Morgunblaðið - 18.01.2005, Side 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Stóra svið
Nýja svið og Litla svið
HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna
Jónssonar eftir vesturfarasögu
Böðvars Guðmundssonar
Fö 21/1 kl 20 - BLÁ KORT - UPPSELT
Lau 22/1 kl 20, - UPPSELT
Fim 27/1 kl 20,
Lau 29/1 kl 20, - UPPSELT
Su 30/1 kl 20, - UPPSELT
Lau 5/2 kl 20, - UPPSELT
Su 6/2 kl 20,
Fim 10/2 kl 20 - UPPSELT,
Fö 11/2 kl 20,
Lau 12/2 kl 20 - UPPSELT
Fi 17/2 kl 20, Fö 18/2 kl 20
Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Su 23/1 kl 14, Su 30/1 kl 14,
Su 6/2 kl 14, Su 13/2 kl 14,
SÍÐUSTU SÝNINGAR
HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau
Su 23/1 kl 20, Fö 28/1 kl 20, Fö 4/2 kl 20
SVIK eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI, Sögn ehf og LA.
Fi 20/1 kl 20, Fö 4/2 kl 20, Su 13/2 kl 20
AUSA eftir Lee Hall - Í samstarfi við LA
Fö 21/1 kl 20, Lau 29/1 kl 20, Su 6/2
Ath: Lækkað miðaverð
HÉRI HÉRASON
Fyndið - ferskt - fjörugt - farsakennt
LEIKHÚSVEISLA FYRIR HÓPA - UPPSKRIFT AÐ SKEMMTILEGU KVÖLDI
NÆRING FYRIR SÁL OG LÍKAMA - BÓKIÐ Í TÍMA
Kl 18:00 Gleðistund í forsal - veitingasalan opin
Kl 18:30 Kynnisferð um leikhúsið - kynning á verki kvöldsins
Kl 19:00 Matseðill kvöldsins Kl 20:00 Leiksýning kvöldsins
SAUMASTOFAN 30 ÁRUM SÍÐAR
eftir Agnar Jón Egilsson,
Í samstarfi við TÓBÍAS
Lau 22/1 kl 20, Fi 27/1 kl 20, Su 30/1 kl 20
ATH: Bönnuð yngri en 12 ára
ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN:
FJÖLSKYLDUSÝNING
The Match, Æfing í Paradís, Bolti
Lau 22/1 kl 14
SÍÐASTA SÝNING
BELGÍSKA KONGÓ e. Braga Ólafsson
Gríman fyrir besta leik í aðalhlutverki
Fi 20/1 kl 20, Su 23/1 kl 20, Su 30/1 kl 20,
Lau 5/2 kl 20 - UPPSELT
Lau 12/2 kl 20,
Su 13/2 kl 20
SÝNINGUM LÝKUR Í FEBRÚAR
BÖRN 12 ÁRA OG YNGRI FÁ FRÍTT Í BORGARLEIKHÚSIÐ Í FYLGD FULLORÐINNA
gildir ekki á barnasýningar!
Frumsýning 11. feb. kl.20.00 – UPPSELT – 2. sýning 13.feb. kl. 19.00
3. sýning 18.feb. kl 20.00 – 4. sýning 20. feb. kl. 19.00 – FÁAR SÝNINGAR
Námskeið um Toscu og Puccini hjá Endurmenntun Háskóla Íslands
Skráning í síma: 525 4444 – endurmenntun@hi.is
Miðasala á netinu: www. opera.is
Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 virka daga.
Banki allra landsmanna
Frumsýning 11. febrúar kl. 20 – UPPSELT
4 600 200
leikfelag.is
Miðasölusími
„Fjarskalega
leiftrandi og
skemmtileg
sýning.“
H.Ö.B. RÚV
Óliver! Eftir Lionel Bart
Fös. 21.1 kl 20 UPPSELT
Lau. 22.1 kl 20 UPPSELT
Fös. 28.1 kl 20 UPPSELT
Sun. 30.1 kl 14 aukasýn. UPPSELT
Fös. 04.2 kl 20 Örfá sæti
Lau. 05.2 kl 20 Örfá sæti
Fös. 11.2 kl 20 Nokkur sæti
Lau. 12.2 kl 20 Nokkur sæti
Ath: Ósóttar pantanir seldar daglega!
Munið VISA tilboð í janúar
Sýnt í Reykjavík: Eldað með Elvis, Svik og Ausa og stólarnir
• Föstudag 21/1 kl 20 UPPSELT
• Laugardag 22/1 kl 20 NOKKUR SÆTI
• Föstudag 28/1 kl 20 LAUS SÆTI
geggjað grínleikrit eftir DANIEL GUYTON
☎ 552 3000
www.loftkastalinn.isLoftkastalinn ✦ Seljavegi 2 ✦ 101 Reykjavík ✦ Miðasalan er opin frá 11-18
Joseph Haydn ::: Sinfónía nr. 6 í D-dúr, „Le matin“
Sergej Prokofiev ::: Fiðlukonsert nr. 2 í g-moll, op. 63
Dímítríj Sjostakovítsj ::: Sinfónía nr. 6 í h-moll, op. 54
Hljómsveitarstjóri ::: Rumon Gamba
Einleikari ::: Akiko Suwanai
Háskólabíó vi› Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
HÁSKÓLABÍÓI, FIMMTUDAGINN 20. JANÚAR KL. 19.30Gul tónleikaröð #4
Samverustund Vinafélagsins hefst kl. 18.00 í Sunnusal Hótel Sögu.
Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur kynnir efnisskrá kvöldsins.
Verð 1000 kr. Súpa og brauð innifalið. Allir velkomnir.
Ljúfar laglínur
og dansandi fjör
Þannig má lýsa höfuðeinkennum 2. fiðlukonserts Prokofíevs. Til
að túlka þennan vinsæla fiðlukonsert kemur hinn óviðjafnanlegi
fiðluleikari, Akiko Suwanai og mun hún leika á eina frægustu
Stradivarius-fiðlu heims. Suwanai var aðeins 17 ára gömul þegar
hún sigraði Tjajkovskíj-keppnina og varð þar með yngsti viðtakandi
fyrstu verðlauna þessarar virtu keppni.
MARGIR muna þegar Sylvain Luc
kom hér á djasshátíð fyrir nokkr-
um árum og lék með Bjössa Thor
og félögum. Var það hin besta
skemmtun og nú drap hann aftur
niður fæti á Íslandi í boði Alliance
Francaise og Tónastöðvarinnar og
kenndi og hélt dúettónleika með
Bjössa Thor. Þetta voru þó
kannski frekar einleikstónleikar
en dúetttónleikar, því dúettarnir
voru aðeins örfáir í lok efnisskrár-
innar.
Björn hóf leikinn með hugleið-
ingum um Over the rainbow, lagi
Harold Arlens úr Söngleiknum
Galdrakarlinn frá Oz. Þetta var
ekta Bjössi Thor – farið um víðan
völl; allt frá búgga til barroks og
djangósk skalahlaup, hljómaklasar
og gítarslagverk skreyttu hugleið-
ingar gítarsnillingsins. Þá kom
Sylvain Luc á svið – afburða
tæknimeistari sem hefur sogað til
sín áhrif alls staðar frá líkt og
Björn. Baski alinn upp í sígauna-
fjölskyldu og innan um klassíska
söngdansa mátti greina þjóðlega
tónlist Pýraneuskagans – en hvort
það var Spánn Corea eða sá Spánn
sem hreif Corea sem gægðist inní
tónhendingarnar þegar best lét
skal ekki fullyrt hér. Hann lék
Satin doll Ellingtons meistaralega
og eins og Tatum lék hann sér að
taktinum svo margur hélt að nú
væri hann heillum horfinn – en
alltaf féll taktslagið rétt. Frábær
gítarleikari, en fyrir minn smekk
varð einleikur hans full tilbrigða-
snauður til lengdar og beið maður
því í ofvæni eftir að fá að heyra
hann í kompaníi með Birni og Jóni
Rafnssyni. Það varð heldur enginn
svikinn af þeim samleik. Ekki
hafði gefist neitt tóm til að æfa og
hvað sem Finnur Torfi Stefánsson
kann að halda er djassinn tónlist
spunans, sem er sköpun þar sem
menn nýta alla þá þekkingu og
reynslu er þeir búa yfir til að tón-
sköpunin verði sem mögnuðust, en
hann er ekkert heimaæft sull. Ætli
sumir spunakaflar Jó-
hanns Sebastians
Bachs hafi ekki endað
í tónsmíðum hans og
spuni Louis Arm-
strongs í West End
blues frá 1928 er tal-
inn til sígildustu
meistaraverka tón-
bókmennta síðustu
aldar. Fyrsta dúett-
lagið á dagskránni
var franskt lag sem
Armstong gerði frá-
bær skil um sína
daga, C’est si bon.
Ekki var ónýtt að
hafa Jón Rafnsson í
rýþmanum og er skemmst frá því
að segja að Luc og Thoroddsen
léku frábærlega vel og réði gleðin
ríkjum í slagaranum franska.
Næst léku þeir eitt af glæsilögum
Björns, Caravan eftir Juan Tizol
úr Ellingtonbandinu. Þar lá við að
tæknin tæki völdin af gítaristunum
í glæsilegum skalahlaupum Björns
og djangóskum hljómasúpum og á
stundum minnti Luc helst á Les
Paul er hann lék með sjálfum sér
á frægum brelluupptökum. Það má
segja um þá þremenninga að þeir
hafi haft að leiðarljósi í tríóleik
sínum að ef sveiflan væri ekki með
í för væri streðið til einskis og á
því lagi Ellingtons luku þeir eftir-
minnilegum tónleikum.
Gítargleði
DJASS
Nasa
Luc og Thoroddsen, gítara, Jón Rafnsson
bassa. Fimmtudagskvöldið 13.1. 2005.
Sylvain Luc og Björn Thoroddsen
Vernharður Linnet
Björn Thoroddsen Sylvain Luc
JÓHANN L. Torfason sýnir fjögur
tölvumálverk í Ganginum af þeim
Ásgrími Jónssyni, Jóhannesi Kjar-
val, Jóni Stefánssyni og Þórarni B.
Þorlákssyni. Þetta eru portrett-
myndir, 60 x 45 cm að stærð, af þess-
um ofurmönnum íslenskrar mynd-
listar og því vel við hæfi að lista-
maðurinn skuli pumpa vöðvabygg-
ingu þeirra upp í óraunhæfar
stærðir og klæða þá í föt ofurhetja,
þ.e. skikkju og þröngar sokkabuxur.
Eru klæðin skreytt með þekktum
myndum listamannanna sem vænt-
anlega geta gefið okkur hugmyndir
um þá ofurkrafta sem þeir kunna að
búa yfir. Þórarinn er ekki sérlega of-
urmannslegur í útliti en duldir of-
urkraftar hans hljóta að vera seið-
andi bláminn sem dáleiðir. Ásgrímur
er sakleysislegur og smurður eins og
Súpermann og fleiri af fyrstu kyn-
slóð amerískra ofurmanna. Átta mig
samt ekki alveg á hvaða ofurkrafta
hann ætti svo sem að hafa aðra en að
geta flogið. Útlit Jóns Stefánssonar
á best við ímynd vonda karlsins, Lex
Luthors, erkióvinar Súpermanns.
Hann er jarðfastur og sterkur en
kann örugglega ekki að fljúga þótt
hann hafi skikkju. Til þess skortir
Jón tilfinningu fyrir loftkennd og
svifi. Kjarval fær krafta sína frá ís-
lenska hrauninu og er því í uppá-
haldi íslensku þjóðarinnar. Hann er
líka þjáður til augnanna og minnir
þar af leiðandi á seinni kynslóð of-
urhetja frá DC comics, þ.e. þeirra
sem áttu í persónulegu sálarstríði
s.s. Hulk, Spiderman og
Daredevil. Mynda fjór-
menningarnir myndarlegan
hóp ofurhetja, hina íslensku
„Fantastic four“ sem sam-
einast undir heitinu „Frum-
herjarnir“!
Jóhann L. Torfason er
jafnan gagnrýninn í list
sinni og drepur á ýmis
„tabú“ málefni. Tekst hon-
um vel upp í Ganginum.
Verkin eru í góðum takti við
leikfangadúkkurnar sem
hann hefur sýnt síðastliðin
ár og hlotið verðskuldaða
athygli fyrir. Samskonar
kaldhæðni er í fyrirrúmi og
framsetningin í auglýsing-
arformi með slagorðinu
„Safnaðu öllum fjórum“.
Hafa þessar ofurhetjur fyr-
ir löngu verið hafnar yfir al-
menna gagnrýni, eru
merktar sem þjóðargersemi
og því óvinsælt að skopast að
þeim eða gefa í skyn að þeir
séu ofmetnir eins og Jóhann gerir.
Raunin er þó sú að frumherjarnir
fjórir eru ekki ólíkir dúkkunni af
Birgittu Haukdal sem kom í leik-
fangaverslanir nú fyrir jól. Þeir mið-
ast eingöngu við íslenskan markað
og standast illa alþjóðlegan sam-
anburð.
Íslensku ofurmennin
MYNDLIST
Gangurinn
Opið eftir samkomulagi. Sýningu
lýkur 1. mars.
Tölvumálverk – Jóhann L. Torfason
Jón B.K. Ransu
Þórarinn B. Þorláksson er ekki sérlega
ofurmannslegur í útliti en býr þó yfir duld-
um kröftum. Seiðandi bláma sem dáleiðir.
ÞESSI ljósmynda-
kópía af teikningu
flæmska málarans
Peters Pauls Rubens
var gefin út á vegum
Metropolitan-safnsins
í New York á dög-
unum. Verkið, sem
nefnist „Ljónynja séð
að aftan, snýr sér til
vinstri“, er frá árinu
1613 og er ásamt 114
öðrum verkum Rub-
ens á sýningu í safninu
um þessar mundir.
Ljón-
ynjan
læðist