Morgunblaðið - 25.01.2005, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 25.01.2005, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2005 47 ganga í heilagt hjónaband, ekki síst til að tryggja efnahaginn um ókomna framtíð. Sundið á milli persónanna er eitt af fjölmörgum uppsprettum spaugilegra uppákoma í Side- ways; Jack og Miles minna í fljótu bragði á Oscar og Felix í Odd Couple, en er ekki nándar nærri jafn ýktir og skammt undan glittir jafnan í jarðbundinn raunveru- leikann. Alexander Payne sannar með Sideways að hann er ekki lengur bjartasta vonin heldur kominn í fremstu röð bandarískra leikstjóra og handritshöfunda. Si- deways kemur í kjölfar Election og About Schmidt, sem voru með bestu myndum 1999 og 2002. Hann er enn að fínpússa svipað viðfangsefni, venjulega ráðvillta menn sem eru ekki alveg með það á hreinu hvernig þeir eiga að sigr- ast á tímabundnum vanda. Payne, og Jim Taylor, félagi hans til margra ára í handritsgerð, hafa aldrei náð slíkum hæðum í sköpun meinfyndinna en þó jafnan mann- legra kringumstæðna. Jack og Miles eru seinheppnir en vongóðir og þrátt fyrir allt veit maður í myndarlok að þeir eiga eftir að spjara sig og halda jafnvæginu í hinum tvísýna línudansi lífsins. Giamatti er skapaður í hlutverk vínsmakkarans á barmi örvænt- ingar og gerir því óaðfinnaleg skil sem kemur ekki á óvart eftir frammistöðu hans í American Splendor. Senuþjófurinn er þó Church, nánast ókunnur þrátt fyr- ir langan feril í smáhlutverkum, aukahlutverkum B-mynda og BESTA og óvenjulegasta vega- mynd í milljón ár, segir af kenn- aranum og vínunnandanum Miles (Giamatti) og Jack Church), besta vini hans og félaga allt frá skóla- árunum. Þeir ætla að eyða viku saman í vínræktarhéruðum Kali- forníu, dreypa á gullnum veigum, spila golf, kíkja á stelpurnar og al- mennt njóta lífsins. Ólíkari per- sónur er ekki að finna. Miles er kennari og mislukkaður rithöf- undur sem bíður í ofvæni eftir fréttum frá umboðsmanni sínum, hvort tekist hafi að finna útgef- anda að nýjustu skáldsögunni hans. Af fenginni reynslu er hann ekkert of bjartsýnn, aukinheldur kvíðafullur bölsýnismaður að upp- lagi. Fráskilinn, hræddur við og vantrúaður á velgengni í kvenna- málum. Jack er aftur ámóti fjall- brattur, kærulaus og kvensamur gosi, í útliti minnir hann á ódýra eftirlíkingu af Mick Jagger í minjagripaverslun og hann beitir því óspart á allt kvikt kvenkyns sem nálgast hann. Jack lætur stjórnast af ónefndu líffæri og er harðákveðinn í að láta það ráða ferðinni. Veit sem er að útlitið fer dalandi með árunum og að þessari sæluviku lokinni hyggst hann sjónvarpsþátta. Hann gerir slíkt stólpagrín að snoppufríðum, inn- eignarlitlum mannboruhætti að slíkt verður tæpast jafnað. Hann er hæfileikaríkur gamanleikari og óskandi að hlutverkið dugi til að við fáum að sjá meira af honum í framtíðinni. Giamatti er einstakur skap- gerðarleikari með þetta sérstaka útlit sem smellpassar hlutverki hins raunamædda Miles. Virgina Madsen, sem var ein af glanspíum hvíta tjaldsins á níunda áratugn- um, fær stórkostlegt tækifæri til að sýna að hún er annað og meira, lætur það ekki ganga sér úr greip- um. Hún hefur aldrei verið glæsi- legri en Maya, hryggbrotin, gætin gengilbeina og kvöldskólanem- andi sem getur hugsanlega orðið ákjósanlegur sálufélagi Miles. Fjórða hlutverkið í Sideways, barþjónninn Stephanie, er í hönd- um Söndru Oh og hún, líkt og aðr- ir, passar vel í hlutverk sitt. Sem aðrar persónur myndarinnar er þessi einstæða móðir í tímabund- inni tilvistarkreppu, sú eina sem sér ekki fram á betri tíð í augna- blikinu en ekki sú manngerð sem fer halloka til eilífðarnóns. Sideways er einstaklega gef- andi og jákvæð, þrátt fyrir sæt- súrar kringumstæðurnar. Hún býður upp á ótrúlega margt sem getur prýtt eina mynd. Óvenjulegt umhverfi og aðstæður, persónur og lífsviðhorf; er bæði hlý, á full- komlega mannlegum og tilgerð- arlausum nótum og jafnan bráð- fyndin. Samt sem áður alltaf skynsamleg og trúverðug. Til við- bótar skipuð slíkum einvala mann- skap beggja vegna myndavél- arinnar að ég leyfi mér að fullyrða að ef það koma betri myndir en Sideways í ár verður 2005 óvenju góður árgangur. Myndin er búin að hlaða á sig ótölulegum verð- launum og tilnefningum að verð- leikum og á örugglega eftir að bæta mörgum fjöðrum í hattinn þegar kemur að Óskarsverðlaun- unum. Fullkomlega ómissandi mynd sem skipar sér umsvifalaust í flokk með Lyklinum undir mott- unni (The Apartment) og öðrum slíkum, mannlegum gam- anperlum. Dagar víns og drósa KVIKMYNDIR Smárabíó, Regnboginn, Laug- arásbíó. Borgarbíó Akureyri. Leikstjóri: Alexander Payne. Aðalleik- endur: Paul Giamatti, Thomas Haden Church, Sandra Oh, Virginia Madsen. 124 mín. Bandaríkin. 2004. Á hliðinni (Sideways)  Það er himinn og haf á milli þeirra æskuvina Jacks og Miles í Side- ways; „einni bestu og óvenjulegustu vegamynd í milljón ár“. Sæbjörn Valdimarsson árs. Ekki fékk hún góða umsögn fyrir frammistöðu sína í Bond-myndinni Die Anot- her Day og ekki jókst hróður hennar heldur með hrollvekjunni Gothika, sem fékk blendn- ar viðtökur. Þá mun Berry leika Foxy Brown í endurgerð á þeirri gömlu B-mynd sem kennd er við „blaxploitation“-tegundina. Ekki skal um það sagt hvort hér sé um að kenna litlu framboði góðra verkefna fyrir svartar leikkonur eða skorti á dómgreind hjá Berry sjálfri. Sú staðreynd vekur þó óneit- anlega spurningar og rennir stoðum undir fullyrðingar hennar að engin svört leikkona hlaut tilnefningu til Golden Globe-verðlauna í ár í þeim fjölmörgu flokkum sem þar koma við sögu og verður að telja líklegt að sama verði upp á teningnum er Óskarsverðlauna- tilnefningarnar verða kunngjörðar í dag. hljóta Óskarsverðlaun í bresku könnuninni – hún hefur hins vegar aldrei verið tilnefnd til þeirra. Þá var Sharon Stone oft nefnd en hún hefur einu sinni hlotið tilnefningu, fyrir leik í myndinni Casino. Þá eru Bretar hrifnir af leik- konunni Michelle Pfeiffer, sem þrisvar hefur verið tilnefnd til Óskarsverðlauna. Aðrar leikkonur sem ekki hafa hlotið Ósk- arsverðlaun, en eiga þau skilið, samkvæmt könnuninni, eru Meg Ryan og Drew Barry- more, sem aldrei hafa verið tilnefndar, Lauren Bacall, Cate Blanchett og Ava Gardner. Hjónin Richard Burton og Elizabeth Taylor í Kleópötru: Hann fékk aldrei Óskarinn en hún fékk hann tvisvar. Réttlátt? Nýr og betri www.regnboginn.is Hverfisgötu ☎ 551 9000 QUEEN LATIFAH JIMMY FALLON GISELE BÜNDCHEN ÍSLANDSBANKI  Sýnd kl. 6. Ísl tal.Sýnd kl. 10.10. B.i. 16 ára VIÐSKIPTAVINIR ÍSLANDSBANKA FÁ 20% AFSLÁTT AF MIÐAVERÐI I I I I Í I I   ... „séríslenskt Fönn, fönn, fönn!“  SV MBL ... í l , , ! "...bráðvel heppnuð skemmtun, grín og fjör..."  ÓHT rás 2 ... l t , rí fj r... r Sýnd kl. 6, 8 og 10.  Ó.Ö.H. DV  MMJ kvikmyndir.com SV Mbl. „Ein snjallasta mynd ársins... Ógleymanleg...ljúf kvikmyndaperla“ Tilnefnd til 7 Golden Globe verðlauna il f til l l v r l Ókeypis krakkaklúbbur www.myndform.is, krakkaklubbur@myndform.is Vann Golden globe verðlaunin sem besta myndin og fyrir besta handrit l l r l i t i f rir t rit  Sýnd kl. 10. B.i. 16 ára. Sýnd kl. 6 og 8. B.i. 10 ára.  Birth Stórstjarnan Nicole Kidman var tilnefnd til Golden Globe verðlauna fyrir leik sinn í myndinni Nicole Kidman Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 16 ára H.j. Mbl. Kvikmyndir.com Ó.Ö.H. DV BLÓÐBAÐIÐ ER HAFIÐ   Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40. B.i. 14 ára Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. X-Men kemur fyrsta stórmynd ársins Svakalega flott ævintýraspennumynd með hinni sjóðheitu og sexý Jennifer Garner Fædd til að berjast Þjálfuð til að drepa n finnur frið verður hún að heyja stríð FRUMSÝND Sendu SMS skeytið JA EBIO á númerið 1900 og þú gætir unnið miða og varning á myndina. 9. hver vinnur. Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið EFTIR 3 DAGA Frá leikstjóra About Schmidt kemur ein athyglisverða mynd ársins r l i stj r i r i t y lisv r y rsi s Vann Golden globe verðlaunin sem besta myndin og fyrir besta handrit l l r l i t i f rir t rit SIDEWAYS Á yfir 350 topp tíu listum ársins i í li i „skylduáhorf fyrir bíófólk, ekki spurning!“ T.V. Kvikmyndir.is Tilnefnd til 7 Golden Globe verðlauna il f til l l v r l   J.H.H kvikmyndir.com "...þegar hugsað er til myndarinnar í heild, er hún auðvitað ekkert annað en snilld" J. . kvik yndir.co "... r s r til y ri r í il , r vit rt s ill " ATH. miðaverð kr. 400. 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 49 50 51 52 53

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.