inn á
„mínar síður“ er hægt að sjá stöðu
mála og fylgjast með skilaboðum
sem eru send út þegar staða um-
sóknar breytist.
„Í dag eru rúmlega 20.000 borg-
arbúar með aðgang að mínum síð-
um og fer ört fjölgandi,“ segir Álf-
heiður. „Reynsla af Rafrænni
Reykjavík er afar góð og greinilegt
að fólk er ánægt með þjónustuna
því eftirspurn er eftir aukinni vef-
þjónustu sem við munum verða
við. Við höfum brennandi áhuga á
því að halda áfram að efla og bæta
rafræna þjónustu því við skiljum
hversu mikið hagræði borgarbúar
hafa af því. Allir hagnast á sjálfs-
afgreiðslu á vef.“
Sterkur vilji
„Viljinn er mikill innan borg-
arinnar til að vera í fremstu röð
hvað varðar sjálfsafgreiðslu íbúa og
við höldum áfram að auka fram-
boð á slíkri þjónustu,“ segir Álf-
heiður og bætir við að auðvitað
séu hindranir í veginum sem þurfi
að leysa hið snarasta. „Við lítum á
öll þessi vandamál sem tækifæri og
ætlum okkur að leysa þau til hags-
bóta fyrir alla. Við getum til dæmis
nefnt að við eigum enga haldbæra
lausn til þegar þörf er á fleiri en
einni rafrænni undirskrift. Þá þarf
að greiða úr ýmiss konar flækjum
er varða tengingar og samstarf við
fyrirtæki og stofnanir.“
Mörg spennandi verkefni
Álfheiður segir verkefnin ótal-
mörg, lítil og stór. „Í haust verður
til að mynda opnað fyrir fyr-
irtækjaaðgang í Rafrænni Reykja-
vík sem þýðir að fyrirtæki geta sótt
um þjónustu, greitt reikninga og
fylgst með afgreiðslu mála er varða
þau. Þá er öll fyrirgreiðsla um frí-
stundakortin komin á vefsvæðið
auk þess sem borgarbúar geta
nálgast upplýsingar um fast-
eignagjöld og greitt þau. Þá viljum
við auka notkun smáskilaboða í
tengslum við ýmiss konar þjón-
ustu. Við gerðum tilraun með
notkun þeirra á einni þjónustu-
miðstöðinni hér í borg þar sem
minnt var á tímapantanir. Afföllin
minnkuðu við það um 30% sem
sýnir hagræðið sem skapast af
þjónustunni. Þau verkefni sem hér
hafa verið nefnd og önnur sem eru
í smíðum munu efla Rafræna
Reykjavík enn frekar, íbúar borg-
arinnar fá aukinn aðgang að þjón-
ustu borgarinnar og finna fyrir því
að hún sé skilvirk, á sama tíma
eykst hagkvæmni í rekstri borg-
arinnar,“ segir Álfheiður.
Þrenns konar aðgengi
Álfheiður segir að Reykjavík-
urborg leggi áherslu á að greiða
götu viðskiptavina að þjónustu
með þrenns konar aðgengi. Í fyrsta
lagi með þjónustumiðstöðvum í
hverfum borgarinnar. Í öðru lagi
veitir Símaverið 4 11 11 11 upplýs-
ingar og gefur samband við öll svið
borgarinnar. Þriðja leiðin að þjón-
ustu Reykjavíkurborgar er Rafræna
Reykjavík og þar er að finna allar
helstu umsóknir um þjónustu. „Að
sjálfsögðu erum við í stöðugri
framþróun,“ bætir Álfheiður við
að lokum.
Góð reynsla af Rafrænni Reykjavík
Í einum smelli
„Sérstaða Rafrænnar
Reykjavíkur felst í um-
fangi þjónustunnar og sí-
aukinni áherslu á sjálf-
virkni og
sjálfsafgreiðslu,“ segir
Álfheiður Eymarsdóttir
hjá Reykjavíkurborg.
➤ Á www.reykjavik.is er mestumferð um vefsvæði mennta-
og leikskólasviðs og ÍTR.
➤ Þá er mikil umferð um störf íboði á vegum borgarinnar og
nýtt vefsvæði 1, 2 og Reykja-
vík er töluvert heimsótt.
MEST SKOÐAÐ: