Morgunblaðið - 25.01.2005, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 25.01.2005, Blaðsíða 16
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Nú er að hefjast hin árlega vertíð þorra- blóta og árshátíða. Á bóndadag riðu á vaðið íbúar Dvalarheimilisins Kirkjuhvols og héldu sitt árlega þorrablót. Þangað er boðið valinkunnum gestum og eiga menn þar saman notalega kvöldstund yfir mat og drykk og hlýða á skemmtiatriði. Austur- Landeyingar voru svo númer tvö í röðinni að þessu sinni. Það er ungmennafélagið sem stendur fyrir þorrablótinu í Gunn- arhólma og er þar rík hefð fyrir því að færa á svið atburði síðasta árs, að þessu sinni var gert góðlátlegt grín af bílakaupum sveit- unganna, Edinborgarferð kvenfélagsins og mörgu fleiru. Ætíð er gamansemin í þeim anda að allir fara ósárir heim en þeir sem ekki fá neitt á sig, eins og sagt er, verða e.t.v. ögn spældir.    Draumurinn um að eignast sanna skíða- paradís er ofarlega í hugum allra Íslend- inga. Lengi hafa menn hér um slóðir látið sig dreyma um að Tindfjallasvæðið gæti orðið að slíkri paradís. Vandinn er hins veg- ar sá að undanfarin ár hefur snjósöfnun á vetrum verið afar lítil og síðasta sumar var svo komið að Hekluvikurinn frá 1947 var það sem helst mátti skíða á. Nú hafa menn hins vegar fengið kjarkinn aftur og er í bí- gerð að setja upp sjálfvirka veðurathug- unarstöð þarna uppi til að kanna veðurfars- legar aðstæður allt árið. Þegar því er lokið geta menn farið að huga að vegagerð og lyftukaupum. Víst er hér um spennandi verkefni að ræða sem verður samt vonandi ekki jafn dýrt og göngin til Eyja. Sennilega verður best að fá Árna í málið …    Talandi um göng til Vestmannaeyja þá var samþykkt byggingarleyfi fyrir nýja 245 fermetra flugstöð á Bakkaflugvelli á síðasta fundi skipulags- og byggingarnefndar Rangárþings eystra. Reiknað er með að framkvæmdir hefjist einmitt í dag. Annars virðist vera mikill byggingarhugur almennt hér um slóðir því einnig var sótt um 18 byggingarlóðir fyrir einbýlishús á Hvols- velli. Þá er einnig í lokavinnslu nýtt að- alskipulag fyrir sveitarfélagið og einnig er miðbæjarskipulag í fæðingu en þar er m.a. gert ráð fyrir skýjakljúfum á rangæskan mælikvarða. Það verða því næg tækifæri fyrir þá sem ekki ná að festa sér íbúð á Sel- fossi eða Hveragerði. Úr bæjarlífinu RANGÁRÞING EYSTRA EFTIR STEINUNNI ÓSK KOLBEINSDÓTTUR Færri komust að envildu þegar boðiðvar upp á ókeypis mælingu á blóðfitu og blóðþrýstingi í Borg- arnesi á dögunum. Að mælingunni stóðu Félag hjartasjúklinga á Vesturlandi, lyfjafyr- irtækið AstraZeneca og HjartaHeill í samvinnu við heilsugæsluna í Borgarnesi. Áætlað er að um 250 manns hafi mætt á svæðið en um 170 fengu mælingu. Þótti sumum biðin of löng og fóru. Margir þeirra sem mættir voru í mælingu höfðu aldrei verið mæld- ir áður en mikilvægt þykir að ná til þessa hóps, því ómeðhöndlaður hár blóðþrýstingur skap- ar mikla hættu og getur getur hæglega valdið heilablóðfalli, eins og rannsóknir hafa raunar bent til. Margir mældir Rúnar Alexand-ersson, fim-leikamaður úr Gerplu, og Elísabet Sif Haraldsdóttir, dansari úr Hvönn, voru kjörin íþróttamaður og -kona ársins 2004 í Kópavogi á íþróttahátíð sem fram fór í Félagsheimili Kópavogs um helgina. Rúnar náði glæsilegum árangri á Ólympíu- leikunum í Aþenu þar sem hann varð í 7. sæti í keppni á bogahesti. Elísabet Sif er marg- faldur Íslands- og bik- armeistari í dansi. Hún varð ásamt nýjum dans- félaga sínum, Max Pedr- ov, í 19. sæti á heims- meistaramótinu í suður-amerískum döns- um á árinu. Rúnar og Elísabet Sif voru valin úr hópi 40 íþróttamanna sem fengu viðurkenningu ÍTK um helgina. Afreksfólk Nú er runnin upptíð þorrablót-anna og það verður Pétri Þorsteins- syni á Kópaskeri yrk- isefni: Ég hef óbeit á ýldni og kæsni og ástunda gikksku og kræsni. Á þorrum og góum þykir mér nóg um þjóðlega íslenska hræsni. Rúnar Kristjánsson á Skagaströnd orti þrjár vísur um Jón leikara Sig- urbjörnsson eftir að hafa séð tilþrif hans í bíómynd: Mjög ég kann að meta Jón, mál hans allt og róminn. Vel hann leikur fyrir Frón, fær þar góðan dóminn. Jón má standa fremst í flokki, flestum öðrum keikari. Honum fylgir hæfnisþokki, hann er góður leikari! Röddin finnst mér einstök alveg, önnur slík er varla til. Í henni er eins og kalsi á Kjalveg kveði í bland við sólaryl! Ýldni og kæsni pebl@mbl.is Strandir | Þær eru undurfal- legar mæðgurnar Ugla, sem er 6 ára, og dóttir hennar, Hneta, 6 mánaða, þar sem þær leika sér í snjónum sem kyngt hefur niður á Ströndum síðustu vikur. Labra- dor-hundar eru eins og flestir hundar ótrúlega skemmtilegir, gáfaðir, elskir að eigendum sín- um og miklir vinnuþjarkar. Fyrstu æviárin hjálpaði Ugla til við útburð Morgunblaðsins til áskrifenda í Innri-Njarðvík og þekkti öll húsin þar sem blaðið var keypt og hljóp alltaf fyrst að dyrunum. Núna leikur hún sér ásamt dóttur sinni við kindurnar í fjárhúsunum. Síðan reyna þær án árangurs að ná til krumma og smáfuglanna sem koma að vitja matar síns á þessum árstíma og finnst þær einar eigi að sitja að öllum mat sem gefinn er á bæn- um. Morgunblaðið/Arnheiður Guðlaugsdóttir Bar út Morgunblaðið fyrstu æviárin Vinnu- þjarkar Hvanneyri | Skipaðir hafa verið náms- brautastjórar við Landbúnaðarháskóla Ís- lands. Hlutverk þeirra er að annast faglega umsjón námsbrautanna, stuðla að þróun þeirra og annast gæðastarf í samstarfi við deildarstjóra og aðstoðarrektor kennslu- mála. Námsbrautastjórnar í háskólanámi eru Ríkharð Brynjólfsson fyrir búvísinda- braut, Anna Guðrún Þórhallsdóttir fyrir landnýtingarbraut, Auður Sveinsdóttir á umhverfisskipulagsbraut og Ólafur Mel- sted í diplomanámi. Í starfsmenntanáminu er Júlíana Sveinsdóttir brautarstjóri á blómaskreyt- ingabraut, Sverrir Heiðar Júlíuisson á bú- fræðibraut, Guðríður Helgadóttir á garð- og skógarplöntubraut, Baldur Gunnlaugs- son á skrúðgarðyrkjubraut og Björn Gunnlaugsson á ylræktarbraut. Fram kemur á vef Landbúnaðarháskól- ans að ekki verður skipaður brautarstjóri að sinni í skógfræði á háskólastigi sem og starfsmenntabrautum í skógrækt og um- hverfisfræði. Umsjón þeirra verður í hönd- um kennslustjóra og aðstoðarrektors kennslumála. Skipaðir brautastjórar Seltjarnarnes | Álagningarprósenta fast- eignaskatts íbúðarhúsnæðis á Seltjarnar- nesi lækkar úr 0,36% í 0,32% í ár, og er lækkunin um 11%. Þetta er gert vegna mikilla hækkana á fasteignamati íbúðar- húsnæðis, sem hefði leitt til meiri tekna af skattinum en gert var ráð fyrir í fjárhags- áætlun fyrir árið 2005. Auk þessa lækkar álagningarprósenta lóðarleigu úr 0,75% í 0,35%, og álagning- arprósenta vatnsskatts lækkar úr 0,15% í 0,13%. Bæjarstjórn samþykkti þessa lækk- un á fundi sínum í síðustu viku, og segir Jónmundur Guðmarsson bæjarstjóri að eftir lækkunina verði tekjuaukning bæjar- ins af fasteignagjöldum um 5% milli ára, eins og gert var ráð fyrir í fjárhagsáætl- uninni. Eftir þessa lækkun munu gjöld á sérbýli hækka að jafnaði um 14%, en hefðu hækk- að um 30% hefðu álögur ekki verið lækk- aðar. Gjöld á íbúðir í sameignarhúsum eru að jafnaði þau sömu og árið 2004. Gjöld á íbúðir með lóðaleigu lækka að jafnaði um 5-7% frá síðasta ári. Reiknað er með því að tekjur bæjarins lækki um tæpar 25 millj- ónir króna við þessa breytingu. Lækka fasteigna- skatt um 11% ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.