24 stundir - 09.05.2008, Page 50

24 stundir - 09.05.2008, Page 50
50 FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2008 24stundir Nú er rétti tíminn til þess að undirbúa næsta veiðitímabil. Veiðikortið veitir aðgang að rúmlega 30 vatnasvæðum vítt og breitt um landið fyrir aðeins 5000 kr. Frí heimsending þegar verslað er beint á www.veidikortid.is Tryggðu þér Veiðikortið í tíma! Á að veiða í sumar? Eftir Kjartan Þorbjörnsson veidi@24stundir.is Elliðavatn á stóran fastakúnna- hóp. Sömu mennirnir eyða vorinu og jafnvel líka sumrinu á bökkum vatnsins, flestir með góðum ár- angri. Ef maður venur komur sínar að vatninu fara andlitin að verða kunnugleg. Blaðamaður sem var á veiðum við vatnið í annað sinnið í vor veitti því athygli að einn veiðimaðurinn var áberandi lágvaxnari en flestir hinir. Sá stóð fullgræjaður en hálf- ur á kafi, sunnan megin við Elliða- vatnsbæinn og kastaði flugunni listilega vel. Þetta reyndist vera hinn þrettán ára gamli Arnar Tóm- as Birgisson. Veiðir alla daga „Ég er búinn að veiða hér á hverjum degi síðan veiði hófst. Mamma eða pabbi skutla mér hingað upp eftir. Stundum er ég allan daginn og stundum bara í nokkra klukkutíma. Ég tek bara með mér nesti,“ sagði Arnar kátur. „Karlarnir hérna eru farnir að þekkja mig nokkuð vel og ég þá. Þeir leiðbeina mér stundum ef ég geri eitthvað ekki rétt,“ sagði Arnar Tómas sem greinilega kann tökin á flugustönginni og kastar af mikilli lagni. „Ég er búinn að kasta flugu síðan ég var sex ára. Ég var fimm ára þegar ég byrjaði að fara með pabba í veiði hér í Elliðavatni og hef veitt hér á hverju sumri síðan. Ég er alveg sjúkur í vatnið og er bú- inn að ná mér í mikla reynslu hérna,“ sagði hann og benti út á vatnið. „Þarna vakir hann en hann vill ekkert núna. Ég er búinn að bjóða honum allt og hann tekur ekki neitt.“ Arnar Tómas gengur um bakka Elliðavatns með bæði flugustöng og kaststöng. „Ég er alltaf með flugustöng og kaststöng með mér. Ef flugan virkar ekki þá prófa ég spóninn og öfugt. Mér finnst Arnar Tómas Birgisson er ungur og efnilegur veiðimaður Veiði hér á hverjum degi Veiði hófst í Elliðavatni 1. maí síðastliðinn. Strax á fyrsta degi flykktust vet- urþreyttir veiðimenn að vatninu, enda hiti í lofti og veiðivon með besta móti. Góður veiðimaður Arnar Tómas er dugleg- ur að mæta í veiðina. bleikju áðan á þessa gulu púpu með skotti.“ Aðspurður hvort hann þekki marga krakka á sínum aldri sem veiði segir Arnar Tómas: „Nei, reyndar ekki, þeir er allir bara inni hangandi í tölvum eða eitthvað þannig. Ég þekki nokkra sem veiða stundum en þeir eru ekkert rosa- lega duglegir í veiðinni.“ En hvernig hefur veiðin gengið í vor? „Bara vel. Ég er búinn að fá átta silunga hér og svo fór ég nokkrum sinnum í Reynisvatn og veiddi þar helling af fiski, meðal annars einn þrettán punda regn- bogasilung,“ sagði Arnar Tómas stoltur. „Þetta er frábært vatn. Ég veiði hérna frítt. Allir sem eru yngri en 16 ára veiða frítt og eldri borgarar líka,“ segir Arnar Tómas glaður og heldur áfram að veiða. miklu skemmtilegra að veiða með flugu, það er miklu meira sport. Stundum gefur spúnninn manni frekar fisk, þannig að ég held áfram að nota hann líka.“ Aðspurður hvort hann noti líka beitu og flot- holt sagði Arnar Tómas hálfmóðg- aður: „Nei, ekki séns! Mér finnst alltof leiðilegt að sitja á rassinum og gera ekki neitt.“ Veiði frítt En hvaða flugur notar drengur- inn? „Hérna í vötnunum nota ég mikið alls konar púpur og þurr- flugur en í sumar fer ég að veiða lax með pabba í Soginu, Stóru-Laxá og bara út um allt. Þá nota ég þessar hefðbundnu laxaflugur,“ sagði Arnar og sýnir blaðamanni stoltur fluguboxið sitt. „Ég hnýti líka sum- ar þessar flugur sjálfur. Ég fékk Í fyrrakvöld var Páll Ólafsson að veiða í Þingvallavatni í landi þjóð- garðsins ásamt félaga sínum. „Við völdum okkur stað langt frá mak- ríl-körlunum til að fá frið. Um ell- efuleytið negldi svo hjá mér stór fiskur. Hann kom nokkrum sinn- um í fluguna áður en hann festi sig. Ég var með heimatilbúna Zonker- straumflugu, svarta og gráa með leikuhaus, sem ég kalla Skugga. Urriðinn rauk út og fór langt niður á undirlínu. Síðan lagðist hann og ég náði ekki að hagga honum, enda með léttar græjur, átta punda taum og flugustöng fyrir línu númer sex, sagði Palli. „Eftir fimmtán mínútna bardaga náði ég honum að landi, ætli hann sé ekki um tíu pund, við vippuðum honum í land, smelltum af honum mynd og slepptum hon- um strax aftur. Hann var með merki en það var svo dimmt að ég náði ekki að lesa á það.“ En datt Páli aldrei í hug að slá fiskinn í hausinn og taka hann með sér heim? „Nei, aldrei,“ sagði Palli. „Ég var hræddastur um að hann væri illa tekinn og særður en flugan hékk bara í munnvikinu á honum og auðvelt að losa hann. Ég hefði heldur alls ekki viljað missa flug- una. Þetta var eina eintakið sem ég var með.“ Páll Ólafsson veiddi í Þingvallavatni 10 punda urriði á flugu Síðastliðna helgi hitti blaðamað- ur þá feðga Örvar Daða Marinós- son og Daða Frey Örvarsson í efsta hyl Elliðaánna, svokölluðum Höfðahyl. Síðastliðin sumur hafa veiðileyfi verið seld í efsta hluta El- liðaánna í maí. Þar er egnt fyrir urriða og eingöngu leyfð flugu- veiði. Þeim feðgum gekk allt í hag- inn, voru búnir að ná sex urriðum á land, 1-2 punda sprækum fisk- um. „Við erum búnir að fá þrjá fiska hvor. Alla nema einn hér í Höfðahyl á þungar púpur. Náðum einum í Ármótum,“ sagði Örvar og sýndi blaðamanni stóra loðna púpu sem kallast „peeping caddis“ sem útleggjast mætti á íslensku sem gægju-vorfluga. Tók hann alveg sjálfur Daði sem er níu ára var að von- um glaður með sinn hlut í veið- inni. „Ég náði þessum stóra áðan. Þetta er fyrsti fiskurinn sem ég fæ þar sem ég geri allt sjálfur, kasta flugunni, set í hann og landa hon- um hjálparlaust. Ég byrjaði að kasta flugu í fyrra og er búinn að landa nokkrum fiskum fyrir pabba en þessum náði ég alveg sjálfur,“ sagði Daði og var að springa úr stolti. En veiða þeir feðgar mikið sam- an. „Já, bara eins mikið og við get- um. Ég reyni að fara með hann á staði þar sem ég veit að er fiskur og ég veit að hann getur sett í fisk,“ segir Örvar. „Ég byrjaði að fara með hann sem smágutta í Reyn- isvatn. Svo hef ég farið með hann í Veiðivötn og núna í Frostastaða- vatn. Þar er rosa gaman að veiða.“ Jafn skemmtilegt og fótboltinn „Þessi túr núna er fyrsta ferðin okkar saman í straumveiði. Hún er fínn undirbúningur fyrir ferð sem við ætlum saman í Mývatnssveitina í lok mánaðarins. Þar ætlum við að veiða í Helluvatnsá og Arnar- vatnsá. Það verður stóri túrinn okkar í sumar. Þar er bara flugu- veiði. Nú er bara að æfa þetta. Þess- ir krakkar eiga mjög auðvelt með að læra alla mögulega hluti. Smá „dass“ af þolinmæði og þá kemur þetta,“ segir Örvar og hlær. Daði segir að hann væri alveg til í að fara meira með pabba sínum að veiða. „Þetta er mjög gaman. Það gengur bara vel að kasta flugunni,“ segir Daði. Hann er í fótboltatreyju með merkjum Real Madrid og ég spyr hann hvort hann æfi fótbolta og hann jánkar því. En veiðin getur varla verið jafn skemmtileg og fót- boltinn? „Jú, þetta er eiginlega bara jafn gaman.“ Egnt fyrir urriða í Elliðaánum Feðgar í Höfðahyl VORIÐVEIÐI veidi@24stundir.is a Karlarnir hérna eru farnir að þekkja mig nokkuð vel og ég þá. Þeir leiðbeina mér stundum ef ég geri eitthvað ekki rétt.

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.