Morgunblaðið - 25.01.2005, Side 35

Morgunblaðið - 25.01.2005, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2005 35 MINNINGAR það beðinn. Margir Vestfirðingar voru á æskuárum hans þjóðþekktir menn í stjórnmálum. Gunnar kynnt- ist þar mönnum sem voru í innsta hring. Hann sá snemma að menn skiptust í tvo hópa. Annars vegar voru þeir sem höfðu hátt og töluðu mikið. Í hinum hópnum voru menn sem létu minna fyrir sér fara. Þeir kusu heldur að láta verkin tala og koma hlutunum í framkvæmd. Gunn- ar valdi síðari hópinn. Gunnar Friðriksson var farsæll maður í einkalífi sínu. Hann og Unnur eignuðust þrjú börn, Friðrik fram- kvæmdastjóra og kjörræðismann Póllands, Rúnar kvikmyndagerðar- mann og dagskrárstjóra í Sjónvarp- inu, Guðrúnu húsfreyju í Reykjavík, en áður átti hann Sæmund, sem var deildarstjóri hjá Hofi. Ég vil að lokum þakka þessu góða fólki fyrir ógleymanlegar stundir sem ég hef átt með því bæði innanlands og utan. Ég færi öllum aðstandendum Gunnars Friðrikssonar mínar dýpstu samúðarkveðjur og þakka hlýhug og vináttu á liðnum árum. Gunnar Dal. Gunnar frændi, móðurbróðir minn, er látinn 91 árs. Hann var fram á síð- ustu stund brennandi af áhuga við að skrá lýsingar frá liðinni tíð þar sem fram koma greinargóðar frásagnir af lifnaðarháttum síðustu aldar. Frá- sagnirnar eru oft persónuleg reynsla hans sjálfs og því afar raunverulegar fyrir nánasta ættfólk hans, en þegar hann var spurður hvort hann ætlaði ekki að gefa þessar endurminningar út, sagðist hann bara vera að gera þetta til þess að afkomendur vissu meira um fortíðina, því að á henni er farsælt að byggja framtíðina. Jafn- framt rekur hann ættir langt aftur í tímann, svo að við sem eftir stöndum getum haft yfirsýn yfir ættmenni okkar út fyrir innsta hring. Það var gaman að ræða við Gunnar um þessi skrif hans og þá kom fram að hann gat sagt frá mönnum og málefnum án þess að þurfa tíma til að hugsa sig um, mannanöfn voru alltaf á takteinum þó að um væri að ræða ættartölur aftur í tímann. Hann sagðist halda starfsemi heilans í sem bestu formi með þessum fræðandi skrifum sínum og hugleið- ingum. Á meðan foreldrar mínir bjuggu á Látrum og síðar í nágrenni Ísafjarðar var það ævinlega tilhlökkunarefni þegar von var á Gunnari og Unni í heimsókn og ekki spillti það ánægj- unni þegar synir þeirra, Friðrik og Rúnar, voru fæddir og komu með þeim. Einnig minnist ég þess alltaf þegar elsti sonur Gunnars, Sæmund- ur, kom að Látrum, en hann er á svip- uðu reki og ég sjálf svo að við gátum leikið okkur saman þann stutta tíma sem heimsóknin varði. En vænst þótti mér um þegar Unnur og Gunnar ákváðu að senda Gunnu dóttur sína 6 ára gamla í bekk til mín þegar ég var kennari í Skóla Ísaks Jónssonar. Ógleymanleg eru mér jól í Tungu í Skutulsfirði þegar ég fékk gítar í jóla- gjöf frá Gunnari og Unni og ævinlega var það gaman að taka upp jólapakk- ana frá þeim. Það er líka ákveðinn ljómi yfir heimsóknum til Reykjavíkur þegar við eldri systurnar fengum að fara með mömmu og gistum þá alltaf hjá Gunnari og Unni sem jafnframt sýndu okkur eitt og annað í Reykja- vík. Gunnar var ákaflega bónlipur mað- ur og því var gott að leita til hans með eitt og annað því að ef hann mögulega gat greiddi hann úr því sem um var að ræða. Þegar foreldrar mínir fluttu til Reykjavíkur fengum við að búa í kjallaranum í húsi Gunnars á Greni- mel á meðan pabbi og mamma byggðu sér íbúð í Kópavogi. Það varð því mikill samgangur systkinanna mömmu og Gunnars á því tímabili, en það var kært á milli þeirra og Gunnar vitnaði stundum til þess að mamma hefði saumað á sig fermingarföt og sent sér að Látrum þegar hún var við nám í Kvennaskólanum í Reykjavík, og hann var viss um að hafa verið í langfallegustu fötunum meðal ferm- ingarbræðranna. En svo var það líka oft að þegar Unnur og Gunnar voru að koma frá útlöndum og mamma hafði gætt barna þeirra á meðan, kom fallegur kjóll upp úr farangri þeirra handa mömmu. Gunnar var mikill athafnamaður en jafnframt gætinn og tilbúinn til að gefa þeim sem yngri voru þau ráð að ætla sér ekki meiri framkvæmdir en hægt væri að hafa stjórn á með per- sónulegri yfirsýn. Eftir að Unnur veiktist og þurfti að vera á sjúkrahúsi kom best í ljós hve kært var á milli hjónanna og dvaldi þá Gunnar löngum stundum við sjúkrabeð konu sinnar, en jafnframt gaf hann vinum sínum tíma til samvista og ræktaði þá vináttu til hinstu stundar. Vertu sæll, Gunnar frændi, Guð veri með þér. Matthildur Guðný Guðmundsdóttir. Við andlát Gunnars Friðrikssonar koma ótal minningar fram í hugann eftir áratuga vináttu og samstarf á sviði félagsmála og viðskipta. Fyrstu kynni okkar urðu í sambandi við störf að málefnum Slysavarnafélags Ís- lands. Þar áttum við samleið hart nær 30 ár. Gunnar var alla ævi Aðalvíkingur í sínu innsta eðli. Honum var heima- byggðin að Látrum í Aðalvík mjög kær og taldi að þau áhrif sem hann varð fyrir í æsku og á unglingsárum hafi verið afgerandi fyrir lífið. Hann sótti æskustöðvarnar heim að sumri til meðan heilsan leyfði. Honum var ekki gefið að feta í fótspor feðranna og afla fanga með því að sækja á sjó- inn. Hann átti kost á því að afla sér menntunar í Gagnfræðaskólanum á Ísafirði. Sú menntun dugði honum út lífið. Heimabyggðin heillaði hann, þar hugðist hann láta verkin tala. Látum Gunnar segja frá í bók sinni ,,Mannlíf í Aðalvík“: ,,Seinni hluta sumars 1932 [þá var hann 19 ára] fékk ég lán hjá Útvegsbankanum á Ísafirði og byggði síðan fiskmóttöku á Látrum. Síðan gat ég með aðstoð Hesteyrarbænda byggt aðra fiskmóttöku þar. Í apríl 1933 þ.e. rétt fyrir páska keypti ég svo m/b Ófeig af Einari Guðfinnssyni í Bolungarvík. Það sama ár keypti ég einnig m/b Elí af Útvegsbankanum á Ísafirði. Árið 1934 pantaði ég svo nýj- an 10 rúmlesta bát með 15 ha Union- vél frá Noregi og kom hann til Ísa- fjarðar með e/s Nóvu í nóvember það ár.“ Þar með taldi Gunnar sig hafa lagt grunninn að væntanlegu fyrir- tæki sem yrði upplyfting fyrir at- vinnulífið í heimabyggðinni. Hug- mynd Gunnars var að gera bátana út frá Látrum yfir sumartímann og verka fiskinn þar en færa þá síðan til Hesteyrar að lokinni sumarvertíð og gera þá út þaðan yfir vetrarmán- uðina. Þar var hafnaraðstaða betri en á Látrum þar sem Aðalvíkin er opin fyrir hafáttum. Gunnar hófst þegar handa með út- gerð og fiskkaup af nágrönnum sínum sumarið 1933. Þegar hann stóð í þess- um stórræðum var heimskreppan svokallaða yfirstandandi og fiskverð á erlendum markaði í lágmarki. Hann varð fyrir því óhappi að einn báturinn, Ófeigur, slitnaði upp á legunni á Látr- um og rak á land og varð ónýtur. Bát- urinn var tryggður hjá Vélbáta- ábyrgðarfélagi Ísfirðinga en Gunnar fékk aldrei greitt nema helming tryggingarfjárins. Þeir sögðu honum að hann gæti hirt vélina í fjörunni en hún reyndist að sjálfsögðu ónýt. Ýmislegt annað fór ekki að óskum í rekstrinum og var svo komið vorið 1935 að fullhuginn ungi varð að gefast upp með áform sín um þróun atvinnu- lífs í heimabyggðinni. Hann stóð þá uppi með skuldir og brostnar vonir. Honum stóð til boða að fara í skulda- skil sem þá var ekki óalgengt ef at- vinnurekstur komst í þrot en þá leið vildi hann ekki fara því þá hefðu vinir hans sem lánuðu honum peninga tap- að þeim. Það var eitt sinn er við í góðu tómi ræddum þennan tíma í lífshlaupi hans að hann sagði að sér hefði fund- ist það sárast ef hann lenti í vanskil- um við vini sína á Hesteyri. Sú varð þó ekki raunin því síðar varð hann svo fjáður að hann gat greitt þeim að fullu. Ég held að það hljóti að hafa verið einsdæmi á þeim tíma að 18 ára ung- lingur gengi inn í lánastofnun og fengi þar fyrirgreiðslu slíka sem Gunnari var veitt í Útvegsbankanum á Ísa- firði. Hann var ekki spurður um aldur og þá var kennitalan ekki komin í um- ferð. Gunnari var ekki öllum lokið þó að illa færi í Aðalvík. Hann skellti sér í síldina til Siglufjarðar og síðan til Djúpuvíkur þar sem hann hitti vænt- anlega eiginkonu. Þá brosti lífið við honum en framtíðin var óráðin. Eftir að Gunnar hafði sest að í Reykjavík og komið sér þar fyrir gekk hann í Slysavarnadeildina Ing- ólf og var kjörinn þar í stjórn. Hann var kjörinn í aðalstjórn SVFÍ árið 1959 og síðan forseti þess 1960 og gegndi hann því starfi í 22 ár. Þegar Gunnar tók við störfum forseta stóð að baki honum mikið lið vaskra slysa- varnafélaga. Slysavarnadeildirnar voru þá orðnar 200 og félagatalan var 30.421 (saga SVFÍ 2001). Það var lengi búið að vera áhuga- mál Gunnars og annarra hollvina SVFÍ að koma upp húsi fyrir starf- semi félagsins í höfuðstöðvunum í Reykjavík. Nokkur barátta hafði staðið við borgarstjórn Reykjavíkur um byggingarlóð fyrir húsið sem end- aði með því að því var ákveðinn staður á Grandagarði. Teikningar voru lagð- ar fyrir landsþing 1958 og var Gunnar kjörinn formaður byggingarnefndar. Húsið var tekið í notkun 1960 og hélt félagið þar tíunda landsþing sitt. Það var samdóma álit kunnugra að ötul forysta Gunnars hefði ráðið miklu um hve bygging hússins tók skamman tíma. Gunnar varð strax stórhuga og öt- ull foringi. Ég minnist þess er við vor- um saman á aðalfundum félagsins er haldnir voru vítt um landið hve hann naut mikillar virðingar sem leiðtogi og hve honum virtist auðvelt að flytja kjarnyrtar ræður sem hvöttu fé- lagana til átaka félaginu til eflingar. Þegar félagið fór að nálgast fimm- tugsaldurinn voru 133 björgunar- sveitir starfandi á landinu. Gunnar taldi það miklu varða að starfsemi fé- lagsins væri ekki eingöngu bundin við björgun manna úr sjávarháska held- ur bæri því að bregðast almennt við slysavörnum bæði á landi og sjó. Fé- lagið gerðist aðili að samtökunum ,,Varúð á vegum“ og lagði ýmislegt til bættrar umferðarmenningar. Gunnar átti hugmyndina að til- kynningaskyldu skipa. Þessi hug- mynd varð að veruleika og var til- kynningaskyldan lengi starfrækt í húsakynnum félagsins á Granda- garði. Þess er vert að geta að ekki er vitað til þess að slíkt kerfi hafi verið tekið upp í öðrum löndum. En það varð til þess að auka öryggi þeirra er sjóinn sóttu. Allt frá stofnun SVFÍ höfðu hinir mætustu menn verið valdir þar til for- ystu og lögðu þeir félaginu til allt hvað þeir gátu. Gunnar Friðriksson skipaði það virðingarsæti lengst allra svo sem áður er getið. Eftir áfallið í Aðalvík lánaðist Gunnari allt sem hann tókst á hendur. Þegar hann var fluttur til Reykjavík- ur hóf hann umboðsverslun sem vatt upp á sig. Hann stofnaði fyrirtækið Vélasöluna með öðrum en varð síðar einn eigandi þess fyrirtækis. Vélasal- an varð fljótt landsfræg fyrir umsvif varðandi innflutning á vélum og um- boðsaðild að skipabyggingum erlend- is. Við áttum þar saman viðskipti um tíma sem skilja eftir góðar minningar. Það var núna rétt fyrir jólin að við Gunnar töluðum saman sem oftar, þá sagði hann mér að nú væri hann bú- inn að selja Vélasöluna og gera upp öll sín mál. Hann væri því tilbúinn til að fara í hinstu ferðina. Hann þurfti ekki lengi að bíða þess upphafs. Góða ferð kæri vinur. Aðstandendum sendi ég einlægar samúðarkveðjur. Guðmundur Guðmundsson. Hjartans þakkir sendum við þeim sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, tengdadóttur, systur og ömmu, RAGNHILDAR GUÐJÓNSDÓTTUR, Skipastíg 11, Grindavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heimahjúkrunar Suðurnesja. Sævar Þórarinsson, Gunnlaugur Sævarsson, Auður Arna Guðfinnsdóttir, Albert Sævarsson, Eydna Fossadal, Steinþóra Sævarsdóttir, Árni Þór Sævarsson, Þórarinn Ólafsson, Guðveig S. Siguðardóttir, Málfríður Guðjónsdóttir, Vilborg Guðjónsdóttir og barnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð, hlýhug, styrk og vináttu við andlát og útfarir elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, SIGURVINS SVEINSSONAR, sem lést mánudaginn 27. desember sl,. og elskulegrar eiginkonu minnar, móður, dóttur, systur, mágkonu og frænku, KRISTRÚNAR SIGURVINSDÓTTUR, sem lést sunnudaginn 9. janúar sl. Jóhanna Karlsdóttir, Leo George, Christopher George, Kristín Sigurvinsdóttir, Hreinn Steinþórsson, Hafsteinn Sigurvinsson, Anna G. Árnadóttir, Jóhanna Svanlaug Sigurvinsdóttir, Þorvaldur Kjartansson, Sigurvin Ægir Sigurvinsson, Bergþóra V. Sigurjónsdóttir, Ólöf Sigurvinsdóttir, Halldór R. Þorkelsson, Dröfn Sigurvinsdóttir, Karitas Sigurvinsdóttir, Tryggvi B. Tryggvason, barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur. Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virð- ingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningar- greinar Kæri Pétur nú ert þú farinn, allt of snemma. Það er undarleg tilfinning að sjá þig ekki framar, eins og þú varst nú skemmtilegur maður. Það er leitun að öðru eins ljúfmenni og þú varst, þú varst alltaf tilbúinn að rétta hjálparhönd þó að þú hefðir öðrum hnöppum að hneppa, og ert búinn að aðstoða foreldra mína mikið í gegnum tíðina. Ég man þegar ég var lítill og að þú komst í heimsókn í Birkihlíð- ina, að þá fannst mér alltaf svo gaman að fara fram í forstofu og máta skóna þína, þeir voru eins og skíði á fótunum mínum, já þú varst stór maður Pétur, og enn stærri í augum lítils drengs. Síðan loksins þegar þið hjónin eruð kominn á þann aldur að fara PÉTUR VALDIMARSSON ✝ Stefán PéturValdimarsson frá Varmadal í Vestmannaeyjum fæddist 20. júní 1942. Hann lést á krabbameinsdeild LSH 19. desember síðastliðinn og var jarðsunginn frá Landakirkju í Vest- mannaeyjum 29. desember. að geta tekið því ró- lega þá breytist sjó- lagið skyndilega og veikindi herja á, fyrst Önnu og svo öllum að óvörum þig líka. Þú, sem stóðst eins og klettur við hlið Önnu, þurftir nú einnig að berjast við sjúkdóm. Þetta var stutt stríð og end- irinn óskiljanlegur, 19. desember og Pétur allur. Þó ég hafi verið hjá þér eftir að þú lagðir af stað í síðustu siglinguna, og ég hafi séð þessa ró og þennan frið sem nú var yfir þessum stóra manni, þá er enn jafn erfitt að skilja hvað Guði lá á að kalla þig upp til sín. Það hljóta að vera brýn verkefni sem hann ætlar þér þar. Það er huggun í harmi að þú sést enn í börnunum þínum, þau bera öll keim af þér, hvert í sínu lagi fjallmyndarleg og sterk. Kæra Anna frænka, það var tekið vel á móti Pétri, við vitum það, og þar bíður hann þín og kall- ar þig til sín, þegar allt verður orðið tilbúið þar fyrir þig. Blessuð sé minning þín, Pétur. Þorgeir og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.