Morgunblaðið - 25.01.2005, Síða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hæstvirtur ráðherrann getur hætt að reikna, eyja „trölli“ er kominn með göngin, án þess
að blása úr nös.
Alþingi Íslendingakom saman aðnýju í gær, eftir
sex vikna jólahlé. Stjórnar-
andstæðingar búast marg-
ir hverjir við fjörugu og
átakamiklu vorþingi en
stjórnarliðar hallast frem-
ur að því að þingið verði ró-
legt og tíðindalítið. Flestir
eru þó sammála um að for-
mannskjörið í Samfylking-
unni eigi eftir að setja svip
á þinghaldið, með einum
eða öðrum hætti.
„Ég á von á því að þetta
verði tiltölulega rólegt
þing,“ segir Halldór Blön-
dal, forseti Alþingis. Sam-
flokksmaður hans Einar K.
Guðfinnsson, þingflokksformaður
Sjálfstæðisflokksins, tekur í sama
streng. „Ég á ekki von á tíðinda-
miklu þingi.“ Hjálmar Árnason,
þingflokksformaður Framsóknar-
flokksins, talar á sömu nótum og
telur líklegt að þingstörfin verði að
mestu í „hefðbundnum farvegi,“
eins og hann orðar það.
Annað hljóð kemur í strokkinn
þegar rætt er við þingflokksfor-
menn stjórnarandstöðunnar.
„Margt bendir til þess að þetta
verði átakaþing,“ segir Ögmundur
Jónasson, þingflokksformaður
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs. Magnús Þór Hafsteins-
son, þingflokksformaður Frjáls-
lynda flokksins, telur að þingið geti
orðið erfitt fyrir ríkisstjórnarflokk-
ana og Margrét Frímannsdóttir,
þingflokksformaður Samfylking-
arinnar, á von á fjörugu þingi. „En
að sjálfsögðu mun það litast að ein-
hverju leyti af formannskjöri hjá
Samfylkingunni,“ segir hún. Aðrir
þingflokksformenn, nema Ög-
mundur Jónasson, taka undir þau
orð, eins og síðar verður vikið að.
Margrét telur að þingið geti
einnig litast af varaformannskjöri í
Framsóknarflokknum. Hjálmar
Árnason telur þó ólíklegt að Guðni
Ágústsson, varaformaður flokks-
ins, fái mótframboð á komandi
flokksþingi. Telur hann að á
flokksþinginu verði sjálfkjörið í
þrjú æðstu embætti flokksins, þ.e. í
formannsembættið, í varafor-
mannsembættið og í ritaraemb-
ættið.
Írak og Kárahnjúkar
„Ég held að það verði ekki neitt
eitt stórmál sem muni setja mark
sitt á þingið,“ segir Einar K. Guð-
finnsson, spurður um vorþingið.
Hann telur þó líklegt að málefni
viðskiptalífsins fái nokkra umræðu
enda frumvörp um viðskiptaum-
hverfið hér á landi væntanleg frá
stjórnarflokkunum. Halldór Blön-
dal er einnig á því að viðskiptalífið
og ekki síst samkeppnismál muni
setja sinn svip á þingið. „Ég hygg
að samkeppnismál muni setja
mjög mikinn svip á þetta þing,“
segir hann. „Það mun líka koma
inn á uppbyggingu fyrirtækja, eins
og t.d. hver staða lítilla hluthafa sé
í þessum stóru fyrirtækjum sem
eru á markaði.“
Einar, Halldór og Hjálmar
Árnason telja einnig að orkumál
muni setja mark sitt á þingið. Þá
nefna þeir samgöngumál, mennta-
mál og verkaskiptingu milli ríkis
og sveitarfélaga.
Þeir nefna ekki málefni Íraks, en
það gera hins vegar þingflokksfor-
menn stjórnarandstöðuflokkanna.
„Menn munu halda áfram að ræða
Íraksmálin og krefjast skýringa,“
segir Margrét Frímannsdóttir.
Magnús Þór og Ögmundur Jónas-
son eru á sama máli. Sá síðarnefndi
segir m.a. að þess verði áfram kraf-
ist að ríkisstjórnin aflétti þeirri
leynd sem hvíli yfir fundargögnum
um aðdraganda ákvörðunar um að
lýsa yfir stuðningi við innrásina í
Írak. „Trúverðugleiki forsætisráð-
herra og ríkisstjórnarinnar er í
húfi.“ Magnús Þór telur að Íraks-
málið geti orðið erfitt fyrir ríkis-
stjórnarflokkana, þó sérstaklega
fyrir Framsóknarflokkinn. „Þeir
[framsóknarmenn] eru komnir í
mikla vörn í því máli.“
Margrét, Ögmundur og Magnús
nefna þó fleiri mál sem eigi eftir að
setja svip sinn á vorþingið. Til að
mynda kjaramál á Kárahnjúka-
svæðinu, stóriðjustefnu ríkis-
stjórnarflokkanna og skiptingu
verkefna milli ríkis og sveitarfé-
laga.
Allt bendir til þess að Össur
Skarphéðinsson og Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir keppi um for-
mannsstólinn í Samfylkingunni á
landsfundi flokksins í maí. Ýmsir
telja, eins og áður sagði, að for-
mannsslagurinn eigi eftir að birt-
ast, með einum eða öðrum hætti, í
störfum Alþingis.
Margrét Frímannsdóttir bendir
á að töluverður tími og orka muni
að sjálfsögðu fara í það innan Sam-
fylkingarinnar, að undirbúa for-
mannskjörið. Pólitískir andstæð-
ingar formannsefnanna muni þó
reyna að draga formannskjörið inn
í umræður á Alþingi. „Ég reikna
með því að það muni koma fram í
umræðunum,“ segir hún. „Það yrði
eitthvað nýtt ef það gerðist ekki.“
Ögmundur er eini þingflokksfor-
maðurinn sem telur að formanns-
kjörið muni ekki setja mark sitt á
þingið í vetur. „Ég held að það
verkefni verði afgreitt utan þing-
salar,“ segir hann. „Ég ætla
minnsta kosti að vona að okkur,
bæði þingi og þjóð, verði hlíft við
því.“
Fréttaskýring | Alþingi kom saman að nýju
í gær eftir sex vikna jólahlé
Átakaþing eða
tíðindalítið?
Sumir spá átakaþingi en aðrir
telja að þingið verði tíðindalítið
Formannsslagur í Samfylk-
ingu setji svip á þingið
Fyrstu mál á dagskrá Alþingis
í gær voru óundirbúnar fyr-
irspurnir til ráðherra. Össur
Skarphéðinsson, formaður Sam-
fylkingarinnar, spurði forsætis-
ráðherra, Halldór Ásgrímsson,
m.a. um málefni Íraks.
Formenn þingflokka stjórn-
arandstöðunnar segja að málefni
Íraks muni m.a. einkenna störf
Alþingis í vetur en þingflokks-
formenn stjórnarflokkanna
nefna málefni viðskiptalífsins,
orkumál og menntamál.
arna@mbl.is
FYRSTI fundur stjórnarskrár-
nefndarinnar svokölluðu var hald-
inn í gær en verkefni hennar er að
huga að endurskoðun stjórn-
arskrárinnar. Jón Kristjánsson,
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra, er formaður nefndarinnar og
sagði hann fyrsta fund hafa gengið
vel, ákveðið að fara í ýmsa gagna-
söfnun og hittast næst mánudaginn
14. febrúar. Tveir fundarmanna
urðu að boða forföll.
Jón Kristjánsson sagði ljóst að
verkefnið væri viðamikið og með-
fram störfum stjórnarskrárnefnd-
arinnar, sem í eiga sæti fulltrúar
allra flokka, starfaði nefnd sérfræð-
inga sem höfð yrði samvinna við.
Jón sagði að við gagnaöflun yrði
m.a. hugað að stjórnarskrám ná-
lægra ríkja, t.d. hefðu Finnar ný-
verið endurskoðað stjórnarskrá
sína og þar væri uppbygging
stjórnkerfisins svipuð og hérlendis.
Þá sagði hann að ætla mætti að
umræða yrði opin í samfélaginu um
þetta verkefni sem væri af hinu
góða. Fundinn sat einnig Páll Þór-
hallsson, sem verður starfsmaður
nefndarinnar, en hann var nýlega
ráðinn í starf lögfræðings hjá for-
sætisráðuneytisins.
Fyrsti fundur í stjórnarskrárnefnd var í gær
Morgunblaðið/Jim Smart
Stjórnarskrárnefndin að störfum. Frá vinstri: Þorsteinn Pálsson, Birgir
Ármannsson, Jón Kristjánsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Steingrímur
J. Sigfússon og Guðjón Arnar Kristjánsson. Tveir voru fjarverandi.
Unnið að gagnaöflun til næsta fundar
ODDFELLOW-systur í Rebekku-
stúkunni nr. 12 Barböru í Hafn-
arfirði gáfu sýslumannsembættinu
á Keflavíkurflugvelli 500.000 krónur
með því skilyrði að embættið notaði
fjármunina til að þjálfa hund til
fíkniefnaleitar.
Peningarnir verða notaðir við
þjálfun á tollhundinum Ellu, sem er
tík af labradorkyni. Kári Gunn-
laugsson, aðaldeildarstjóri tollgæsl-
unnar á Keflavíkurflugvelli, segir
að heildarkostnaður við þjálfun á
fíkniefnaleitarhundi og umsjónar-
manni hans kosti nokkrar milljónir.
„Þetta er virkilega gott framtak hjá
Oddfellow systrum og við erum
mjög ánægðir með þann hlýhug og
samstöðu sem þær sýna okkur,“
segir Kári. Hann segir að hundarn-
ir séu afar mikilvægir og hafi skilað
góðum árangri.
Gáfu peninga
til þjálfunar
fíkniefnahunds