Morgunblaðið - 25.01.2005, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 25.01.2005, Blaðsíða 40
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Risaeðlugrín © DARGAUD HEY, ÞÚ! STANSAÐU! FYRSTA VIÐVÖRUN ? HALLÓ! HALLÓ... HALLÓ... HÁLLÓ ? GÚRKA 1 KALLAR Á GÚRKU 5... SVARAÐU GÚRKA 5 GÚRKA 5 HLUSTAR... TALAÐU GÚRKA 1 ÉG HEF KOMIÐ AUGA Á GAUR SEM ÉG STÖÐVAÐI. HANN VAR Á RÖLTI UM NÁTTÚRUNA Á MJÖG GRUNNSAMLEGAN HÁTT. ÉG BIÐ UM AÐSTOÐ VIÐ AÐ ATHUGA PAPPÍRANA HANS OG LÚBERJA HANN EF ÞÖRF KREFUR. SVARAÐU! framhald ... HVAR ER SNOOPY? HANN VERÐUR HJÁ LÆKNINUM YFIR NÓTT... EN HANN VERÐUR GEYMDUR Í LITLU BÚRI... HVERNIG HELDUR ÞÚ AÐ HONUM LÍÐI? HÉRNA SITUR STRÍÐSHETJAN Í FANGELSI ÓVINARINS KALVIN! AF HVERJU ERTU EKKI AÐ FYLGJAST MEÐ?! GEIMKÖNNUÐURINN, SPIFF, VAR KRÓAÐUR AF AF SLÍMUGRI GEIMVERU MEÐ SNERPU OG HRAÐA NÆR SPIFF AÐ STÖKKVA Í ÁTT AÐ LOFTLOKUNNI GÓÐ TILRAUN! Dagbók Í dag er þriðjudagur 25. janúar, 25. dagur ársins 2005 Þegar síðastiáramótasprengju- gnýrinn kvað við í fjarska í þriðju viku janúar, vonaði Víkverji að þetta væri nú allra síðasta bomban sem færi í loftið um þessi áramót. Víkverji var orðinn langþreyttur á þessu sprengjuveseni sem í raun hefur staðið yfir í eina 30 daga ef allt er með talið. Kostnaðurinn var geysilegur við þau nokkur hundruð tonna sem sprengd voru um áramótin. Sá kostnaður er lítilfjör- legur í samanburði við þann kostnað sem á annan tug fórnarlamba flug- eldaslysa þurftu að greiða. Á annan tug manns slösuðust á augum, hönd- um og í andliti við meðferð flugelda. Þegar fyrstu fréttir voru að berast um þessi slæmu slys, vonaði Víkverji að það kæmi ekki stór hrina af þess- um slysum þetta árið. En það var öðru nær. Hvert flugeldaslysið rak annað og virtist engan endi ætla að taka. Það sem eftir lifir árs taka við alls konar afmælishátíðir og opnanir á hinu og þessu sem kalla á flug- eldasýningar. Víkverja finnst þessi rakettudýrkun vera komin út í öfgar. Alltaf gerist sama sagan um áramótin, dýralæknar koma í viðtöl og segja hvað það sé mikilvægt að passa upp á gælu- dýrin svo þau fríki ekki út. Síðan koma deild- arlæknar af spítölum og brýna fyrir fólki að fara varlega með flug- eldana. Það hefur tak- mörkuð áhrif og næst heyrist frá þeim þegar fjölmiðlarnir hringja í þá til að spyrja um líð- an sjúklinga eftir flug- eldaslysin. Svona er þetta búið að ganga í mörg ár. Er ekki nóg komið? Það þarf ekki að banna flugelda. Það er nóg að hætta þessari vitleysu. x x x Kunningi Víkverja hefur heillast afsérkennilegri íþrótt er ísklifur heitir. Mikið frost í vetur gerði helstu ísklifursvæði landsins að hreinni paradís og þá fékk kunninginn sér forláta ísaxir. Daginn eftir kom asa- hláka sem ekki sér fyrir endann á. Kannski er hægt að nota axirnar á meðan til að komast óslasaður yfir svellbunkana sem myndast hafa á gangstéttum borgarinnar? Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is    Reykjanesbær | Málverkasýning Kristínar Gunnlaugsdóttur var opnuð í Listasafni Reykjanesbæjar í Duushúsum að viðstöddu fjölmenni síðastliðinn laugardag. Yfirskrift sýningarinnar er „… mátturinn og dýrðin, að eilífu …“ en þetta er tíunda einkasýning listamannsins. Flest verkin eru unnin á ár- unum 2001–2004. Yngsta kynslóðin lét sig ekki vanta við opnunina, þar á meðal þessar tvær stúlkur sem blöðuðu í sýningarskránni um leið og þær skoðuðu verkin, eins og vera ber. Sýning Kristínar er opin daglega frá kl. 13–17.30 og stendur til 6. mars. Máttur og dýrð að eilífu Morgunblaðið/Hilmar Bragi MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Varpa áhyggjum þínum á Drottin, hann mun bera umhyggju fyrir þér, hann mun eigi að eilífu láta réttlátan mann verða valtan á fótum. (Sálm. 55, 23.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.