Morgunblaðið - 25.01.2005, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 25.01.2005, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Bílar á föstudögum á föstudaginn  Sérblaðið Bílar sem fylgt hefur Morgunblaðinu á miðvikudögum mun eftirleiðis fylgja blaðinu á föstudögum. HALLDÓR Ásgrímsson forsætis- ráðherra ítrekaði í umræðum á Al- þingi í gær að ríkisstjórnin hefði ákveðið að Ísland sæktist eftir sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna fyrir árin 2009 og 2010, með fram- boði árið 2008. Hann sagði jafnframt að kostnaðurinn vegna framboðsins, sem nefndur hefði verið í fjölmiðlum síðustu daga, væri fjarri lagi. Hann nefndi þó engar tölur í þessu sam- bandi. Einar Oddur Kristjánsson, vara- formaður fjárlaganefndar Alþingis og þingmaður Sjálfstæðisflokks, sagði í fjölmiðlum um helgina að bara áróðurinn fyrir því að fá menn til að kjósa Ísland í öryggisráðið kostaði um 800 til 1000 milljónir króna. Steingrímur J. Sigfússon, formað- ur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, tók þetta mál upp í fyr- irspurnartíma á Alþingi í gær. „Nú er það svo að tölur hafa verið að koma fram – og ekki kannski allar sem áreiðanlegastar – um kostnað sem þessu kunni að vera samfara.“ Sagði hann þó eðlilegt að mönnum brygði í brún ef kostnaðurinn mæld- ist í milljörðum króna. Steingrímur tók skýrt fram að Vinstri grænir hefðu ekki hafnað því að Ísland sæktist eftir sætinu í ör- yggisráðinu „enda [væri] kostnaður innan viðráðanlegra marka og ástæða til að ætla að sá leiðangur hefði eitthvað upp á sig“, sagði hann. Steingrímur sagði síðan að nú hefði það gerst að varaformaður fjár- laganefndar og talsmaður Sjálfstæð- isflokksins hefði lýst því yfir hann teldi að það ætti að falla frá framboð- inu. Einar Oddur hefði jafnframt skorað á formann sinn, Davíð Odds- son utanríkisráðherra, að draga framboðið til baka. „Það má ráða af ummælum bæði formanns utanríkis- málanefndar og aðstoðarmanns ut- anríkisráðherra að ýmsir í Sjálfstæð- isflokknum séu ekki fráhverfir því að það verði hætt við þetta framboð,“ sagði Steingrímur og spurði Halldór m.a. að því hvort stefna ríkisstjórn- arinnar í málinu væri enn óbreytt. Samstaða í utanríkismálanefnd Forsætisráðherra svaraði því til, eins og áður sagði, að ríkisstjórnin hefði ákveðið að Ísland sæktist eftir sæti í öryggisráðinu. „Þetta er í sam- ráði við öll hin Norðurlöndin,“ sagði hann. „Norðurlöndin hafa skipst á í þessum efnum mjög lengi, en Ísland hefur aldrei gefið kost á því áður.“ Ráðherra kvaðst telja að gerð hefði verið grein fyrir kostnaði vegna framboðsins í utanríkismálanefnd þingsins. „Mér vitanlega hefur verið um það góð samstaða innan utanrík- ismálanefndar að sækjast eftir því að við færum í öryggisráðið. Við getum að sjálfsögðu ráðið miklu um það hvað við leggjum í mikinn kostnað vegna þessa. Aðalkostnaðurinn sem til myndi falla er vegna starfsmanna í New York. Að sjálfsögðu eru ýmsir möguleikar til að færa til í utanrík- isþjónustunni frá öðrum verkefnum meðan á þessu stendur, þannig að ég er þeirrar skoðunar að sá kostnaður sem hefur verið talað um í fjölmiðl- um núna síðustu daga sé fjarri lagi.“ Steingrímur kom aftur í pontu og spurði m.a. hverju það sætti að Einar Oddur beitti sér gegn málinu eins og raun bæri vitni. Halldór svaraði því ekki beint en sagði að framboðið til öryggisráðsins hefði verið margrætt á Alþingi. Talsmenn flokkanna hefðu tjáð sig í þeirri umræðu. „Það er al- veg ljóst að talsmenn flokkanna í ut- anríkismálum hafa almennt tel ég – og ég leyfi mér að segja undantekn- ingalaust – stutt þessa fyrirætlun.“ Halldór ítrekaði undir lok umræð- unnar að það væri ríkisstjórnarinnar að taka ákvörðun um mál eins og þetta. Það væri á hennar valdi. „Ef Alþingi neitar síðan að veita nauð- synlegt fé til málsins á seinni stigum fellur það um sjálft sig.“ Halldór Ásgrímsson um umsókn um sæti í öryggisráði SÞ Kostnaður sem nefndur hefur verið í fjölmiðlum fjarri lagi HALLDÓR Ásgrímsson forsætisráð- herra sagði á Alþingi í gær að skv. áliti Eiríks Tómassonar, lagaprófess- ors við Háskóla Íslands, hefðu for- ystumenn ríkisstjórnarinnar farið að réttum lögum þegar ákvarðanir voru teknar um stuðning við innrásina í Írak. „Það liggur alveg ljóst fyrir að það var farið að réttum lögum,“ sagði Halldór m.a. í svari sínu við fyrir- spurn Össurar Skarphéðinssonar, formanns Samfylkingarinnar, um málefni Íraks. Forsætisráðherra kvaðst ekki vera ósannindamaður, eins og Össur héldi fram. „Ég er ekki ósannindamaður í þessu máli og það liggur alveg ljóst fyrir, allan tímann, að ég hef upplýst um þetta mál bæði í utanríkismála- nefnd, hér á Alþingi og í fjölmiðlum eins og eðlilegt er.“ Össur spurði m.a. hvort það væri ekki í allra þágu ef leynd yrði létt af ummælum forsætisráðherra í utan- ríkismálanefnd og í ríkisstjórninni, sem tengdust stuðningi hans og Dav- íðs Oddssonar við innrásina í Írak. Sagði hann að Halldór væri í óþægi- legri stöðu, því hann hefði tvisvar orð- ið tvísaga um lykilþætti málsins. „Var ákvörðunin rædd í ríkisstjórn eða ekki? Var ákvörðunin rædd í utanrík- ismálanefnd eða ekki? Það er auðvelt að ganga úr skugga um það með því að hæstvirtur forsætisráðherra birti þær upplýsingar sem málinu tengj- ast,“ sagði Össur. Lagði hann til að leynd yrði aflétt af ummælum ráð- herra á utanríkismálanefndarfundi hinn 19. febrúar 2003 og á ríkisstjórn- arfundi hinn 18. mars sama ár. Halldór sagði m.a. í andsvari sínu að það væri að sjálfsögðu utanríkis- málanefndar að ákveða hvort hún af- létti trúnaði af sínum gögnum. Hann tók þó fram að nefndin væri reyndar í stórkostlegum vanda því upplýsing- um um fundinn í febrúar 2003 hefði þegar verið lekið til fjölmiðla. „Ég held það sé nauðsynlegt að utanrík- ismálanefnd komi saman út af því,“ sagði Halldór. „Mín vegna getur ut- anríkismálanefnd birt það sem hún vill í þessu máli. En utanríkismála- nefnd er búin að því. Það væri kannski ástæða til að rannsaka með hvaða hætti það hefði verið gert og af hvaða hvötum.“ Um ríkisstjórnarfundinn 18. mars sagði Halldór: „Í fundargerð ríkisstjórnar frá 18. mars stendur að málið hafi verið rætt. Það er ekki venjan að bóka orðaskipti í ríkisstjórn. En það liggur fyrir að málið var þar á dagskrá og ég hef margupplýst að málefni Íraks voru þar á dagskrá. Þar stendur að málið var rætt. Þannig að það liggur allt fyrir í þessu máli.“ Forsætisráðherra svaraði Össuri Skarphéðinssyni Enginn ósannindamaður ÞRÍR varaþingmenn tóku sæti á Alþingi á fyrsta fundi þingsins eftir jólahlé í gær. Ásta Möller, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, tók sæti í fjarveru Davíðs Oddssonar ut- anríkisráðherra; Herdís Á. Sæ- mundsdóttir, varaþingmaður Framsóknarflokksins, tók sæti í fjarveru Magnúsar Stefánsson- ar; og Hjördís Þóra Sigurþórs- dóttir, varaþingmaður Samfylk- ingarinnar, tók sæti í fjarveru Margrétar Frímannsdóttur. Tvær þær síðastnefndu hafa ekki áður tekið sæti á Alþingi. Þrír vara- þingmenn tóku sæti ALÞINGI kom saman að nýju í gær eftir sex vikna jólahlé. Þrír varaþing- menn tóku sæti á Alþingi í upphafi þingfundar. Þeirra á meðal er Herdís Á. Sæmundsdóttir, varaþingmaður Framsóknarflokksins. Þingkonur Vinstri grænna, Kolbrún Halldórsdóttir og Þuríður Backman, taka hér vel á móti henni og bjóða hana velkomna til starfa. Morgunblaðið/Jim Smart Alþingi kom saman í gær

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.