Morgunblaðið - 25.01.2005, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 25.01.2005, Blaðsíða 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ VÁKORT Eftirlýst kort nr. 4539-8618-0017-6940 4507-4300-0029-4578 4543-3700-0047-8167 Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið ofangreind kort úr umferð og sendið VISA Íslandi sundurklippt. VERÐLAUN kr. 5000 VISA ÍSLAND Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Sími 525 2000. Ein vinsælasta myndin í USA í 4 vikur samfleytt l l Sýnd kl. 8 og 10.15.  S.V. Mbl.  Kvikmyndir.com „Hressir ræningjar“ Fréttablaðið OCEAN´S TWELVE Kvikmyndir.is H.J. Mbl.  M.M.J. Kvikmyndir.com  Sýnd kl. 5.50.  S.V. Mbl.  H.L. Mbl..L. bl. Sýnd kl. 6. ísl tal Sýnd kl. 8.10 og 10. Epísk stórmynd sem fólk verður að sjá. Frá leikstjóranum Oliver Stone. Kvikmyndir.is Ian Nathan/EMPIRE Kvikmyndir.is Ian Nathan/EMPIRE ÁLFABAKKI Sýnd kl. 6, 8.30 og 10.10. B.i. 14 ára. SÝND Í LÚXUS VIP KL. 8.30. ÁLFABAKKI kl. 3.45, 6, 8.15 og 10.30. AKUREYRI kl. 6 og 8. KEFLAVÍK kl. 8 og 10.10. KRINGLAN kl. 6, 8.15 og 10.30. Sýnd í stóra salnum kl. 5.45 og 9. FRÖNSK KVIKMYNDAHÁTIÐ H.L. Mbl.  "Frumleg og úthugsuð...persónur eru skýrar og forvitnilegar... jafnhrollvekjandi og sannleikurinn sem felst í myndinni... Sisto er mjög sannfærandi í aðalhlutverkinu." - H.L., Mbl "Fru leg og úthugsuð...persónur eru skýrar og forvitnilegar... jafnhrol vekjandi og sannleikurinn se felst í yndinni... Sisto er jög sannf randi í aðalhlutverkinu." - .L., bl Hjartans mál - Le coeur des hommes sýnd kl. 6. Enskur texti Grjóthaltu kjafti - Tais toi sýnd kl. 8 og 10. Íslenskur texti Einkadætur - Filles Uniques sýnd kl. 10.30. Enskur texti Sýnd kl. 5.30 og 8. Ísl. texti. 22.01. 2005 10 8 2 9 2 2 9 3 1 7 8 19 23 30 36 35 19.01. 2005 3 4 7 32 36 45 5 30 30 54 55 56 57 58 59 60 61 62 63 64 65 66 67 68 69 70 71 72 73 74 75 76 77 78 79 80 LJÓST er að úrval verður kræsilegt á væntanlegri kvikmyndahátíð sem kvikmyndahúsin halda í sameiningu í apríl næstkomandi. Í gær var til- kynnt um sex myndir sem sýndar verða á hátíðinni; sem myndir frá sex löndum sem allar hafa vakið mikla athygli. Fyrst ber að nefna hina umdeildu þýsku mynd Der Untergang (Til hinstu stundar) eftir Oliver Hirsch- biege (Das Experiment), en þar fer ein fyrsta þýska myndin þar sem reynt er að fjalla á hlutlausan hátt um nazistaleiðtogann Adolf Hitler, en hún byggist á endurminningum einkaritara hans Traudl Junge sem komu út á íslensku í fyrra. Bruno Ganz (Himlen über Berlin, Börn náttúrunnar) fer með hlutverk naz- istaforingjans og hefur fengið mikið lof fyrir, rétt eins og myndin sem sýnd var við metaðsókn í heimaland- inu á síðasta ári. Shi mian mai fu/ House of the Flying Daggers eða Hús hinna fljúgandi rýtinga er nýj- asta mynd frægasta leikstjóra Kín- verja Zhang Yimous, mynd sem hef- ur fengið mikið lof, enda þykir henni svipa mjög til hinnar margrómuðu bardagamyndar Hetju sem sló í gegn á síðasta ári. 9 Songs (9 lög) er nýjasta mynd einhvers áhugaverðasta kvikmynda- gerðarmanns samtímans, Michaels Winterbottoms (24 Hour Party People), mynd sem vakið hefur afar sterk viðbrögð enda þykir það gengið lengra í opinskáum kynlífssenum en áður hefur verið gert í mynd sem ætluð er til „almennra“ kvikmynda- sýninga. Þá verður sýnd nýjasta mynd Davids O. Russels (Three Kings), I Heart Huckabees (Ég elska Huckabees) en hún er vægast sagt stjörnum hlaðin mynd – Jason Schwartzman, Isabelle Huppert, Dustin Hoffman, Lily Tomlin, Jude Law, Mark Wahlberg, Naomi Watts – sem þykir einn af hápunktum síð- asta árs. Auk þeirra hafa verið til- kynntar taílenska verðlaunamyndin Beautiful Boxer (Fallegi hnefaleika- kappinn), bardagamynd sem sópað hefur að sér verðlaunum, og kólumb- íska myndin Maria, llena eres de gracia/Maria Full of Grace (Þokka- fulla María) sem unnið hefur til fjölda alþjóðlegra verðlauna og þykir líkleg til að hljóta Óskarstilnefningu. Þá hafa áður verið kynntar til leiks nýjasta mynd Svíans Lukas Moody- sons, Hola í hjarta mínu, Vond menntun eftir Pedro Almódovar og Garðríkið (Garden State) í leikstjórn Zach Braff. Hátíðin ber enska heitið Iceland International Film Festival 2005. Hún hefst 7. apríl og mun standa yfir í þrjár vikur enda búist við því að á fjórða tug mynda verði sýndar á há- tíðinni. Sýningar verða í öllum kvikmyndahúsum í Reykjavík og einnig á Akureyri, Selfossi og í Kefla- vík, sem er algjört nýmæli en kvik- myndahátíðir hafa hingað til nær eingöngu verið haldnar á höfuð- borgarsvæðinu. Kvikmyndir | Sex myndir bætast við hátíðina í apríl Umdeild Hitler-mynd og Hús hinna fljúgandi rýtinga Skærasta stjarna kínverskrar kvikmyndagerðar núna, Zhang Ziyi, fer með aðalhlutverkið í House of the Flying Daggers. AP Bruno Ganz þykir afar sannfærandi í hlutverki Adolfs Hitlers í þýsku myndinni Der Untergang. FYRIR helgina síðustu lá ljóst fyrir hvaða skólar myndu mætast í átta liða úrslitum í Gettu betur – spurn- ingakeppni framhaldsskólanna. Viðureignirnar fara fram í beinni sjónvarpsútsendingu Sjónvarpsins sem endra nær og verður sú fyrsta háð miðvikudaginn 9. febrúar. Þá eigast við keppendur úr Mennta- skólanum við Sund og Framhalds- skólanum á Laugum. Viku síðar, 16. febrúar, keppa lið Menntaskólans í Kópavogi og sigurliðið frá því síðast, lið Verzlunarskóla Íslands. 23. febr- úar keppa lið Menntaskólans á Egils- stöðum og Menntaskólans á Akur- eyri og 2. mars lið Borgarholtsskóla og Menntaskólans við Hamrahlíð. Sigursælasti skólinn frá upphafi, Menntaskólinn í Reykjavík, féll úr keppni í 16 liða úrslitum sem fóru fram á Rás 2, er lið skólans beið lægri hlut fyrir liði Borgarholtsskóla. Gettu betur | Sjónvarpskeppnin hefst 9. febrúar Morgunblaðið/Golli Lið Verzlunarskóla Íslands lagði lið Borgarholtsskóla í æsispennandi viðureign í fyrra. Sigurlið Verzló mætir MK Bez, gamli gormadansarinn úr Manchester-sveitinni Happy Mondays, stóðu uppi sem sigurvegari í veruleikaþættinum Big Brother, sem fram hefur farið undanfarnar vikur í bresku sjón- varpi. Þeir sem tóku þátt í keppninni voru smá- stjörnur, sem fæstar eru þekktar utan Bretlands. Bez hefur allt frá því á Happy Mondays-árunum fyrir hálfum öðrum áratug verið virkur eiturlyfja- neytandi og viðurkenndi eftir sigurinn að hafa íhugað að smygla eiturlyfjum inn í húsið sem keppendur þurftu að búa saman í innilokaðir með- an keppnin stóð yfir en á end- anum ekki lagt í það. Keppnin fór þannig fram að sjónvarps- áhorfendur kusu út keppanda í viku hverri. Í sigurlaun fékk Bez greidd 50 þúsund pund, eða tæpar 6 milljónir króna.    Enski rithöfundurinn JK Rowling, höfundurbókanna um Harry Potter, eignaðist stúlku- barn um helgina. Talsmaður Rowling staðfesti þetta í fréttaþætti BBC, Newsround, í gær. Þetta er annað barn Rowling og Neils Murrays, eiginmanns hennar, en Rowling á einnig dóttur af fyrra hjónabandi. Næsta bók um Harry Potter kemur út 16. júlí í sumar og verður gefin út samtímis í Bretlandi, Bandaríkjunum, Kanada, Ástralíu, Nýja-Sjálandi og Suður-Afríku. Von er á íslenskri þýðingu í haust. Fólk folk@mbl.is Úrslitin úr enska boltanum beint í símann þinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.