Morgunblaðið - 25.01.2005, Side 17
Hafnarfjörður | Hvatningar-
verðlaun ferðaþjónustunnar
verða veitt í tíunda sinn í ár og
hefur menningar- og ferða-
málanefnd bæjarins óskað eftir
tilnefningum frá ferðaþjón-
ustuaðilum og öðrum áhuga-
sömum um ferðaþjónustu. Með
verðlaununum er hugmyndin
að hvetja ferðaþjónustufyrir-
tæki til dáða og vekja athygli á
ferðaþjónustu í Hafnarfirði.
Verðlaunin hafa áður hlotið;
Fjörukráin, Súfistinn, Íshestar,
Hraunbúar, Hafnarfjarðarleik-
húsið, Húni II, Byggðasafnið,
Golfklúbburinn Keilir og Jóla-
þorpið.
Tilnefningum er hægt að
skila á skrifstofu menningar-
og ferðamála, Vesturgötu 8,
eða á netfangið menning-
@hafnarfjordur.is, eigi síðar en
7. febrúar nk.
Þá auglýsir nefndin sömu-
leiðis eftir umsóknum um
styrki til endurgerða á gömlum
húsum sem hafa sérstakt varð-
veislugildi.
Hægt er að fá nánari upplýs-
ingar og umsóknareyðublöð á
vef Hafnarfjarðar: www.hafn-
arfjordur.is.
Hvatning-
arverð-
laun veitt
í 10. sinn
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2005 17
MINNSTAÐUR
Hættur á hafsbotni:
ATBUR‹IRNIR VI‹ INDLANDSHAF 26.12. 2004
16:00 Páll Einarsson: Jar›skjálftinn mikli - e›li og orsakir
16:20 Bryndís Brandsdóttir: Tsunami fló›bylgjan -
orsakir, e›li, aflei›ingar
16:40 Steinunn Jakobsdóttir: Vi›varanir vi› tsunami
fló›bylgjum og náttúruvá
KAFFIHLÉ
Hættur á hafsbotni:
NOR‹UR-ATLANTSHAFI‹
17:15 Páll Einarsson: Yfirlit – jar›skjálftar/skri›uföll
17:30 Freysteinn Sigmundsson: Eldfjallahrun í Atlantshafi
17:45 Ármann Höskuldsson: Tsunami fló›bylgjur í kjölfar
Kötluhlaupa
UMRÆ‹UR
Málflingi› er öllum opi› og er a›gangur ókeypis.
Málfling í Öskju 26. janúar kl. 16-18
HÆTTUR Á
HAFSBOTNI
Háskóli Íslands efnir til málflings um jar›fræ›ilegan ramma
náttúruhamfaranna í Asíu 26. desember sí›astli›inn og
hættu á tsunami fló›bylgjum vi› Ísland. Mánu›ur er li›inn
sí›an atbur›irnar vi› Indlandshaf áttu sér sta›. Starfsmenn
Jar›vísindastofnunar Háskólans og Ve›urstofu Íslands
munu fjalla um e›li og orsakir atbur›anna sem flá ur›u,
vi›varanir vi› náttúruvá, og hættu á slíkum atbur›um vi›
Ísland. Fundarstjóri er Ágúst Gunnar Gylfason,
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
Dagskrá:
Reykjavík | Samið hefur verið um
byggingu þriðja og síðasta áfanga
Björgunarmiðstöðvarinnar Skóg-
arhlíð í Reykjavík og mun Landhelg-
isgæslan og Bílamiðstöð ríkislög-
reglustjóra flytja í nýja húsnæðið.
Bætt verður við 1.626 fermetrum og
er byggingarkostnaður áætlaður 258
milljónir króna. Framkvæmdir hefj-
ast í janúar og á að vera lokið 31.
ágúst næstkomandi.
SHS fasteignir ehf., dótturfélag
Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins,
sömdu við Keflavíkurverktaka hf. um
bygginguna. Byggð verður 540 fer-
metra skrifstofubygging ofan á suð-
urálmu og mun Landhelgisgæslan
flytja höfuðstöðvar sínar af Seljavegi
í nýja húsnæðið að framkvæmdum
loknum. Landhelgisgæslan mun
einnig taka á leigu núverandi skrif-
stofuhúsnæði Tetra Ísland og 112 en
Tetra Ísland flytur starfsemi sína
annað en 112 fær aðstöðu fyrir skrif-
stofur sínar annars staðar í bygging-
unni. Ennfremur verður byggt 226
fermetra stigahús milli suðurálmu og
núverandi skrifstofuálmu.
Þá gerir samningurinn ráð fyrir að
byggt verði 860 fermetra bíla- og
tækjahús á baklóðinni austan við
Björgunarmiðstöðina og mun Bíla-
miðstöð ríkislögreglustjóra flytja
starfsemi sína í húsið.
Í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð
eru nú þegar Slökkvilið höfuðborg-
arsvæðisins, 112, Slysavarnafélagið
Landsbjörg, Fjarskiptamiðstöð rík-
islögreglustjóra og Almannavarna-
deild ríkislögreglustjóra. Þegar
Landhelgisgæslan bætist í hópinn
verða allir helstu viðbragðsaðilar á
höfuðborgarsvæðinu með starfsemi í
Skógarhlíð.
Jón Viðar Matthíasson, settur
slökkviliðsstjóri Slökkviliðs höf-
uðborgarsvæðisins, segir lykilatriði
að þessir aðilar séu allir undir einu
þaki þar sem þeir þurfi oft að vinna
náið saman. „Ég held að sambúðin
muni bera þann ávöxt að samvinnan
og samnýtingin verði miklu, miklu
betri í framtíðinni,“ segir hann.
Gæslan og Bílamið-
stöðin undir eitt þak
Skógarhlíð Fulltrúar SHS, Keflavíkurverktaka og SHS fasteigna við húsið
sem byggja á ofan á fyrir höfuðstöðvar Gæslunnar. Frá vinstri: Jón Viðar
Matthíasson, Einar Waldorff, Björn Gíslason og Halldór Halldórsson.
Reykjavík | Brauðstofa Áslaugar
hætti starfsemi um áramót og víst að
mörgum þykir sjónarsviptir af.
Brauðstofuna stofnaði Áslaug Sæ-
mundsdóttir fyrir rúmum 18 árum
en hún hafði áður starfað hjá
Brauðbæ í 11 ár. Að sögn Áslaugar
er aldurinn að færast yfir auk þess
sem dóttir hennar, sem starfaði með
henni í seinni ár, er að hefja nám í
háskóla.
„Ég er orðin svo fullorðin að ég
hef ekki lengur heilsu í þetta, það er
allt of mikið að gera,“ segir Áslaug.
Þá sé erfitt að fá almennilegt
starfsfólk til starfans. Brauðstofa
Áslaugar var alla tíð fjölskyldufyr-
irtæki og aðstoðuðu dætur hennar
við framleiðsluna.
Á gamlársdag var fyrirtækinu
lokað fyrir fullt og allt og húsnæðið í
Búðagerði hefur verið selt, þrátt
fyrir að vonarneisti kunni að glæð-
ast í brjóstum einhverra þegar þeir
heyra skilaboð á símsvara Brauð-
stofunnar: „Vinsamlegast athugið.
Brauðstofa Áslaugar hefur hætt
starfsemi tímabundið. Við viljum
þakka viðskiptin á liðnum árum.
Eigendur.“
Brauðstofa Áslaugar hættir starfsemi
Fjölskyldu-
fyrirtæki alla tíð
Garðabær | Peningar sem söfnuðust
á góðgerðarsamkomu í Flataskóla á
fimmtudag í síðustu viku voru af-
hentir fulltrúum Rauða krossins í
gær en alls söfnuðust 711 þúsund
krónur. Samkoman var haldin til
styrktar fórnarlömbum hamfaranna
við Indlandshaf.
Samkvæmt upplýsingum frá
Garðabæ var mikið fjölmenni þar
saman komið, eða um 900 manns.
Nemendur komu fram og skemmtu
með söng, dansi, hljóðfæraleik og
leiknum atriðum. Einnig voru seldar
veitingar sem nemendur og starfs-
menn höfðu hrist fram úr erminni. Í
lok samkomunnar var dregið í happ-
drætti en foreldrar nemenda gáfu
vinninga. Þess má geta að nemendur
Flataskóla eru 416, á aldrinum 6–12
ára, og söfnuðust því um 1.700 krón-
ur á hvern nemanda.
Ágóði af góðgerðarsamkomu í Flataskóla
Gáfu 711 þúsund til RKÍ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ