24 stundir - 09.05.2008, Síða 42
42 FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2008 24stundir
Eftir Sigurð Boga Sævarsson
sigbogi@simnet.is
Þjónustumöguleikarnir verða fjöl-
margir. Með því að slá inn kenni-
tölu getur fólk fengið uppgefið til
hvaða heilsugæslustöðvar því beri
að leita og bókað tíma þar eða hjá
sérfræðilæknum. Þá munu not-
endur geta talað við hjúkr-
unarfræðinga í netspjalli og fengið
leiðbeiningar eða góð ráð. Margt
fleira má nefna.
„Markmiðið með upplýsinga-
miðstöð heilbrigðismála er að gefa
almenningi kost á að fá á einum
stað upplýsingar um framboð
þjónustu og fyrsta mat á því hvort
veikindi séu alvarlegs eðlis eða
ekki, með samskiptum við hjúkr-
unarfræðing í gegnum síma eða í
gegnum netspjall. Við höfum að
leiðarljósi það markmið ráðuneyt-
isins að auka þjónustu við almenn-
ing og erum meðal annars í sam-
starfi við heilsugæslustöðina í
Glæsibæ í Reykjavík sem starfrækir
sérstakan upplýsingasíma,“ segir
Gunnar Alexander Ólafsson, sér-
fræðingur í heilbrigðisráðuneytinu.
Auðvelda aðgengi
Áformað er að upplýsinga-
miðstöðin verði komin í gang fyrir
lok næsta ár, gangi áætlanir ráðu-
neytisins eftir. Starfsfólk heilbrigð-
isráðuneytis hefur lagt línurnar
varðandi vefsetrið og er gert ráð
fyrir því að í haust hefjist vinna við
þróun þess. „Bæði á fólk að geta
fundið upplýsingar um þjónustu
heilsugæslu og svo fikrað sig áfram
eftir annarri þjónustu. Gefum okk-
ur til dæmis að þú þurfir aðgerð á
hné. Þá gætir þú á vefsetrinu fund-
ið alla þá sérfræðinga sem annast
slíkar aðgerðir og valið þann sem
þér líst á eða þann sem fyrstur er
með lausan tíma. Leiðarljós alls
þessa er að auðvelda aðgengi og
bæta þjónustu,“ segir Gunnar.
Persónulegt yfirlit
Annar möguleiki sem í boði
verður á væntanlegri upplýsinga-
miðstöð er að fólk geti nálgast yf-
irlit yfir heilsufar sitt. Með rafræn-
um persónuskilríkjum opnast sá
valkostur að fólk geti nálgast upp-
lýsingar um sig; fengið yfirlit yfir
læknisheimsóknir, lyfjanotkun, of-
næmi, bólusetningar og fleira.
„Gert er ráð fyrir að ein-
staklingar geti með sínum rafrænu
auðkennum skráð sig inn á lokaða
síðu og fengið persónulegt heilsu-
farsyfirlit,“ segir Gunnar Alexander
sem bætir við að hér sé vottun Per-
sónuverndar lykilatriði. Til þessa
hafi heilbrigðisþjónustan farið sér
hægt í því að veita þjónustu yfir
netið með tilliti til öryggis. Með
tækniframförum síðustu ára hafi
hins vegar tekist að koma málum í
skýran farveg og nú sé þessi mögu-
leiki að verða raunhæfur kostur.
Heilbrigðisráðuneytið þróar upplýsingamiðstöð á netinu
Leiðarljósið að
auka þjónustu
➤ Áformað er að upplýsinga-miðstöðin verði komin í
gagnið fyrir lok næsta árs.
➤ Hægt verður að bóka tíma hjáheilsugæslunni eða sér-
fræðilæknum.
➤ Netspjall og heilsufarsyfirlit.
BÆTT ÞJÓNUSTAÁ vegum heilbrigðisráðu-
neytis er unnið að þróun
sérstakrar upplýsinga-
miðstöðvar á netinu. Þar
á að vera hægt að nálgast
upplýsingar um heil-
brigðismál á nánast öll-
um sviðum.
Góð þjónusta Einstaklingar geta
fengið persónulegt heilsufarsyfirlit,
segir Gunnar Alexander Ólafsson, sér-
fræðingur í heilbrigðisráðuneytinu.
Á undanförnum árum hefur ver-
ið byggður upp viðamikill gagna-
grunnur hjá Ferðamálastofu þar
sem eru nú upplýsingar um vel á
annað þúsund ferðaþjónustuaðila
um allt land ásamt ýmsum hag-
nýtum upplýsingum fyrir ferðafólk,
bæði á ensku og íslensku. Það er því
tilvalið fyrir alla ferðalanga að kíkja
aðeins á netið áður en lagt er af stað
í ferðalagið þar sem fullyrða má að
hér sé um að ræða heildstæðasta
gagnagrunninn um íslenska ferða-
þjónustu sem til er í dag og er hann
alltaf að stækka. Í grunninum er
meðal annars að finna ýtarlegar
upplýsingar um gistingu, það er
hótel, gistiheimili, bændagistingu,
farfuglaheimili, sumarhús, skála og
tjaldsvæði. Einnig skipulagðar ferð-
ir af öllu tagi og samgöngur, svo
sem rútur, báta, flug, bílaleigur,
strætisvagna og leigubíla. Þá er þar
að finna upplýsingar um hvenær
söfn um allt land eru opin, lista yfir
það sem er á döfinni, golfvelli,
veiði, sundlaugar, reiðhjólaleigur
og hestaleigur. Loks má nefna ýms-
ar fleiri hagnýtar upplýsingar, svo
sem um upplýsingamiðstöðvar,
ferðaskrifstofur, sendiráð erlendra
ríkja og ræðismenn, vegalengdir á
milli staða og ýmislegt fleira.
Skráning í grunninn er ferðaþjón-
ustuaðilum að kostnaðarlausu og
hann er öllum aðgengilegur á land-
kynningarvef Ferðamálaráðs,
www.visiticeland.com og ferða-
vefnum www.ferdalag.is.
svanhvit@24stundir.is
Aðgengilegur og ýtarlegur vefur um ferðaþjónustu
Viðamikill gagnagrunnur
Snæfellsjökull Ferða-
málastofa hefur byggt upp
viðamikinn gagnagrunn.
Á vefsíðu velferðarsviðs Reykja-
víkurborgar má kynna sér ýmiss
konar kannanir og verkefni sem
unnin hafa verið í tengslum við
starfssvið sviðsins. Meðal efnis eru
niðurstöður rannsókna meðal
nemenda í 5., 6. og 7. bekk á hög-
um og líðan í grunnskólum
Reykjavíkur árið 2007. Könnun
um viðhorf notenda til félagslegrar
heimaþjónustu svo og könnun á
högum og viðhorfi eldri borgara.
Fleiri kannanir sem varða hag og
velferð borgarbúa má einnig finna
á síðunni svo og nemaverkefni.
Efnið hefur mestallt verið sett inn
sem pdf-skjöl og er því auðvelt og
þægilegt til yfirlestrar. Velferð-
arsvið var stofnað í byrjun árs 2005
en sviðið ber ábyrgð á velferð-
arþjónustu Reykjavíkurborgar þar
með talið barnavernd og fé-
lagsþjónustu fyrir alla aldurshópa.
Kjörorð sviðsins eru virðing,
virkni, velferð.
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar
Virðing, virkni og
velferð að leiðarljósi
Vefsíðan Mitt Reykjanes.is var
opnuð nýlega en hún er aðgang-
ur íbúa að þjónustu og þátttöku
í sveitarfélaginu. Í boði er fjöldi
möguleika, svo sem umsóknir,
umræður, erindi og eftirfylgni,
samráð, valdar fréttir og fjöl-
margt annað. Á forsíðu hvers
notanda birtast fréttir og til-
kynningar á grundvelli þeirra
áhugsviða sem viðkomandi hef-
ur valið. Þá hafa þeir sem eiga
börn á skólaaldri beinan aðgang
að síðunni á Mentor. Á síðunni
getur fólk einnig tekið þátt í um-
ræðum sem eru öflugur vett-
vangur skoðanaskipta um til-
tekið málefni hverju sinni.
Lykilorð sent
Til að nota vefsíðuna þarf að skrá
sig inn með kennitölu og lykilorði.
Allir íbúar Reykjanesbæjar eldri en 18
ára eru skráðir í Mitt Reykjanes og
hafa lykilorð verið send í heimabanka
þeirra en misjafnt er eftir bönkum
hvar lykilorðið er vistað, þó oftast
megi finna það undir Rafræn skjöl.
Íbúar Reykjanesbæjar sem ekki nýta
sér þjónustu heimabanka, eða hafa
ekki netbanka á sinni kennitölu, geta
fengið lykilorð afhent á bæjarskrifstofu
eða fengið það sent í pósti. Nýir íbúar í
Reykjanesbæ geta fengið aðgang með
því að smella á hnappinn Nýskrán-
ing undir innskráningarmyndinni.
Rafrænn aðgangur íbúa að þjónustu
Fjöldi valmöguleika
á Mitt Reykjanes
Sjúklingatrygging veitir sjúk-
lingum rétt til bóta í ákveðnum
tilvikum fyrir líkamlegt eða geð-
rænt heilsutjón.
Þetta á við atvik sem þeir
verða fyrir í tengslum við rann-
sóknir eða sjúkdómsmeðferð á
sjúkrahúsi, heilsugæslustöð eða
annarri heilbrigðisstofnun, á
sjúkrahúsi erlendis á vegum
Tryggingastofnunar, í sjúkra-
flutningum eða hjá heilbrigð-
isstarfsmanni sem starfar sjálf-
stætt og hefur löggildingu
heilbrigðisráðherra til starfans.
Sjúklingatryggingin er sjálf-
stæð trygging og er ekki hluti al-
mannatrygginga.
Tryggingastofnun annast sjúk-
lingatryggingu fyrir heilsugæslu-
stöðvar, sjúkrahús og aðrar heil-
brigðisstofnanir sem ríkið á í
heild eða að hluta og einnig
vegna sjúkraflutninga og sjúk-
linga erlendis á vegum TR og
„siglinganefndar“.
Aðrir, sem eru fyrst og fremst
heilbrigðisstofnanir sem eru ekki
í eigu ríkisins og sjálfstætt starf-
andi heilbrigðisstarfsmenn,
kaupa sjúklingatryggingu hjá vá-
tryggingafélögum. Sjúklingar sem
orðið hafa fyrir heilsutjóni í
tengslum við meðferð eða rann-
sókn hjá sjálfstætt starfandi heil-
brigðisstarfsmönnum, þurfa því
að beina bótakröfum sínum til
vátryggingafélags viðkomandi
heilbrigðisstarfsmanns.
Af vef Tryggingastofnunar, www.tr.is
Hvað er sjúklingatrygging?