Morgunblaðið - 18.01.2005, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2005 33
MINNINGAR
Það var alltaf reisn
yfir henni Sigríði, móð-
ursystur minni, jafnvel
eftir að veikindi fóru
að hrjá hana á síðustu
árum og dugnaður og myndarskap-
ur einkenndu hana alla tíð. Það má
líka segja að hún hafi átt góða og
gjöfula ævi.
Sigga var alin upp af fósturfor-
eldrum í Brunngötunni á Ísafirði, í
næsta húsi við foreldra sína og
systkini. Það fannst mér óvenjulegt
en hún gat leikið sér jafnt við sinn
stóra systkinahóp og fóstursystkin-
in og hafði síðan gott samband við
þau öll til æviloka.
Hún Sigga var á margan hátt
aðdáunarverð, svo hugmyndarík og
sjálfstraustið í góðu lagi. Sigga gat
málað innanhúss og veggfóðrað,
jafnvel smíðað og gert við ótrúleg-
ustu hluti. Hún saumaði af mikilli
vandvirkni falleg föt og hafði gaman
af að sauma út. Hún hugsaði líka
um útlitið, hollan mat og heilsu-
rækt. Sigga vann heima fyrir Hann-
yrðaverslunina Erlu í mörg ár við
að „setja upp“ sem kallað var. Og
svo tók hún bílpróf þegar slíkt var
fátítt hjá konum og naut vel þess
frelsis að keyra um sjálf. Sigga fékk
nokkrar viðurkenningar hjá trygg-
ingafélagi sínu fyrir tjónlausan
akstur.
Ég kynntist Siggu frænku minni
best þegar ég var níu ára, en þá bjó
ég hjá henni í fimm mánuði. Ég átti
að heita barnfóstra og fór eitthvað í
sendiferðir en hef auðvitað verið
eins og fjórða barnið á heimilinu.
Sigga átti ekki auðvelt með að tjá
tilfinningar sínar og gat verið
hvassyrt en hlýjan var undir niðri
og eitt er víst að hún sáði góðum
fræjum í barnssálina mína. Frá
þessum tíma þótti mér alltaf vænt
um frænku mína. Sigga giftist
Fedda sínum á fögrum sumardegi
austur í Fljótshlíð. Á mynd má sjá
að þau voru glæsileg þann dag.
Hann var loftskeytamaður og í sigl-
ingum mestan hluta af þeirra hjóna-
bandi, fyrst á Selfossi og síðan á
Gullfossi. Sigga var því oft ein með
börnin en stundirnar voru dýrmæt-
ar þegar Feddi var í landi og fjöl-
skyldan öll saman. Sigga naut þess
að víkka sjóndeildarhringinn og
ferðast með Fedda þegar tækifæri
gafst. Þau bjuggu mestan sinn bú-
skap á Bárugötunni í nálægð við
höfnina. Þar fæddust börnin þrjú og
hafði Sigga gott samband við ná-
grannakonur, sem áttu kannski
menn á sjónum og sinntu börnum
og búi eins og hún. Gestkvæmt var
á Bárugötunni og í sumarbústað
fjölskyldunnar í Sléttuhlíð enda
gestrisni mikil og alltaf ljúffengar
veitingar á boðstólum.
Nú, að leiðarlokum, er efst í huga
þakklæti til Siggu móðursystur fyr-
ir einstaka tryggð við mig og fjöl-
skyldu mína alla tíð.
Far vel héðan, friður sé með þér;
nú þú heyrir sönginn, sem þú þreyðir,
sólvang rósum vaxinn mót þér breiðir
Eden þitt, sem enga þyrna ber.
(Steingrímur Thorsteinsson.)
Margrét Örnólfsdóttir (Maddý.)
Hún Sigga (systir) eða móður-
systir eins og hún var alltaf kölluð á
æskuheimili mínu var eftirminnileg-
ur karakter.
Hún var ein af þeim sem við í
stórum systkinahópi höfðum mikil
samskipti við, sérstaklega í barn-
æsku, enda mamma og hún sam-
rýndar systur þó ólíkar væru og
Sigga ætíð tilbúin að rétta hjálp-
SIGRÍÐUR
GUÐMUNDSDÓTTIR
✝ Sigríður Guð-mundsdóttir
fæddist á Ísafirði 21.
maí 1918. Hún lést á
hjúkrunarheimilinu
Skógarbæ í Reykja-
vík 8. janúar síðast-
liðinn og var jarð-
sungin frá Fríkirkj-
unni í Hafnarfirði 17.
janúar.
arhönd þegar á þurfti
að halda.
Á Bárugötunni þar
sem hún bjó lengst af
og „var aldrei rok“ að
hennar sögn, var alltaf
svo virðulegt að koma,
heimilið var fallegt og
alltaf tekið á móti
manni með uppdúkað
borð (það varð að vera
dúkur).
Sigga var mjög svo
ákveðin kona og gat
snúið upp á sig og sett
upp sérstakan svip
þegar svo bar undir.
Hún var oft að reyna að siða okk-
ur systur til og kenna okkur hvað
væri hollt og óhollt, passa vöxtinn,
og reyna að halda kjörþyngd eins
og hún átti svo auðvelt með sjálf og
var óspör að láta okkur vita af því.
Hún og Feddi áttu sumarbústað í
Sléttuhlíðinni fyrir ofan Hafnarfjörð
og þar var hennar sælureitur. Það
sem hún ræktaði þarna í hrauninu
var alveg ótrúlegt.
Þangað komum við oft og í minn-
ingunni var alltaf sól, eins og
frænka vildi halda fram. Þar rigndi
mjög sjaldan, eða bara meðan Sigga
skrapp í bæinn.
Sigga var hörku bílstjóri og fékk
bílpróf með fyrstu konum á Íslandi.
Ekki veit ég hvort Volkswagen-
bjallan var hennar fyrsti bíll en það
er sá bíll sem er eftirminnilegastur.
Hún var alltaf jafn viljug að keyra
og skutla hinum og þessum eins og
sagt var.
Í seinni tíð átti hún ágætis Skoda-
bifreið (sem náttúrlega bilaði aldr-
ei).
Einhverju sinni mætti ég henni
óvænt í sjoppunni á Vegamótum á
Snæfellsnesi með þrjár eldri konur
sem hún bauð í bíltúr og munaði þá
ekki um það, bara tekinn hringur
um Snæfellsnesið á einum
laugardagseftirmiðdegi, þá orðin 74
ára.
Í mörg ár vann Sigga heima við
að setja upp handavinnu t.d.
klukkustrengi, púða, myndir og fl.
Átti ég á þeim árum mikil samskipti
við hana vegna vinnu minnar á
föndurstofu Hrafnistu í Reykjavík.
Handbragð hennar og frágangur
var svo eftir var tekið.
Á fullorðinsárum lærði Sigga
bókband og ekki var þar slegið
slöku við, vandvirknin í fyrirrúmi og
margar bækur batt hún inn. Ég er
svo heppin að eiga nokkrar með fal-
legu handbragði hennar.
Hún hélt reisn sinni alla tíð og
gleymdi aldrei að hafa fínar neglur
(með rauðu lakki) og hárið fínt,
þrátt fyrir veikindin síðustu ár. Það
var sárt að sjá þessa stoltu konu,
sem sjaldan varð misdægurt, verða
ósjálfbjarga.
Þær eru góðar minningarnar sem
ég á um Siggu frænku.
Ólöf Örnólfsdóttir.
Takk fyrir þann tíma
sem fengum að njóta
með þér. Þann tíma
munum við nú aldrei
mæla eða telja í dögum.
Alla þína veru hér í
okkar veröld fengum við að njóta ná-
inna samvista við þig í höndum ást-
kærrar umhyggjusamrar móður
þinnar. Við fundum það strax og þú
fæddist í þennan heim að við nytum
mikilla forréttinda. Að fá að vera
með þér strax frá upphafi. Við nut-
um hvers dags og hverrar nætur, en
KARL HANNES
UNNARSON
✝ Karl HannesUnnarson fædd-
ist í Reykjavík 19.
október síðastliðinn.
Hann lést á heimili
sínu í Langagerði 9 í
Reykjavík sunnu-
daginn 9. janúar og
fór útför hans fram
frá Bústaðakirkju.
sem betur fer vissum
við ekki meira. Allt var
svo gott. Mikið myrkur
skall á þegar þú kvadd-
ir okkur öll svona
skyndilega. Enginn
veit af hverju þú fórst,
en við vitum að þú
skildir eftir hjá okkur
mikinn fjársjóð sem við
erum nú smátt og
smátt að skynja. Við
munum varðveita hann
í hjörtum okkar, passa
hvert upp á annað og
þá sérstaklega mömmu
þína. Við erum mjög
stolt af þeim mikla styrk sem móðir
þín hefur sýnt við þessar hörmulegu
aðstæður.
Takk líka fyrir allt það sem þú hef-
ur sent okkur í kærleika með ynd-
islegu fólki, allt frá fæðingu og sér-
staklega nú eftir að þú kvaddir.
Amma og afi í Langagerði.
Pantanir í síma 562 0200
Á fallegum og notalegum
stað á 5. hæð Perlunnar.
Aðeins 1.250 kr. á mann.
Perlan
ERFIDRYKKJUR
Kistur - Krossar
Prestur - Kirkja
Kistulagning
Blóm - Fáni
Val á sálmum
Tónlistarfólk
Sálmaskrá
Tilk. í fjölmiðla
Erfisdrykkja
Gestabók
Legstaður
Flutningur kistu á
milli landa og
landshluta
Landsbyggðar-
þjónusta
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Sverrir
Einarsson
Sverrir
Olsen
Bryndís
Valbjarnardóttir
Oddur
Bragason
Guðmundur
Þór Gíslason
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Ástkær móðir okkar, amma og langamma,
JÓNA SVANHVÍT HANNESDÓTTIR,
Norðurbrún 1,
Reykjavík,
lést á Landspítala háskólasjúkrahúsi, Foss-
vogi, föstudaginn 14. janúar sl.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 25. janúar kl. 15:00.
Unnur Óskarsdóttir og Gerður G. Óskarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ANNA ÓLAFSDÓTTIR,
Efstasundi 41,
lést á líknardeild Landspítala Landakoti
sunnudaginn 16. janúar.
Jarðarförin auglýst síðar.
Hrefna Björnsdóttir, Ólafur Brynjólfsson,
Árni Mogens Björnsson, Sigþrúður Þórhildur Guðnadóttir,
Sigríður Ólöf Björnsdóttir, Guðlaugur Ragnar Magnússon,
Birna Björnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar og tengdamóðir,
ÞURÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Ásgarði, Völlum,
Miðvangi 22,
Egilsstöðum,
andaðist á sjúkrahúsinu á Egilsstöðum sunnu-
daginn 16. janúar.
Jarðarförin fer fram frá Egilsstaðakirkju laugar-
daginn 22. janúar kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á að láta sjúkrahúsið á Egils-
stöðum njóta þess.
Ingigerður Benediktsdóttir,
Guðni Benediktsson, Sigríður Gísladóttir,
Guðný Sigurjónsdóttir,
og fjölskyldur.
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐRÚN BRYNJÓLFSDÓTTIR,
dvalarheimilinu Höfða,
áður Skálabraut 31,
Akranesi,
andaðist á Sjúkrahúsi Akraness sunnudaginn
16. janúar.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 21. janúar kl. 14.00.
Brynjar Bergþórsson,
Salome Guðmundsdóttir,
Ósk Bergþórsdóttir, Óli Jón Gunnarsson,
Lára Huld Guðjónsdóttir,
Bergþór Ólason,
Jóhann Gunnar Ólason,
Rúnar Ólason,
Guðjón Alex Flosason.
Morgunblaðið birtir minningargrein-
ar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is (smellt á reitinn Morgunblað-
ið í fliparöndinni – þá birtist val-
kosturinn „Senda inn minningar/af-
mæli“ ásamt frekari upplýsingum).
Skilafrestur Ef birta á minningar-
grein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er
á mánudegi eða þriðjudegi). Ef út-
för hefur farið fram eða grein berst
ekki innan hins tiltekna skilafrests
er ekki unnt að lofa ákveðnum birt-
ingardegi. Þar sem pláss er tak-
markað getur birting dregist, enda
þótt grein berist áður en skilafrest-
ur rennur út.
Minningargreinar