Morgunblaðið - 22.01.2005, Qupperneq 1
Með kveðju
frá Prada
Herratískuvika í Mílanó:
Karlmenn eru íhaldssamir | 53
Lesbók | Papar og brjóst Geislandi draugaborg Krossgáta Ljóð
Börn | Þekkirðu Róbinson Krúsó? Strákurinn Hodder Keðjusagan
Gátur Íþróttir | HM í Túnis Blikar skora á Njarðvík Á vellinum Fólk
Lesbók, Börn og Íþróttir í dag
INNRÁSIN í Írak hefur ekki dregið úr hryðju-
verkavánni í heiminum heldur aukið hana, segir
Thorvald Stoltenberg, fyrrverandi utanríkisráð-
herra Noregs, í samtali við Morgunblaðið í dag.
Hann harmar að menn séu teknir að ræða um
hernað sem pólitískt verkfæri á ný, slík umræða
hafi ekki verið tekin góð og gild á áratugunum
eftir að seinni heimsstyrjöldinni lauk en hafi nú
skotið upp kollinum á ný.
„Ég harma að í kjölfar þess, að öll veröldin
fylkti liði með Bandaríkjunum eftir árásirnar [11.
september 2001], hafi sú samstaða riðlast; ég tel
að forystumenn í Bandaríkjunum hafi of snemma
farið að vísa til stríðs sem verkfæris [sem kynni að
verða notað]. Og við höfum síð-
an séð að engar röksemdanna,
sem settar voru fram fyrir
stríði, voru gildar. Ég vona því
að menn muni hér eftir íhuga
betur hvort rétt sé að beita
stríði sem verkfæri í alþjóða-
samskiptum,“ segir Stoltenberg
m.a. í viðtalinu.
Stoltenberg er væntanlegur
til Íslands í dag en hann mun
síðdegis flytja framsögu á mál-
þingi framtíðarhóps Samfylkingarinnar sem sett
verður kl. 15 á Grand Hóteli í Reykjavík./20
Thorvald Stoltenberg í samtali við Morgunblaðið
Innrásin jók hættuna
Thorvald
Stoltenberg
FORMAÐUR Samiðnar, Finnbjörn A. Her-
mannsson, sagði á fundi með blaðamönnum í
gær að viðhorfsbreyting hefði átt sér stað hjá
Impregilo, þegar ákveðið var hefja formleg-
ar viðræður til að leysa þau ágreiningsmál
sem uppi hefðu verið við Kárahnjúkavirkjun.
Finnbjörn sagði Samiðn hafa óskað eftir
fundi með stjórnendum Impregilo síðan í
nóvember sl. en án árangurs. „Núna varð
einhver viðhorfsbreyting hjá fyrirtækinu og
þeir eru tilbúnir að ræða beint við okkur.
Fyrsta leiðin til að leysa vandamál er að ræð-
ast við,“ sagði Finnbjörn og undir það tók
Skúli Thoroddsen, framkvæmdastjóri
Starfsgreinasambandsins, sem einnig sat
sameiginlegan blaðamannafund Impregilo
og verkalýðshreyfingarinnar í gærmorgun.
Rafiðnaðarsambandið hafði neitað þátttöku í
fundinum.
Mismunandi túlkun
Að sögn talsmanns Impregilo eru enn uppi
nokkur ágreiningsmál og þau séu snúin. Því
hafi verið ákveðið að koma á nokkurs konar
samráðshópi til að ræða deilumálin.
„Við vitum vel hver okkar réttindi og
skyldur eru. Við teljum okkur virða alla þá
samninga sem við höfum undirritað. Stund-
um kemur upp ágreiningur og mismunandi
túlkun en það er von Impregilo að nú takist
að ræða hlutina,“ sagði Franco Ghiringhelli,
starfsmannastjóri Impregilo í Mílanó, sem
kom hingað til lands til viðræðna við verka-
lýðsfélögin og aðra þá aðila sem tengjast
byggingu Kárahnjúkavirkjunar.
„Viðhorfs-
breyting hjá
Impregilo“
Vonum að nú takist
að ræða hlutina, segir
talsmaður Impregilo
Hefja á viðræður/6
MAHMOUD Abbas, forseti Pal-
estínu, átti í gær fundi á Gaza með
fulltrúum Hamas og Íslamska
jihad, öflugustu fylkinga herskárra
Palestínumanna, til að telja þá á að
binda enda á árásir sínar og ryðja
þannig brautina fyrir friðarviðræð-
ur við Ísraela. Að loknum fundun-
um í gærkvöldi sagði embættis-
maður Palestínustjórnar að
jákvætt andrúmsloft hefði ríkt og
miklar líkur væru á því að samn-
ingar tækjust um vopnahlé á
næstu dögum.
Abbas lét í gær nokkur hundruð
lögreglumenn úr sveitum Palest-
ínustjórnar taka sér stöðu við
norðurlandamæri Gaza að Ísrael til
að tryggja öryggi. Þaðan hefur
meðal annars verið skotið flug-
skeytum á Ísrael og byggðir land-
tökumanna gyðinga á Gaza.
Vígamenn hafa haldið að sér
höndum síðan á miðvikudag og
ekki skotið neinum flugskeytum.
„Það er ekki hægt að standa í
samningaviðræðum og skjóta sam-
tímis flugskeytum. Það gengur
bara ekki upp,“ sagði talsmaður
Hamas, Mushir al-Masri.
Íbúar á Gaza voru ánægðir með
umskiptin í gær. „Þetta er fyrsta
skrefið sem menn hafa tekið til að
koma á lögum og reglu, nokkuð
sem hér hefur skort mjög, einkum
síðastliðið ár,“ sagði Mohammed
Al-Ashi, 22 ára gamall sölumaður.
Ísraelar fögnuðu einnig aðgerð-
unum í gær og hafa þegar komið til
móts við Abbas með því að leyfa á
ný umferð um Rafah, á landamær-
um Gaza og Egyptalands. Lög-
reglusveitir Palestínu hafa ekki
reynt að hafa hemil á herskáum
öflum síðan uppreisnin hófst árið
2000. Forseti ísraelska herráðsins,
Moshe Yaalon, sagði að menn sæju
nú „upphaf jákvæðrar þróunar í
herbúðum Palestínumanna, merki
um að þeir skilji að hryðjuverk
borga sig ekki“.
Hamas stöðvar
flugskeytaárásir
Lögregla Palestínumanna gætir öryggis á Gaza
Beit Lahiya, Jerúsalem, Gaza. AFP, AP.
DÓMARAR í Afríkuríkinu Malaví
hafa verið í verkfalli síðan á mið-
vikudag og heimta þeir að keyptir
verði undir þá alls 26 Toyota-
jeppar. Þeir aka nú um á 10 ára
gömlum og slitnum fólksbílum, að
sögn Sylvesters Kalembera, sem
er embættismaður hjá dómstól í
höfuðborginni Blantyre.
Dómararnir segjast líta svo á
að þeir séu ekki lægra settir en
ráðherraritarar og eigi því rétt á
dýrum fararskjótum eins og þeir.
„Það er engin lausn í sjónmáli,“
sagði Kalembera í gær.
Burt með
druslurnar!
Blantyre í Malaví. AFP.
FORSETI Palestínu, Mahmoud
Abbas, lét í gær lögreglulið sitt
hefja eftirlit á norðurlandamær-
um Gaza til að stöðva flugskeyta-
árásir herskárra hópa á Ísraela.
Reuters
Við öllu búnir
FLUGLEIÐIR hafa fest kaup á þremur
Boeing 757 flugvélum sem smíðaðar voru
árið 1994. Tvær þeirra hefur félagið verið
með á leigu og notað í áætlunar- og leigu-
flugi Icelandair og Loftleiða. Þriðju vélina
keypti félagið til þess að leigja áfram til
breska flugfélagsins Brittannia.
Í tilkynningu frá Flugleiðum segir að það
verð sem félagið greiði fyrir þessar þrjár
flugvélar sé töluvert undir núverandi mark-
aðsverði þeirra, sem er samtals um 54 millj-
ónir dollara.
„Við teljum að þetta geti verið ábati fyrir
félagið upp á allt að 500 milljónir,“ segir
Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi
Flugleiða. Hann bendir á að ástæður þessa
hagstæða verðs sé tímasetning kaupanna
og það að félagið hafi verið reiðubúið að
kaupa vélarnar allar saman.
Þessir kaupsamningar eru þáttur í nýrri
starfsemi Flugleiða, en fyrr í þessum mán-
uði tilkynnti félagið stofnun fyrirtækis í
samvinnu við Gunnar Björgvinsson og fleiri
í Liechtenstein, sem keypti þrjár notaðar
Boeing 737 flugvélar og leigði áfram til
lettneska flugfélagsins Air Baltic.
Kaup flugvélanna þriggja eru fjármögn-
uð af Landsbanka Íslands.
Flugleiðir
kaupa þrjár
flugvélar
♦♦♦
ÍSLENSKA landsliðið í handknattleik kom til Túnis í gærkvöldi en á morgun hefst alvaran þegar flautað verður til leiks á heimsmeistaramótinu.
Viggó Sigurðsson landsliðsþjálfari og Róbert Gunnarsson eru glaðbeittir á svip, klárir í slaginn gegn Tékkum á morgun.
Morgunblaðið/RAX
Strákarnir
komnir til Túnis
STOFNAÐ 1913 20. TBL. 93. ÁRG. LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is