Morgunblaðið - 15.01.2005, Page 50
50 LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það er ekki laust við að hugsjónaeldurinn
hafi náð tökum á þér. Þig þyrstir í að
breyta heiminum. Vandamál landa í fjar-
lægum heimshluta eru þér hugleikin
þessa dagana.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú sýnir ósérhlífni í dag og vilt nýta
krafta þína, peninga, eigur eða önnur úr-
ræði til þess að hjálpa öðrum. Þú ert til í
að leggja hvað sem er á þig. Það er aðdá-
unarvert.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú ert til í að leggja vini lið í dag, eða þá
að vinur er til í að rétta þér hjálparhönd.
Þú ert jákvæður í garð annarra núna og
þeir bera sama hug til þín. Það er hið
besta mál.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú ert samvinnufús í vinnunni í dag,
krabbi. Þig langar að leggja öðrum lið.
Aðrir vilja líka létta undir með þér. Ein-
hverra hluta vegna er fólk hjálpsamara en
ella núna.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljónið hefur ánægju af skemmtun og leik
með ungviðinu í dag. Góðhjartað viðhorf
til unga fólksins verður ofan á. Viðleitni
þín til sköpunar ber árangur.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú bryddar upp á nýjungum á heimilinu í
dag, hugsanlega glænýrri tegund af
drykk. Reyndu að fara ekki yfir strikið í
því sem þú tekur þér fyrir hendur.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú ert til í að nýta hæfileika þína til þess
að hjálpa börnum í dag. Þú skilur að það
sem þú leggur af mörkum kemur þeim
sem minna mega sín afar vel.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Freistingar láta á sér kræla og þú lætur
eftir þér að eyða fjármunum í ótil-
greindan lúxusgrip fyrir heimilið eða fjöl-
skyldumeðlim. Þú stenst einfaldlega ekki
mátið.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú átt gott með að skoða umheiminn af ei-
lítið meiri næmleika en ella. Skilningur
þinn á þörfum vina og nágranna er meiri
en endranær.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Dragðu fram tarot-spilin, þú laðast að
dularfullum, framandi og dulspekilegum
fyrirbærum þessa dagana. Samtöl um
drauga og dularfull atvik höfða til þín.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þig langar mikið til þess að bæta veröld-
ina, meira en nokkurt annað stjörnumerki
dýrahringsins. Þú vilt að sem flestir beri
sem mest úr býtum. Um þessar mundir
leitar þú leiða til þess að svo megi verða.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú virðist einstaklega viðkvæmur, um-
hyggjusamur og góður í dag, ágæti fiskur.
Reyndar eru þessir eiginleikar í eðli þínu,
fólk tekur bara meira eftir þeim núna.
Stjörnuspá
Frances Drake
Steingeit
Afmælisbarn dagsins:
Vinnusemi, hugsjónaeldur og þrautseigja
eru meðal einkenna þinna, en þú ert líka
lífsnautnamanneskja. Þú nærð oft gríð-
arlegum árangri sem sveipar þig hetju-
ljóma í augum annarra. Þú lærir hratt.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 alda, 4 undir
eins, 7 ól, 8 fugls, 9 tek, 11
gler, 13 fjall, 14 tuskan, 15
frá, 17 nísk, 20 blóm, 22
endar, 23 urg, 24 dreg í
efa, 25 kaka.
Lóðrétt | 1 dregur upp, 2
látin, 3 nákomin, 4 görn, 5
grotta, 6 þvaðra, 10 vein-
ar, 12 þrif, 13 bókstafur,
15 trjástofn, 16 auðugan,
18 nói, 19 braka, 20 ískri,
21 músarhljóð.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 gikkshátt, 8 eljan, 9 rímur, 10 náð, 11 tinna, 13
apann, 15 kyrru, 18 halur, 21 nýr, 22 stund, 23 orður, 24
linnulaus.
Lóðrétt | 2 iðjan, 3 kanna, 4 herða, 5 tomma, 6 heit, 7 grun,
12 nær, 14 púa, 15 kost, 16 rausi, 17 undin, 18 hroll, 19
liðnu, 20 rýrt.
Skemmtanir
Cafe Catalina | Addi M. spilar.
Café Victor | Plötusnúðurinn Mr. Metro.
Classic Rock | Spilafíklarnir leika. Frítt inn.
Gaukur á Stöng | Atómstöðin og Dj Maggi.
Hverfisbarinn | Brynjar Már þeytir skífur.
Kaffi Akureyri | Hljómsveitin Bermuda.
Kaffi Sólon | Dj Þröstur 3000
Klúbburinn við Gullinbrú | Sixties í kvöld.
Kringlukráin | Geirmundur kl. 23.
Roadhouse | Dj le chef í kvöld.
Vélsmiðjan Akureyri | Norðurbandalagið.
Tónlist
Café Rosenberg | Helgi Valur frá kl. 23.
Pakkhúsið, Selfossi | Sex Volt í kvöld.
Póstbarinn | Sessý & Sjonni kl. 23–1.
Ráðhús Reykjavíkur | Kl. 17 leikur KK
nokkur lög á ljósmyndasýningunni.
Kvikmyndir
Háskólabíó | Frönsk kvikmyndahátíð. Kl.
15, Langa Trúlofunin. Kl. 16, Peningabíllinn.
Kl. 17.30, Langa Trúlofunin. Kl. 18, Grjót-
haltu kjafti. Kl. 20, Langa Trúlofunin, Pen-
ingabíllinn. Kl. 22, Hjartans mál. Kl. 22.30,
Langa Trúlofunin.
Leiklist
Borgarleikhúsið | Híbýli vindanna er leik-
gerð Bjarna Jónssonar á vesturfarasögum
Böðvars Guðmundssonar, Híbýli vindanna
og Lífsins tré.
Ausa Steinberg eftir Lee Hall og Stólarnir
eftir Ionesco. Guðrún Ásmundsdóttir og
Þráinn Karlsson leika gamlingjana í stól-
unum en Ilmur Kristjánsdóttir leikur Ausu,
einhverfan ofvita með krabbamein, sem
dreymir um að deyja eins og óperudíva.
Myndlist
Anddyri Suðurlandsbrautar 4 | Rafn Sig-
urbjörnsson – Fjölskyldan.
Árbæjarsafn | Í hlutanna eðli – Stefnumót
lista og minja.
Gallerí 101 | Egill Sæbjörnsson – Herra Pí-
anó & Frú Haugur.
Gallerí Banananas | Baldur Björnsson –
Hefur þú upplifað geðveiki?
Gallerí Dvergur | Sigga Björg Sigurð-
ardóttir – Lappir, línudans og fórnarlamb í
gulri peysu.
Gallerí i8 | Finnur Arnar – Ýmis myndverk.
Gallerí Sævars Karls | Hulda Vilhjálms-
dóttir – Hver er að banka á hurðina?
Gallerí Tukt | Kristjana Rós Guðjohnsen
sýnir abstrakt olíumálverk.
Gerðuberg | Sýning Guðríðar B. Helgadótt-
ur á listsaumsmyndum er opin virka daga
kl. 11–19 og um helgar kl. 13–17. Guðríður
mun taka á móti sýningargestum á laug-
ardag og sunnudag kl. 13–17 en sýningunni
lýkur 16. janúar. Sýning á verkum þýsku
listakonunnar Rosemarie Trockel opnar í
dag kl. 14.
Hafnarborg | Rafmagn í 100 ár. Svart á
hvítu, þrívíð verk, málverk, teikningar og
grafík í Sverrissal og Apóteki. Sigrún Guð-
mundsdóttir er myndhöggvari jan-
úarmánaðar.
Hallgrímskirkja | Jón Reykdal – 6 ný olíu-
málverk.
Hrafnista, Hafnarfirði | Sigurbjörn Krist-
insson myndlistarmaður sýnir málverk og
tússmyndir í Menningarsal.
Kaffi Sólon | Sigríður Valdimarsdóttir –
Snjókorn.
Kling og Bang gallerí | Heimir Björgúlfs-
son – Alca torda vs. rest.
Kunstraum Wohnraum | Alda Sigurð-
ardóttir – Landslagsverk.
Listasafn ASÍ | Opnun kl. 15. Valgerður
Guðlaugsdóttir - Á skurðarborði Augans.
Listasafn Íslands | Ný íslensk myndlist:
um veruleikann, manninn og ímyndina.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Tvær
opnanir kl. 15. Birgir Snæbjörn Birgisson –
verk úr tveimur myndröðum, Snertingar
og Ljóshærðar starfsstéttir. Elías B. Hall-
dórsson – Olíuljós.Verk úr einkasafni Þor-
valdar Guðmundssonar og Ingibjargar
Guðmundsdóttur á neðri hæð.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið – yfirlitssýning á verkum
Ásmundar Sveinssonar.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Þórð-
ur Ben Sveinsson – Borg náttúrunnar.
Bjargey Ólafsdóttir – Láttu viðkvæmt útlit
mitt ekki blekkja þig. Erró – Víðáttur. Brian
Griffin – Áhrifavaldar.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Textíllist 2004 – Alþjóðleg textílsýning.
Kjarval í Kjarvalssal.
Nýlistasafnið | Hlynur Helgason – Gengið
niður Klapparstíg. Ævintýralegir fem-
inistar – Carnal Knowledge.
Slunkaríki | Ívar Brynjólfsson – Bardaga-
vellir.
Tjarnarsalur Ráðhúss Reykjavíkur | Sör-
en Solskær Starbird – Er sálin sýnileg?
Ljósmyndasýning.
Þjóðmenningarhúsið | Bragi Ásgeirsson er
myndlistarmaður mánaðarins. Yfirlitssýn-
ing á verkum Braga í veitingastofu og í
kjallara.
Söfn
Þjóðmenningarhúsið | Sýningaröðin Tón-
listararfur Íslendinga. Fyrsta sýningin
fjallar um Silfurplötur Iðunnar sem Kvæða-
mannafélagið Iðunn og Smekkleysa gáfu
nýlega út á 4 geisladiskum ásamt veglegu
riti.
Þjóðminjasafn Íslands | Grunnsýning
Þjóðminjasafnsins, Þjóð verður til – menn-
ing og samfélag í 1200 ár. Opið frá kl. 11–17.
Í dag verða opnaðar ljósmyndasýningarnar
„Hér stóð bær…“ og „Átján vóru synir mín-
ir í álfheimum“.
Dans
Borgarleikhúsið | Íslenski dansflokkurinn
sýnir 3 verk fyrir alla fjölskylduna. Nánari
uppl. veitir Ólöf olof@id.is
Mannfagnaður
Iðnó | Fyrrverandi og núverandi félagar í
Hamrahlíðarkórnum halda kórpartý. Húsið
opnað kl. 21. Kl. 22 verður skálað fyrir ást-
inni og að því búnu stíga á svið nokkrar
hljómsveitir sem eiga rætur sínar að rekja
til kórsins. Loks verða leikin danslög af
plötum fram eftir nóttu. Miðaverð 1.500 kr.
Fundir
Breiðin, Akranesi | Sjálfstæðisflokkurinn
heldur stjórnmálafund kl. 16. Yfirskrift
fundarins er: Með hækkandi sól – lægri
skattar – aukin hagsæld. Framsögumenn:
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra og
alþingismennirnir Einar Oddur Krist-
jánsson og Birgir Ármannsson.
Félagsheimilið Herðubreið | Sjálfstæðis-
flokkurinn heldur stjórnmálafund á Herðu-
breið kl. 15. Yfirskrift fundarins er: Með
hækkandi sól – lægri skattar – aukin hag-
sæld. Framsögumenn: Árni M. Mathiesen
sjávarútvegsráðherra og alþingismennirnir
Arnbjörg Sveinsdóttir og Sigurður Kári
Kristjánsson.
Félagsheimilið Klif, Ólafsvík | Sjálfstæðis-
flokkurinn heldur stjórnmálafund á Klifi kl.
11. Yfirskrift fundarins er: Með hækkandi
sól – lægri skattar – aukin hagsæld. Fram-
sögumenn: Geir H. Haarde fjár-
málaráðherra og varaformaður og Einar K.
Guðfinnsson alþingismaður.
Krabbameinsfélagið | Samhjálp kvenna
verður með opið hús þriðjudaginn 18. jan-
úar kl. 20, Skógarhlíð 8, Reykjavík. Sigríð-
ur Eyjólfsdóttir og Hildur B. Hilmarsdóttir
segja frá ráðstefnu sem þær sóttu í Ósló.
Sýnt verður myndband um breytingar á
nánum samskiptum, hjálpartæki o.fl.
Samfylkingarmiðstöðin | Össur Skarphéð-
insson er málshefjandi á laugardagsfundi
SffR sem hefst kl. 11 í húsnæði Samfylking-
arinnar á Hallveigarstíg 1, Iðnaðarmanna-
húsinu. Össur fjallar m.a. um endurskoðun
stjórnarskrárinnar og áherslur Samfylking-
arinnar. Allir velkomnir.
Slysavarnadeild kvenna | Slysavarnakon-
ur í Reykjavík halda fund í Höllubúð þriðju-
daginn 18. janúar kl. 20, vegna vorferð-
arinnar sem farin verður til Prag 9.–16. júní
nk. Fulltrúi frá Heimsferðum mætir á fund-
inn. Nokkur sæti eru enn laus í ferðina.
Upplýsingar í síma 695 3012.
Toppurinn | Sjálfstæðisflokkurinn heldur
stjórnmálafund á Toppnum, kl. 11. Yfirskrift
fundarins er: Með hækkandi sól – lægri
skattar – aukin hagsæld. Framsögumenn:
Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra
og alþingismennirnir Arnbjörg Sveinsdóttir
og Sigurður Kári Kristjánsson.
Fyrirlestrar
Ráðhús Reykjavíkur | Þórir Barðdal heldur
fyrirlestur kl. 17 sem hann kallar Þekking –
Blekking. Einnig mun KK leika og syngja
nokkur lög. Síðan verður hugleiðsla.
Námskeið
Gigtarfélag Íslands | Hópþjálfun Gigtar-
félags Íslands er byrjuð aftur eftir jólafrí. Í
boði eru mismunandi hópar, s.s. róleg leik-
fimi, vefjagigtarhópar, bakleikfimi fyrir
karlmenn og jóga. Þjálfunin fer fram í húsi
GÍ að Ármúla 5. Nánari uppl. hjá GÍ.
Mímir – símenntun | Jóhanna Kristjónsd.
heldur námskeið um menningarheim
Araba sem hefst 20. jan.
Útivist
Ferðafélagið Útivist | Útivist blótar Þorr-
ann á Leirubakka í Landssveit 28.–30. jan-
úar.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
SALONHLJÓMSVEIT Sigurðar Ingva Snorrasonar ásamt Guð-
rúnu Ingimarsdóttur sópransöngkonu munu í dag kl. 16 leika á
Vínartónleikum Salarins, en þessir tónleikar eru hluti af
Tíbrár-tónleikaröðinni. Einvalalið hljóðfæraleikara flytur þar
Vínarljóð, óperettuaríur, polka, valsa og aðra gleðitónlist. Þá
mun Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari leika einleik, en hún er
jafnframt konsertmeistari átta manna salonhljómsveitar sem
auk hennar er skipuð þeim Pálínu Árnadóttur fiðluleikara,
Bryndísi Höllu Gylfadóttur sellóleikara, Hávarði Tryggvasyni
kontrabassaleikara, Martial Nardeau flautuleikara, Sigurði
Ingva Snorrasyni klarínettuleikara, Önnu Guðnýju Guðmunds-
dóttur píanóleikara og Pétri Grétarssyni sem leikur á slag-
verkshljóðfæri.
Flutningur óperettutónlistar hefur skipað stóran sess á
starfsferli Guðrúnar Ingimarsdóttur. Í fyrra söng hún í óp-
eruhúsunum í Stuttgart og Bayreuth á tónleikum á vegum Jo-
hann Strauss félagsins í Þýskalandi í tilefni af tvö hundruð
ára fæðingarafmæli Johanns Strauss eldri.
„Það er þessi sveifla, þessi valsasveifla, þungt-létt-létt,
sem heillar í þessari tónlist,“ segir Guðrún, sem hefur komið
fram á nærri fimmtíu Vínartónleikum, vítt og breitt um
Þýskaland. „Það er mikill sjarmi og sveifla í þessari tónlist og
svo gott að hreyfa sig í takt við hana. Vínartónlist og valsa-
tónlist er ekki þung, það býr í henni mikill léttleiki. Þetta er
bara danstónlist þessa tíma, eins og diskóið í nútímanum. Það
var á þessum tíma aðalmálið að vera með nýja valsa, ný lög og
„trylla lýðinn“ með skemmtilegri tónlist. Þetta var rokk og
diskó síns tíma. Ég held að fólk hafi beðið með spennu eftir því
hvað kæmi nýtt á hverju kvöldi, þegar Strauss-feðgarnir voru
uppi.“
Guðrún segist vona að fólk finni sig knúið til hreyfingar, þó
máske geri sætin í Salnum því erfitt fyrir fyrst um sinn. „Fólk
má alveg hreyfa sig í sætunum og svo er hljómsveitin hans
Sigurðar alvön að leika á böllum, svo það væri jafnvel bara
hægt að slá upp balli á eftir, það er nú laugardagskvöld og
væri bara fyrirtak að slá upp balli ef stemning væri fyrir því.“
Morgunblaðið/Þorkell
Einvalalið á Vínartónleikum Salarins
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos