Morgunblaðið - 25.01.2005, Blaðsíða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Elsku bestasta Maja
amma mín.
Nú ertu farin frá mér
og ég fæ ekki að sjá þig aftur og halda
utan um þig fyrr en ég fæ sjálf að
fara.
Þú varst alltaf besta vinkona mín
og yndislegasta amma sem hægt er
að hugsa sér. Alltaf varstu til staðar
þegar ég þurfti á þér að halda. Þú
varst alltaf til í að hlusta og tala við
mig þegar mér leið illa og þegar mér
leið vel.
Þegar ég var á Mallorca þá hringd-
ir þú alltaf í mig til að vita hvort allt
væri í lagi og hvort ég væri nú ekki
öruggulega að borða nóg. Svo end-
aðirðu alltaf símtölin á að segja
mundu að biðja alltaf bænirnar með
ömmu á kvöldin og amma elskar þig.
Ég man hvað þú varst ánægð þegar
ég fór út og hvað þú hlakkaðir nú til
að fá mig heim til Íslands aftur og
hvað þú varðst ánægð þegar ég fékk
út úr prófunum mínum.
Það er sama hvaða minning kemur
upp í hugann, allar eru þær yndisleg-
ar og fullar hlýju og kærleik sem
streymdi alltaf frá þér. Það fyllir
hjarta mitt gleði að hugsa um brosið
þitt, augun, hláturinn, faðmlagið og
bara um þig. Mér fannst alltaf svo
gott að fá að kúra hjá þér og aldrei
svaf ég betur en þegar bestasta
amma í heiminum svaf og hraut við
hliðina á mér. Ég man eftir laginu
sem þú og afi sunguð alltaf fyrir okk-
ur. Við fengum að kúra í fanginu og fá
klapp á eyrað og ruggað og sungið
lagið Við skulum róa á selabát. Þetta
er besta minning í heimi.
Elsku bestasta amma mín. Ég
elska þig af öllu mínu hjarta og ég
mun aldrei gleyma þér né því sem þú
hefur kennt mér um ævina. Farðu nú
og kysstu og knúsaðu hann Óskar afa
fyrir mig og vonandi skemmtirðu þér
vel í afmælinu hans sem þú ákvaðst
KRISTÍN MARÍA
MAGNÚSDÓTTIR
✝ Kristín MaríaMagnúsdóttir
fæddist í Stóra Rima-
koti í Ásahreppi í
Rangárvallasýslu 17.
júní 1921. Hún lést á
Landspítalanum við
Hringbraut að kvöldi
föstudagsins 14. jan-
úar síðastliðins og
var jarðsungin frá
Háteigskirkju 24.
janúar.
að þú yrðir að drífa þig
í.
Þú varst alltaf best
og verður það alltaf.
Þín
Eygló Björk.
Vinan góða, þér um
ljóssins leiðir
lífið eilíft kærleiksfaðm sinn
breiðir,
þótt tjaldbúð lífs þíns hvíli hér,
himins til vér leitum eftir þér.
Hjartans þakkir fyrir aðstoð
alla.
er í kærleik léstu í skaut oss falla,
öll þín gæði, er ávalt nutum vér,
eilíflega Drottinn launi þér.
Fyrir dagsól dýrðarlandsins góða
dauðinn hverfur eins og þokumóða,
og fyrir andans sjónum skín,
elskulega vina, sæla þín.
(ÁJ)
Elsku Mæja mín, mig langar að
kveðja þig með nokkrum orðum og
þar sem ég trúi að dauðinn sé ekki
endalok alls veit ég að hugsanir mínar
ná til þín.
Fyrsta orðið sem mér kemur í hug
þegar ég hugsa um þig er tryggð, þú
tókst mér svo einstaklega vel frá upp-
hafi, þú varst mér og fjölskyldu minni
tryggur vinur, við vorum svo lánsöm
að njóta umhyggju þinnar og elsku og
taka þátt í þínu lífi og barnanna
þinna, verða hluti af fjölskyldu þinni,
það er mér mjög dýrmætt.
Mig langar að þú vitir hversu vænt
mér þótti um þig og hversu kær þú
varst mér og fjölskyldu minni. Ég
finn til sárrar sorgar nú er þú ert
horfin okkur hér á jörðu, að vita að við
göngum ekki að þér vísri á Háaleit-
isbrautinni, mér fannst þú aldrei
gömul, þú varst Mæja, án aldurs og
ég held að mér hafi fundist að þú yrðir
alltaf til staðar.
Huggun er það harmi gegn að þú
þurftir ekki að verða öðrum háð eða
láta aðra „hafa fyrir þér“, það var þér
ekki að skapi.
Ég sé þig fyrir mér komna til Guðs-
ríkis þar sem ástvinir þínir taka fagn-
andi á móti þér, þú á milli Óskars þíns
og Eyglóar þinnar, björt og áhyggju-
laus, þau leiða þig um og allt er svo
fallegt, bjart og friðsælt.
Elsku Mæja mín, þakka þér fyrir
það sem þú varst, ég mun aldrei
gleyma þér, ég óska þér blessunar í
þínum nýju heimkynnum.
Elsku Sævar, Ella og fjölskylda og
Anna og fjölskylda, ég veit að þið eruð
sorgmædd núna en ég veit að þið
hugsið rétt, að þetta hafi verið það
besta úr því sem komið var, þið gerð-
uð allt sem hægt var að gera fyrir
hana mömmu ykkar, ást ykkar til
hennar var mikil og aðdáunarverð,
hún er ekki horfin ykkur, hún lifir í
ykkur og börnunum ykkar, við skul-
um hætta að gráta, samfagna henni
heldur, hún fékk þá ósk sína uppfyllta
að „láta ekki hafa fyrir sér“.
Bergljót.
Elsku Maja mín. Mikið er ég fegin
að fá að kynnast þér. Þú sýndir öllum
einstaka umhyggju og hafðir alltaf
áhuga á því sem við vorum að gera.
Mikið er ég líka þakklát þér hve vel
þér tókst til í uppeldinu. Hún Anna
Maggý, yngsta dóttir þín og lang-
besta vinkona mín, ber þess merki að
hennar fyrirmynd var hennar góða
móðir. Betri fyrirmynd er ekki hægt
að hugsa sér.
Mikið er ég glöð að eiga allar minn-
ingarnar um þig, sem streyma nú upp
í hugann. Við höfum ferðast víða sam-
an, hist við ýmis tækifæri og talað
saman í síma. Það kemur bros á vör
þegar ég rifja upp þegar þú baðst mig
alltaf um að tala ekki lengi við þig í
símann, því að það væri svo dýrt að
hringja utan af landi til þín til Reykja-
víkur. En þannig myndir þú líka vilja
að við myndum eftir þér. Brosandi.
Mikið er ég ánægð að þú, Maja
amma, passaðir barnabörnin fyrir
dætur þínar og líka Anton Inga með
Arnari Má þegar þeir voru í sama
bekk. Þannig kynntist ég fjölskyld-
unni þinni.
Mikið er nú gott að þú fékkst að
hafa síðustu dagana eins og eftir
pöntun. Það er skrýtið og óraunveru-
legt að þú sért farin en eigingirni að
unna ekki þreyttum líkama hvíldar.
Þegar ég kom síðast til þín heim fékk
ég að lesa ljóð með þér inn við rúm og
þú sýndir mér jólakúlurnar þínar í
stofunni. Tveimur dögum síðar varst
þú komin á spítalann. Þar háðu líf-
færin mikla baráttu en heilinn hélt
sínu striki allan tímann.
Elsku Maja mín. Ég skal gera allt
sem ég get til að styrkja börnin þín og
barnabörnin sem þú elskaðir meira
en allt annað. Ég þakka þér fyrir að
hafa haft okkur mæðgin líka undir
þínum verndarvæng. Ef það er rétt
sem þú sagðir svo oft að Guð launi
okkur á himnum þá er mikið að gera
hjá honum núna, að þakka þér fyrir
hvað þú hefur alltaf verið góð við alla
sem á vegi þínum urðu. Nú ert þú
frjáls eins og fuglinn.
Ég heyri í fjarska villtan vængjaþyt
Um varpann leikur draumsins perluglit.
Snert hörpu mína, himinborna dís,
og hlustið, englar guðs í Paradís.
(Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.)
Þín
Steinunn og Anton Ingi.
Dauðinn er hluti af lífinu og þegar
einhver deyr sem manni þykir vænt
um, er erfitt að sætta sig við það.
Elsku Maja, þinn tími var kominn
og tími okkar til að kveðja þig, og
langar mig að þakka þér fyrir þann
kærleik, gleði og samlyndi sem þú
sýndir okkur. Þótt við hefðum viljað
hafa þig hér lengur hjálpar það okkur
að sætta okkur við brottför þína að
þessi góði andi sem alltaf var í kring-
um þig og þú sem móðir innrættir
fjölskyldu þinni, mun endurspeglast í
börnum þínum og barnabörnum.
Minnumst þess líka að trúað fólk
treystir því að sá sem lifir með Guði í
þessu lífi muni eiga það samfélag
áfram eftir dauðann en sá sem hafnar
Guði og vilja hans í þessu lífi er um
leið að hafna því að lifa með honum
eftir dauðann. Við munum allt sem þú
varst að gefa okkur og erum sátt við
að þú sért núna í betri stað.
Mary Carmen,
Albert og Gabriela.
Þau fluttu í blokkina okkar á Háa-
leitisbrautinni í janúar þegar ég var á
tíunda ári, og mikið óskaplega varð ég
glöð þegar ljóst var að þar með flutti
æskuvinkona mín í húsið. Anna dóttir
Mæju var jafnaldra mín og átti eftir
að verða mín besta vinkona. Ég vissi
ekki þá hversu mikill heimagangur ég
átti eftir að verða á heimili þeirra, en
allt frá fyrstu stundu var ég velkomin
þangað. Mæja var heimavinnandi,
töluvert eldri en mamma mín, Óskar
heitinn á sjó og því yfirleitt fjarri
heimilinu, og mér er minnistætt hvað
mér fannst það notalegt að mamma
Önnu var alltaf heima þegar við kom-
um úr skólanum, – ég segi við, því yf-
irleitt fórum við Anna allt saman og
samferða, í skólann og úr skóla og
einnig allt annað. Mér fannst frábært
að koma upp til Önnu vinkonu, því þar
tók Mæja alltaf hlýlega á móti okkur
og yfirleitt beið okkar smurt brauð,
nýbakaðar kleinur, pönnukökur eða
annað bakkelsi. Og þannig er minn-
ingin um Mæju; hún var til staðar
með útbreiddan faðm, tók öllum vel
og spurði ávallt: „Hvað má bjóða þér?
.... Má alls ekki bjóða þér eitthvað?“
....og var í raun eyðilögð ef boðið var
afþakkað. Hún vildi öllum vel og gerði
vel við alla.
Svona liðu bæði grunnskólaárin og
menntaskólaárin og Mæja breyttist
ekki neitt, hún var alltaf sama ynd-Pantanir í síma 562 0200
Á fallegum og notalegum
stað á 5. hæð Perlunnar.
Aðeins 1.250 kr. á mann.
Perlan
ERFIDRYKKJUR
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang-
afi,
STEINÞÓR BENEDIKTSSON
bóndi,
Kálfafelli,
Suðursveit,
lést á hjúkrunardeild Heilbrigðisstofnunar
Suðausturlands laugardaginn 22. janúar.
Benedikt Þór Steinþórsson, Ragnheiður Magnúsdóttir,
Bjarni Steinþórsson, Hrefna Guðmundardóttir,
Unnsteinn Ingi Steinþórsson, Svava Magnúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn,
ARI GUÐMUNDSSON,
Lækjargötu 1,
Hvammstanga,
lést á Heilbrigðisstofnun Hvammstanga þriðju-
daginn 18. janúar.
Útför hans fer fram frá Hvammstangakirkju
fimmtudaginn 27. janúar kl. 14.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir,
en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Krabbameinsfélag
Hvammstangalæknishéraðs eða Heilbrigðisstofnun Hvammstanga.
Sigríður Þórhallsdóttir
og aðrir aðstandendur.
Elskulega móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
MUNDA PÁLÍN ENOKSDÓTTIR,
Sogni,
Ölfusi,
lést á Sjúkrahúsi Suðurlands sunnudaginn
16. janúar.
Jarðarförin auglýst síðar.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en
þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Kærleikssjóð Sogns, Geðhjálp
eða önnur góðgerðarfélög.
Sérstakar þakkir til allra sem önnuðust hana, starfsfólks Sogns, Sjúkra-
húss Suðurlands, krabbameinsdeildar Landspítalans, ættingja, vina og
annarra velunnara hennar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kristján V. Halldórsson, Elísabet Egilsdóttir,
Kári Halldórsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi
og langalangafi,
SKARPHÉÐINN JÓHANNSSON,
Garðvangi,
Garði,
áður Njarðvík,
lést á Sjúkrahúsi Keflavíkur þriðjudaginn
18. janúar.
Jarðarförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju miðvikudaginn 26. janúar
kl. 14.00.
Þórdís Skarphéðinsdóttir,
Álfheiður Skarphéðinsdóttir, Ólafur E. Þórðarson,
Jensa S. Skarphéðinsdóttir, Wolfgang Quellmann,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og
langamma,
AÐALHEIÐUR EINARSDÓTTIR,
Ásbraut 3,
Kópavogi,
lést á Landspítala við Hringbraut aðfaranótt
sunnudagsins 23. janúar.
Útför fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn
28. janúar kl. 13.00.
Gunnhildur Gunnarsdóttir, Magnús Gunnarsson,
Aðalheiður Magnúsdóttir, Sigurbjörn Þorkelsson,
Gunnar K. Magnússon, Katla Kristjánsdóttir
og barnabarnabörn.
Erfidrykkjur
Salur og veitingar
Félagsheimili KFUM & KFUK
Holtavegi 28, 104 Reykjavík.
Upplýsingar í síma 588 8899.
www.kfum.is