24 stundir - 09.05.2008, Blaðsíða 48

24 stundir - 09.05.2008, Blaðsíða 48
48 FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2008 24stundir Hekla býður nú sérstaka „Tornado“ útgáfu af Mitsubishi L200 pallbílnum. Við fengum einn slíkan til prófunar. Innifalið í Tornado útgáfunni eru 32” dekk, heitklæðning á palli og dráttarbeisli. Dekkin reyndust griplítil í drullu en klæðningin og dráttarbeislið ættu auðvitað að fylgja öllum pallbílum. Því til hvers að eiga pallbíl ef ekki til að draga kerrur og flytja hlass á pallinum? Kostir Bíllinn lítur mjög vel út á pappír. Hekla setur 44 hestafla aflauka í hann fyrir sölu svo hann verður 167 hestöfl og togar 402 Nm, sem er alveg ágætt. Hann ber mest og togar mest af pallbílum í hans flokki og hefur minnstan beygjuradíus, auk þess að hafa mest fótarými aftur í. Þá skorar hann 4 stjörnur í árekstrarprófi EuroNCAP en hærri einkunn hafa pallbílar ekki fengið. Það eitt ætti að setja bílinn í sérflokk, því mannslíf hljóta að skipta meira máli en flest annað. Mitsubishi stærir sig mikið af fjórhjóladrifskerfum sínum, og vitnar óspart í frækna sigra í Dakar- rallinu. Maður ætti því að geta sest óhræddur undir stýri á þessum bíl og tekist á við hvað sem er. Gallar En þá rekst maður á agnúana. Forþjöppubiðin (frá því að þú stígur á eldsneytisgjöfina og þar til túrbínan fer að hafa áhrif) er með því mesta sem ég hef orðið vitni að í nýjum bíl, svo manni finnst bíllinn aldrei ætla að taka af stað. Líklega má venjast þessu á stuttum tíma, ef maður á annað borð hefur áhuga á því, en ef þú ert að spá í L200 mæli ég með því að þú prófir að minnsta kosti beinskipta bílinn líka, til samanburðar. Mikill burður gerir það að verkum að fjöðrunin þarf að vera stíf og hörð og þar sem ég keyrði bílinn tómann komu svitaperlur á enni mitt í hvert sinn sem ég sá hraðahindrun. Sé ætlunin að nota bílinn í eitthvað annað en þungaflutninga ráðlegg ég væntanlegum kaupendum að skoða mögulegar úrlausnir þar að lútandi. Eða halda sig frá hraðahindrunum. Og þó að beygjuradíus og fótapláss hjálpi til við að gera bílinn notendavænan fannst mér vanta upp á fleiri smáatriði, eins og skriðstilli og armpúða á milli framstólanna. Ég verð reyndar að viðurkenna að niðurhalanleg afturrúða vakti mikla kátínu hjá mér, og mun eflaust gera líka hjá þeim sem þurfa að flytja mjög langa hluti. NIÐURSTAÐA Þetta er bíll fyrir fólk sem vill draga eða flytja þung hlöss. Gæti verið skemmtilegur í breytin- gar. Viljir þú gera góð kaup í L200 er Tornado útgáfan málið. Reynsluakstur Mitsubishi L200 Tornado Öruggur en stirðbusalegur Ljósmyndir: Baldur Örn Óskarsson MMC L200 TORNADO Einar Elí Magnússon einareli@24stundir.is • 2,5 lítra dísilmótor • 167 hestöfl • 402 Nm • 4 þrepa sjálfskipting • Fjórhjóladrif • 14,8 sek. í hundrað • Eyðsla í blönduðum akstri: 9,6 l /100 km • ABS • Verð: 3.490.000 • Umboð: Hekla + - Ber mikið, lítill beygjuradíus, öruggur. Mjög hastur, mikil bið eftir viðbragði frá vél. Á pappír: Upplifun: Verð: Að utan Framendann þekkjum við frá Outlander. Annað er í takt við fyrri L200, að fráta- linni bogalínunni við pallinn. Að innan Snyrtilegur og ágætlega skipulagður, en ber þess keim að vera vinnubíll. Öryggi og búnaður 44 hestafla aflaukning, fjórhjóladrif með læsingu í millikassa, Tornado útgáfunni fylgir svo t.d. heitklæðning í palli, drát- tarbeisli og 32” dekk. Fjölskyldan Pallbílar eru ekki það sem mér det- tur fyrst í hug í þessum efnum, en þessi skartar allavega góðri EuroNCAP einkunn. Í HNOTSKURN Tíundi hver ökumaður í Svíþjóð sem notast við GPS-staðsetningar- tæki í umferðinni í stórborgum hef- ur lent í árekstri. Notkunin hefur leitt til vandræða, þar sem ökumenn hafa truflast við akstur, misst einbeit- ingu eða villst af leið. Þetta er nið- urstaða nýrrar sænskrar rannsóknar. Christopher Patten hjá sænsku vegagerðinni segist í samtali við Af- tonbladet ekki undrandi á þessum niðurstöðum. „Truflunin sem öku- menn verða fyrir er mesta vanda- málið. Ástandið versnar líka þegar það verður í tísku að eiga slík tæki. Mörgum þykir ofsalega skemmtilegt að fikta í tækinu þegar þeir fá það fyrst í hendurnar og það veldur trufl- unum og einbeitingarleysi við akst- urinn.“ Minni hætta í dreifbýli Niðurstöður könnunarinnar benda þó til þess að hætta á árekstri minnki umtalsvert þegar litið er til aksturs utan þéttbýlis. Þar segjast sex prósent aðspurðra hafa lent í vandræðum vegna notkunar á hin- um rafræna leiðarvísi. Sala á GPS-tækjum hefur stór- aukist á Vesturlöndum á síðustu þremur árum. atlii@24stundir.is Ný sænsk rannsókn á notkun GPS-staðsetningartækja í umferðinni GPS-tækið gerir þig hættulegan Hætta Notkun GPS- tækis getur aukið hættu á árekstri. Þýski bílaframleiðandinn Volkswagen kynnti nýverið Park Assist Vision-tölvubúnaðinn á iðnaðarsýningunni í Hannover. Kerfið notast við myndavélar og skynjara þannig að bíllinn geti sjálfur lagt í bílastæði. Tölvubúnaðurinn er tengdur við stýri bílsins, bensíngjöf og bremsu og sér um að leggja án aðstoðar ökumannsins sem ein- ungis þarf að þrýsta á hnapp á fjarstýringu. Þökk sé mynda- vélum í hliðarspeglum og að framan auk skynjara forðast bíll- inn að rekast á aðra bíla og hindranir. Jafnvel þótt bíllinn standi á ská við þröngt bílastæðið tekst honum að bakka inn. Forsvarsmenn Volkswagen segj- ast ekki geta sagt til um hvort kerfið verði staðalbúnaður í bíl- um framleiðandans. „Eft- irspurnin kemur til með að stjórna því.“ aí Volkswagen kynnir Park Assist Vision Leggur sjálfur í stæði Þýski bílaframleiðand- inn BMW hlaut fyrsta sæti í alþjóðlegu véla- hönnunarkeppninni („International Engine of the Year Awards“) sem afhent voru í þýsku borginni Stutt- gart á miðvikudaginn. 3.0 Twin Turbo-vél BMW hlaut verðlaun- in í ár, en þetta var í annað sinn í röð sem vélin bar sigur úr být- um. 3.0 lítra Twin Turbo vélin er helst notuð í BMW 1-línu Coupé-bílum og 3-línu BMW en verður einnig fáanleg í BMW X6 jeppa-sportbílnum (Sports Activity Coupé) sem kynntur verður á Íslandi í næsta mánuði. Vélar frá Volkswagen urðu í öðru og þriðja sæti í keppninni um „vél ársins“, en vélar frá BMW skipuðu sæti fjögur til sex. Alls voru veitt verðlaun í ellefu flokkum og hlutu verkfræðingar BMW sex þeirra og verkfræðingar Toyota og Volkswagen hlutu verðlaun í tveimur flokk- um um sig. Peter Langen, framkvæmdastjóri hjá BMW, var mjög ánægður með verðlaunin. „BMW lítur með réttu á þessi verðlaun sem mestu við- urkenningu sem hægt er að fá fyrir framúrskarandi árangur í hönnun og framleiðslu á bílvélum. Það er okkur mikill heiður að 3.0 lítra Twin Turbo-vél okkar hafi tryggt sér þessa mestu viðurkenningu annað árið í röð og við erum himinlifandi.“ Verðlaunin voru fyrst afhent árið 1999, en dómnefndina skipa á sjö- unda tug af virtustu bílablaðamönnum heims og komu þeir frá 32 löndum, þar á meðal Bandaríkjunum, Þýskalandi, Kína, Rússlandi, Japan, Indlandi, Frakklandi og Suður-Afríku. atlii@24stundir.is BMW aftur með vél ársins Draupningsgata 7,m 603 Akureyri S: 462 - 6600 polyak@simnet.is Ertu að flytja, láttu fagmenn sjá um verkið fyrir þig Örugg og trygg þjónusta LÍFSSTÍLLBÍLAR bilar@24stundir.is a Þá skorar hann 4 stjörnur í árekstrarprófi EuroNCAP en hærri einkunn hafa pallbílar ekki fengið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.