24 stundir - 31.05.2008, Síða 1
24stundirlaugardagur31. maí 2008102 tölublað 4. árgangur
Eivör Pálsdóttir er þessa dagana á
tónleikaferðalagi um Danmörku,
Noreg og Finnland. Hún heimsækir
Ísland alltaf af og til og finnst þá
allra best að bregða sér í jóga.
Eivör á flugi
VIÐTAL» 46
Inga Lind Karlsdóttir sjónvarpskona
er komin í fæðingarorlof en leyfir þó
lesendum að skyggnast í myndaal-
búmið sitt þar sem hægt er að rifja
upp eftirminnileg atvik úr lífi hennar,
t.d. er þar fyrsta myndin af henni.
Gömlu myndirnar
MYNDAALBÚMIл 37
38% munur á
uppþvottatöflum
NEYTENDAVAKTIN »4
27 ára Nýsjálendingur hefur
verið dæmdur fyrir líkamsárás
með því að lumbra á tánings-
pilti með broddgelti og spyrja
hvort hann vildi setja upp
broddgaltarhjálm.
William Singarlargh var gert
að greiða 15 ára fórnarlambi
sínu um 30 þúsund krónur í
bætur. Singarlargh kastaði
broddgeltinum að drengnum
sem hlaut sár í andliti auk
þess sem fjórir broddar festust
í mjöðminni eftir að hann
sagðist helst ekki vilja setja á
sig umræddan hjálm. aí
Meiddi strák
með broddgelti
GENGI GJALDMIÐLA
SALA %
USD 74,75 0.81%
GBP 147,54 0.82%
DKK 15.52 0.60%
JPY 0,71 0.71%
EUR 115.74 0.59%
GENGISVÍSITALA 149,23
ÚRVALSVÍSITALA 4747.3
»14
8
9
8
8 10
VEÐRIÐ Í DAG »2
Garðar Cortes heillaði þjóðina með sinni hrífandi tenórrödd um áratuga-
skeið, byggði upp Íslensku óperuna og Söngskólann af fádæma krafti og
er nú á leið til New York með 175 manna kór sem kemur fram í Carnegie
Hall undir hans stjórn í sumar. „Ég hugsa að ég sé ekki allra,“ segir hann í
hressilegu viðtali um börnin, trúna og muninn á ósjálfráðri
og agaðri frekju.
„Eflaust er ég frekur“
24stundir/Kristinn
Mótorhjólagæinn sem endaði sem músíkant
»38
Eftir Frey Rögnvaldsson
freyr@24stundir.is
Fólk á Suðurlandi var enn skelkað í
gærdag eftir Suðurlandsskjálftann
sem reið yfir á fimmtudaginn.
Mörgum varð lítt svefnsamt í fyrri-
nótt enda skóku eftirskjálftar svæð-
ið með reglulegu millibili.
„Eins og fjallið væri að öskra“
„Það var eins og fjallið væri að
öskra á okkur,“ segir Linda Ósk Jó-
hannsdóttir, íbúi í Þorlákshöfn.
„Það voru stanslausir eftirskjálftar í
alla nótt og ég svaf ekki mikið.“
Lögregla og hjálparstarfsmenn áttu
annasama nótt og í gærmorgun
mátti sjá þreytta lögreglumenn og
björgunarsveitarmenn á vakt.
Meðan 24 stundir voru á staðnum
gengu reglulega yfir eftirskjálftar
og í hvert skipti brá fólki mjög.
Íbúar sem rætt var við á Selfossi
lýstu miklum skemmdum á inn-
anstokksmunum. Ofnar hefðu
rifnað frá veggjum, bókahillur
lægju á gólfum og leirtau um allt í
einum graut. Í miðri óreiðunni tók
fólk til við að laga til.
Allt á hvolfi
Í Bónus á Selfossi var allt á
hvolfi. Árni Birgisson verslunar-
stjóri segir að það hafi hreinlega
allt farið úr hillunum. „Það voru
um fjörutíu manns hér inni í gær
og það er eiginlega óskiljanlegt að
enginn skyldi slasast. Það er ótrú-
legt happ.“
Björgvin G. Sigurðsson við-
skiptaráðherra býr með fjölskyldu
sinni á Selfossi. Hann segir að sér
hafi brugðið verulega við skjálft-
ann. „Ég var alveg viss um að þetta
væri Suðurlandsskjálfti og hann
sterkur. Elstu börnin mín þrjú voru
hér heima á Selfossi og sem betur
fer náði ég fljótt sambandi við þau.
Mér var alls ekki rótt.“
Íbúar enn
skeknir eft-
ir skjálfta
Svefnlítil nótt á Suðurlandi Ofnar rifn-
uðu frá veggjum í skjálftanum Eftir-
skjálftar skutu fólki skelk í bringu
EFTIRLEIKUR SKJÁLFTANS 20-21
➤ Hættuástandi vegna jarð-skjálfta var aflýst seinnipart-
inn í gær.
➤ 28 manns slösuðust í skjálft-anum, enginn þó alvarlega.
➤ Í fyrrinótt gistu þrír í fjölda-hjálparmiðstöðinni í Hvera-
gerði, 11 gistu í miðstöðinni í
Vallaskóla á Selfossi og 6-7 í
tjaldi fyrir utan.
➤ Fjöldi fólks gisti jafnframt ítjöldum og fellihýsum.
EFTIR SKJÁLFTANN
Foreldrar fá ekki atvinnuleys-
isbætur nema börn þeirra séu í
daggæslu. Ung móðir segir þetta
vítahring því erfitt geti verið að
greiða fyrir daggæslu ef annað for-
eldrið er tekjulaust.
Daggæsla for-
senda bóta
»2
Varnarmál, börnin, hvalveiðar, eft-
irlaun og rekstur strætó eru meðal
ágreiningsmála ríkisstjórnarinnar
fyrsta starfsárið. 24 stundir kafa
niður í ágreininginn og gagnrýni
um að tvær stjórnir
séu í landinu.
Eru ríkisstjórn-
irnar tvær?
»24
Brautarholt 20 105 Reykjavík s. 561 5100
mottaka@badhusid.is www.badhusid.is
tilboð
Sumarkort 14.990
Því fyrr sem þú kemur því lengur gildir kortið. Fjárfestu í heilsunni og
gerðu góð kaup í leiðinni. Sumarkort gildir til 24. ágúst nk.
Hvítlaukssmjör me› steinselju