Morgunblaðið - 25.01.2005, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2005 21
MENNING
S Í M E N N T U N
Listir og menning 2005
Innri tun fer f ram á Grensásvegi 16A, í s íma 580 1800 e›a á heimasí›unni www.mimir . is
- Vesturfararnir
- Madrid í máli og
myndum
- Marokkó, saga
og menning
- Sakamálasögur
- Leiklistarnám
- Menning Araba
- Söngnámskei›
- Teikning
- Myndlist
- Vatnslitamálun
- Olíumálun
- Akr‡lmálun
- Leirlist
- Glermótun
- Myndlist fyrir börn
- Leiklist fyrir börn
6-12 ára
E
in
n
t
v
e
ir
o
g
þ
r
ír
4
.1
21Eitthvað við
allra hæfi
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá aðstand-
endum sýningarinnar Ég er ekki
hommi! í Loftkastalanum:
„Við sem stöndum að sýningunni
Ég er ekki hommi! í Loftkastalanum
viljum leiðrétta þá kolröngu staðhæf-
ingu Maríu Kristjánsdóttur, gagn-
rýnanda Morgunblaðsins, að við séum
að „plata fólk til að hlæja að tíu ára
gömlu barni sem leikur annað tíu ára
gamalt barn sem fannst bara allt í lagi
að láta beita sig kynferðislegu of-
beldi!“ eins og birtist orðrétt í Morg-
unblaðinu hinn 24. janúar síðastliðinn.
Fyrst og fremst viljum við lýsa yfir
undrun okkar á þeim vinnubrögðum
sem gagnrýnandi Morgunblaðsins
viðhefur. Sú staðhæfing að leikarinn
ungi sé tíu ára gamalt barn er alger-
lega röng; leikarinn sem um ræðir er í
raun fjórtán ára gamall unglingur.
Þessu hefði verið hægt að fletta upp í
þjóðskrá eða hreinlega spyrja að-
standendur sýningarinnar að áður en
gagnrýnin var birt. Við hefðum aldrei
látið tíu ára gamalt barn fara með
þetta hlutverk. Við hefðum ekki einu
sinni látið tólf ára gamalt barn fara
með þetta hlutverk. Hinsvegar fannst
okkur táningur í gagnfræðaskóla bet-
ur í stakk búinn hvað varðar aldur og
þroska fyrir hlutverk af þessu tagi.
Við vitum ekki hvaðan gagnrýnand-
inn fékk upplýsingar um aldur leik-
arans sem um ræðir, því þær eru blátt
áfram rangar.
Auk heldur segir í gagnrýninni að
barninu í sýningunni „finnist allt í lagi
að láta beita sig kynferðislegu of-
beldi“. Þetta er að okkar mati gróf
mistúlkun. Drengurinn Tommi, sem
leikarinn ungi túlkar í verkinu, veit
hreinlega ekki betur. Líkt og svo
mörg börn í raunveruleikanum, hefur
Tommi ekki hlotið fræðslu um hvað
það er að vera kynferðislega misnot-
aður og gerir sér þar af leiðandi ekki
grein fyrir því að það er rangt. Eins
og Tommi segir sjálfur í leikritinu, þá
telur hann að misindismaðurinn „hafi
kennt sér fullt af sniðugum hlutum“.
Harmleikurinn liggur í fáfræði barns-
ins, bæði í verkinu sem og í mörgum
raunverulegum tilfellum um barna-
misnotkun.
Við, aðstandendur sýningarinnar,
vorum í framhaldi af villunni sem
gagnrýnandi Morgunblaðsins fór
með, spurð af blaðamönnum hvort við
hefðum útskýrt fyrir leikaranum
unga um hvað þátttaka hans í sýning-
unni snerist. Svarið er: Að sjálfsögðu.
Með því að ræða við börn á opinskáan
hátt um kynferðislega misnotkun
gerum við barnaníðingum erfiðara
fyrir að blekkja börn og misnota. Að
okkar mati hefðu öll börn gott af
fræðslu um þessi málefni, því það
eykur þeirra eigið öryggi. Síðast en
ekki síst kom leikarinn ungi okkur á
óvart með eigin vitneskju um kyn-
ferðislega misnotkun, og má þar
nefna hneykslismál innan kaþólsku
kirkjunnar í Ameríku. Þessar upplýs-
ingar hafði hann sjálfur viðað að sér í
fjölmiðlum á borð við Morgunblaðið.
Við lítum á það alvarlegum augum
að vera ásökuð um að nota barn í sýn-
ingunni sem ekki hefur aldur eða
þroska til að skilja um hvað ræðir.
Strangt tólf ára aldurstakmark er á
sýninguna, og hefur leikarinn ungi
náð þeim aldri og gott betur. Þessu
hefði auðveldlega mátt komast að áð-
ur en málið var haft í flimtingum á síð-
um Morgunblaðsins.
Í framhaldi hvetjum við fólk til að
koma á sýninguna, og fullvissum alla
um að það var hvorki takmark höf-
undarins né nokkurs aðstandanda að
gera lítið úr þeim málefnum sem þar
eru sett á svið, hvorki hvað varðar
kynferðislegt ofbeldi né málefni
minnihlutahópa.
Virðingarfyllst, fyrir hönd aðstand-
enda sýningarinnar Ég er ekki
hommi! í Loftkastalanum, Þórdís
Elva Þorvaldsdóttir þýðandi verks-
ins.“
Úr sýningunni Ég er ekki hommi! í Loftkastalanum.
Yfirlýsing frá
aðstandendum
sýningarinnar
Ég er ekki hommi!
Ég helgaði mig alfarið þessuverki frá ársbyrjun 2002,allt annað varð að víkja og
það er ekki allt búið enn,“ sagði
listamaðurinn Rúrí í samtali við
Morgunblaðið fyrir tæpu ári – en
verkið sem hún vísar til heitir Arc-
hive – Endangered Waters og var
framlag Íslands á Feneyjatvíær-
ingnum sumarið 2003. Næstkom-
andi laugardag verður opnuð í
Listasafni Íslands sýning á verk-
inu, en það hefur farið víða um
heim og vakið verðskuldaða at-
hygli og umfjöllun.
Gabríela Friðriksdóttir verður
eins og kunnugt er fulltrúi Íslands
á tvíæringnum í sumar, og þótt
ekki sé enn tímabært að segja frá
hvað hún ætlar að sýna er vinna
við þátttökuna þegar komin á full-
an skrið enda ekki nema fjórir
mánuðir til stefnu.
Að þessu sinni verða tveir sýn-ingarstjórar yfir Fen-
eyjatvíæringnum, en ekki einn eins
og undanfarin skipti. Árið 2003
var Francesco
Bonami sýning-
arstjóri og þar
á undan var
Harald Szee-
mann sýning-
arstjóri tvisvar í röð, 1999 og 2001.
Í raun er ekki svo langt síðan Ítal-
ir gáfu erlendum sýningarstjórum
tækifæri til að reyna sig í Fen-
eyjum, það gerðist í fyrsta sinn ár-
ið 1995, er Frakkinn Jean Clair
var við stjórnvölinn. Í ár eru það
þær María de Corral og Rosa
Martínez sem verða fyrstar kvenna
til að stýra þessari miklu myndlist-
arhátíð, en þær hafa báðar getið
sér gott orð fyrir sýningarstjórn
og myndlistarskrif í heimalandi
sínu Spáni og á alþjóðavettvangi –
og eiga það reyndar sameiginlegt
að hafa stýrt spænska skálanum í
Feneyjum; de Corral 1988 og
Martínez árið 2003. María de Corr-
al var forstöðumaður þjóðlista-
safnsins Reina Sofia í Madrid á ár-
unum ’91–’94, en frá árinu 2002
vann hún sem forstöðumaður yfir
samtímalistasafninu í Santender.
Rosa Martínez var annar sýning-
arstjóra Manifesta 1 í Rotterdam
árið 1996, og stýrði jafnframt al-
þjóðlega tvíæringnum í Istanbúl
árið 1999.
Fyrirkomulag Feneyjatvíær-ingsins er í stöðugri þróun til
þess að tryggt sé að sýningin mæti
þörfum og kröfum samtímans
hverju sinni. Í samræmi við það
hefur nú sú breyting verið gerð að
þegar er búið að velja sýning-
arstjóra fyrir árið 2007, Banda-
ríkjamanninn Robert Storr, og
mun hann starfa samhliða þeim de
Corral og Martínez að alhliða
stefnumótun sem ætlað er að skila
sér á milli ára. Storr hefur verið
forstöðumaður þeirrar deildar
MoMA í New York sem sér um
málverk og skúlptúra, og hefur
unnið sem sýningarstjóri að mörg-
um vel þekktum sýningum svo sem
á verkum Roberts Rymans og
Bruce Naumans. Hann hefur líka
unnið með Tate-safninu í Bretlandi
og Pompidou-safninu í París. Storr
mun í samræmi við þetta nýja fyr-
irkomulag á Feneyjatvíæringnum
bera ábyrgð á stjórn og skipulagn-
ingu myndlistarþings á haustmán-
uðum þessa árs, þar sem mark-
miðið er að greina ástand
samtímalistar; lögmál hennar,
tungutak, ný og gömul viðmið.
Töluverðar vonir eru bundnar við
þingið í kjölfar tvíæringsins, enda
má líta á það sem tilraun til að
nýta alla þá gagnrýni og umræðu
sem kemur fram í kjölfar opnunar-
innar í byrjun júní til þess að
draga ályktanir og þróa hug-
myndafræði áfram meðan á sýn-
ingunni stendur. En fram að þessu
hefur fjaðrafokið sem myndast í
kringum opnunina yfirleitt lognast
út af á nokkrum vikum án þess að
tækifæri gæfist til að nýta um-
ræðuna frekar annars staðar en
heima í þátttökulöndunum sjálfum.
Gert er ráð fyrir að þingið verði
stökkpallur fyrir Storr inn í sýn-
inguna 2007 og að í því muni einn-
ig felast umtalsverður ávinningur
fyrir alþjóðlega myndlistarheim-
inn.
María de Corral og Rosa Mart-ínez hafa með sér þá verka-
skiptingu við yfirstjórn Fen-
eyjatvíæringsins að de Corral er
ábyrg fyrir yfirlitssýningu í ítalska
skálanum á Giardinisvæðinu þar
sem þjóðarskálarnir eru, en Mart-
ínez sér um Arsenalesvæðið, sýn-
ingarrými sem er mjög stórt og
frekar hrátt á svæði sem fyrr á
tímum hýsti skipasmíðaiðnað Fen-
eyja. Fyrir þessar sýningar hafa
þær mótað þema sem byggist á
tveimur pólum, þar sem annars
vegar er horft til tengslanna á
milli samtímans og þess mikilvæg-
asta úr fortíðinni (í ítalska skál-
anum) og hins vegar á milli sam-
tímans og helstu nýbreytni sem
marka má í augnablikinu (á Arsen-
ale). Þema de Corral fyrir yfirlits-
sýninguna er The experience of
Art eða Reynslan af list en Mart-
inez hefur valið sýningunni á Ars-
enale þemað Always a little bit
further sem útleggja mætti Alltaf
aðeins lengra. Það vísar vænt-
anlega ekki einungis til markmiða
myndlistarinnar í heiminum, held-
ur einnig til þess að Feneyjatvíær-
ingurinn vilji halda sínum sessi
sem framvörður í slíkum sýningum
í heiminum – er dró að sér 260.000
gesti árið 2003.
Feneyjatvíæringur
í uppsiglingu
’Fyrirkomulag Feneyjatvíæringsins
er í stöðugri þróun til
þess að tryggt sé að
sýningin mæti þörfum
og kröfum samtímans
hverju sinni. ‘
AF LISTUM
Fríða Björk
Ingvarsdóttir
fbi@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Rúrí við verk sitt „Archive – Endangered Waters“ þegar það var í vinnslu.
ER NEFIÐ STÍFLAÐ?
Fæst í apótekum
og lyfjaverslunum
STERIMAR
Skemmir ekki slímhimnu
er náttúrulegur
nefúði sem losar stíflur
og léttir öndun.
Fyrir 0-99 ára.