Morgunblaðið - 25.01.2005, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 25.01.2005, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2005 31 MINNINGAR ✝ Gísli Brynjólfs-son fæddist á Króki í Norðurárdal 3. nóvember 1918. Hann andaðist á Landspítalanum við Hringbraut laugar- daginn 15. janúar síðastliðinn, 86 ára að aldri. Foreldrar hans voru Brynjólfur Bjarnason bóndi, f. á Skarðshömrum í Norðurárdal í Mýra- sýslu, 8. október 1882, d. 18. nóvem- ber 1962, og Arndís Ágústína Klemenzdóttir, f. í Fremri-Hundadal í Dalasýslu 22. apríl 1888, d. 24. september 1955. Gísli átti fjögur alsystkini, sem öll voru fædd á Króki en þau voru: Lilja, f. 1917, Haraldur, f. 1921, Ragnheiður, f. 1923, d. 1969, og Hjörtur, f. 1924, d. 2004. Hálfsyst- ir, sammæðra var María Ólafsdótt- ir, f. 1905, d. 1979. 20. maí 1950 kvæntist Gísli Odd- nýju Daníelsdóttur frá Fossseli í Hrútafirði, f. 5 apríl 1927. Foreldr- ar hennar voru Daníel Ágúst Böðvarsson, f. á Geithól í Hrúta- firði 1. ágúst 1883, d. 9. mars 1973, og Elínbjörg Jónsdóttir, f. á Fossi í Hrútafirði 2. júlí 1894, d. 22. okt. 1977. Gísli og Oddný bjuggu lengst af á Tómasarhaga 19 í Reykjavík en síðustu árin í Hraunbæ 164. Þór, f. 20. desember 1984. Unnusta Ragnars Þórs er Ásta Lára Jóns- dóttir, f. 25. apríl 1982. 4) Signý, f. 26. maí 1961, gift Ingvari Ágústi Þórissyni, f. 25. febrúar1961. Þau eiga tvö börn: Evu Dögg, f. 27. des- ember.1982 og Þóri, f. 29. nóvem- ber 1988. 5) Kristín, f. 2. maí 1963, í sambúð með Halldóri Kvaran, f. 4. maí 1961. Þau eiga tvö börn, Örnu Liv, f. 24. febrúar1998, og Einar, f. 19. október 1999. Með fyrri sambýlismanni sínum, Hall- dóri B. Péturssyni á Kristín tvö börn, Brynju, f. 3. febrúar 1986, og Pétur, f. 5. september 1990. 6) Ragnheiður, f. 7. júní 1968, gift Hauki Haraldssyni, f. 27. febr- úar1966. Þau eiga tvö börn, Unni Dís, f. 8. júlí 1991 og Hjört, f. 1. janúar 1993. Gísli hóf þátttöku á almennum vinnumarkaði 1927, þá kúskur í vegavinnu í Norðurárdal um 6 vikna skeið. Hann vann í vega- vinnu á unglingsárum og var vetr- armaður í Fornahvammi. 1940 tók hann bílpróf í Borgarnesi og tengdust störf hans þaðan í frá vörubílum. Veturinn 1941 flutti Gísli til Reykjavíkur. Á hernáms- árunum ók hann vörubílum m.a. fyrir Lýsi hf. en uppúr 1950 stofn- aði hann ásamt félögum sínum Ís- arn hf. sem hafði umboð fyrir Scania-vörubíla. Við það fyrirtæki starfaði hann til 1993. Gísli hóf ungur veiðar á fugli og fiski frammi í Norðurárdal til búdrýg- inda. Síðar urðu veiðarnar áhuga- mál og yndisauki. Gísli verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Börn þeirra eru: 1) Daníel Bergur, f. 31. ágúst 1950, kvæntur Helgu Björk Jónsdótt- ur, f. 18. ágúst 1955. Þau eiga þrjú börn, a) Ágúst Brynjar, f. 19. janúar 1978, sambýlis- kona Þorbjörg Hlín Sigurðardóttir, f. 24. júlí 1979, óskírður sonur þeirra, f. 12. nóvember 2004. b) Birgi Má, f. 2. septem- ber 1983. c) Oddnýju Björk 19. júlí1986. 2) Brynjólfur, f. 13. júlí 1953, var kvæntur Huldísi Þor- finnsdóttur, f. 10. febrúar 1955. Þau eiga tvö börn, a) Bryndísi, f. 22. júlí 1975, hún á tvær dætur, Agnesi Eir, f. 1. október 1993 og Huldísi, f. 26. september 2003 og b) Gísla, f. 4. júlí 1979. Stjúpsonur Brynjólfs er Vífill Þór Marinósson, f. 27. desember 1972, kvæntur Rakel Dögg Þorvarðardóttur, f. 26. desember 1976, þau eiga tvö börn, Söru Ósk, f. 11.4. 2000 og Tristan Ismael, f. 28.1. 2002. 3) Arndís, f. 22. janúar 1955, gift Ás- geiri Sigurðssyni, f. 18. desember 1954. Þau eiga þrjú börn: a) Guð- nýju Ingu, f. 30. mars 1978, gift Hjörleifi S. Jónssyni, f. 11. septem- ber 1978, dóttir þeirra er Gunn- hildur, f. 8. ágúst 2004. b) Ásdísi Elínu, f. 28. mars 1980. c) Ragnar Í dag kveð ég elskulegan tengda- föður minn. Ég hef verið þeirrar blessunar að- njótandi að hafa fengið að vera part- ur af tilveru þinni síðustu 28 árin og er sá tími mér mjög eftirminnilegur. Þú varst ekki bara tengdafaðir minn heldur líka vinur og félagi þar sem ég var svo heppinn að við náðum vel saman og áttum mörg sameiginleg áhugamál og nefni ég sérstaklega lax- og skotveiðina. Til margra ára vorum við saman við laxveiðar í nokkrum ám og er mér þó sérstaklega minnisstætt þegar við veiddum saman í Norður- ánni en þar varst þú svo sannarlega á heimavelli því þar þekktir þú hvern veiðistað eins og lófann á þér og alltaf veiddum við vel saman. Svo er það sælureitur ykkar hjóna á Þingvöllum en ég og mín fjölskylda fengum líka tækifæri til að hjálpa til við endurbyggingu á aðstöðu ykkar þar, en þar var oft tekið til hendinni við uppbyggingu og lagfæringar og eyddum við þar saman mörgum stundum. Ekki mátti maður koma þar við nú seinni árin án þess að þiggja gestrisni ykkar og helst varð maður að rölta niður að vatninu og sjá hvort maður gæti ekki krækt í einn eða tvo silunga, það var nánast skylda. Nú seinni árin var farið að draga af þér en við hjónin vissum hversu gaman þú hafðir af að ferðast þannig að við reyndum á hverju ári að fara með ykkur hjónin í smá ferðalag um landið til að leyfa ykkur að njóta tímans og að við fengjum líka tækifæri til að njóta samveru ykkar. Minnisstæðasta ferðin með ykkur hjónum var ferð okkar til Eg- ilsstaða, þar þekktir þú marga staði og kunnir margar sögur á leiðinni okkur til skemmtunar. Ég kveð þig með þessum orðum með söknuði og þú munt lifa í minningum okkar. Þinn tengdasonur Ásgeir Sigurðsson. Elsku afi, nú ertu farinn frá okkur og kominn á betri stað. Ég man hvað mér þótti gaman að fara í heimsókn til þín og ömmu, hvort sem það var á heimili ykkar eða uppi í sumarbústað. Þið tókuð ávallt vel á móti mér með alls kyns kræsingum og mikilli hlýju. Er mér minnistæður sá dagur er ég var í heimsókn hjá ykkur ömmu uppi í sumarbústað þegar þú hjálp- aðir mér og Evu frænku við að saga og pússa litla trékubba sem við síð- an máluðum græna og höfðum fyrir litlu krókódílabörnin okkar. Þú varst alltaf til í að leggja fram hjálp- arhönd ef þess þurfti og fékk maður oft að njóta góðvildar þinnar. Elsku afi, mig langar að þakka þér fyrir allar þær góðu stundir sem við höfum átt saman í gegnum árin og kveð ég þig með þessum orðum: Ljúfar voru stundir er áttum við saman. Þakka ber Drottni allt það gaman. Skiljast nú leiðir og farin ert þú. Við hittast munum aftur, það er mín trú. Hvíl þú í friði í ljósinu bjarta. Ég kveð þig að sinni af öllu mínu hjarta. (Maren Jakobsdóttir.) Brynja. Í dag verður Gísli afi lagður til hinstu hvílu, löngu og gæfuríku lífi hans er lokið og langar okkur að kveðja hann með nokkrum orðum. Það eru margar ljúfar minningar sem við systkinin eigum um afa. Í gamla daga vorum við oft í heimsókn á Tómasarhaganum og við þau tæki- færi var afi iðinn við að gauka að okkur ýmsu góðgæti, molar, heima- tilbúnir klakar, brjóstsykur og ým- islegt fleira, aldrei kom maður að tómum kofunum. Eftirminnilegustu stundirnar okkar með afa eru frá Þingvöllum, þar sem amma og afi tóku alltaf vel á móti okkur. Afi var lunkinn veiðimaður og fór gjarnan með okkur niður að vatni til að sýna okkur réttu handtökin. Hvort sem afraksturinn var síli í krukku eða væn bleikja þótti honum aflinn alltaf jafnmerkilegur. Afi var mikill nostr- ari og er fallegur trjálundur hans og ömmu við sumarbústaðinn þeirra á Þingvöllum góður vitnisburður um það. Á góðviðrisdögum fann maður oft ömmu og afa í lautinni umvafin gróðri að njóta veðurblíðunnar. Gísli afi var mjög frændrækinn maður, líklega einkenni hans kyn- slóðar. Frá æsku okkar munum við eftir alls kyns boðum, jólaboð, af- mæli og þorrablót. Í þessum boðum hittum við marga ættlingja okkar sem við annars hefðum líklega ekki hitt. Afi og amma eignuðust sex börn og nú á kveðjustund er stór hópur afkomenda sem kveður góðan afa og langaafa með söknuði. Afi gaf sér alltaf tíma og sýndi öllu því sem þessi skari af börnum var að gera mikinn áhuga. Elsku afi, við erum þakklát fyrir þann tíma sem við höfum fengið að eiga með þér og minninguna um þig ætlum við að varðveita vel. Það er svo skrítið hvernig hugurinn virkar, hvaða hlutir eða staðir minna okkur á þig, brjóstsykur, harðfiskur, Þing- vellir, vesturbærinn, Ford-bílar og margt fleira. En núna ertu farinn frá okkur og við trúum því að þér líði vel og að þú vakir yfir okkur, hver veit kannski eruð þið Siggi afi ein- hversstaðar að bera saman bækur ykkar. Guð geymi þig, elsku afi, og við lofum að hugsa vel um ömmu. Guðný Inga, Ásdís Elín og Ragnar Þór Ásgeirsbörn. Elsku afi. Ég man hversu gott það var alltaf að kíkja til þín og ömmu í heimsókn. Sérstaklega þegar við vorum í sum- arbústaðnum ykkar. Við smíðuðum oft saman eða fórum saman niður að vatni að veiða. Ég vil þakka þér fyrir að hafa verið svona þolinmóður og kennt mér að veiða en það er eitt mitt helsta áhugamál nú í dag. Minningar um þig geymi ég í hjarta mínu um ókomna tíð. Guð blessi þig. Pétur. Á hverju vori koma silungurinn, krían og kjóinn. Eins öruggur vor- boði á bernskudögum mínum var Gísli föðurbróðir minn, sem renndi í hlað á drossíunni. Hann hafði alltaf tíma til að skjóta nokkrum orðum að okkur krökkunum og ævinlega var laumað að okkur Ópalpakka.Gísli var kominn á æskustöðvarnar til að liggja á grenjum. Nokkru síðar kom hann aftur fúl- skeggjaður, almæltur á tungu tóf- unnar, á leið heim eftir útivistina. Gísli var meðalmaður á hæð, sam- svaraði sér vel, alltaf með derhúfu, nefið beint, ennið hátt. Fas hans yf- irvegað og stafaði frá honum ró- semd, öryggi og hlýju. Augun blá og í þeim þetta glettnisblik og hlýja. Fas hans allt fremur lágstemmt og ég minnist þess ekki að hafa heyrt hann hækka röddina. Gísli var maður farsæll í starfi og einkalífi. Mesti auður hans var fjöl- skyldan og samfylgdin við Oddnýju í meira en 50 ár. Ég minnist þess í gamla daga að þau hjón héldust oft í hendur, en það var ekki algeng sjón í Borgarfirðinum á þeim tíma. Síðast er ég hitti þau saman héldust þau enn í hendur. Heimili þeirra hjóna á Tómasar- haganum var í áraraðir ókeypis hót- el fyrir langa röð af bróðurbörnum úr Norðurárdalnum, fyrst til gist- ingar í höfuðborgarferðum og síðar til skemmri heimsókna. Viðmótið alltaf það sama, hlýja og gestrisni í fyrirrúmi hjá þeim hjónum báðum. Gísli var alinn upp við sporð Holtavörðuheiðar og lærði ungur að meta náttúruna, ekki aðeins gjafir hennar; fisk í vatni og fugl á heiði heldur einnig fegurð hennar. Hann var ekki áhugamaður um veiðar heldur fagmaður og jafnvel þeir af- komendur hans er fisknastir teljast, laumuðust til að hringja af bakka ár eða stöðuvatns til að leita ráða ef hann var tregur að taka. Eftir að hann hætti að liggja á heiðum úti í félagsskap tófunnar naut hann samvista við náttúruna í sumarbústaðnum á Þingvöllum. Þar hlúði hann að gróðri og dyttaði að. Hann var öðrum fremri í að rækta sinn garð – mættu sem flestir það af honum læra. Kveðja frá krökkunum frá Hraunsnefi. Hjördís Hjartardóttir. GÍSLI BRYNJÓLFSSON Móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir, ÓLÖF ANNA ÓLAFSDÓTTIR frá Ísafirði, Sæviðarsundi 15, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítala háskólasjúkra- húsi í Kópavogi laugardaginn 22. janúar. Ólafur G. Viktorsson, Guðný Tryggvadóttir, Steinar Viktorsson, Jórunn Andreasdóttir, Bergljót Viktorsdóttir, Eysteinn Yngvason, Hafsteinn Viktorsson, Borghildur Ísfeld Magnúsdóttir, Júlíus S. Ólafsson, Sigríður Classen, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, GUÐRÍÐUR FRIÐGEIRSDÓTTIR, Nausti, Stöðvarfirði, lést föstudaginn 21. janúar síðastliðinn. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Björn Pálsson. Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, SIGURJÓN ODDSSON SIGURÐSSON verkstjóri hjá Vegagerðinni, Holtateigi 3, Akureyri, lést á heimili sínu sunnudaginn 23. janúar. Jarðarförin auglýst síðar. Ester Bára Sigurðardóttir, Sólveig Sigurjónsdóttir, Sigurður Jónsson, Sigurður Sigurjónsson, Hildur Níelsen, Sævar Geir Sigurjónsson, Heiðdís Björk Helgadóttir og barnabörn. Elskuleg systir okkar og frænka, SVAVA SKÚLADÓTTIR, áður til heimilis í Hátúni 10a, Reykjavík, lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund sunnudaginn 23. janúar. Aðstandendur. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT JÓNSDÓTTIR frá Ási, Hraunbæ 152, lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ mánu- daginn 10. janúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Ásrún M. Auðbergsdóttir, Kristján Willatzen, Auður M. Auðbergsdóttir, Elliði N. Ólafsson, Anna H. Auðbergsdóttir, Hálfdán Guðmundsson, Arnheiður R. Auðbergsdóttir, Jakob S. Þórarinsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.