Morgunblaðið - 15.01.2005, Side 44
44 LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Í MARGA áratugi var eingöngu eitt
taflfélag í Reykjavík með reglulega
starfsemi. Það var Taflfélag
Reykjavíkur sem stofnað aldamóta-
árið 1900 og hafa sögufrægar per-
sónu á borð við Einar Benediktsson
og Ólaf Thors komið að starfsemi
þess. Þegar frá er talið Íslandsmót-
ið í skák og alþjóðleg mót þá voru á
hverju ári öflugustu keppnir lands-
ins haldnar innan vébanda hins
aldna félags. Annars vegar var um
að ræða Haustmót félagsins en það
var um leið meistaramót þess og
hins vegar var um að ræða Skák-
þing Reykjavíkur en efstur Reyk-
víkinga á mótinu fékk þá nafn-
bótina Skákmeistari Reykjavíkur.
Báðar þessar keppnir voru haldnar
að vetri til enda lagðist íslenskt
skáklíf að jafnaði í dvala á sumrin.
Haustmótið fór fram í september
eða október en Skákþingið hófst
alltaf í upphafi hvers árs og lauk í
byrjun febrúar. Þessi mót voru oft
vel sótt og tóku stundum yfir eitt
hundrað manns þátt í þeim. Sam-
fara margskonar breytingum í sam-
félaginu og skáklífinu hefur þátt-
taka dalað. Fleiri mót eru í boði og
afþreying einnig. Gömlu góðu mót-
in voru ellefu umferðir og gat skák-
in farið í bið eftir 40 leiki. Mörg
kvöld gátu því farið í að tefla skák-
irnar ellefu. Eins og minnst var á, í
hófi haldið Ólafi H. Ólafssyni til
heiðurs, laugardaginn 8. janúar sl.,
þá var félagið oft á hrakhólum með
húsnæði og rétt svo að það gat hald-
ið þessi stórmót sín. Í kjölfar þess
að Hólmsteinn Steingrímsson varð
formaður félagsins á sjöunda ára-
tug síðustu aldar komst hreyfing á
hlutina og húsnæði á Grensásvegi
44–46 var keypt. Starfsemin þar
var blómleg. Stór salur var fyrir
stærri mót en honum var hægt að
skipta í tvennt með tjaldi. Bókasafn
og skrifstofa félagsins var fyrir
neðan salinn. Í minningunni var
vart hægt að ímynda sér heppilegri
stað til að iðka skák. Í lok níunda
áratugarins festi félagið kaup á
risastóru húsnæði í Faxafeni 12.
Engu að síður fór fjarri að það væri
eins vel til þess fallið að nýtast sem
skáksetur eins og Grensásvegur-
inn. Sumir hafa orðað það svo að sál
félagsins hafi skroppið saman við
flutninginn. Andi hins nýja húss var
ekki sá sami. Þar fyrir utan reynd-
ust kaupin fjárhagslegt glapræði og
félagið lenti á barmi gjaldþrots.
Slæm fjármálastaða var sem drag-
bítur á starfsemi félagsins og minni
slagkraftur var í félagsstarfinu.
Það tókst að selja lungann úr hús-
næðinu og var það vel. Fjármálin
voru ekki það eina sem áhyggjur
þurfti að hafa af. Hið háa loft og
víðu veggir í Faxafeni gerðu marga
stórhuga – gengið var úr félaginu
og taflfélag stofnað sem kallaðist
Hellir. Þrátt fyrir hrakspár í upp-
hafi hefur það félag lifað góðu lífi
síðan. Þrátt fyrir þennan mótbyr
stendur hið aldna félag á gömlum
og traustum merg. Menn eins og
Ríkharður Sveinsson og Ólafur S.
Ásgrímsson standa enn fyrir sínu,
sjá til þess að mót séu haldin og allt
fari fram venju samkvæmt. Skák-
þing Reykjavíkur hefst einmitt á
morgun, sunnudaginn 16. janúar,
kl. 14 í húsakynnum félagsins að
Faxafeni 12. Meistari síðasta árs,
Bragi Þorfinnsson, verður fjarri
góðu gamni en hann ásamt bróður
sínum Birni og nöfnunum Stefáni
Kristjánssyni og Bergssyni fer til
Gíbraltar að taka þátt í alþjóðlegu
skákmóti sem hefst 25. janúar
næstkomandi. Engu að síður má
vænta að nokkrir öflugir skákmenn
mæti til leiks og jafnvel að Jón Vikt-
or Gunnarsson geri enn eina til-
raunina til að jafna met Guðmundar
Gíslasonar um árið, þegar sá vest-
firski kappi vann allar skákir sínar
ellefu í mótinu. Að þessu sinni verða
tefldar níu umferðir eftir sviss-
nesku kerfi og eru tímamörkin að
jafnaði 90 mínútur á alla skákina
auk 30 sekúndna á leik. Eins og
venjulega verður teflt á sunnudög-
um kl. 14 en á miðvikudögum og
föstudögum kl. 19.30. Fyrir utan
verðlaun í aðalkeppninni eru verð-
laun fyrir bestan árangur skák-
manna undir 2.000 skákstigum.
Nánari upplýsingar um mótið er að
finna á www.skak.is og á heimasíðu
Taflfélags Reykjavíkur.
Björn Þorfinnsson fær fullt
hús á Skákþingi Hafnarfjarðar
Hellismaðurinn Björn Þorfinns-
son (2.370) sigraði örugglega á
Skákþingi Hafnarfjarðar sem fram
fór dagana 7.–9. janúar sl. í Álfa-
felli, íþróttahúsinu á Strandgötu.
Hann fékk sjö vinninga af sjö
mögulegum en gat ekki orðið meist-
ari þeirra Hafnfirðinga þar eð hann
er búsettur í Reykjavík. Þorvarði
Fannari Ólafssyni (2.060) féll sá
heiður í skaut eftir að hann innbyrti
sigur á Heimi Ásgeirssyni (2.050) í
lokaumferðinni. Þorvarður fékk 5½
vinning og lenti í öðru sæti í keppn-
inni en Heimir deildi þriðja sætinu
með Hrannari Baldurssyni (2.120) –
báðir luku keppni með fimm vinn-
inga. Fyrirfram var við því búist að
baráttan um efsta sæti mótsins yrði
á milli Sigurðar Daða Sigfússonar
(2.330) og Björns. Sá fyrrnefndi
náði sér ekki á strik á mótinu og
lauk keppni með fjóra vinninga sem
þýddi að hann deildi fimmta sætinu
með Sverri Erni Björnssyni (1.960).
Alls voru 21 keppandi á mótinu og
er ánægjulegt að skáklíf í bæ Gafl-
ara hefur tekið mikinn kipp upp á
við, eftir að skákdeild Hauka, undir
forystu Auðbergs Magnússonar,
var sett á laggirnar.
Íslandsmót barna í skák 2005
Í dag, laugardaginn 15. janúar,
hefst Íslandsmót barna í skák 2005
kl. 13 í húsakynnum Taflfélags
Reykjavíkur. Mótið er opið öllum
krökkum sem fædd eru 1994 og síð-
ar. Veglegur bikar er fyrir sigur-
vegara mótsins og verðlaun veitt
fyrir þrjú efstu sætin. Sérstök verð-
laun verða veitt þrem efstu stúlk-
unum í mótinu (ef að a.m.k. 10
stúlkur taka þátt í því) og hlýtur sú
efsta titilinn Íslandsmeistari
stúlkna 2005. Einnig verður haldið
happdrætti þar sem dregið verður
um ýmsa vinninga svo sem X-BOX-
tölvu.
Fyrirlestraröð
um Fischer vel sótt
Helgi Ólafsson hefur haldið tvo
fyrirlestra um Bobby Fischer í
húsakynnum Skákskóla Íslands að
Faxafeni 12 og verða tveir haldnir
til viðbótar fimmtudagskvöldin 20.
janúar og 27. janúar. Fyrsta kvöld-
ið var fjallað um eitt mikilvægasta
árið á skákferli heimsmeistarans
fyrrverandi frá Brooklyn – 1970. Þá
vann hann millisvæðamót, tefldi á
Ólympíuskákmótinu í Siegen og
vann nokkur öflug alþjóðleg skák-
mót. Umfjöllunarefni næsta fyrir-
lestrar Helga var árið 1971 þegar
Fischer bar sigurorð af Mark Tai-
manov og Bent Larsen 6–0 í áskor-
endaeinvígi og svo Tigran Petrosj-
an 7½ gegn 2½.
Corus-skákhátíðin í Wijk aan
Zee í Hollandi að hefjast
Öflugasta og ein mest sótt
skákhátíð hvers árs hefst í dag með
keppni í A-flokki þar sem þátttak-
endur eru ekki af verri endanum.
Sigurvegari síðasta árs, Indverjinn
Viswanathan Anand (2.786), er
stigahæsti keppandinn. Veselin
Topalov (2.756) kemur næstur hon-
um að stigum en heimsmeistarinn
Vladimir Kramnik (2.754) verður að
láta sér lynda að vera númer þrjú í
stigaröðinni. Búast má við mjög
spennandi móti en alls eru fjórtán
keppendur og meðalstig þeirra eru
2.721. Ánægjulegt er að Judit Polg-
ar sest aftur að skákborðinu en
fæðing fyrsta barns hennar varð
þess valdandi að hún tók sér leyfi
frá taflmennsku árið 2004. Anand
er sigurstranglegastur þar sem
taflmennska hans hefur verið frá-
bær síðustu mánuði. Kramnik teflir
í fyrsta skipti opinberlega eftir að
hafa náð að verja titil sinn með því
að halda jöfnu gegn Peter Leko
(2.749). Ungverjinn sá er einnig á
meðal keppenda sem og Alexander
Morozevich (2.741) og Michael
Adams (2.741). Umsjónarmaður
skákþáttarins mun fylgjast grannt
með þessu móti en einn Íslendingur
mun tefla á skákhátíðinni. Óljóst er
í hvaða flokki Jóhann H. Ragnars-
son teflir en fyrirkomulagið ku vera
þannig að um marga tíu manna
flokka er að ræða eftir að A- og B-
flokki hátíðarinnar sleppir.
Skákþing
Reykjavíkur
byrjar á morgun
SKÁK
Taflfélag Reykjavíkur
Meistari síðasta árs ver ekki titil sinn
16. janúar – 4. febrúar 2005
HELGI ÁSS GRÉTARSSON
Björn
Þorfinnsson
Viswanathan
Anand
daggi@internet.is
Á BYGGÐAÞINGI í Finnlandi fyrir nokkru sýndi Fríða Vala Ásbjörnsdóttir
veggspjöld um verkefnið, Unglingurinn á landsbyggðinni, þar sem byggða-
sjónarmið íslenskra unglinga vöktu athygli.
Unglingurinn á landsbyggðinni, verkefni sem samtökin Landsbyggðin lifi
(LBL) hefur unnið að meðal 13–18 ára unglinga út um land, vakti mikla at-
hygli á byggðaþingi finnskra systursamtaka LBL og norrænu samtakanna
Hela Norden ska Leva (HNSL).
Fríða Vala Ásbjörnsdóttir, frumkvöðull stofnunar Landsbyggðin lifi og
stjórnarmaður í LBL og HNSL, kynnti veggspjöld, sem unnin voru á grund-
velli fyrri hluta verkefnisins á þinginu, sem haldið var í Närpes í Finnlandi í
október sl.
Að sögn Fríðu Völu er um að ræða verkefni, sem tekur tvö ár. Leitað var
til unglinga í grunn- og framhaldsskólum á landsbyggðinni. Voru þeir beðnir
um að lýsa því, hvað þeim þætti vanta til að heimabyggð þeirra yrði betri til
búsetu eða eftirsóknarverðari til að flytjast til.
Bestu ritgerðirnar úr hverjum landshluta voru verðlaunaðar í vor er leið.
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands og verndari samtakanna
HNSL, afhenti verðlaun, sem útgáfufélagið Edda hf. veitti.
Hyggst kynna ábendingar unglinganna
Fyrir Finnlandsferðina voru útbúin fimm veggspjöld með ljósmyndum frá
landshlutunum og texta, sem sóttur var í ritgerðir unglinganna og merktur
höfundum. Sérstök athygli var vakin á sveitarfélögum verðlaunahafanna í
hverjum landshluta. Gafst mönnum kostur á að bera svör unglinganna sam-
an eftir landshlutum og athuga hvort greina mætti mismun á hugsunarhætti
eftir landshlutum. Til að koma skilaboðum unglinganna betur til skila er hug-
mynd Fríðu Völu að heimsækja marga skóla og hitta sveitarstjórnarmenn til
að kynna frekar úrlausnir þeirra með þá von í brjósti, að þeir taki þær til
greina, því að þar er mörg gullkorn að finna. „Krakkarnir komu með snilld-
arlausnir,“ segir Fríða Vala.
Ráðstefnugestir í Närpes stoppuðu við spjöldin og gáfu sér tíma til að
grúska í þessu. Ísland fékk mikla athygli fyrir hugmyndir unglinganna um
byggðamál.
Plakatagerðin var kostnaðarsöm og munar því mikið um veittan stuðning
forsætisráðuneytisins, segir í fréttatilkynningu.
Forsætisráðu-
neytið styrkir
gerð plakata
Margir unglingar tóku þátt í ritgerðarverkefninu frá hverjum skóla, þótt
aðeins ein ritgerð væri send inn til þátttöku í sjálfa verðlaunasamkeppnina.
STOFNFUNDUR Félags um þekk-
ingarstjórnun var haldinn 13. jan-
úar sl. og mættu um 40 manns á
fundinn. Auk þess hafa fleiri skráð
sig sem stofnfélaga. Á fundinum
hélt Ingi Rúnar Eðvarðsson fram-
sögu um nýútkomna bók sína
„Þekkingarstjórnun“ og Haukur
Haraldsson rekstrarráðgjafi talaði
um gerð og notkun þekkingarkorta
í fyrirtækjum.
Markmið félagsins er að efla
þekkingu og skilning á þekking-
arstjórnun hjá einstaklingum, fyr-
irtækjum og opinberum aðilum.
Ennfremur að efla tengsl þeirra
sem starfa við þekkingarstjórnun
og stuðla að samvinnu þeirra á milli
og standa fyrir fræðsluviðburðum.
Formaður félagsins var kjörinn
Sigmar Þormar félagsfræðingur og
í stjórn með honum eru Jóhanna
Gunnlaugsdóttir lektor og Hreiðar
Örn Gestsson húsasmíðameistari
auk varamanna, Ástu Þorleifs-
dóttur ráðgjafa og Hauks Haralds-
sonar rekstrarráðgjafa.
Hægt er að skrá sig sem stofn-
félaga í Félag um þekking-
arstjórnun fram að aðalfundi fé-
lagsins í apríl nk., segir í
fréttatilkynningu.
Stofna félag
um þekkingar-
stjórnun
STJÓRN Félags íslenskra hjúkr-
unarfræðinga ákvað á fundi sínum
nýlega að veita eina milljón króna
til hjálparstarfs Rauða krossins
vegna hamfaranna í Suðaustur-
Asíu.
Félög hjúkrunarfræðinga um all-
an heim hafa sameinast um að
leggja hjálparstarfinu lið og að
styðja sérstaklega hjúkrunarfélög-
in á hamfarasvæðunum. Hjúkr-
unarfræðingar gegna lykilhlut-
verki í umönnun sjúkra og slasaðra
á hamfarasvæðunum og í fyr-
irbyggingu farsótta. Þeirra bíður
einnig mikið starf í fræðslu og
stuðningi við fórnarlömbin og alla
þá sem um sárt eiga að binda eftir
flóðin.
Félag íslenskra hjúkrunarfræð-
inga hvetur önnur fag- og stétt-
arfélög til að láta fé af hendi rakna
til hjálparstarfsins, segir í frétta-
tilkynningu.
Hjúkrunarfræð-
ingar styðja neyð-
arhjálp í Asíu
LIONSKLÚBBURINN í Hafnarfirði
hefur gefið sykursjúkum börnum
farsíma til að tryggja öryggi þeirra í
lífi og starfi. Í haust hóf klúbburinn
söfnun til styrktar málefninu. Syk-
ursjúk börn á grunnskólaaldri fengu
farsímana í jólagjöf en farsímar
geta reynst börnum með þennan
sjúkdóm afskaplega nauðsynlegir.
„Símarnir gefa börnunum aukið
frelsi því þau þurfa stöðugt að vera
undir gæslu og handleiðslu fullorð-
inna. Foreldrarnir þurfa alltaf að
vita hvar þau er að finna til þess að
geta gripið inní ef til neyðarástands
kemur. Auk þess er meðferð sjúk-
dómsins flókin og eiga börn og ung-
lingar erfitt með að bera ábyrgð á
henni án stuðnings og aðstoðar full-
orðinna,“ segir m.a. í fréttatilkynn-
ingu og vill Foreldrafélag syk-
ursjúkra barna koma á framfæri
þakklæti til félagsmanna Lions-
klúbbsins.
Sykursjúkum
börnum gefnir
farsímar sem
öryggistæki