Morgunblaðið - 25.01.2005, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
METHÆKKUN
Methækkanir urðu á íbúðaverði í
sérbýli á höfuðborgarsvæðinu á síð-
asta ári. Vísitala fasteignaverðs, sem
Fasteignamat ríkisins reiknar út,
hækkaði um 35% frá desember 2003
til sama mánaðar 2004. Á sama tíma
hækkaði vísitala neysluverðs án hús-
næðis um 2,6%.
Mikilvæg handtaka
Íraska bráðabirgðastjórnin segir
að einn helsti sprengjugerðarmaður
uppreisnarsamtaka Jórdanans Abu
Musabs al-Zarqawis hafi verið hand-
tekinn. Maðurinn er sagður hafa ját-
að að hafa búið til 75% allra bíl-
sprengna sem sprungið hafa í
Bagdad frá því í mars 2003. Kosið er
í Írak á sunnudag og segjast forystu-
menn í kosningabandalagi helstu
flokka sjíta ekki hafa uppi áform um
að koma á klerkastjórn í landinu.
Ísland í fimmta sæti
Ísland er í fimmta sæti á lista yfir
hvernig ríki heims standa sig varð-
andi sjálfbæra þróun. Á listanum eru
146 ríki. Árið 2002 var Ísland í átt-
unda sæti á þessum lista.
Jústsjenko hitti Pútín
Viktor Jústsjenko, nýr forseti
Úkraínu, hefur skipað Júlíu Tímosj-
enko sem næsta forsætisráðherra
landsins. Jústsjenko heimsótti
Moskvu, höfuðborg Rússlands, í gær
og er þetta fyrsta för hans út fyrir
landsteinana síðan hann sór emb-
ættiseið sem forseti Úkraínu. Átti
Jústsjenko fund með Vladímír Pútín
Rússlandsforseta.
Hlýindi framundan
Mælingar á hitafari norður af
landinu gefa til kynna að búast megi
við mildu veðurfari á Íslandi næstu
árin. Þetta er mat Páls Bergþórs-
sonar veðurfræðings, sem telur að
næstu ár verði að jafnaði svipuð og á
hlýindaskeiðinu 1930–1960.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 28
Viðskipti 12/13 Skák 38
Erlent 14/15 Minningar 28/35
Höfuðborgin 17 Bréf 24
Akureyri 18 Dagbók 40/42
Austurland 18 Kvikmyndir 44
Landið 19 Fólk 46/49
Daglegt líf 20 Bíó 46/49
Listir 21 Ljósvakar 50
Forystugrein 26 Veður 51
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is
Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarp-
héðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson
Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%&' (
)***
GÓÐHJÖRTUÐ kona hefur gerst
matmóðir villtra fugla í trjáreit í
nágrenni höfuðborgarinnar. Henni
er annt um matargesti sína og
biðst undan því að vera nafn-
greind og eins því að nánar sé
greint frá staðnum þar sem hún
fóðrar fuglana. Þar dvelja nefni-
lega tvær tyrkjadúfur og er von-
ast til að þær taki sér fasta bú-
setu, fái þær að vera í friði.
Fuglavinurinn fer daglega með
nesti handa fuglunum og fóðrar
tyrkjadúfurnar, hrafna, þresti,
starra og snjótittlinga, sem eru í
föstu fæði, eins og konan orðar
það. Stundum koma gestir af öðr-
um tegundum í matinn. Hrafnarn-
ir fá kjötleifar úr verslun einni og
spörfuglarnir og dúfurnar fá
kornmeti af ýmsu tagi.
Heilsuðu með háværu kvaki
Um leið og matmóðirin mætti á
svæðið heilsuðu dúfurnar með há-
væru og sérkennilegu kvaki sem
minnti á gauka. Sé konan ein á
ferð koma dúfurnar samstundis til
hennar, en þær eru seinni til séu
fleiri með í för. Það leið þó ekki á
löngu uns móbrún dúfa með svart-
an hálskraga sveif að og settist á
matborðið. Krummi lét heldur
ekki bíða eftir sér og gerði akfeit-
um kjötafskurði góð skil. Eftir að
hafa gætt sér á nokkrum bitum
tók hann afganginn í gogginn, tók
tilhlaup og hóf sig á loft. Einhvers
staðar á hann forðabúr til mögru
áranna. Óboðinn köttur gerði vart
við sig í fuglaparadísinni og var
hann snarlega rekinn á brott.
Konan segist lengi hafa fóðrað
fugla, en frá því að tyrkjadúf-
urnar komu á svæðið hefur hún
reynt að fara á hverjum degi með
fóður handa þeim eftir að jarð-
bönn urðu. Einn dag í vetur var
ekki viðlit að fara því veðrið var
svo vont. Þegar hún kom daginn
eftir þóttu henni dúfurnar ótta-
lega ræfilslegar, hvort sem veðr-
inu eða fóðurskortinum var um að
kenna.
Fyrri dúfunnar varð vart á þess-
um stað í maí í fyrra og sú síðari
kom nokkru síðar. Talið er að um
sé að ræða par. Matmóðirin er
raunar sannfærð um að svo sé.
Hún segir karlinn nokkru stærri
og augljóslega mun frekari. Fugla-
áhugamenn vonuðu að dúfurnar
reyndu varp í fyrrasumar, en dúf-
urnar brugðust þeim vonum. Nú
er vonast til að þær reyni varp í
vor, lifi þær veturinn af.
Tyrkjadúfur eru ættaðar úr suð-
austanverðri Evrópu og Litlu-Asíu
en verpa einnig á stórum svæðum
allt austur á Indlandsskaga og
Kína, að því er fram kemur í bók-
inni Íslenskir fuglar eftir Ævar
Petersen. Fyrir 1930 voru tyrkja-
dúfur nær eingöngu bundnar við
Balkanskaga en fóru þá að breið-
ast út til norðvesturs. Nú eru þær
algengar um nær alla Evrópu og
komnar til Norður-Ameríku. Fyrst
mun hafa orðið vart við tyrkjadúf-
ur hér á landi 1964 og munu tvö
pör hafa orpið hér á landi 1971 og
eitt varp hafa verið hér árið eftir,
að því er Ævar skrifar. Síðan er
ekki vitað til að tyrkjadúfur hafi
reynt varp hér. Þær hafa þó
flækst hingað oft og sést að með-
altali annað hvert ár. Sagt er að
tyrkjadúfur séu fremur hændar að
mannabústöðum og þrífist best í
trjálundum og görðum. Nú mun
tíminn einn leiða í ljós hvort þessir
landnemar, sem konan fóðrar svo
dyggilega, muni ílendast og koma
upp fjölskyldu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Matmóðir fuglanna færir þeim
kornmeti og kjöt á hverjum degi.
Önnur tyrkjadúfan hvílir lúin bein eftir að hafa fengið kornmeti hjá matmóður sinni.
Traustur vinur tyrkjadúfna
FRAMKVÆMDASTJÓRN Sam-
fylkingarinnar samþykkti samhljóða
á fundi sínum í gær að landsfundur
flokksins fari fram í Reykjavík dag-
ana 22. til 24. maí í vor.
Lög flokksins gera ráð fyrir að
halda megi landsfund að hausti og
vori og upphaflega var reiknað með
að fundurinn yrði í haust. Hefur
framkvæmdastjórn nú tekið af skar-
ið og ákveðið dagsetningu fundarins.
Á landsfundinum verða tilkynnt
úrslit um formannskjör í Samfylk-
ingunni en 30 dögum fyrir fund
hefst allsherjaratkvæðagreiðsla
meðal flokksmanna, sem að sögn
Karls Th. Birgissonar, fram-
kvæmdastjóra flokksins, eru nú á
bilinu 14–15 þúsund. Fer atkvæða-
greiðslan líklegast fram með póst-
kosningu sem mun hefjast í kringum
20. apríl nk. Segir Karl nokkra fjölg-
un hafa orðið á félagsmönnum síð-
ustu vikurnar og augljóst að kosn-
ingarnar séu farnar að vekja áhuga
margra.
Sem kunnugt er hafa bæði núver-
andi formaður Samfylkingarinnar,
Össur Skarphéðinsson, og varafor-
maður, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
lýst yfir framboði til formanns. Eiga
þau bæði sæti í 12 manna fram-
kvæmdastjórn flokksins og sátu
fundinn í gær.
Að sögn Karls voru önnur mál
ekki á dagskrá fundarins en fjár-
hagsáætlun og starfsáætlun, auk
þess að ákveða dagsetningu lands-
fundar. Ummæli félagsmanna og
ályktanir um helgina vegna for-
mannsslagsins hefðu ekki komið til
tals.
Samfylkingin með
landsfund í maí
Kosning um formann hefst
30 dögum fyrir landsfundinn
ENGIN atvinnuleyfi voru gefin út
í gær hjá Vinnumálastofnun til
handa Impregilo. Ómar R. Valdi-
marsson, talsmaður Impregilo,
segir allt vera enn óbreytt og fyr-
irtækinu sé hætt að lítast á blik-
una.
„Það á eftir að reynast Imp-
regilo erfitt að vinna upp þær tafir
sem hafa orðið á framkvæmdun-
um sökum þessara tafa á af-
greiðslu vinnuleyfanna,“ segir
Ómar en á hóteli í Peking bíða enn
þeir 27 Kínverjar sem lagðir voru
af stað frá heimkynnum sínum í
síðustu viku áleiðis til Íslands.
Aðrir kínverskir starfsmenn sem
áttu að koma, 17 að tölu, voru ekki
lagðir af stað þegar uppgötvaðist
að atvinnuleyfin væru ekki í höfn.
Haft var eftir Gissuri Péturs-
syni, forstjóra Vinnumálastofnun-
ar, í blaðinu í gær að byrjað yrði
að gefa leyfin út þann daginn eða í
dag, þriðjudag. Ekki náðist í Giss-
ur í gærkvöldi.
Atvinnuleyfi ókomin
BÍLAR, sérblað Morgunblaðsins,
sem hefur um langt skeið komið út á
miðvikudögum flyst yfir á föstudaga
frá og með 28. janúar næstkomandi.
Dyggir lesendur Bíla hafa margir
sýnt því áhuga að sérblaðið kæmi út
um helgar en fram til þessa hafa
einkum tæknilegar ástæður komið í
veg fyrir að af því gæti orðið. Með
nýrri og fullkominni prentsmiðju
Morgunblaðsins hafa forsendur
breyst og verður nú orðið við óskum
lesenda blaðsins. Eins og áður verð-
ur boðið upp á ítarlega og fjölbreytta
umfjöllun um bíla og bílatengt efni í
blaðinu.
Bílablaðið kemur fram-
vegis út á föstudögum