24 stundir - 09.05.2008, Síða 46
Kr. 49.990
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn,
2-11 ára í íbúð á Glarus íbúðarhótelinu í viku,
16., 23. eða 30. júní og 7. eða 21. júlí.
Aukavika kr. 15.000.
Kr. 59.990
Netverð á mann, m.v. 2 í íbúð á Glarus íbúðahótel-
inu í viku, 16., 23. eða 30. júní og 7. eða 21. júlí.
Aukavika kr. 15.000.
Búlgaría
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
33
44
7
Skógarhlíð 18 · 105 Reykjavík · Sími: 591 9000 · www.terranova.is · Akureyri, sími: 461 1099
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tv
ill
ur
.T
er
ra
N
ov
a
ás
ki
lu
rs
ér
ré
tt
til
le
ið
ré
tt
in
ga
á
sl
ík
u.
A
th
.a
ð
ve
rð
ge
tu
rb
re
ys
tá
n
fy
rir
va
ra
.
í júní og júlí
Frábær gisting – fáar íbúðir í boði!
Golden Sands í Búlgaríu hefur slegið í gegn hjá Íslendingum. Terra Nova býður nú
frábært tilboð á Glarus íbúðahótelinu í júní og júlí (16., 23. eða 30. júní og 7. eða
21. júlí). Nýlegar og fallegar íbúðir með einu svefnherbergi, baðherbergi, stofu og
eldhúskrók, síma og gervihnattasjónvarpi. Góður sundlaugagarður með barnalaug
og sólbekkjum, veitingastað, snyrtistofu og fleiru. Golden Sands býður þín með
frábæra strönd, einstakt loftslag, ótæmandi afþreyingarmöguleika, fjölbreytta veit-
ingastaði og fjörugt næturlíf.
frá 49.990 kr. Hags
tætt verðlag
í Búlgaríu!
Sértilboð - Glarus íbúðahótelið
46 FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2008 24stundir
LÍFSSTÍLLHELGIN
helgin@24stundir.is a
Labbi er eins og Rúnni Júl.
Hann er konungur rokksins á
Suðurlandi.
Euroband á Players
Tónlist Eurobandið með þau Frið-
rik Ómar og Regínu Ósk í farar-
broddi, heldur uppi sannkallaðri
Eurovision-stemningu á skemmti-
staðnum Players í Kópavogi laug-
ardagskvöldið 10. maí. Þau halda
senn til Serbíu þar sem þau taka
þátt í söngvakeppninni sjálfri og
því upplagt að hita upp fyrir stóru
stundina í Kópavoginum annað
kvöld.
MC á Sjallanum
Tónlist Merzedes Club-flokkurinn
hefur sumarhring sinn í Sjallanum
á Akureyri á laugardagskvöld.
Einnig koma fram DJ Guru og
Haffi Haff. Tvö böll verða haldin,
annað er ætlað fólki yngra en 18
ára og hefst kl. 20. Seinna ballið
hefst upp úr kl. 23:30.
Söngvaskáld í Fríkirkjunni
Tónlist Þeir sem kjósa lágstemmd-
ari tónlist en þá sem Eurobandið
og Merzedes Club bjóða upp á geta
brugðið sér í Fríkirkjuna í kvöld kl.
21 þar sem söngvaskáldið Hörður
Torfason leikur og syngur. Tónleik-
arnir eru haldnir í tilefni af því að á
þessum degi eru 30 ár liðin síðan
Hörður stofnaði Samtökin ’78
ásamt fleirum.
Það besta í bænum
„Við segjum svartsýni og böl-
sýnisspám stríð á hendur,“ segir
Örn Árnason um söngdagskrá sem
hann flytur ásamt Óskari Péturs-
syni og Jónasi Þóri í KA-heimilinu
á mánudag, annan í hvítasunnu.
„Við Óskar erum búnir að vera að
skemmta af og til í vetur og fyrra-
vetur. Svo ákváðum við að búa til
plötu sem heitir því ágæta nafni
Yfirliðsbræður,“ segir Örn sem
hefur skýringu á nafngiftinni á
reiðum höndum. „Þetta tengist að
sjálfsögðu því að við erum báðir
vel við vöxt og vænir menn og þeg-
ar konur sjá okkur saman í hóp þá
líður yfir þær,“ segir Örn en bendir
á að nafnið vísi einnig til hinna vel
þekktu Everly-bræðra en þeir taka
einmitt lög þeirra á sinn hátt með
íslenskum textum.
Tónleikarnir eru þeir fyrstu í
tónleikaferð þeirra félaga um land-
ið. „Þetta er um tveggja tíma
skemmtun þar sem við blöndum
saman söng og gríni, svokallaður
kokteilkabarett,“ segir Örn.
Skemmtunin í KA-heimilinu hefst
kl. 20 og er aðgangseyrir 2.500
krónur.
Yfirliðsbræður á leið um landið
Kokteilkabarett
Eftir Einar Jónsson
einarj@24stundir.is
Árborg hefur alið af sér marga
merkilega tónlistarmenn í gegn-
um tíðina og verður þeim gert
hátt undir höfði á bæjarhátíðinni
Vor í Árborg sem hófst í gær og
stendur til 18. maí.
Ólafur Þórarinsson, betur
þekktur sem Labbi í Mánum,
leikur þar stórt hlutverk en hann
stendur meðal annars að dagskrá
helgaðri sveitaböllum í íþrótta-
húsinu Iðu á laugardag. „Labbi
er eins og Rúnni Júl. Hann er
konungur rokksins á Suður-
landi,“ segir Andrés Sigurvins-
son, verkefnisstjóri hjá Árborg.
„Hann stiklar á stóru í sögu
sveitaballana á Suðurlandi frá
1960 til 1990 þegar pöbbamenn-
ingin hélt innreið sína og drap
þetta allt saman,“ segir Andrés.
Risarokktónleikar
Tónlistarhefð svæðisins verða
gerð enn frekari skil á tvennum
risatónleikum í Iðu á sunnudag.
Þar koma fram hljómsveitir á
borð við Nilfisk, Skítamóral,
Benny Crespo’s Gang og Mána
sem eiga allar rætur að rekja til
Árborgarsvæðisins. „Við leggjum
mikla áherslu á tónlist. Við erum
líka með klassíska tónleika,
barnatónleika í kirkjunni og á
mánudaginn, annan í hvíta-
sunnu, verður söngvakeppni
barnanna,“ segir Andrés.
Vorskipið kemur
Það verður þó ekki aðeins
leikið á hljóðfæri og sungið í Ár-
borg næstu daga enda yfir eitt
hundrað atburðir á dagskrá há-
tíðarinnar. Meðal annars verður
boðið upp á sýningar, fræðslu-
göngur og fjölskyldudagskrá.
Einn af hápunktum helgarinnar
fer fram í gömlu þorpunum við
sjávarsíðuna á morgun. „Eyrar-
bakka og Stokkseyri verður um-
turnað. Vorskipið kemur og þar
verða danskir kaupmenn úti um
allt,“ segir Andrés sem vonast til
að margir leggi leið sína í bæinn
um helgina. „Við erum að
minnsta kosti tilbúin að taka á
móti öllu þessu fólki og þjónusta
það eins og við getum.
Dagskrá Vors í Árborg má
nálgast í heild sinni á vefsíðunni
www.arborg.is.
Íbúar Árborgar fagna vori með veglegri hátíð
Rokkað í Árborg
Tónlistarmenn sem eiga
rætur að rekja til Árborg-
arsvæðisins verða fyr-
irferðarmiklir á dagskrá
hátíðarinnar Vors í Ár-
borg. Yfir eitt hundrað
viðburðir eru í boði.
Mánar í ham Labbi og fé-
lagar í Mánum leika stórt hlut-
verk á hátíðinni Vor í Árborg.
➤ Ókeypis er á nær alla atburðihátíðarinnar. Hægt er að
kaupa sérstakan lykil sem
gildir á alla þá atburði sem
selt er inn á.
➤ Lykillinn kostar 3.000 kr. í for-sölu en hækkar í 4.000 kr. eft-
ir föstudag.
VOR Í ÁRBORG
24stundir/Golli