24 stundir - 09.05.2008, Side 45
DJASSHÁTÍÐIN
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@24stundir.is
Saxófónleikarinn Sigurður Flosa-
son heldur um þessar mundir upp
á 15 ára hljóðritunarferil í eigin
nafni. Af því tilefni stendur hann
fyrir persónulegri fernra tónleika
djasshátíð í Fríkirkjunni um hvíta-
sunnuna dagana 10. til 12 maí.
Hann hefur verið virkur í ólíkum
geirum íslensks tónlistarlífs í rúm-
lega 25 ár, en fyrsta plata hans í eig-
in nafni, Gengið á lagið, kom út ár-
ið 1993. Síðan þá hefur hann sent
frá sér 15 geisladiska og er þar ým-
ist um að ræða sólóútgáfur eða
dúóverkefni í samstarfi við Gunnar
Gunnarsson, Pétur Grétarsson, Jóel
Pálsson og Sólrúnu Bragadóttur.
Með tónleikaröðinni í Fríkirkjunni
verður litið um öxl og rifjuð upp
tónlist af nokkrum eldri plötum,
en ný lög og útsendingar fá einnig
að fljóta með. „Það verður þétt
prógramm um helgina með fern-
um tónleikum á þremur dögum.
Þetta eru fjögur aðskilin verkefni
sem eiga bara eitt sameiginlegt, og
það er ég,“ segir Sigurður.
Gott kirkjuorgel
Ástæður þess að djasshátíðin er
haldin á þessum stað á þessum
tíma eru nokkrar. „Í fyrsta lagi er
gjarnan lítið að gerast í höfuðborg-
inni um þessa helgi enda margir að
ferðast út úr bænum. Þannig fannst
mér kjörið að halda þetta fyrir þá
sem verða í bænum og vilja kíkja á
tónleika. Hin ástæðan er ekki síður
mikilvæg og hún er sú að þetta er
afskaplega falleg kirkja með góðu
kirkjuorgeli. Svo er hvítasunnan
ein stærsta hátíðin í kristinni trú og
við Gunnar Gunnarsson orgelleik-
ari ætlum af því tilefni að spila
sálma á tónleikum á hvítasunnu-
dag klukkan 16,“ segir hann.
Mikil vinna
Eins og gefur að skilja fylgir tón-
leikahaldi sem þessu mikil vinna en
Sigurður segist bjartsýnn á að allt
gangi að óskum. „Ég er náttúrlega
að vinna að þessu með því frábæra
tónlistarfólki sem hefur spilað með
mér á þessum fimmtán geisladisk-
um sem um ræðir þannig að ég er
mjög spenntur og bjartsýnn á að
allt gangi að óskum, “ segir hann að
lokum.
Sigurður Flosason saxófónleikari stendur á tímamótum
Djasstónlist um
hvítasunnuna
Sigurður Flosason saxó-
fónleikari stendur fyrir
fernra tónleika djasshá-
tíð í Fríkirkjunni um
hvítasunnuna í tilefni 15
ára hljóðritunarferils
hans í eigin nafni. Á þess-
um 15 árum hafa komið
út 15 geisladiskar í sam-
vinnu við ýmsa tónlistar-
menn.
Fagnar tímamótum
Sigurður Flosason.
➤ Tónleikarnir verða fernir. Þeirfyrstu verða á laugardaginn
klukkan 20, þeir næstu á
sunnudaginn klukkan 16,
þeir þriðju á sunnudaginn
klukkan 20 og þeir síðustu á
mánudaginn klukkan 20.
➤ Nánari upplýsingar og miða-sala eru á slóðinni midi.is.
24stundir FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2008 45
Myndlistarskólinn í Reykjavík
opnar sýningu á verkum nemenda
á námsbrautinni Mótun í sýning-
arrými skólans í dag klukkan 17.
Mótun er nýtt nám á háskólastigi
þar sem leir og tengd efni eru nýtt
sem hráefni til sköpunar og hug-
myndavinnu. Námið er skipulagt í
samvinnu þriggja skóla; Myndlist-
arskólans í Reykjavík, Iðnskólans í
Reykjavík og Glasgow School of
Arts í Skotlandi. „Hugmyndin með
þessu námi er að endurvekja efnið
sem útgangspunkt í hönnun og
myndlist. Nemendur tileinka sér
að móta ólík efni útfrá eiginleikum
þeirra, þróa myndlistarverk eða
hanna úr því nytjahluti. Unnið er
með leir, keramik, postulín og gler
en einnig eru gerðar tilraunir með
skyld efni, til dæmis sílíkon,“ segir
Hrafnkell Birgisson hönnuður og
einn kennaranna í Mótun. Hann
segir að vaxandi áhugi sé í sam-
félaginu á námsgreinum sem bjóða
upp á nálægð við efni og verklag.
„Það er mjög mikilvægt að byggja
upp og viðhalda efnisvitund ein-
staklingsins og tengsl hans við
framleiðslu og verðmætasköpun úr
ólíkum efnum. Eftir að nýir miðlar
með sýndarveruleika hverskonar
nutu mjög mikils aðdráttarafls á
síðasta áratug hefur áhuginn efn-
istengdu námi aftur aukist. Við
þessu er Myndlistarskóli Reykja-
víkur að bregðast.“
Skólinn er í samstarfi við Glas-
gow School of Arts þar sem nem-
endur geta lokið BA-gráðu á
tveimur árum, en að sögn Hrafn-
kels er verið að byggja upp svipað
samband við fleiri erlenda skóla.
Sýningin verður opin laugardag-
inn 10. maí frá kl.11.00-17.00 og
frá kl.15.00-18.00 frá þriðjudegi til
föstudags í næstu viku. Sýningin
stendur aðeins þessa einu viku.
Nemendur í Mótun við Myndlistarskólann í Reykjavík sýna verk sín
Afrakstur fyrsta vetrar til sýnis
MENNING
menning@24stundir.is a
Þetta eru fjögur aðskilin
verkefni sem eiga bara eitt
sameiginlegt, og það er ég.
24stundir/Jim Smart
Það er meira
í Mogganum
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
í dag
Föstudagur 9. maí 2008
Heimildamynd Ragnhild-
ar Magnúsdóttur verður
frumsýnd á Skjaldborg.
» Meira í Morgunblaðinu
Mynd af bróður
Aðalskona vikunnar er á
leiðinni til Serbíu til að
syngja fyrir Íslands hönd.
» Meira í Morgunblaðinu
Þetta er mitt líf
Nýr söngleikur eftir Ólaf
Hauk Símonarson verður
frumsýndur í Borgarleik-
húsinu í haust.
» Meira í Morgunblaðinu
Í anda Gauragangs
reykjavíkreykjavík