Morgunblaðið - 25.01.2005, Page 11

Morgunblaðið - 25.01.2005, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2005 11 FRÉTTIR SÆMUNDUR Pálsson og Garðar Sverrisson afhentu í gærmorgun Halldóri Blöndal, forseta Alþingis, erindi frá Bobby Fischer, fyrrver- andi heimsmeistara í skák, þar sem hann óskar eftir því að Alþingi veiti sér íslenskan ríkisborgararétt. Í upphafi bréfsins þakkar Fisc- her þann hlýhug sem íslensk stjórnvöld hafi sýnt honum alla tíð síðan hann heimsótti landið á sínum tíma til að keppa um heimsmeist- aratitilinn í skák. Síðan fer hann yf- ir stöðu mála, hvernig hann hafi verið handtekinn með ólögmætum hætti sl. sumar og verið beittur harðræði af japönsku innflytjenda- lögreglunni sem hafi næstum orðið honum að aldurtila og geti að nokkru útskýrt bágt heilsuástand hans síðustu mánuði. Síðan segir í bréfinu: „Og nú virðist nýlegt boð íslenskra stjórn- valda um dvalarleyfi og að ég megi koma til Íslands vegabréfslaus til allrar óhamingju ekki nægja þrjóskum og harðbrjósta jap- önskum yfirvöldum/mannræn- ingjum til þess að leyfa mér að fara til ykkar ágæta lands.“ Í framhaldinu útskýrir Fischer hvernig á því standi að hann sé vegabréfslaus, en hann segir bandarísk og japönsk stjórnvöld hafa lagt hald á vegabréf hans og eyðilagt með ólögmætum hætti. Segir hann hvorki japönsk né bandarísk stjórnvöld hafa haft fyrir því að útskýra fyrir sér eða rétt- læta glæpsamlegar gjörðir sínar. Fer til allsherjarnefndar „Sökum alls þess sem á undan er gengið fer ég þess hér með form- lega á leit við Alþingi að það veiti mér íslenskan ríkisborgararétt svo mér auðnist að þiggja boð um dval- arleyfi á Íslandi, sem hr. Davíð Oddsson, utanríkisráðherra ykkar, hefur svo allra náðarsamlegast boð- ið mér.“ Erindi Fischers var rætt á fundi forsætisnefndar Alþingis í gær- morgun. Ákveðið nefndin að senda beiðni skákmeistarans til allsherj- arnefndar Alþingis til meðferðar, að því er fram kemur í frétta- tilkynningu frá Alþingi sem barst síðdegis í gær. Skákmeistarinn Bobby Fischer sendir Alþingi erindi um íslenskan ríkisborgararétt Þakkar hlýhug ís- lenskra stjórnvalda Reuters Alþingi barst í gær bréf frá Fischer með beiðni um ríkisborgararétt. SAMTÖK atvinnulífsins (SA) og Al- þýðusamband Íslands (ASÍ) telja að nýjar tölur um atvinnuleyfi bendi til þess að viðsnúningur sé að verða á vinnumarkaðnum. Þó er lýst áhyggjum yfir því að enn sé lang- tíma atvinnuleysi mikið hér á landi. Á vefsíðu ASÍ segir að vísbend- ingar séu um að atvinnuástand fari batnandi. Fjöldi starfandi fólks á vinnumarkaði aukist og heldur dragi úr hlutfallslegu atvinnuleysi. Þó séu enn rúmlega fjögur þúsund manns án atvinnu. Áhyggjuefni sé að tæpur þriðjungur atvinnulausra hafi verið án vinnu í meira en hálft ár. Samkvæmt vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar fyrir fjórða ársfjórð- ung 2004 fjölgaði störfum hér á landi um 3.100, eða um 2%. Á þeim fjórðungi ársins störfuðu 156.300 manns á vinnumarkaðnum. Samtök atvinnulífsins benda á að þetta sé viðsnúningur frá mánuðunum á undan þegar störfum fækkaði á bæði öðrum og þriðja ársfjórðungi. Ef allt árið 2004 er skoðað þá fækkaði störfum um alls 750, eða um 0,5% frá árinu áður. Með- alvinnutími lengdist hins vegar úr 41,8 stundum á viku í sléttar 42 stundir. Var vinnumagnið því í heildina óbreytt á árinu. „Sé þessi niðurstaða borin saman við hagvöxt á árinu, sem líklega var á bilinu 5-6%, þá hefur framleiðni starfandi fólks aukist mikið á árinu 2004, eða sem nam hagvextinum,“ segir á vef SA en með framleiðni er átt við hlutfallið milli aukningar landsframleiðslu og heildarfjölda starfandi fólks. Viðsnúningur á vinnumarkaði að mati ASÍ og SA GRÉTAR Þorsteinsson forseti Al- þýðusambands Íslands á ekki von á því að yfirlýsingar Gylfa Arn- björnssonar um stuðning verka- lýðshreyfingarinnar við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur í formanns- kjöri Samfylkingarinnar, muni draga dilk á eftir sér innan ASÍ. Gylfa sé frjálst að lýsa sínum per- sónulegu skoðunum og hann gerir engar athugasemdir við orð hans. Það sé fjarri lagi að telja að Gylfi hafi lýst því yfir að ASÍ styðji Sam- fylkinguna. „Hann er að lýsa sínum persónu- legu skoðunum og hann hefur leyfi til þess eins og ég og þú. Ég hef ekkert meira um það að segja,“ sagði Grétar. Aðspurður um tengsl frammámanna í verkalýðs- hreyfingunni við stjórn- málaflokka sagði Grétar að það væri mikill fengur fyrir verkalýðshreyfinguna að forystumenn hennar væru virkir í starfi stjórnmála- flokka. „Það er nú svo að sem betur fer þá er mikið af for- ystufólki í verkalýðshreyfingunni sem er áhrifafólk í hinum ýmsu stjórnmálaflokkum. Og ég held að það eigi við um félaga mína alla, að þeim sé frjálst að hafa sínar per- sónulegar skoðanir og ég geri ekki athugasemdir við það, hvort sem það er Gylfi eða einhver annar. Ég tel mig sjálfan hafa fullt leyfi til að hafa per- sónulegar skoðanir á mál- um, hvort sem það lýtur að pólitík eða öðru.“ Ekki komin formleg ósk Karl Th. Birgisson, fram- kvæmdastjóri Samfylkingarinnar, sagði í gær að formleg ósk um fund í verkalýðsmálaráði fylkingarinnar hefði ekki borist. Ef slík ósk bærist yrði að sjálfsögðu boðað til fundar. Enginn hefur verið kjörinn formað- ur ráðsins. Á landsfundi Samfylk- ingarinnar voru 33 fulltrúar kosnir í ráðið og eiga kjördæmaráð flokks- ins að skipa tvo fulltrúa hvert, sam- tals tólf. Ekkert ráðanna hefur enn gert það og er ráðið því ekki full- skipað, að sögn Karls. Grétar Þorsteinsson hlaut, ásamt Þórunni H. Sveinbjarnardóttur, flest atkvæði í kjörinu til verkalýðs- ráðsins á landsfundinum í fyrra. Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, um yfirlýsingar Gylfa Arnbjörnssonar „Er að lýsa sínum per- sónulegu skoðunum“ Grétar Þorsteinsson MND-félagið og Daufblindrafélag Íslands fengu ný- lega styrk frá SP-Fjármögnun hf. að fjárhæð 500 þúsund krónur hvort félag. Í tilkynningu frá félögunum er haft eftir fram- kvæmdastjóra SP-Fjármögnunar, Kjartani Georg Gunnarssyni, að fyrirtækið vilji láta gott af sér leiða og vænti þess að styrkirnir nýtist félögunum í þeirra mikilvæga starfi. Daufblindrafélagið stóð nýlega fyrir söfnun fyrir kaupum á sérhönnuðum tölvum og hugbúnaði sem nýtist félagsmönnum. Kennsla og þjálfun í notkun búnaðarins er hins vegar kostnaðarsöm og kemur styrkurinn sér því vel fyrir félagið.MND-félagið færði nýverið Land- spítalanum að gjöf þrjár sérstakar dýnur og búnað sem ætlað er að koma í veg fyrir að sjúklingar fái legusár. Að sögn Guðjóns Sigurðssonar hjá MND-félaginu verður styrknum frá SP-Fjármögnun varið til frek- ari tækjakaupa, enda verkefnin ærin. Söfnunarátak hefur verið í gangi hjá félögunum til styrktar félagsmönnum. Númer söfnunarreikn- ings Daufblindrafélagsins er 0515-26-400878 og kt. 570394-2159. Númer reiknings MND-félagsins er 1175-05- 410900, kt. 630293-3089. Frá afhendingu styrkjanna. Frá vinstri eru Guðjón Sigurðsson, félagsmaður í MND-félaginu, og kona hans, Hall- fríður Reynisdóttir, Kjartan Georg Gunnarsson, framkvæmdastjóri SP-Fjármögnunar, Þórey Ólafsdóttir dauf- blindraráðgjafi og Þorgeir Baldursson, stjórnarformaður SP-Fjármögnunar. Milljón til MND-félagsins og Daufblindrafélagsins ÞEGAR kona sem býr á Melunum í vesturbæ Reykjavíkur fór fram í stofu snemma á laugardags- morgun var þar fyrir köttur ná- grannans sem brást hinn versti við og réðst á hana og veitti henni nokkra áverka. Konan var flutt á slysadeild þar sem hún fékk stífkrampa- og sýklasprautu. Þetta kemur fram í yfirliti lögreglunnar í Reykjavík um helstu verkefni helgarinnar. Köttur réðst á konu KARLMAÐUR um fertugt var í gær dæmdur í sjö mánaða skil- orðsbundið fangelsi og til að greiða 13,5 milljónir í sekt fyrir standa ekki skil á virðisauka- skatti, tekjuskatti, eignaskatti og útsvari og fyrir að brjóta gegn lögum um bókhald. Efnahagsbrotadeild ríkislög- reglustjóra ákærði manninn sem játaði sök og var hann dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Meðan á undanskotunum stóð, á árunum 1998–2001 tilkynnti mað- urinn ekki sjálfstæða atvinnu- starfsemi sína til skráningar, hann skilaði ekki virðisaukaskatts- skýrslum, hélt eftir innheimtum virðisaukaskatti og skilaði ekki skattskýrslum vegna starfsem- innar. Samtals námu skattsvikin rúmlega 6,7 milljónum. Refsing mannsins er skilorðs- bundin til tveggja ára. Vararefs- ing, borgi hann ekki sektina, er tíu mánaða fangelsi. Pétur Guðgeirsson kvað upp dóminn. Helgi Magnús Gunn- arsson fulltrúi ríkislögreglustjóra sótti málið. Ásmundur Vilhjálms- son hdl. var lögmaður sakborn- ings. Játaði að hafa skotið undan skatti SAMKVÆMT nýju yfirliti sem Landssamband kúabænda lét taka saman kemur fram að mun færri kúabændur, þ.e. greiðslumarks- hafar, hættu á árinu 2004 miðað við árin á undan. Samkvæmt skránni, sem unnin er af Bænda- samtökunum, eru nú 866 aðilar skráðir fyrir greiðslumarki mjólkur en voru á sama tíma fyr- ir ári 902 og 953 í ársbyrjun 2003. Frá þessu er greint á vef- síðunni naut.is. Samkvæmt þess- um upplýsingum hefur hlutfalls- leg fækkun greiðslumarkshafa dregist saman um þriðjung á milli ára. Hlutfallsleg fækkun á milli ára var því 5,3% 2003–2004 en ein- ungis 4,0% 2004–2005. Kúabændum fækkar hægar en áður

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.