Morgunblaðið - 25.01.2005, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 25.01.2005, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2005 19 MINNSTAÐUR Skútuvogi 6 Sími 568 6755 www.alfaborg.is  Hornbaðker m/ nudd i og framhlið 140 x 1 40 kr. 115.000 20% afsláttur af Nordsjö málningu Filtteppi kr. 295 m 2 Sturtuhorn 80 x 80 gler kr. 12.900 RÝMINGARSALA Þúsundir fermetra af flísum á lækkuðu verðiFlísar frá kr. 790 m2 LANDIÐ Félagsheimili seld | Skoða á kosti og galla þess að selja félagsheimilin í Fjarðabyggð og hefur bæjarstjórn skipað þriggja manna starfshóp sem fjalla á um málið. Nú á Fjarðabyggð þrjú félagsheimili sem leigð hafa verið út til rekstraraðila að und- angengnum útboðum á rekstri þeirra. Þrátt fyrir það leggur sveit- arfélagið félagsheimilunum til um- talsvert fjármagn til viðhalds og rekstrar fasteignanna. Þá verða á næstunni verulegar breytingar á nýtingu húsnæðis félagsheimilanna á Eskifirði og í Neskaupstað þegar bæjarskrifstofunni á Eskifirði verð- ur lokað og í Neskaupstað flyst skrifstofan að Hafnarbraut 2. Starfshópinn eiga að skipa fulltrú- ar meiri- og minnihluta ásamt emb- ættismanni og hópurinn á að skila greinargerð sinn fyrir 1. mars nk. UNDANFARNA mánuði hafa stað- ið yfir viðræður við forsvarsmenn flugfélagsins Iceland Express, um möguleika á beinu flugi frá Akur- eyri til Evrópu. Hefur helst verið horft til Kaupmannahafnar og London en félagið heldur uppi áætl- unarflugi til þeirra borga frá Kefla- vík. Njáll Trausti Friðbertsson flug- umferðarstjóri og viðskiptafræðing- ur á Akureyri hefur verið að skoða málefni ferðaþjónustunnar á svæð- inu fyrir Kaupfélag Eyfirðinga. Hann er að kanna þá möguleika sem í boði eru og vinna að gerð skýrslu en verkefnið er unnið undir merkj- um Rannsóknarstofnunar Háskól- ans á Akureyri. „Það hafa staðið yfir þreifingar við Iceland Express frá því í haust og er niðurstöðu að vænta í næsta mánuði. Menn eru þarna að hugsa til lengri tíma með uppbyggingu á beinu flugi frá Akureyri og forsvars- menn félagsins sjá þarna ákveðna möguleika. Þetta er forgangsmál- efni í ferðaþjónustu hér á svæðinu. Menn sem hafa verið að skoða töl- fræðina sjá t.d. að Norðurland var eina svæðið á landinu þar sem ekki varð fjölgun gistinátta á síðasta ári. Og menn eru heldur ekki að sjá þá framþróun sem þeir vildu sjá í þess- ari atvinnugrein,“ sagði Njáll. „Yfir vetrartímann er hér mikið af ónýttu gistirými og þar kenna menn helst þessum þætti um.“ Njáll sagði þetta jafnframt snúa að því að styrkja byggðina, þannig að íbúar svæðisins geti komist utan með beinum hætti og að hingað geti komið erlendir ferðamenn. „Einnig snýr þetta að fraktflutningum en það hafa orðið gríðarlegar breyting- ar á síðustu 2–3 árum í flutningi á ferskum fiski erlendis. Stór hluti þeirra flutninga kemur frá þessu svæði.“ Lengja þarf Akureyrarflugvöll Njáll sagði að grundvallar for- senda fyrir því að þetta beina flug erlendis geti náð sér á strik, sé leng- ing Akureyrarflugvallar. Flugbraut- in er 1.940 metrar í dag en Njáll sagði nauðsynlegt að lengja braut- ina um 400 metra til suðurs, þar sem lengd hennar í dag væri tak- markandi varðandi ýmsa þætti. Auglýst hefur verið breyting á deili- skipulagi við flugvöllinn en Njáll sagði engar ákvarðanir hafa verið teknar varðandi framkvæmdir. „Kostnaður við lengingu brautar- innar gæti verið um 300 milljónir króna en sú tala er birt án ábyrgð- ar,“ sagði Njáll. Hann sagði að með beinu flugi Grændlandsflugs milli Akureyrar og Kaupmannahafnar fyrir tæpum tveimur árum hefði áhugi manna á þessum möguleika vaknað. Því flugi var hætt um mánaðamótin nóvem- ber/desember 2003. Alls voru farnar 60 flugferðir og voru farþegar á tímabilinu 6.640 talsins. Möguleikar á beinu flugi frá Akureyri til skoðunar Oddsskarð opnað | Á föstudag var skíðasvæðið í Oddsskarði opnað en það er í fyrsta skipti í vetur. Nokkur snjór er kominn í Sólskinsbrekku en þar er barnalyftan. Beðið er eftir meiri snjó til að hægt sé að opna stærri brautirnar sem eru austan Norðfjarðarvegar. Að sögn stað- arhaldara, Rúnars Jóhannssonar, er hann bjartsýnn á framhaldið að venju og reiknar með nægum snjó fram í maí. Morgunblaðið/Helgi Garðarsson og tól, skóflur, gröfuleikfangabíla og trukka af minni gerðinni. Eyjamenn hafa gaman af slíkum prakkaraskap en öllu gamni fylgir nokkur alvara og hafa hugmyndir um gangagerð milli lands og Eyja aftur skotið upp kollinum. Borgarafundir um jarðgöng haldnir í vikunni Borgarafundir um jarðgöng milli lands og Eyja verða haldnir í Eyjar | Þessar myndir tók Sig- urgeir Jónasson, ljósmyndari Morgunblaðsins í Vestmannaeyjum, fyrir 15 árum þegar Hrekkjalóm- arnir svonefndu í Eyjum gerðu sér ferð upp á Landeyjasand í kjölfar þess að Árni Johnsen, þá þingmað- ur Sjálfstæðisflokks, lagði fram til- lögu á Alþingi um rannsóknir og undirbúning að gerð jarðganga milli lands og Eyja. Mættu Hrekkjalóm- arnir galvaskir á sandinn með tæki Vestmannaeyjum, á Hvolsvelli og í Reykjavík í vikunni jafnframt því sem ræða á um aðra þætti sam- gangna og valkosti í þeim efnum. Árni Johnsen boðar til fundanna. Fundurinn í Vestmannaeyjum verður í Höllinni í Eyjum kl. 20 nk. miðvikudagskvöld, fundurinn á Hvolsvelli verður á Hlíðarenda kl. 20.30 nk. fimmtudagskvöld og fund- urinn í Reykjavík verður á Grand Hóteli á föstudagskvöld kl. 20.30. Byrjuðu á Eyjagöngum fyrir 15 árum Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Byrjað á munnanum Sá sem er lengst til vinstri kom til að fylgjast með vinnunni af forvitni, en síðan koma Hall- grímur Tryggvason, Sigurður Guðmundsson, Magnús Kristinsson og Georg Þór Kristjánsson með „stórvirk tæki“. Hrekkjalómarnir í Vestmannaeyjum Fljót | Fjölmennur björgunarleið- angur var gerður út til Héðins- fjarðar á sunnudag og var mark- miðið að sækja 22 kindur sem vitað var að voru á hagleysu í firðinum. Náðist að bjarga þeim öllum og þremur til viðbótar sem fundust í ferðinni. Kindurnar voru 10 frá sama heimili í Ólafsfirði og 15 úr Fljótum, frá fjórum bæjum. Héðinsfjörður heyrir hinsvegar undir Siglufjörð hvað smalamennsku varðar, en seinni göngur þar misheppnuðust í haust. Leiðangurinn í Héðinsfjörð var í raun þrískiptur. Þrettán, þar af lið- lega helmingur bændur úr Fljótum, fóru á 50 tonna bát frá Siglufirði. Tveir fóru á snjósleðum úr Siglufirði og þrír fóru á snjósleðum frá Ólafs- firði og raunar var einn þeirra úr Fljótum. Útilokað var að fara með féð úr firðinum nema sjóleiðis því fjöllin umhverfis fjörðinn eru brött og ekki mögulegt að draga fé á snjó- sleðum yfir. Mannskapurinn var ferjaður á land í gúmbát og þegar búið var að ná fénu var það ferjað í stórum sekkjum út í bátinn. Um helmingur kindanna var við eyðibýlið Vík og hafði hafst við í gamla bænum í ill- viðrum. Sá hópur var þokkalega á sig kominn enda haft einhverja beit og jafnvel þara í fjörunni. Hinsvegar var vitað um tvo fjárhópa framarlega í firðinum, nánast á hagleysu. Var ferð þeirra sem komu úr Ólafsfirði í þeim tilgangi að aka kindunum á þar til gerðum sleða niður að sjó. Gekk það að óskum og komu þeir auk þess auga á þrjár kindur til viðbótar. Allt féð var borið út í gúmbát, sett niður í lest á stóra bátnum og gefið hey. Morgunblaðið/Örn Þórarinsson Björgun Fjölmennur leiðangur sótti 25 kindur í Héðinsfjörð. Björgunar- leiðangur eftir sauðfé í Héðinsfjörð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.