Morgunblaðið - 15.01.2005, Qupperneq 22
Höfuðborgin | Akureyri | Árborg | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Hin árlega minn-ingardagskrá áafmælisdegi
Guðmundar Inga Krist-
jánssonar, skálds frá
Kirkjubóli í Önund-
arfirði, verður í Holti,
friðarsetri, næstkomandi
laugardag, klukkan 17.
Kjartan Ólafsson
fræðimaður flytur nokk-
ur brot úr hinu umfangs-
mikla efni sem hann hef-
ur safnað úr Önundar-
firði eins og víðar á
Vestfjörðum, en hluti af
því hefur birst í ritinu
Firðir og fólk sem út
kom á vegum Bún-
aðarsambands Vestfjarða
árið 1999. Á fréttavefn-
um bb.is kemur fram að
Kjartan mun meðal ann-
ars segja frá því hvernig
hann safnaði efni þessu
og situr fyrir svörum að
því loknu. Þá verða lesin
nokkur ljóð Guðmundar
Inga.
Afmælis-
dagskrá
Gísli Guðbjörnsson úr Breiðholti í Reykjavík ervinningshafi í leiknum Lifðu frítt í eitt ár semNettóverslanirnar stóðu fyrir í desember. Gísli
var dreginn úr stórum hópi þátttakenda og hlaut hann í
vinning 300 þúsund króna inneign í Nettó, afnot af KIA
Cerato bíl sem tryggður er með VÍS bílatryggingu, í
heilt ár, 1500 lítra af bensíni frá Esso, heimavörn frá
Securitas og gjafabréf frá Sambíóunum fyrir tvo út ár-
ið 2005. Það var eiginkona Gísla sem setti nafnið hans í
pottinn. Í vinningspottinum var einnig flugferð fyrir
fjóra með Iceland Express til Kaupmannahafnar og
bílaleigubíll frá AVIS í viku í Danmörku.
Á myndinni er Bjarki Jakobsson rekstrarstjóri Nettó,
Sigurður Pálmar Sigfússon frá KIA umboðinu og
Þröstur Karlsson verslunarstjóri Nettó í Mjódd að af-
henda Gísla vinninginn.
Vann afnot af bíl
Í jólaprédikun sinnitalaði séra HjálmarJónsson um að við
tengdum tilfinningar
hjartanu og rifjaði upp
vísu sem Magnús Jóhanns-
son, heimilismaður á Elli-
heimilinu Grund, gaukaði
að honum. Hjálmar leit
við á Grund eftir að hafa
jafnað sig eftir hjartaað-
gerð og sagði Magnúsi að
hann væri hættur að hafa
verki. Magnús orti:
Um það dugar ekkert raus
og enginn breytt því getur.
Nú er Hjálmar hjartalaus.
Honum líður betur.
Jón Ingvar Jónsson orti
þegar Hjálmar var á leið í
aðgerð:
Ég bið þess að þín verði
giftusöm ganga
og gleði ei bresti.
Já, Drottinn minn láttu nú
dæluna ganga
hjá Dómkirkirkjupresti.
Jón Ingvar frétti svo að
aðgerðin hefði lukkast vel
og orti:
Hjálmar struku hjúkkur blítt,
hann má ekki kvarta:
„allt er nú sem orðið nýtt“,
æðar, blóð og hjarta.
Um jólaprédikun
pebl@mbl.is
við þjóðveginn, vestast í Höfða-
brekkuhömrum. Þótt hellirinn sé nú
nokkuð frá sjó var þar útræði fyrr-
um, eins og nafnið gefur til kynna. Í
seinni tíð er Skiphellir ekki síst
þekktur fyrir það að þar var vegin
persónan sem Flosi Ólafsson lék í
Mýrdalur | Hross frá
Höfðabrekku í Mýrdal
halda til í Skiphelli sem er
einni víkingamynda Hrafns
Gunnlaugssonar. Hrossin
hafa þar skjól og ágætan
haga og Jóhannes Krist-
jánsson bóndi gefur þeim
einnig úti eftir því sem þörf
er á.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Hrossin í Skiphelli
Reykjanesbær | Samkomulag hefur
náðst um það að SBK sem annast al-
menningssamgöngur milli Reykjanes-
bæjar og höfuðborgarsvæðisins bjóði
námsmönnum úr Reykjanesbæ sem
stunda nám í Reykjavík helmings afslátt
af fargjöldum. Kostar fargjaldið fyrir þá
425 krónur aðra leiðina í stað 850 kr.
Nemendur sem stunda nám við skóla
á höfuðborgarsvæðinu hafa fengið ferða-
styrki frá Reykjanesbæ á undanförnum
árum. Styrkina hafa þeir getað notað til
að fara á eigin bíl á milli eða nota áætl-
unarferðir. Í fjárhagsáætlun bæjarsjóðs
fyrir nýbyrjað ár er gert ráð fyrir að
styrkirnir falli niður að lokinni yfir-
standandi önn.
Á vef Reykjanesbæjar er sagt frá
samkomulagi við SBK um að nemendum
verði veittur afsláttur og með því sé ver-
ið að koma til móts við athugasemdir um
niðurfellingu ferðastyrkjanna. Einar
Steinþórsson, framkvæmdastjóri SBK,
segir að gert sé ráð fyrir því að bærinn
greiði fyrirtækinu ákveðna fjárhæð fyrir
hverja önn en ljóst sé að hún dugi ekki
fyrir afslættinum. Markmið fyrirtækis-
ins með samningnum sé að reyna að
fjölga farþegum í áætlunarbílunum milli
Reykjanesbæjar og höfuðborgarsvæðis-
ins og koma til móts við bæinn og sinn
tryggasta viðskiptavinahóp, námsfólkið.
Hann segir að þetta fyrirkomulag sé
tekið upp til reynslu og verði endur-
skoðað að lokinni einni önn.
Námsfólk
fær afslátt
með áætlun-
arbílum
Grindavík | Nýtt íbúðarhverfi í Grindavík
sem gengið hefur undir vinnuheitinu Norð-
urhverfi hefur fengið nafn sem og göturnar
í því. Byggingar- og skipulagsnefnd
Grindavíkur leggur til að hverfið fái heitið
Hópshverfi. Brautin fyrir ofan hverfið mun
heita Hópsbraut og göturnar í hverfinu fá
nöfnin Vesturhóp, Suðurhóp, Austurhóp
og Miðhóp.
Götur í
Hópshverfi
fá heiti
♦♦♦
Alþjóðleg, samkirkjuleg bænavika:
„Kristur, eini grundvöllur kirkjunnar“
Alþjóðleg, samkirkjuleg bænavika verður haldin dagana 16.-23. janúar
2005. Bænavikan er haldin árlega um þetta leyti og er þá beðið fyrir
einingu kristins fólks um heim allan.
Haldnar verða bænastundir og samkomur víða á höfuðborgarsvæðinu
og á Akureyri, þar sem trúfélög sameinast um helgihald.
Allir eru velkomnir á samverustundir bænavikunnar.
Dagskrá bænavikunnar:
Sunnudagur 16. janúar:
Kl. 11.00 Útvarpsmessa í Neskirkju.
Kl. 20.00 Samvera í Íslensku Kristskirkjunni, Fossaleyni.
Mánudagur 17. janúar:
Kl. 20.00 Samvera í Hafnarfirði í Klaustrinu.
Kl. 20:00 Bænastund í Hvítasunnukirkjunni, Akureyri.
Þriðjudagur 18. janúar:
Kl. 12.00 Hádegisbænastund í Fíladelfíukirkjunni, Reykjavík.
Kl. 12.00 Bænastund á Hjálpræðishernum, Akureyri.
Miðvikudagur 19. janúar:
Kl. 12.00 Íslenska Kristskirkjan í Reykjavík, hádegisbænir.
Kl. 12.00 Kyrrðar- og fyrirbænstund Glerárkirkju, Akureyri.
Kl. 20.00 Samkoma í Kristskirkju, Landakoti.
Fimmtudagur 20. janúar:
Kl. 20.00 Samkoma á Hjálpræðishernum í Reykjavík.
Kl. 20.00 Sameiginleg samkoma trúfélaga í Péturskirkju, Akureyri.
Föstudagur 21. janúar:
Kl. 12.00 Fríkirkjan Vegurinn, hádegisbænir.
Kl. 20.00 Samkoma í kirkju aðventista í Reykjavík.
Kl. 20.00 Bænastund í umsjá aðventista í Sunnuhlíð Akureyri
í félagsheimili KFUM og KFUK.
Laugardagur 22. janúar:
Kl. 20.00 Samkoma í kirkju Óháða safnaðarins.
Sunnudagur 23. janúar:
Aftansöngur í kaþólsku kirkjunni, Péturskirkju, Hrafnagilsstræti 2, Akureyri.
Samstarfsnefnd kristinna trúfélaga
Kirkja aðventista, Fríkirkjan Vegurinn, Hvítasunnukirkjan, Hjálpræðis-
herinn, Íslenska Kristskirkjan, Kaþólska kirkjan, Óháði söfnuðurinn
og Þjóðkirkjan.
Námskeiðin hjá Símenntunarmiðstöð
Vesturlands byrja upp úr miðjum janúar og
er framboðið afar fjölbreytt. Meðal annars
er átak í tungumálafræðslu BSRB, en boðið
verður upp á 30 stunda námskeið í ensku í
helstu bæjarfélögum á Vesturlandi, auk
spænsku á þremur stöðum. Á BSRB þingi
haustið 2003 var ákveðið að gera átak í
tungumálafræðslu fyrir félagsmenn og er
námskeiðið styrkt af starfsmenntasjóðum
BSRB. Fyrir þá sem ekki eru BSRB fé-
lagar, hafa ekki áhuga á tungumálum og
eru ekki karlmenn er tilvalið að skella sér á
dekurnámskeið fyrir konur. Það námskeið
er haldið á Varmalandi og er létt leikfimi,
hugleiðsla og slökun fyrir sál og líkama.
Þegar kemur að öðrum tómstunda-
tilboðum í Borgarbyggð sýnist manni í
fljótu bragði að þau henti frekar strákum
en stelpum. Þannig munu yngri árgangar
stelpna t.d. ekki hafa skilað sér í knatt-
spyrnuna, og er álitamál hvað veldur. Fé-
lagmálanefnd hefur óskað eftir því við bæj-
arráð, að framboð og þátttaka beggja kynja
í íþróttum og tómstundum verði athuguð og
gerðar viðeigandi úrbætur ef með þarf.
Samkvæmt nýsamþykktri fjárhagsáætlun
fyrir árið 2005 er áætlað að 108 milljónir
fari til þessa málaflokks og því ástæða til
þess að jafnrétti ríki þar.
Þorrablótin eru innan seilingar og þorra-
maturinn farinn að sjást í verslunum.
Harðfisk og hákarl geta Borgnesingar
keypt við útidyrnar heima hjá sér á morg-
un, sunnudag. Þá ætlar Kiwanisklúbburinn
Smyrill og Sinawikkonur að ganga í hús og
selja til styrktar kaupa á sérútbúinni bif-
reið fyrir akstur á á hreyfihömluðu fólki.
Loksins árar vel fyrir þá sem eiga og
reka snjómoksturstæki. Nóg er að gera við
snjóruðning, enda hefur snjónum kyngt
niður. Verst hvað erfitt er að komast út úr
heimastæðunum þegar búið er að ryðja
göturnar. Sennilega þætti mörgum öðrum
landsmönnum ekki mikið um, en sé miðað
við að hér hefur varla fest snjó undanfarna
vetur þykir okkur nóg um.
Úr
bæjarlífinu
BORGARNES
EFTIR GUÐRÚNU VÖLU
ELÍSDÓTTUR FRÉTTARITARA
Útigangur