Morgunblaðið - 25.01.2005, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 25.01.2005, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2005 33 MINNINGAR islega Mæja sem mér þótti alltaf jafn vænt um, þótt eflaust hafi ég ekki lát- ið það nægilega í ljós. Mæja kom þeirri hefð á að kalla börn sín í mat á sunnudögum eftir að þau fluttu að heiman, og þrátt fyrir að fjölskyldur þeirra stækkuðu breytti það engu um sunnudagssteikina á Háaleitisbrautinni. Ilmurinn á stiga- ganginum gaf til kynna að nú væri Mæja með steikina í ofninum og von á krökkunum. Mæju þótti þetta ómiss- andi þáttur í lífinu og eflaust börnum hennar og barnabörnunum líka. Ég efast um að nokkurn tímann hafi orð- ið undantekning á þessari hefð. Og nú síðast um áramótin var það Mæja sem kallaði á börn og barnabörn í mat til sín af því að hana langaði mest til að fá þau heim, ef þeim væri sama um það, – og þrátt fyrir veikindi sín. Eftir að ég flutti að heiman og var ekki lengur daglegur gestur á heimili þeirra fann ég þó alltaf að Mæja fylgdist með mér og mínum högum, fylgdist með börnum mínum fæðast, vaxa og dafna, og spurði ávallt fregna um bræður mína og föður allt fram á síðustu daga. Og það var nú síðast rétt fyrir jólin að við Mæja mættumst á stigaganginum eins og svo oft áður, – hún á heimleið frá börnunum sínum og ég á minni leið til mömmu minnar, og við spjölluðum saman, m.a.um börnin mín og börnin hennar Önnu og þá var ekki að sjá eða heyra að heils- an væri farin að gefa sig þrátt fyrir þá staðreynd, og þrátt fyrir að ég spyrði um heilsu hennar. Og ekki hvarflaði að mér að það væri síðasta skiptið sem ég hitti Mæju. Ég heyrði hana aldrei kvarta, hún var nefnilega ekki vön því, þó að líðanin væri ekki sem best, heldur þvertók hún fyrir allt svoleiðis tal og var iðulega fljót að breyta umræðuefninu yfir í eitthvað annað, sem ekki snerist um hana sjálfa. Og allt fram á síðasta dag á spítalanum talaði hún þannig að ekk- ert væri að, hún væri alveg að fara heim. Og eins og hún Mæja var frábær mamma, held ég að barnabörnin hennar hafi átt bestu ömmu sem hugsast gat. Hún hafði óendanlega gleði og ánægju af þeim Eygló Björk, Óskari Þór, Arnari Má, Maríu Rós og Lilju Maríu, og eins og gagnvart börnum sínum var hún alltaf til taks og öll fengu þau jafnan hlut af henni. Ef þau voru ekki hjá henni, þá var hún hjá þeim, enda göngufæri bæði til Önnu og Ellu og þangað rölti Mæja þótt hægt færi. Mæja var því í góðu sambandi við börnin sín og fjölskyld- ur þeirra og ferðaðist með þeim ekki bara um landið þvert og endilangt heldur einnig til útlanda, og það veit ég að þeim Önnu og Pálmari þótti frá- bært að hún vildi koma með þeim. Mæja hafði hins vegar áhyggjur af því að vera þeim til trafala. Þannig var hún, vildi öllum vel, gerði öllum vel, en lét lítið fyrir sér fara og sýndi í verki væntumþykju sína gagnvart náunganum. Nærvera Mæju var allt- af góð, það stafaði frá henni einstök hlýja. Elsku Anna, Ella, Sævar og fjöl- skyldur, við vottum ykkur innilega samúð og vitum að minningin um Mæju mun lifa með okkur öllum. Fríða Halldórsdóttir og fjölskylda. Kistur - Krossar Prestur - Kirkja Kistulagning Blóm - Fáni Val á sálmum Tónlistarfólk Sálmaskrá Tilk. í fjölmiðla Erfisdrykkja Gestabók Legstaður Flutningur kistu á milli landa og landshluta Landsbyggðar- þjónusta ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Símar 581 3300 - 896 8242 Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is Sverrir Einarsson Sverrir Olsen Bryndís Valbjarnardóttir Oddur Bragason Guðmundur Þór Gíslason Komum heim til aðstandenda ef óskað er Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, systir og amma, ELÍN KATRÍN GUÐNADÓTTIR frá Rifi, sem lést á Landspítala háskólasjúkrahúsi við Hringbraut að kvöldi mánudagsins 17. janúar, verður jarðsungin frá Búðakirkju, Staðarsveit, miðvikudaginn 26. janúar kl. 14.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Slysavarnadeildina Björg, Hellissandi. Bjarni Gunnarsson, Helgi Már Bjarnason, Linda Rut Svansdóttir, Rúna Lísa Bjarnadóttir, Bjarki Heiðar Harðarson, Guðmunda Jónsdóttir, Hafdís Magnúsdóttir, Magnús S. Magnússon, Jóhanna Marteinsdóttir, Smári Hilmarsson og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍN LOFTSDÓTTIR, Hásteinsvegi 64, Vestmannaeyjum, lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja laugar- daginn 22. janúar. Engilbert Gíslason, Bryndís Hrólfsdóttir, Guðrún Gísladóttir, Stefán Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabarn. Ástkær eiginkona mín, ANNA GARÐARSDÓTTIR, Vorsabæ 3, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut aðfara- nótt laugardagsins 22. janúar. Þorvarður Örnólfsson. Kæru vinir. Við sendum ykkur öllum innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför kærrar móður okkar, GUÐRÚNAR JAKOBSDÓTTUR fyrrum húsmóður á Grund. Sérstakar þakkir til alls starfsfólks á Héraðs- sjúkrahúsinu á Blönduósi fyrir frábæra umönnun síðastliðin 11 ár. Lárus Þórðarson, Valdís Þórðardóttir, Ragnhildur Þórðardóttir, Þorsteinn Tr. Þórðarson og fjölskyldur. Ástkær sonur minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HEIÐAR RAFN BALDVINSSON, lést að kvöldi föstudagsins 21. janúar. Útför verður auglýst síðar. Aðstandendur. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELMA NÍNA ÞÓRÐARDÓTTIR, Espigerði 6, er látin. Ágústa Hreinsdóttir, Ernst Jóhannes Backman, Anna Magnea Hreinsdóttir, Arnar Óskarsson, Guðný Hreinsdóttir, Ásgeir Snæbjörnsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elsku Dídí. Þegar nóttin kemur taktu henni feginshugar. Hún mun loka hurðinni að baki deginum og lyfta byrði hans af herðum þínum. Hún, sem geymir fortíðina og safnar óskunum, mun vita hvert skal leiða þig og vídd hennar er önnur. (Þóra Jónsdóttir.) Heppin var ég að eiga þig að. Elska þín, vinátta og stuðningur hefur fylgt mér alla tíð, frá þeirri stundu er ég var lögð í arma þína nýfædd. Þá varst þú búin að vera einkabarn foreldra okkar í tæp fimmtán ár og hafðir lengi þráð að eignast systkini. Ég þakka samfylgdina Dídí mín, en mér er orða vant og leita því í ljóðakistu föður okkar og fæ lánuð þrjú erindi úr ljóði eftir hann sem tjáir hug minn til þín. Hún mun í gegnum myrkrin lýsa þín minning hlý og sólskinsbjört, VALGERÐUR FRÍMANN ✝ Valgerður Frí-mann fæddist á Akureyri 9. desem- ber 1935. Hún lést á FSA 2. janúar síðast- liðinn og var jarð- sungin frá Akureyr- arkirkju 11. janúar. og hugljúf eins og vögguvísa, er vorið hefur bezta gjört. Hve björt hún var þín sól- arsýn, og sólskinsgjafi brosin þín! Hve örðugt reyndist oss að skilja, hve angursár var hlutur þinn, er kveðjum við þig, hvíta lilja, við kumblið dökkt í hinzta sinn. Ó, sorgarinnar ljóðaljóð var líka um þig, sem varst svo góð. En þótt við berum harm í hjarta, oss huggun veri í sorg og neyð, að inn í veröld yndisbjarta þér engill dauðans fylgdi á leið,- að bak við nótt og feigðarfjöll við finnumst þó um síðir öll. (Guðmundur Frímann.) Þín systir, Gunnhildur. Elsku Dídí. Við óskum þér góðrar ferðar og vitum að þér líður vel. Það er sárt að missa þig en við þökkum þér fyr- ir þær stundir sem við fengum að eiga með þér og fyrir þær minn- ingar sem við eigum um þig. Jóla- kaffið á aðfangadag verður ekki það sama án þín. Við sendum Kalla, dætrum, tengdasonum og barnabörnum okk- ar dýpstu samúðarkveðju. Sverrir, Guðmundur, Sindri og Helga Guðrún. Elsku amma á Bar- ón, mér finnst svo sárt að vita að þú sért farin. Það er skrýtið að hafa þig ekki til staðar né geta heimsótt þig lengur. Mínar fyrstu minningar eru um þig á Bar- ónsstígnum þar sem þú áttir heima. Ég man að það var alltaf hlýtt og gott að koma í heimsókn til þín. Kom ég reglulega að heimsækja þig með mömmu og pabba. Þó að þú hafir svo síðar flutt af Barónsstígnum þá hélst nafnið alltaf og þú varst kölluð amma á Barón lengi vel og enn í dag af mér og fleirum. Ég var þitt fyrsta barna- barn í nokkuð mörg ár og það fannst þér frábært, þú dekraðir alveg við mig frá upphafi og varst alltaf að ANNA SOFFÍA REYNIS ✝ Anna Soffía Ein-arsdóttir Reynis fæddist á Akureyri 30. janúar 1923. Hún lést á heimili sínu í Reykjavík 16. des- ember síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Fossvogs- kapellu 22. desem- ber. gefa mér einhvern smávegis pening eða sauma eitthvað á mig enda með ólíkindum gjafmild og góð amma. Það voru þó ekki ver- aldlegu gæðin hvers- dagslega sem skiptu þig máli heldur allt fólkið þitt, hvort við værum þæg og góð, og hvort okkur liði nú örugglega ekki vel og værum búin að borða, það var þér mjög mik- ilvægt! Þú sýndir alltaf áhuga á því sem við vorum að gera og spurðir margra spurninga um okkar daglega líf, allt af einskærri umhyggju. Elsku amma, ég vildi að ég gæti heyrt þig hlæja og fíflast eins og þú varst vön – með þinn frábæra húmor. Ég veit að þú ert á betri stað og engin veikindi að hrjá þig lengur. Mig langar samt að geta haldið utan um þig einu sinni enn en það verður að bíða betri tíma. Vonandi líður þér vel og við sjáumst síðar. Þitt elsta ömmubarn, Linda Einarsdóttir. Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgun- blaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minning- ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs- ingum). Skilafrestur Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðju- degi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins til- tekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Minningar- greinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.