Morgunblaðið - 25.01.2005, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 25.01.2005, Blaðsíða 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Sýndu foreldrum og yfirfólki hvers kon- ar þolinmæði þessa dagana. Þú verður líklega fyrir gagnrýni og ert að sama skapi gagnrýninn á aðra, hrútur góður. Best er bara að þegja. Naut (20. apríl - 20. maí)  Ekki gera lítið úr heimspekilegum við- horfum eða trúarskoðunum einhvers í dag. Ekki heldur þola öðrum slíka með- ferð á þér sjálfum. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú verður hugsanlega fyrir vonbrigðum með skiptingu á tilteknum hlunnindum eða verkefni og áttir kannski von á meiru. Gættu þess að þú fáir sanngjarna meðferð. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Sýndu nánum vinum eða maka einstaka þolinmæði í dag. Fólk í kringum þig er líklega áhyggjufullt, jafnvel gagnrýnið. Ekki taka það inn á þig. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Ekki er ósennilegt að þú hafir áhyggjur af einhverju sem tengist vinnunni. Sam- starfsfólk er kannski gagnrýnið eða fjar- lægt. Það líður hjá, láttu sem ekkert sé. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Ekki gera of miklar kröfur til barnanna í dag. Þú ert kannski vonsvikin yfir ein- hverju, meyja, og freistast til þess að láta það bitna á smáfólkinu. Sýndu frek- ar umburðarlyndi og skilning. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þetta er ekki rétti dagurinn fyrir sam- ræður innan fjölskyldunnar. Ekki biðja um hjálp eða fá eitthvað lánað, gerðu það sem þú þarft upp á eigin spýtur. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú finnur fyrir áhyggjum í dag, en áhyggjum er líkt við ruggustól, hann hreyfist, en kemst ekki áfram. Veltu því fyrir þér. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Peningar eru furðulegt fyrirbæri. Við- horf okkar til þeirra og tilfinning fyrir ríkidæmi hefur lítið með það að gera hvað við eigum. Blankheit dagsins í dag birtast í allt öðru ljósi í næstu viku. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Ekki láta gagnrýnisraddir telja úr þér kjark. Fólk virðist í einstaklega nei- kvæðum stellingum þessa dagana. Nei- kvæðnin kemur til af því að fólk vill breytingar á tilteknu ástandi. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Reyndu að leiða hjá þér efasemdir um sjálfan þig sem láta á sér kræla. Hugs- anlegt er að einhver tali ógætilega við þig, þetta ástand líður senn hjá. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Samræður við vin sem er eldri en þú gætu reynst erfiðar í dag. Þú þarft ekki að standa undir væntingum annarra, þær eru alfarið þeirra mál. Stjörnuspá Frances Drake Vatnsberi Afmælisbarn dagsins: Fólki finnst þú áhugaverð manneskja og það ertu svo sannarlega. Líf þitt einkenn- ist af fjölbreytni og stundum er skammt stórra högga á milli þegar fjármálin eru annars vegar. Þú þykir bæði hugmynda- og hæfileikarík manneskja. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Myndlist Anddyri Suðurlandsbrautar 4 | Rafn Sig- urbjörnsson – Fjölskyldan. Tíu olíumálverk. Árbæjarsafn | Í hlutanna eðli – Stefnumót lista og minja. Gallerí Humar eða frægð! | Ásdís Sif Gunn- arsdóttir sýnir vídeóverk sem hún hefur unnið að sl. ár ásamt nýrri vídeóinnsetningu fyrir sýninguna. Í vídeóinnsetningum sínum vinnur Ásdís með sækadelíu, ljóðrænu, drasl og gersemar en verk hennar sameina kven- lega, ljóðræna hryggð og norrænan gálga- húmor. Opið 12–18 daglega. Gallerí Sævars Karls | Hulda Vilhjálms- dóttir – Hver er að banka á hurðina? Kannski barnið í landslaginu? Gerðuberg | Sigríður Salvarsdóttir í Vigur sýnir listaverk úr mannshári í Boganum, Gerðubergi frá 21. janúar til 13. mars. Sjá nánari upplýsingar á www.gerduberg.is. Rosemarie Trockel sýnir ljósmyndir, skúlp- túra, teikningar og myndbönd. Hallgrímskirkja | Jón Reykdal – 6 ný olíu- málverk í forkirkju Hallgrímskirkju. Hrafnista Hafnarfirði | Tryggvi Ingvarsson, rafvirkjameistari og heimilismaður á Hrafn- istu, sýnir útsaum og málaða dúka í Menn- ingarsalnum á fyrstu hæð. Kaffi Sólon | Sigríður Valdimarsdóttir – Snjókorn. Kunstraum Wohnraum | Alda Sigurð- ardóttir – Landslagsverk. Listasafn ASÍ | Valgerður Guðlaugsdóttir – Á skurðarborði Augans. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Birgir Snæbjörn Birgisson – verk úr tveimur mynd- röðum, Snertingar og Ljóshærðar starfs- stéttir. Elías B. Halldórsson – Olíuljós. Verk úr einkasafni Þorvaldar Guðmundssonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur á neðri hæð. Listasafn Reykjanesbæjar | Kristín Gunn- laugsdóttir – … mátturinn og dýrðin, að ei- lífu … Listasafn Rvk., Ásmundarsafn | Maðurinn og efnið – yfirlitssýning á verkum Ásmundar Sveinssonar. Listasafn Rvk., Hafnarhús | Þórður Ben Sveinsson – Borg náttúrunnar. Bjargey Ólafsdóttir – Láttu viðkvæmt útlit mitt ekki blekkja þig. Erró – Víðáttur. Brian Griffin – Áhrifavaldar. Tjarnarsalur Ráðhúss Rvk. | Sören Solsker Starbird – Er sálin sýnileg? Ljósmyndasýn- ing. Þjóðmenningarhúsið | Bragi Ásgeirsson (f. 1931), grafíklistamaður, listmálari, myndlist- arkennari og listgagnrýnandi, er myndlist- armaður mánaðarins í samstarfi Þjóðmenn- ingarhússins og Skólavefjarins. Í Þjóðmenningarhúsinu er sýning á verkum Braga, bæði í veitingastofu og í kjallara. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Kópavogs | Opið kl. 16– 18. Fatamóttaka og úthlutun á sama tíma. Söfn Þjóðmenningarhúsið | Í Þjóðmenningarhús- inu er hafin sýningaröðin Tónlistararfur Ís- lendinga. Kynntar eru nýjar rannsóknir á tónlistararfinum og útgáfa efnis á geisla- diskum. Fyrsta sýningin fjallar um Silf- urplötur Iðunnar sem Kvæðamannafélagið Iðunn og Smekkleysa gáfu nýlega út á fjór- um geisladiskum ásamt riti. Þjóðminjasafn Íslands | Grunnsýning Þjóð- minjasafnsins, Þjóð verður til–menning og samfélag í 1200 ár. Opið alla daga nema mánudaga frá kl. 11–17. Fyrsta fimmtudag hvers mánaðar er opið til kl. 21. Fyrirlestrar Norræna húsið | Á fundi Sagnfræðinga- félags í Norræna húsinu kl. 12.05 flytur Hall- fríður Þórarinsdóttir erindið Mál valdsins – vald málsins og spyr: Hvað býr að baki þeirri fullyrðingu að nauðsynlegt sé að vernda ís- lenska tungu fyrir erlendum ágangi sem kunni að spilla henni? Raunvísindadeild HÍ | Ríkharður Fr. Frið- riksson heldur meistaraprófsfyrirlestur við jarð- og landfræðiskor raunvísindadeildar Háskóla Íslands í Öskju fimmtudaginn 27. janúar kl. 17. Fyrirlestur Ríkharðs nefnist Úr- komuleiðréttingar byggðar á snjómælingum og fjallar um notkun snjómælinga til leið- réttingar á hefðbundnum úrkomumæl- ingum. Málþing Askja – náttúrufræðihús HÍ | Málþingið: Hættur á hafsbotni verður haldið í Háskóla Íslands, Öskju, 26. janúar kl. 16–18. Fjallað verður um jarðfræðilegan ramma nátt- úruhamfaranna í Asíu 26. desember sl. og hættu á tsunami-flóðbylgjum við Ísland. All- ir velkomnir. Ráðstefnur Nordica hótel | Samtök upplýsingatækni- fyrirtækja efna til ráðstefnu 25. janúar kl. 9– 12.30 á Nordica hóteli. Á ráðstefnunni verð- ur dregin upp mynd af tækifærum og fram- tíðarsýn upplýsingatækniiðnaðar. Wilfried Grommen, framkvæmdastjóri stefnumót- unar hjá Microsoft í Evrópu, flytur erindi á ráðstefnunni. Útivist Ferðafélagið Útivist | Útivist blótar þorrann á Leirubakka í Landsveit 28.–30. janúar. Útivist verður með jeppaferð í Kerlingarfjöll 28.–30. janúar. Fararstjóri er Jón Viðar Guð- mundsson. Laugardalurinn | Stafganga í Laug- ardalnum kl. 17.30, gengið frá Laugardals- lauginni. Nánari uppl. á www.stafganga.is og gsm: 6168595 og 6943571, Guðný Aradótt- ir og Jóna Hildur Bjarnadóttir. Fundir Ýmir | Aðalfundur Karlakórs Reykjavíkur fyrir árið 2004 verður haldinn í Tónlistar- húsinu kl. 19. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Krossgáta Lárétt | 1 skjálfa, 4 varkár, 7 hænur, 8 fljót- ur að læra, 9 illdeila, 11 magurt, 13 Ísland, 14 urg, 15 ómjúk, 17 heimshluti, 20 reykja, 22 stritið, 23 geigur, 24 öldu, 25 und- in. Lóðrétt | 1 bitur, 2 vesling- ur, 3 nytjalanda, 4 þröng leið, 5 losar allt úr, 6 líffærin, 10 matvands manns, 12 gerist oft, 13 burt, 15 hörfar, 16 væskill- inn, 18 brennur, 19 ákveð, 20 kvæði, 21 forar. Lausn síðustu krossgátu Lárétt | 1 bakþankar, 8 bugar, 9 notar, 10 iðn, 11 innar, 13 asnar, 15 stökk, 18 úfinn, 21 ætt, 22 undin, 23 annar, 24 grundinni. Lóðrétt | 2 augun, 3 þorir, 4 nenna, 5 aftan, 6 obbi, 7 frár, 12 auk, 14 sef, 15 saum, 16 öldur, 17 kænan, 18 útati, 19 innan, 20 nart. Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is Í TILEFNI af 100 ára ártíð Íslandsvinarins Daniels Willards Fiskes og sýningu um hann í Landsbókasafni Íslands – Háskóla- bókasafni er gestum safnsins boðið til fjölteflis í fyrirlestrarsal safnsins í Þjóð- arbókhlöðunni á morgun kl. 13. Á undan mun Kristín Bragadóttir hafa nokkur að- fararorð um ævi hans og störf og hinn geysilega áhuga sem hann hafði á öllu því sem kom Íslandi við. Helgi Ólafsson stórmeistari teflir við gesti. Þrenn verðlaun verða veitt. Áhuga- samir eru beðnir að skrá sig hjá upplýs- ingadeild safnsins eða á netföngin: emili- as@bok.hi.is og kristbra@bok.hi.is Fjöltefli í Þjóðarbókhlöðu   BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is Reykjavíkurmótið. Norður ♠G104 ♥DG10972 S/Enginn ♦ÁG4 ♣K Vestur Austur ♠D952 ♠K83 ♥-- ♥K8654 ♦107652 ♦D9 ♣10432 ♣G65 Suður ♠Á76 ♥Á3 ♦K83 ♣ÁD987 Símon Símonarson og félagar í sveit Garða og véla urðu Reykjavíkurmeist- arar á sunnudaginn, þremur stigum á undan sveit Ferðaskrifstofu Vest- urlands (Karl Sigurhjartarson). Esso- sveitin (Guðm. Sv. Hermannsson) varð þriðja. Í sveit Garða og véla spiluðu, auk Símonar: Sverrir Kristinsson, Friðjón Þórhallsson, Sigfús Örn Árna- son, Hermann Friðriksson og Rúnar Magnússon. Spilið að ofan er frá síðustu umferð. Yfirleitt létu NS-pörin duga að spila geim í hjarta, en nokkur reyndu þó slemmu. Sex hjörtu er spennandi samningur, sem gæti unnist þrátt fyr- ir slæma legu í trompinu. Hvernig myndi lesandinn spila með spaða út (gosi, kóngur og ás)? Það er auðvitað forgangsverkefni að henda spöðum blinds niður í lauf. Byrjunin er því þessi: Lauf á kóng, smátt hjarta á ás (betra en tígull á kóng), ÁD í laufi og spöðum hent. Tromplegan gerir það að verkum að ekki þýðir að fría fimmta laufið og sagnhafi spilar einfaldlega hjarta. Austur tekur þann slag og styttir blindan með spaða. Sagnhafi af- trompar austur og fer svo heim á tíg- ulkóng í lokastöðunni. Tvö spil eru nú eftir á hendi: Í borði er ÁG í tígli, en heima á sagnhafi einn tígulhund og laufníu. Vestur hefur orðið að hanga á lauftíunni, svo hann er kominn niður á einn tígul. Ef sagn- hafi staðsetur lauftíuna í vestur, þá er rétta spilamennskan að spila tígli á ás- inn og fella drottninguna aðra í bakið. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Fréttir í tölvupósti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.