24 stundir - 09.05.2008, Page 32

24 stundir - 09.05.2008, Page 32
32 FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2008 24stundir Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur dista@24stundir.is „Þetta er í þriðja sinn sem við mörkum stefnu um upplýsinga- samfélagið,“ segir Guðbjörg. „Ís- lendingar eru í röð fremstu þjóða í flestum ef ekki öllum öðrum þáttum upplýsingatækninnar að undanskilinni rafrænni þjónustu. Hér á landi býr þjóð sem er mjög áhugasöm um að nota upplýsingatæknina og þar sem mæld er notkun á upplýs- ingatækni, notkun á tölvum og interneti eru Íslendingar alltaf í efstu sætum. Hins vegar er stað- an önnur þegar mælt er framboð á rafrænni þjónustu og nýtingu upplýsingatækni því þar situm við eftir. Í þessu felast tækifæri og Íslendingar hafa alla mögu- leika á að verða fremstir þjóða í rafrænni þjónustu og nýtingu upplýsingatækni,“ segir Guðbjörg um stöðu Íslands miðað við aðr- ar þjóðir. Sjálfsafgreiðsla „Það sem er nýtt í stefnunni og greinir hana frá fyrri stefnum er þessi megináhersla á að stór- auka framboð á þjónustu op- inberra aðila við almenning og fyrirtæki á netinu. Um leið er tekið á þáttum sem draga Íslend- inga niður í könnunum sem hafa sýnt að Íslendingar standa öðrum þjóðum að baki hvað varðar raf- ræna þjónustu. Kjarninn í þessari stefnu er að stórauka framboð á rafrænni þjónustu og gera fólki kleift að afgreiða sig sjálft þar sem það er mögulegt. Því fylgir mikil hag- ræðing, bæði fyrir almenning og ekki síður fyrir fyrirtækin í land- inu.“ Stórtækur aðgerðalisti Guðbjörg segir stefnuna byggja á þremur stoðum, þjónustu, skil- virkni og framþróun. „Hverri stoð fylgja markmið og aðgerðalisti en ráðist verður í 65 aðgerðir á framkvæmdatíma stefnunnar. Stærstur hluti þessara aðgerða snýr að sjálfsafgreiðslu á netinu. Sem dæmi um aðgerðir má nefna að hjá Þjóðskrá verður hægt að skrá búferlaflutninga á netinu, sækja um fæðingarvott- orð og hjúskaparstöðuvottorð. Þá má einnig nefna ýmiss konar umsóknir, til dæmis um fæð- ingar- og foreldraorlof, atvinnu- leysisbætur og flesta þá þjónustu sem almenningur og fyrirtæki sækja til ríkisins og hægt er að veita gegnum netið. Þá hefur einnig verið settur upp aðgerðalisti vegna netmið- stöðvarinnar island.is, upplýs- ingaþjónustu þar sem til dæmis verður minnt á endurnýjun skil- ríkja og margt fleira og aðgerðir er taka til aukinna gæða fyrir netborgarann.“ Hvað er nýtt í stefnunni um upplýsingasamfélagið? Stóraukið framboð á rafrænni þjónustu ➤ Tilkynning um búferlaflutn-inga innanlands, fæðing- arvottorð, hjúskaparstöðu- vottorð, ásamt annarri þjónustu Þjóðskrár. ➤ Umsóknir vegna atvinnuleys-isbóta, fæðingar- og for- eldraorlofs. ➤ Umsóknir um byggingarleyfi. Þinglýsingar, veðbókarvott- orð og fleira. DÆMI UM ÞJÓNUSTU: „Stefnan Netríkið Ísland er hnitmiðaðri en fyrri stefnur,“ segir Guðbjörg Sigurðardóttir, skrif- stofustjóri upplýsinga- samfélagsins í forsæt- isráðuneyti og formaður nefndar um mótun nýrrar stefnu um upplýsinga- samfélagið. Stórtækur aðgerðalisti Guðbjörg segir frá því hvað ný stefna um upplýsinga- samfélag inniheldur um- fram fyrri stefnur. 24stundir/G.Rúnar Það er að mörgu að huga þegar flutt er á milli landa og það getur verið erfitt að átta sig á hvert er best að leita. Þessi leit getur verið sérstaklega flókin ef tungumála- kunnáttan er lítil sem engin. Félags- og tryggingamálaráðu- neytið hefur látið útbúa bækling- inn Fyrstu skrefin en markmið hans er að veita innflytjendum allar nauðsynlegar upplýsingar um íslenskt samfélag strax við komuna til landsins. Bæklinginn má finna á heimasíðu félags- og tryggingamálaráðuneytisins. Bæklingurinn er þýddur á níu tungumál en textinn er ævinlega birtur bæði á íslensku og hinu er- lenda tungumáli. Með þeim hætti getur hann nýst starfsfólki sem vinnur með innflytjendum við að kynna þeim íslenskt samfélag. Á sama hátt hefur útlendingurinn alltaf íslenska textann til hliðar þegar hann kynnir sér bæklinginn á hinu erlenda tungumáli. Tungumálin níu sem finna má í bæklingnum eru enska, pólska, litháíska, víetnamska, rússneska, taílenska, þýska, spænska og serb- neska. Bæklingurinn er án vafa mjög mikilvægur fyrir alla innflytj- endur enda er þar fjallað um það sem mikilvægast er að huga að við komuna til landsins, svo sem kennitölu, dvalarleyfi, atvinnu- leyfi, lögheimili, skattkort og tryggingar. Einnig er almennum réttindum og skyldum á Íslandi lýst, greint frá félagsþjónustu, heilsugæslu, húsnæði, skólakerf- inu og íslenskukennslu. Í bækl- ingnum má líka finna heim- ilisföng, símanúmer og netföng helstu stofnana sem tengjast mál- efnum innflytjenda og yfirlit yfir helstu hjálparsamtök þegar eitt- hvað bjátar á. svanhvit@24stundir.is Upplýsingar fyrir innflytjendur Fyrstu skrefin í nýju landi Upplýsingar Fyrstu skrefin í nýju landi geta verið erfið og því gott að hafa bækling sér til upplýsingar. Vefsíðan www.netoryggi.is hef- ur það að markmiði að kynna netnotendum örugga notkun netsins. Á síðunni má til að mynda finna 10 góð ráð er stuðla að áhyggjulausri netnotkun. Um leið og tölvan hefur verið tengd við netið, er notandinn kominn út í heim þar sem óhöpp og óþægindi geta orðið ef notk- unin er óvarleg. Netnotandinn og aðrir verða að hafa ákveðnar reglur í heiðri til að forðast óhöpp og misnotkun. Þú losnar við allskonar óþægindi með til- litssemi og aðgætni. 10 góð ráð -Sýndu öðrum tillitssemi og kurteisi á netinu. -Ekki vinna á vélinni yfirleitt sem stjórnandi (administrator), heldur sem notandi (user). Spilli- forrit (veirur, ormar o.s.frv.) eiga greiðan aðgang að öllu í tölvunni gegnum stjórnandann. -Þú ert á hættusvæði ef þú ert að leita að ólöglegri tónlist, myndefni, leikjum eða klámi. Hnappar í vafasömum spretti- gluggum (pop-ups) geta virkjað allt annað. Lokaðu þeim ætíð með X-hnappinum efst til hægri. -Gefðu aldrei upp viðkvæmar upplýsingar skv. fyrirmælum í tölvupósti, s.s. kreditkortanúmer. -Ekki gefa upp netfangið þitt til ókunnugra. Notaðu aukanet- fang sem má skipta um ef rusl- póstur fer að berast. -Ekki opna þau fylgiskjöl (at- tachments) í tölvupósti sem þú baðst ekki um. -Taktu reglulega öryggisafrit af tölvugögnum, svo sem fjöl- skyldumyndum, og geymdu á öruggum stað. -Uppfærðu stýrikerfið (Wind- ows Update) reglulega, svo og annan hugbúnað, s.s. vefsjá og veiruvarnir. -Notaðu alltaf áhrifaríka eld- veggi og öflugar varnir gegn spilli- forritum. dista@24stundir.is Á vefsíðunni netoryggi.is má finna góð ráð 10 góð ráð um netnotkun Árlega auglýsir utanríkisráðu- neytið eftir almennum starfs- nemum í starfsþjálfun. Starfsþjálf- unin fer að öllu leyti fram hjá sendiráðum og fastanefndum Ís- lands erlendis og stendur yfir í um sex mánuði. Markmiðið er að gefa ungu fólki sem er að hefja starfs- feril sinn færi á að kynnast störfum utanríkisþjónustunnar en frekari upplýsingar má finna á heimasíðu utanríkisráðuneytisins. Starfsnemar í starfsþjálfun Árið 1997 var tekið upp refsi- punktakerfi á Íslandi en slíkt kerfi hafði reynst mjög vel meðal ann- arra þjóða. Kerfið gerir ráð fyrir að þeir brotlegu í umferðinni safni refsipunktum en utan þess þarf fólk að greiða ákveðna sekt. Á síð- unni www.us.is/id/3971 er hægt að reikna út sekt fyrir hraðakstur og ölvunarakstur en vitanlega ættu allir að keyra varlega og fylgja lög- um í umferðinni. Sektir og viðurlög Ákveðið hefur verið að bjóða upp á umræðu á vef samgöngu- ráðuneytisins. Þar verða kynnt mál sem eru til umfjöllunar í ráðuneyt- inu og leitast við að fá fram við- brögð einstaklinga sem og hags- munaaðila. Er þetta gert í því skyni að fá viðbrögð við málum sem eru nánast á hugmyndastigi áður en frekari vinna er lögð í málin. Við- brögð eru send á netfangið: post- ur@sam.stjr.is. Umræða um samgöngur

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.