Morgunblaðið - 15.01.2005, Page 27

Morgunblaðið - 15.01.2005, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2005 27 FERÐALÖG FERÐASKRIFSTOFAN Príma ásamt Heimsklúbbi Ingólfs er nú komin undir hatt Ferðaskrifstof- unnar Emblu, sem sérhæft hefur sig í ferðum í litlum hópum til framandi og fjarlægra áfangastaða. Ingiveig Gunnarsdóttir stofnaði Emblu árið 2000 og í október sl. gerðist Birgir Finnbogason meðeigandi Ingiveigar og settist þá jafnframt í fram- kvæmdastjórastólinn. Ingiveig starf- ar við fyrirtækið sem sölu- og mark- aðsstjóri auk þess sem hún býr sjálf til ferðirnar. „Það má segja að ákveðin tímamót séu í rekstrinum með nýjum eig- endum og nýjum áherslum,“ segir Ingiveig. „Óhætt er að segja að við séum með mesta úrvalið af sérhönn- uðum sérferðum fyrir Íslendinga á fjarlægar slóðir og meðal áfanga- staða í ár verða Madeira, Máritíus, Indland, Argentína, Brasilía, Suður- Afríka, Ástralía, Nýja-Sjáland, Sam- einuðu arabísku furstadæmin og Dubai. Hver ferð á sér langan að- draganda í skipulagningu þar sem allir gististaðir eru sérvaldir með hliðsjón af gæðum, staðsetningu og stíl. Við leggjum mikla áherslu á að skipta við heimamenn á hverjum stað og veljum samstarfsaðila, sem hafa sömu markmið og við. Við erum að þjóna fólki, sem finnst það skipta máli að vera í öruggum höndum og vill upplifa það besta fáanlega á hverjum stað. Okkar helsti markhóp- ur er fólk, sem vill upplifa ævintýri og hefur tök á því að fara í heims- reisur. Svokölluð vistvæn eða græn ferðamennska mótar tóninn í ferð- unum okkar.“ Námskeiðahald í fuglaskoðun Eigendur Emblu koma til með að njóta samstarfs við Ingólf Guð- brandsson, stofnanda Príma og Heimsklúbbsins, enda hefur hann, að sögn Ingiveigar og Birgis, víðtæk- ustu reynsluna af því að koma Ís- lendingum til útlanda og kynna þeim framandi slóðir. „Meiningin er svo að virkja starfsemi Heimsklúbbs Ing- ólfs til námskeiðahalds sem tengist ferðum til fjarlægra landa, en á stefnuskránni eru m.a. námskeið í ljósmyndun, hagnýtri spænsku, framandi matargerð og síðast en ekki síst í fugla og náttúruskoðun og notkun sjónauka, sem er bráðnauð- synlegt að kunna þegar við förum inn í Amazon-regnskóginn.“ Spennandi vettvangur Birgir er endurskoðandi að mennt og er einn af stofnendum Deloitte hf., þar sem hann hefur unnið allar götur þar til hann ákvað að söðla um og breyta um starfsvettvang sl. haust. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á ferðalögum og útivist og fór sem al- mennur ferðamaður árið 2003 í ferð með Ingiveigu til Ekvadors og Ga- lapagos-eyja. Þetta eru stór- skemmtilegar og spennandi ferðir og fékk ég þessa sérkennilegu hugmynd um að breyta algjörlega um starfs- vettvang í kjölfar ferðarinnar, selja hlut minn í Deloitte og kaupa í Emblu.“ Eftir hina örlagaríku ferð fór Birg- ir að aðstoða Ingiveigu sem ráðgjafi svo hann segist svo sem hafa vitað að hverju hann gekk. „Þetta er mjög spennandi vettvangur og mjög áhugaverð sú þjónusta, sem Ingiveig hefur verið að byggja upp, hvort sem litið er til hinna sérsniðnu ferða til út- landa eða innanlandsmarkaðarins, sem er í reynd grunnur Emblu. Á sama tíma og Birgir gekk inn í Emblu í október sl. var ákveðið að skjóta styrkari stoðum undir rekst- urinn og breikka framboð ferða og var þá ákveðið að yfirtaka rekstur Prímu, en bæði Príma og Embla hafa verið að vinna á svipuðum markaði við að sérhanna ferðir fyrir litla hópa Íslendinga til fjarlægra landa. Sumarhús og villur Embla veitir þeim, sem kjósa að vera á eigin vegum, ákveðna þjónustu áð- ur en lagt er í’ann sem er, að sögn Ingiveigar, nýjung í starfseminni. „Við aðstoðum fólk við að skipu- leggja eigin ferðir og bjóðum í því samhengi yndisleg sumarhús og vill- ur með sundlaugum og öllu tilheyr- andi á Ítalíu sem fólk getur leigt viku í senn og rúma allt að tuttugu manns í einu. Þessi kostur er sérstaklega skemmtilegur fyrir fjölskyldur og vinahópa. Auk þess er hægt að fá leigð bresk sveitahús í Agöthu Christie-stíl hjá Emblu til lengri eða skemmri tíma og ekki má svo gleyma siglingunum, en Embla er umboðs- aðili fyrir fjölmörg skipafélög og skemmtiferðaskip,“ segir Ingiveig, sem býr að tuttugu ára reynslu í fjöl- mörgum geirum ferðaþjónustunnar.  EMBLA | Heimsklúbbur Ingólfs og Príma undir hatt Emblu Dubai og ítalskar villur Morgunblaðið/Árni Sæberg Eigendur Emblu: Ingiveig Gunnarsdóttir og Birgir Fimbogason. Ferðaskrifstofan Embla Stangarhyl 1 Reykjavík. ICELANDAIR mun í sumar fljúga í áætlunarflugi til 21 borgar í Bandaríkjunum og í Evrópu. Að sögn Guðjóns Arngrímssonar, upplýsingafulltrúa, er hér um að ræða eftirsóttustu og merkustu borgir beggja vegna hafsins og þaðan liggja svo leiðir til allra átta. „Það er því fyrst og fremst fjölbreytnin, sem ræður ríkjum hjá okkur þegar litið er til sumarsins,“ segir Guðjón spurður um ferða- framboð sumarsins. „Icelandair mun í sumar leggja mikla áherslu á Banda- ríkjaferðir enda finnum við fyrir auknum áhuga á Banda- ríkjunum um þessar mundir. Dollarinn er náttúrulega hagstæður og það gerir verðlagið vestra hagstætt, t.d. á gistingu, mat og þjónustu. Við erum að bæta þar við nýj- um spennandi áfangastað, sem er San Francisco og þar með Kaliforníu og vesturströndinni. Fyrsta flugið er á áætlun 18. maí nk. Borgin er einn þekktasti ferðamanna- staður heims og svæðin í kringum borgina eru stór- fengleg, hvort sem farið er inn í landið, t.d. í Napa-dalinn fræga eða með ströndinni til staða eins og Monterey og Carmel svo eitthvað sé nefnt. Við verðum með margskon- ar hagstæð tilboð, t.d. fyrir fjölskyldur, sem vilja taka bíla- leigubíl og keyra um Kaliforníu. Einnig erum við nú með ferðir allt árið til Orlando og borganna á austurströndinni, Baltimore, New York og Boston auk Minneapolis. Við höf- um trú á því að mjög margir muni leggja leið sína vestur um haf í sumar, en mikil aukning hefur verið í ferðum Ís- lendinga til Bandaríkjanna í vetur,“ segir Guðjón. Borg og strönd „Við munum líka horfa til Evrópu að sjálfsögðu. Við bjóð- um t.d. upp á frábær kjör á flugi og bíl í Þýskalandi og bendum á það sem við köllum „Borg og strönd“, en það eru ferðirnar til Barcelona. Sem fyrr segir er það fjöl- breytnin sem ræður ríkjum. Við erum með ferðir nokkrum sinnum á dag til vinsælustu staðanna, eins og t.d. Kaup- mannahafnar og London og daglegt flug til fjölmargra annarra staða í allt sumar og reyndar árið um kring.“ Áhersla lögð á Bandaríkin  ICELANDAIR Presslink Icelandair verður með tilboð fyrir fjölskyldur, sem vilja taka bílaleigubíl og keyra um Kaliforníu. smáauglýsingar mbl.is FERÐALÖG til stórborga eru vin- sæl, sérstaklega meðal kvenna og ungs fólks, að því er fram kemur á vef Aftenposten. Róm er vinsælasta borgin skv. norskri könnun en sjö af hverjum tíu langar að heimsækja ítölsku höfuðborgina á árinu. Í öðru sæti er London, París í því þriðja, Feneyjar fjórða og Barcelona er fimmti vinsælasti áfangastað- urinn. Kaupmannahöfn, New York og Prag eru næstar á lista. Konurnar hafa mestan áhuga á að komast til Rómar eða Parísar en karlarnir vilja frekar fara til London og New York. Morgunblaðið/Ásdís Karlar kjósa að ferðast til borga eins og New York eða Lundúna. Konur vilja fara til Rómar  KÖNNUN Ódýrari bílaleigubílar fyrir Íslendinga Bílar frá dkr. 1.975 vikan Bílaleigubílar Sumarhús í DANMÖRKU www.fylkir.is sími 456-3745 Innifalið í verði: Ótakmarkaður akstur, allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð. (Afgreiðslugjöld á flugvöllum.) Höfum allar stærðir bíla, 5-7 manna og minibus, 9 manna og rútur með/ án bílstjóra. Sumarhús Útvegum sumarhús í Danmörku af öllum stærðum, frá 2ja manna og upp í 30 manna hallir. Valið beint af heimasíðu minni eða fáið lista. Sendum sumarhúsaverðlista; Dancenter sumarhús Lalandia orlofshverfi Danskfolkeferie orlofshverfi Hótel. Heimagisting. Bændagisting. Ferðaskipulagning. Vegakort og dönsk gsm-símakort. Fjölbreyttar upplýsingar á heimasíðu; www.fylkir.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I C E 27 01 3 0 1/ 20 05 Netsmellur Alltaf ód‡rast á netinu Gran Canaria Houses and flats for rent, for longer and shorter periods. See our website: www.utleieservice-grancanaria.com We speak Norwegian/English. Tel. 0034 620544751/680180526.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.