Morgunblaðið - 25.01.2005, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2005 29
MINNINGAR
Ég var svo heppin að upplifa eitt
merkilegasta ævintýrið með hon-
um. Þá var afi 83 ára en ég nýorðin
fjórtán og við á leið til Noregs
ásamt fleira fólki. Tilefnið var að afi
hafði nokkru áður fengið fregnir af
því að hann ætti bróður í Noregi og
nú ætlaði afi að heimsækja hann.
Það var ógleymanlegt þegar bræð-
urnir hittust loks og féllust í faðma.
Það var eitt af þessum andartökum
sem maður vill gjarnan frysta og
taka með sér inn í eilífðina. Hinum
megin sitja þeir nú eflaust saman
bræðurnir og hafa tekið þráðinn
upp að nýju.
Afi hélt í sitt síðasta ferðalag
sama kvöld og strandamenn á höf-
uðborgarsvæðinu héldu sitt árlega
þorrablót. Hann hefur örugglega
hugsað með sér að gott væri að
komast úr rúminu og kíkja á blótið í
leiðinni. Ég gleymi því aldrei þegar
ég og vinkona mín skutluðum afa á
eitt slíkt þegar hann var að nálgast
nírætt. Við vinkonurnar vorum á
þeim aldri þegar rúnturinn er vin-
sæll og fannst því upplagt að bjóða
afa bílfar aftur heim að þorra-
blótinu loknu. Það fannst honum
hins vegar mjög fyndið, sló á lærið
á sér og sagði „Sigga mín, þegar ég
fer heim þá verður þú löngu sofn-
uð“. Ekki vildum við samþykkja
það skvísurnar að afi færi seinna í
háttinn en við en hann gaf sig ekki
og var enn hlæjandi þegar hann
skellti bílhurðinni á eftir sér. Það
voru forréttindi fyrir mig að alast
upp í kringum afa. Það er ekki
sjálfgefið þegar sjötíu ár skilja á
milli. Þakklæti er því ofarlega í
huga mér þegar ég kveð hann í dag.
Þakklæti fyrir hans langa líf og ár-
in sem við áttum saman og skiptu
öllu máli fyrir afastelpuna.
Þegar ég útskýrði fyrir 3 ára syni
mínum að langafi hans væri nú á
himnum varð hann hugsi en sagði
svo „Er gaman hjá guði?“ Við vor-
um sammála um að fyrst langafi
væri kominn þangað hlyti að vera
gaman þar.
Sigríður María
Tómasdóttir.
Hlýlegur, góður, sterkur, spaug-
samur, ósérhlífinn, fróður, minnug-
ur og lífsglaður, þetta eru orðin
sem koma upp í hugann er ég hugsa
um hvernig maður Einar Hansen
var. Það var fyrir 30 árum að Elsa,
þá skólasystir mín, kynnti mig fyrir
foreldrum sínum Einari og Mundu.
Elsa hafði boðið mér norður til
Hólmavíkur og lofað góðri helgi.
Móttökurnar sem ég fékk frá þeim
yndislegu hjónum eru ógleyman-
legar. Fyrir utan að stjana við gest-
inn alla helgina þá var það innileik-
inn og góðmennskan sem snart mig
mest. Eftir að þau mætu hjón fluttu
suður urðu samverustundir fleiri
og kynni nánari.
Einar var handverksmaður góð-
ur, skar og brenndi út í tré. Hann
var mikill áhugamaður um íþróttir
og gátum við oft karpað lengi sam-
an, sérstaklega um handboltann.
Í veiði, hvort sem það var í sjó
eða ám, var hann snillingur og
sýndi algera yfirburði yfir aðra.
Fiskarnir drógust að honum en létu
aðra að mestu vera. Þeir eru ófáir
laxarnir sem ég hef fengið í gegn-
um tíðina.
Einar vann lengi ásamt konu
sinni við fjölskylduheimilið í Reyni-
lundi 4 í Garðabæ, þar vann hann
sem besti fagmaður með þroska-
heft börn og var unun á að horfa
hvað honum fór það vel úr hendi.
Minning um góðan mann mun
lifa í hjörtum okkar.
Ég hef gengið um sólheita sanda.
Og brimgnýr ókunnra hafa
blandast þyti míns blóðs.
Ég hef látið úr höfn allra landa
og runnið í farveg hvers flóðs.
Og á botni hins óræða djúps
hef ég vitund og vilja minn grafið,
og ég veit ekki lengur,
hvort hafið er ég
eða ég hafið.
(Steinn Steinarr.)
Með þökk í huga kveð ég þig,
kæri vinur.
Helga.
✝ Vilborg S. Ein-arsdóttir,
Monna, fæddist á
Þórarinsstaðaeyrum
við Seyðisfjörð 21.
nóvember 1921. Hún
lést á Landspítala –
háskólasjúkrahúsi í
Fossvogi 18. janúar
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Einar Sigfinnur
Guðjónsson og Anna
Bekk Guðmunds-
dóttir. Systkini Vil-
borgar eru Einar
Einarsson rafvirkja-
meistari, Jórunn Einarsdóttir hús-
móðir og Hreggviður Þorgeirsson
rafmagnstæknifræðingur.
Vilborg giftist í maí 1941 Einari
Runólfssyni, f. á Seyðisfirði 25.
Smáradóttir og Hreinn Ómar
Smárason. Þau eiga sjö barnabörn
og eitt barnabarnabarn. 3) Hlöð-
ver, f. 11. nóvember 1945, d. 25.
desember 1986, maki Kristín Kár-
dóttir, f. 1. maí 1949. Börn þeirra
eru Sigurður Helgi og Hlín. Þau
eiga þrjú barnabörn. 4) Friðbjörg,
f. 14. júní 1956, maki Magnús Geir
Einarsson, f. 30.september 1956,
búsett í Svíþjóð. Börn þeirra eru
Margrét Lilja, Einar Víðir og
Hlynur.
Vilborg og Einar bjuggu í Vest-
mannaeyjum til ársins 1964 en
fluttu þá í Kópavog og hafa búið
þar síðan. Vilborg saumaði allt frá
skírnarkjólum til brúðarkjóla fyr-
ir fjölda fólks. Einnig starfaði hún
í Oddfellowreglunni til 40 ára,
fyrst í Rebekkustúkunni Vilborgu
í Vestmannaeyjum og síðar var
hún ein af stofnendum Rebekk-
ustúkunnar Þorgerðar í Reykja-
vík.
Vilborg verður jarðsungin frá
Kópavogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
desember 1918. For-
eldrar hans voru Run-
ólfur Sigfússon og
Friðrikka Ingibjörg
Einarsdóttir. Vilborg
og Einar eignuðust
fimm börn en misstu
sitt fyrsta barn, hin
eru; 1) Atli, f. 21. jan-
úar 1943, maki Rut
Óskarsdóttir, f. 22.
september 1946, bú-
sett í Vestmannaeyj-
um. Börn þeirra eru
Einar Vilberg, d. 1990
og Ósk Rebekka. Þau
eiga eitt barnabarn.
2) Eygló, f. 28. febrúar 1944, maki
Hreinn Smári Guðsteinsson, f. 12.
desember 1939, búsett í Vest-
mannaeyjum. Börn þeirra eru
Anna Vígsteinsdóttir, Kolbrún Ýr
Elsku amma, í dag kveðjum við
þig í síðasta sinn og nú ertu farin á
þann stað sem þú varstu búin að
bíða eftir að komast á og hann pabbi
minn hefur örugglega tekið vel á
móti þér. Það er alltaf sárt að þurfa
kveðja þá sem manni þykir vænst
um en þar sem ég er svo viss um að
þér líður betur að vera komin til
hans pabba míns þá líður mér líka
vel í hjarta mínu.
Það voru margar minningarnar
sem rifjuðust upp þessar síðustu
mínútur á spítalanum þegar ég sat
hjá þér. Allar góðu stundirnar á
Digró og allt sem við brölluðum.
Það sem fyrst kemur samt upp í
huga minn eru hlaupteningar sem
við leystum upp í heitu vatni og
settum í form eða gamlar jógúrt-
dósir og borðuðum með bestu lyst,
en þeir voru bara góðir á Digró og
ekkert þýddi að reyna að gera
svona sjálfur heima því það bara
heppnaðist ekki. Og svo er það
besta skúffukaka í heimi, en hún var
auðvitað sérstök fyrir þær sakir að
vera með miklu og mjög góðu sér-
stöku kremi og var alltaf til í fryst-
inum hjá þér og maður fékk sér
hana með kaldri mjólk þegar hún
hafði staðið aðeins á borðinu og
þiðnað.
Hún Bogga mín átti líka nóg af
sérsaumuðum dúkkufötum frá þér
og þar sem hún hafði ferðast með
mér um heimsins höf með pabba
mínum þurftir þú líka stundum að
bæta hana og laga. Já amma, það
var ýmislegt brallað á Digró og oft-
ast gerðum við eitthvað sem maður
fékk ekki að gera annarsstaðar og
aðrar ömmur og afar gerðu ekki. Í
sumar gladdi það mig mjög mikið að
þú skyldir koma á ættarmótið og
hitta allt okkar fólk en suma hafði
ég aldrei séð á ævinni og það var þá
sem þér fannst ég eitthvað öðruvísi,
en þegar ég sagði þér svo núna um
jólin að það væri von á nýju barni
næsta sumar, sagðist þú hafa séð
það á mér á ættarmótinu þótt litli
bumbubúinn væri ekki floginn inn í
magann minn þá, já þú sást ým-
islegt þótt sjónin væri kannski ekki
öll til staðar enda mjög forvitin og
misstir ekki af neinu.
Þótt stundirnar síðustu ár hafi
ekki verið eins margar og áður eru
mér þetta mjög dýrmætar stundir
sem við áttum saman og ég hugsa til
þeirra með söknuði en jafnframt vil
ég þakka þér fyrir þær og ýmislegt
sem þú hefur kennt mér um lífið og
tilveruna eins og að tala ekki illa um
annað fólk. Nú koma tímar þar sem
ég get sagt við Kristínu Sól mína að
langamma sé farin til að eiga heima
á himnum eins og hann afi Hlöðver
og mun ég reyna að kenna henni og
litla bumbubúanum mínum það sem
þú kenndir mér um lífið. Elsku
amma, takk fyrir allt! Elsku afi,
Atli, Systa, Friðbjörg og allir hinir,
við höfum mátt þola ýmislegt í þess-
ari veröld en við erum örugglega
sammála um það að amma sé komin
þangað sem hennar er þörf og
syrgjum hana því með söknuði en
hjálpumst að við að minnast hennar
áfram.
Þín
Hlín.
Elsku amma á Digró, takk fyrir
að vera amma mín, langamma
barnanna minna og frábær vinkona
konunnar minnar. Það hefur alltaf
verið gott að sækja þig heim, mikið
bakkelsi og alltaf nóg. Þrátt fyrir
veikindi þín tókst þér alltaf að láta
okkur líða eins og ekkert amaði að,
það mátti aldrei eyða tíma í að spá í
það hvort þú værir slöpp og meira
að segja þegar sjónin þín var farin
náðir þú að segja við mig: „Sigurður
Helgi, ertu að bæta á þig elskan?“
Þú hefur náð að dansa í gegnum
mótvinda lífsins á brosinu einu sam-
an. Þegar við hjónin eignuðumst
Hlöðver leyndi sér ekki gleðin í þínu
hjarta. Hlöðver sonur okkar var svo
heppinn að fá að kynnast þér og afa
og aðstoð ykkar með hann ómet-
anleg. Eitt af því sem er manni
minnisstætt er að þú stóðst alltaf
föst á þínum skoðunum og varst
ekkert að reyna að fela þær.
Konan mín átti margar stundir
yfir kaffibolla með þér, þar sem
spjallað var um allt milli himins og
jarðar. Stuðningurinn sem þið afi
veittuð Þorbjörgu á sínum erfiðu
stundum er ómetanlegur og hún er
ykkur ævinlega þakklát.
Amma mín, þú ert ein glæsileg-
asta kona sem ég hef kynnst, vildir
alltaf vera fín og vel til höfð og fé-
lagslynd kona. Þú varst í Oddfellow-
reglunni í 40 ár og ég ætla að vona
að ég verði þér til sóma innan regl-
unnar okkar.
Takk fyrir allar góðu stundirnar,
þær eru í dag það verðmætasta sem
við Þorbjörg, Hlöðver og Matthild-
ur eigum til minningar þig.
Sigurður Helgi.
Amma var hvíldinni fegin. Ásjóna
hennar yngdist um 20 ár þegar allar
þrautir voru að baki. Það var ekki
hennar stíll að liggja veik og geta
litla björg sér veitt. Kjarnorkukona,
kraftmikil, félagslynd og skemmti-
legust allra.
Vísur kunni hún í tugatali og átti
það til að hringja í mann ef ein
skemmtileg kom upp í hugann. Sím-
talið var stutt og hnitmiðað. Fer-
skeytlan lesin og svo bara bless.
Ekkert óþarfa blaður.
Loksins er amma komin til
drengjanna sem á undan eru farnir.
Ég efast ekki um að þeir hafi tekið
fagnandi á móti móður og ömmu.
Ég á eftir að sakna þín amma
mín. Hver tekur að sér að skamma
okkur afa þegar við gleymum okkur
í rökræðum? Kannski finn ég bara
klór í bakið ef ég geri ekki rétt? Þú
hótaðir að koma og klóra í bakið á
mér ef ég væri að gera einhverja
vitleysu.
Síðastliðin fimmtán ár höfum við
verið í nær daglegum samskiptum,
svo það verður erfitt að átta sig á
brottför þinni en ég veit að nú líður
þér svo miklu betur.
Takk fyrir að vera amma mín. Ég
elska þig.
Kolbrún Ýr Smáradóttir.
En alltaf það vekur hið innsta og hlýja
er alfaðir tekur og gefur hið nýja.
Faðir í hendur þér felum vér andann,
fullvís er lending á strönd fyrir handan.
(Ágúst Sigurðsson.)
Mágkona mín Vilborg Sigríður
Einarsdóttir hefur nú lokið lífs-
göngu sinni. Hún bjó alla ævi við
mikið heilsuleysi af völdum lungna-
sjúkdóms, sem hún fékk barn að
aldri.
Vilborg var þrotin að líkams-
kröftum, en hélt andlegri reisn til
hinstu stundar, hún fjölyrti ekki um
veikindi sín og bar þau af æðruleysi.
Oft lagðist hún inn á Vífilsstaðaspít-
ala. Hjúkrunarfólk sem ég þekkti
og starfaði þar sagði mér að um leið
og hún náði andanum aftur nokkurn
veginn eðlilega var hún hrókur alls
fagnaðar og gerði að gamni sínu við
starfsfólkið.
Á æskuárum Vilborgar var ekki
algengt að spurt væri hvað viltu
verða þegar þú verður stór. Algeng-
ast var að stúlkur leituðu að vinnu
um leið og aldur leyfði og ekki væri
verra að eignast góðan mann.
Vilborg fór til Vestmannaeyja
kornung og giftist fljótlega frænda
sínum Einari Runólfssyni skip-
stjóra. Þetta var gæfuspor beggja.
Þau studdu hvort annað í erfiðleik-
um lífsins. Son sinn Hlöðver misstu
þau af slysförum er „Suðurlandið“
fórst um jólin árið 1986. Barnabarn
sitt Einar Vilberg, son Atla og Rut-
ar, misstu þau nokkrum árum
seinna, einnig í hörmulegu slysi. Við
vitum að svona atburðir skilja eftir
sig djúp spor, en í sorginni koma
svo allar góðar minningar um þá
látnu. Það er ekki í anda Vilborgar
að rifja upp raunir lífs hennar. Ég
veit að eiginmaður hennar hefur al-
laf stutt hana af frábærum dugnaði
og hugulsemi. Einnig fjölskyldan
öll.
Við sem erum komin á efri ár
hugsum gjarnan til fyrri ára og rifj-
um upp gamla tíma. Eru mér þá
minnisstæð árin eftir stríð þegar
ekkert fékkst af vefnaðarvöru, átti
ég þá góða mágkonu í Eyjum sem
var saumakona af guðs náð, ég veit
ekki til að hún hafi farið að læra að
sauma. Hún hefur bara átt góð
skæri og málband og svo varð hún
fatahönnuður. Saumaði fyrir háa
sem lága glæsilegan fatnað. Ég fékk
senda fallega kjóla frá Vilborgu.
Þvílík gleði og þökk. Saumaskapur
var ævistarf mágkonu minnar og ég
sá hvað hún hafði mikla gleði af
þessu starfi. Hún ljómaði þegar flík-
in var tilbúin og ánægðir viðskipta-
vinir fóru glaðir heim. Saumaskap-
inn, bóklestur og margt annað sem
fylgir sjónleysi varð Vilborg að
leggja á hilluna vegna þess. Hún
var mikið sjónskert hin síðari ár.
Við Einar söknum Vilborgar og
erum varla búin að átta okkur á að
hún sé ekki lengur meðal okkar. Við
höfðum oft samband og ætíð á létt-
um nótum. Vilborg var stálminnug
og hafði gaman af að rifja upp
gamla tíma frá Seyðisfirði og þá töl-
uðu systkinin saman, ég hlustaði.
Minninguna um góða systur og
mágkonu geymum við og þökkum
henni samfylgdina. Öllum aðstand-
endum sendum við Einar innilegar
samúðarkveðjur.
Ólöf Stefánsdóttir.
Þegar frænka kvaddi okkur með
sínu hlýja faðmlagi á Þorláksmessu-
kvöld, óraði okkur ekki fyrir að kall-
ið væri svona skammt undan.
Minningarnar hrannast upp allt
aftur til barnæsku heima á Fífilgöt-
unni í Vestmannaeyjum. Frænka
var alltaf svo hress, kát og glöð og
smitaði út frá sér.
Æskuárin heima á Fífilgötunni
eru ákveðinn kjarni í lífi mínu, kjöl-
festa, samofin órjúfanlegum bönd-
um tengdum frænda og frænku og
því umhverfi sem þau skópu.
Frænka og frændi tóku mér sem
einum af fjölskyldunni og á ég ein-
staklega ljúfar og góðar minningar
frá þessum tíma.
Sér í lagi eru mér gamlárskvöldin
minnisstæð. Brennusöfnun allt
haustið og síðan flutningur á góss-
inu upp í rætur Helgafells með
frænda í fararbroddi sem ábyrgð-
armann og frænku heima í eldhúsi
við undirbúning. Um kvöldið var
svo skotið upp stórum skipaflugeld-
um. Þetta var hreint ævintýri sem
líður mér aldrei úr minni. Allt frá
þeim tíma hef ég verið mikill gaml-
árskvöldsaðdáandi og áhugamaður
um flugelda og púður.
Síðar meir eftir að þau fluttu á
„Digró“ og ég komst á unglingsárin
dvaldi ég iðulega í þeirra húsum við
frábært atlæti og góðvild bæði í
keppnisferðum og einnig í svoköll-
uðum „menningarferðum“ í borgina
þar sem unglingurinn var að þreifa
fyrir sér.
Þá er það mér mjög minnisstætt
hvernig þau opnuðu heimili sitt upp
á gátt fyrir sínum 23. janúar 1973.
Þessi tími var einstakur og hlýtur
að hafa reynt mjög á en frændi og
frænka léku sín hlutverk af stakri
snilld og tilfinningu.
Einnig eru aðfangadagskvöldin á
„Digró“ ljúf í minningunni og munu
alltaf verða. Áfram gæti ég lengi
talið.
Dætrum okkar hafa þau frændi
og frænka verið einstaklega góð og
sakna þær nú frænku sinnar. Jóla-
dagur undanfarinna ára verður að
dýrmætum minningum í hugum
þeirra.
Fyrir allar góðu stundirnar og
minningarnar viljum við þakka.
Elsku frænka, takk fyrir allt.
Leiddu mína litlu hendi,
ljúfi Jesús, þér ég sendi
bæn frá mínu brjósti, sjáðu,
blíði Jesús, að mér gáðu.
(Ásmundur Eiríksson.)
Einari frænda og fjölskyldu send-
um við innilegar samúðarkveðjur.
Friðrik, Kristín,
Oddný og María.
VILBORG S.
EINARSDÓTTIR
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang-
afi,
JENS KARVEL HJARTARSON
frá Kýrunnarstöðum,
Engihjalla 11,
verður jarðsunginn frá Hvammskirkju í Dölum
laugardaginn 29. janúar kl. 14.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á
Blindrafélagið.
Rúta fer frá Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14, kl. 10.00.
Upplýsingar í síma 868 0690.
Börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.