Morgunblaðið - 25.01.2005, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 25.01.2005, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2005 39 FRÉTTIR  GUÐMUNDUR Á. Björnsson út- skrifaðist frá Háskólanum í Ósló 9. desember síðastliðinn eftir að hafa varið dokt- orsritgerð 10. september. Fyrsti and- mælandi dóm- nefndar var dr. Oliver H.G. Wilder-Smith, prófessor við læknadeild Há- skólasjúkrahúss St. Radboud, Hollandi, annar and- mælandinn var dr. Per Skjelbred, prófessor við Ullevål háskóla- sjúkrahús og formaður dómnefndar var dr. Anne Merete Aass, prófess- or við tannlæknadeild Háskólans í Ósló. Aðalleiðbeinandi Guðmundar var dr. Lasse A. Skoglund, prófess- or við lyfjafræðideild tann- læknadeildar Háskólans í Ósló. Heiti doktorsritgerðarinnar er „The postoperative course follow- ing third molar surgery used for testing of anti-inflammatory drugs“. Bráðabólguferli eftir endajaxla- aðgerðir veldur meðal annars sárs- auka, bólgu og minnkaðri hreyfi- getu kjálkans (kjálkastjarfi). Þessar aðgerðir henta vel til þess að rannsaka hvernig verkjalyf og bólgueyðandi lyf virka við raun- verulegar klínískar aðstæður í mót- setningu við tilraunaaðstæður. Þrátt fyrir það hafa fáar greinar birst sem kanna ferlið eftir þessar aðgerðir. Flestar rannsóknir kanna aðeins eitt af þessum viðbrögðum líkamans eftir aðgerðirnar eða í mjög takmarkaðan tíma. Rannsóknin staðfesti að það eru stórar einstaklingsbundnar breytur eftir aðgerðirnar og einnig að sárs- auki, bólga og minnkuð hreyfigeta hafa sérstætt og að hluta til að- skilið ferli. Í samanburði við para- cetamól sýndu þessi þrjú NSAID- lyf óvænta niðurstöðu miðað við það sem venjulega er talin vera verkun þeirra á bráðabólguferlið. Íbuprófen og naproxen virkuðu ekki betur en paracetamól á bólgu og sársauka, en ketóprófen virkaði mun betur en paracetamól bæði á bólgu og sársauka. Kortlagning bráðabólgu eftir endajaxlaaðgerðir nýtist við þróun lyfja og við að bæta klínískar rannsóknaaðferðir. Rannsóknarverkefnið áréttar mik- ilvægi þess að lyf séu rannsökuð á mönnum við þær aðstæður sem á að nota þau við og ekki heimfæra verkun lyfja frá einöngruðum til- raunaaðstæðum með takmarkað klínískt gildi. Guðmundur Á. Björnsson er fæddur í Reykjavík 1962. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum við Sund 1982, lauk cand. odont gráðu í tannlækningum frá tann- læknadeild Háskóla Íslands 1988. Starfaði sem tannlæknir í Reykja- vík, á Selfossi og í Búðardal á ár- unum 1988–1990. Stundaði fram- haldsnám í munn- og kjálkaskurðlækningum við tann- læknadeild Háskólans í Ósló á ár- unum frá 1990–1995. Lauk sér- fræðiprófi í desember 1994 og til vors 1995 starfaði hann við kjálka- skurðlækningadeild Háskólans og Háskólasjúkrahússins í Árósum. Vorið 1995 var Guðmundi úthlut- aður styrkur til rannsóknastarfa við Háskólann í Ósló en honum lauk 1999. Í dag starfar Guð- mundur við munn- og kjálka- skurðlækningar og rekur stofu í Reykjavík ásamt því að vera í hlutastarfi við Landspítala – há- skólasjúkrahús. Foreldrar Guðmundar eru Björn Guðmundsson flugstjóri sem nú er látinn og Þorbjörg Rósa Guð- mundsdóttir, fyrrverandi versl- unarmaður og húsmóðir. Eiginkona Guðmundar er Sæunn Gísladóttir íþróttakennari og háskólanemi. Guðmundur og Sæunn eiga þrjú börn. Doktor í tannlækn- ingum KOSIÐ verður til stúdentaráðs og háskólaráðs Há- skóla Íslands 9. og 10. febrúar næstkomandi. Til- kynnt hefur verið hverjir munu skipa framboðslista Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta, og Röskvu, samtaka félagshyggjufólks. Síðasta ár hef- ur Vaka haft meirihluta í stúdentaráði og stjórnað starfi SHÍ. Kosið er um níu fulltrúa til stúdentaráðs til tveggja ára en alls sitja átján fulltrúar í ráðinu. Helmingi þeirra er skipt út árlega og það framboð sem nær meirihluta atkvæða í kosningum stjórnar í krafti meirihluta síns. Tveir stúdentar eru kosnir til setu í háskólaráði til tveggja ára og sitja þeir einnig fundi stúdentaráðs. Framboðslisti Röskvu til stúdentaráðs: Ásgeir Runólfsson, véla- og iðnaðarverkfræði Dögg Proppé Hugosdóttir, heimsp./hagfr./ japanska Atli Bollason, bókmenntafræði Dagbjört Hákonardóttir, lögfræði Atli Rafnsson, sagnfræði, trúarbragðafræði Kristín Tómasdóttir, sálfræði/kynjafræði Lára Kristín Unnarsdóttir, íslenska/ viðskiptafræði Hrafn Harðarson, véla- og iðnaðarverkfræði Lára Jónasdóttir, stjórnmálafr./félagsfræði Ásta Ósk Hlöðversdóttir, umhverfisverkfræði Hallgrímur Jónas Jensson, hagfræði Anna Margrét Sigurðardóttir, stærðfræði Elín Birna Skarphéðinsdóttir, hjúkrunarfræði Þormóður Geirsson, lyfjafræði Fanney Birna Sigurjónsdóttir, félagsráðgjöf Hlynur Bárðason, líffræði Sigursteinn Másson, uppeldis- og menntunarfræði Valgerður B. Eggertsdóttir, lögfræði. Framboðslisti Röskvu til háskólaráðs: Anna Pála Sverrisdóttir, lögfræði Hrafn Stefánsson, stjórnmálafræði Helga Tryggvadóttir, læknisfræði Finnur Dellsén, stærðfræði/heimspeki Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, stjórnmálafræði Dagný Ósk Aradóttir, lögfræði Torfi Stefán Jónsson, sagnfræði Erna Hrönn Ólafsdóttir, táknmálsfræði Arna Huld Sigurðardóttir, hjúkrunarfræði Eva María Hilmarsdóttir, franska Magnús Már Guðmundsson, stjórnmálafr./ sagnfræði Grétar H. Gunnarsson, guðfræði Framboðslisti Vöku til stúdentaráðs: Andri Heiðar Kristinsson, verkfræði Stefanía Sigurðardóttir, viðskiptafræði Sigurður Örn Hilmarsson, lögfræði Karl Jónas Smárason, sálfræði Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, stjórnmálafræði Hafþór Snjólfur Helgason, landfræði Þorgeir Arnar Jónsson, enska og stjórn- málafræði Sæunn Björk Þorkelsdóttir, viðskiptafræði Helena Sigurðardóttir, verkfræði Gunnlaugur Már Briem, sjúkraþjálfun Ágúst Stefánsson, lögfræði Þóranna Halldórsdóttir, táknmálsfræði Guðfinna Alda Ólafsdóttir, sálfræði Þorvarður Atli Þórsson, stjórnmálafræði og hagfræði Katherine Elizabeth Leroy, jarðfræði Elínborg Kristjánsdóttir, lyfjafræði Ari Tómasson, verkfræði Jarþrúður Ásmundsdóttir, viðskiptafræði Framboðslisti Vöku til háskólaráðs: Bryndís Harðardóttir, hagfræði Einir Guðlaugsson, verkfræði Inga Hrefna Sveinbjarnardóttir, lögfræði Friðrik Rúnar Garðarsson, læknisfræði Huld Hafliðadóttir, félagsráðgjöf Nanna Ýr Arnardóttir, líffræði Elmar Geir Unnsteinsson, heimspeki Eyrún Björk Jóhannsdóttir, stjórnmálafræði Jenný Lind Hjaltadóttir, hjúkrunarfræði Ólöf Daðey Pétursdóttir, spænska Heimir Pétursson, stjórnmálafræði Sigrún Helga Jóhannsdóttir, lögfræði Kosið til stúdentaráðs í Háskóla Íslands 9. og 10. febrúar Framboðslistar Vöku og Röskvu kynntir KRISTÍN Birna Ólafsdóttir, frjálsíþróttakona og Ingimundur Ingimundarson handknattleiks- maður eru útnefnd Íþróttamaður ÍR 2004 og fór útnefningin fram við athöfn í ÍR heimilinu sl. þriðjudaginn. Kristín Birna er er ein efnileg- asta og fjölhæfasta frjáls- íþróttakona landsins um þessar mundir. Hún er landsliðskona í sjöþraut og varð Íslandsmeistari kvenna í þeirri grein í júní og hafði áður sett Íslandsmet í sex- þraut ungkvenna 19–20 ára og 21–22 ára innanhúss í febrúar. Ingimundur byrjaði að æfa handbolta með Þrótti 1987 en hefur æft og leikið með ÍR síðan 1988. Fyrsta meistaraflokksleik- inn með ÍR lék hann 1996 og hef- ur síðan verið einn af burðar- ásum ÍR, ef frá eru talin tvö ár þegar hann barðist við erfið meiðsli. Ingimundur hefur leikið 15 A-landsliðsleiki og skorað í þeim um 30 mörk og þess má geta að Ingimundur verður með íslenska landsliðinu á HM í Túnis í janúar 2005. Ingimundur hefur þjálfað yngri flokka hjá ÍR síð- ustu 5 ár og er í dag þjálfari 2. fl. karla og aðstoðarþjálfari í 3. fl. karla. Valin Íþróttamenn ÍR 2004 Ingimundur Ingimundarson handknattleiksmaður. Kristín Birna Ólafsdóttir frjálsíþróttakona. LÖGREGLAN í Reykjavík hefur handtekið fjölda manna vegna stórra innbrota í verslanir og heimili. Þar á meðal eru tvö nýleg innbrot í verslun Carls Bergmann. Fyrra innbrotið átti sér stað 9. desember þegar tveir menn brutu rúðu í útihurð, fóru inn og stálu skartgripum fyrir um 1,5 milljónir kr. Þeir voru handteknir daginn eftir og játaði annar þeirra sakir. Hluti þýfisins fannst. Rannsókn á seinna innbrotinu, þar sem stolið var úrum fyrir nokkur hundruð þúsund kr. og framið var 19. janúar, leiddi til handtöku sjö manna og voru þrír þeirra að reyna að selja hluta ránsfengsins þegar upp um þá komst. Þrír aðrir voru í kjölfarið handteknir við húsleit í tengslum við málið. Sá sjöundi var síðan handtekinn síðar sama dag vegna tengsla hans við hina. Armbandsúr fundust einnig hjá honum. Við rannsóknina var lagt hald á bíl, sem var í fórum mannanna, en honum hafði verið stolið nokkrum dögum áður og sett á hann önnur skráningarnúmer. Þýfi og fíkniefni finnast Í tengslum við húsleitina var maður handtekinn þegar þýfi úr verslun við Klapparstíg fannst hjá honum. Brotist hafði verið inn í verslunina um síðustu helgi. Um var að ræða fatnað að verðmæti 700 þúsund krónur. Honum hefur verið skilað. Þá voru sex menn handteknir í gærmorgun eftir að húsráðandi í vesturbæ kom að tveimur mönn- um á heimili hans þar sem þeir voru að aftengja tölvu. Þeir voru þá búnir að bera út sjónvarp úr húsinu. Hinir fjórir voru í sam- kvæmi í nálægu húsi og tengdust þeir mönnunum tveimur. Við hús- leit hjá þeim fundust m.a. fíkni- efni. Nokkur stórinnbrot upplýst hjá lögreglu 15 manns handteknir og þýfi endurheimt SAUTJÁN ára gamall piltur var fyrir helgi dæmdur til að greiða 150.000 króna sekt fyr- ir að hafa rúmlega 50 grömm af hassi í fórum sínum, en lögregla fann hassið í sjamp- óbrúsa þegar hún leitaði í far- angri hans á Ísafjarðarflug- velli. Með brotinu rauf hann skilorð en vegna þess hversu ungur pilturinn er, magnið ekki stórkostlegt og að hann hefur leitað sér hjálpar vegna fíkniefnavanda síns, var skil- orðsdómurinn látinn halda sér. Í dómi Héraðsdóms Vest- fjarða kemur fram að pilt- urinn fékk skilorðsbundna frestun ákæru til tveggja ára í febrúar 2003, þegar hann var 16 ára, vegna meints þjófnaðar. Tveimur mánuðum síðar var hann dæmdur til að greiða sekt og sviptur öku- rétti fyrir ölvunarakstur og brot á lögum um ávana- og fíkniefni. Í sama dómi var ákvörðun refsingar frestað skilorðsbundið í tvö ár vegna þjófnaðarbrots. Í dómnum var um skilorðsbindingu vísað til þess að ákærði væri ungur að árum og hefði farið í fíkni- efnameðferð og væri að mati meðferðaraðila að ná tökum á vandamálum sínum. Hann var síðan handtekinn með hassið í brúsanum um einu ári síðar, í júní 2004. Erlingur Sigtryggsson dómstjóri kvað upp dóminn. Ólafur Hallgrímsson, fulltrúi sýslumannsins á Ísafirði, sótti málið. Björn Jóhannesson hdl. var til varnar. Faldi hassið í sjampó- brúsa VINNA sameiningarnefndar er á lokastigi og verða endanlegar tillögur að öllum líkindum kynnt- ar fyrir næstu mánaðamót, að sögn Róberts Ragn- arssonar, verkefnastjóra í félagsmálaráðuneytinu. Í haust voru kynntar tillögur um víðtæka samein- ingu sveitarfélaga og gert ráð fyrir að sveitarfélög- um fækkaði í 39 eftir sameiningu. Var sveitar- stjórnum og almenningi veittur frestur til 1. desember sl. til að gera athugasemdir við tillög- urnar. Að sögn Róberts er meirihluti sveitarfélaga hlynntur þeirri tillögu sem nefndin kynnti í sept- ember sl., eða 88 sveitarfélög. Sex sveitarfélög hafna upphaflegum tillögum nefndarinnar en leggja til að kosið verði um aðra sameiningartil- lögu. Sem dæmi má nefna að Vatnsleysustrandar- hreppur leggur til að frekar sé stefnt að samein- ingu við Hafnarfjörð en önnur sveitarfélög á Suðurnesjum, en ekki var gert ráð fyrir að Hafn- firðingar greiddu atkvæði um sameiningu síns sveitarfélags við önnur í upphaflegum tillögum nefndarinnar. Tíu sveitarfélög hafna alfarið kosn- ingu um sameiningu síns sveitarfélags við önnur og þrjú sveitarfélög mæla ekki með kosningu um þá tillögu sem nefndin lagði fram, enda þótt þau hafni henni ekki alfarið skv. orðanna hljóðan í umsögn. Átta sveitarfélög telja ekki forsendur til að greiða atkvæði að svo stöddu með vísan til þess að ekki er komin niðurstaða í viðræður ríkis og sveit- arfélaga um skiptingu tekjustofna. Meirihluti hlynntur tillögum um sameiningu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.