Morgunblaðið - 25.01.2005, Page 43

Morgunblaðið - 25.01.2005, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2005 43 DAGBÓK * Koffín Eykur orku og fitubrennslu. * Hýdroxísítrussýra Minnkar framleiðslu fitu. * Sítrusárantíum Breytir fitu í orku. * Króm pikkólínat Jafnar blóðsykur og minnkar nart. * Eplapektín Minnkar lyst. * L-Carnitine Gengur á fituforða. BYLTING Í FITUBRENNSLU! - ÖFLUGAR BRENNSLUTÖFLUR Perfect bu rner töflu r 90 stk. Hagkvæm ustu kaup in! Söluaðilar: Hagkaupsverslanir, Heilsuhúsið, Hreysti, Lyfjuverslanir og helstu líkamsræktarstöðvar. Perfect burner er því lausnin á því að tapa þyngd á árangursríkan, skynsaman og endingagóðan hátt. SAMTÖK upplýsingatæknifyr- irtækja, í samvinnu við iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið, efna til ráð- stefnu á Nordica hóteli í dag frá klukkan 9.00 til 12.30. Á ráðstefn- unni verður dregin upp mynd af stöðu, tækifærum og framtíðarsýn upplýsingatækniiðnaðarins. Halldór Ásgrímsson forsætisráð- herra setur ráðstefnuna. Wilfried Grommen, framkvæmdastjóri stefnumótunar hjá Microsoft í Evr- ópu og einn æðsti yfirmaður fyr- irtækisins í álfunni, fjallar um mögu- leika Íslands, sóknarfæri og samanburð við önnur lönd. Frans Clemmesen, sviðsstjóri í ráðuneyti vísinda og tækni í Danmörku, fjallar um markvissa uppbyggingu og stefnu Dana í upplýsingatækniiðn- aði. Uppbygging á þessu sviði hefur orðið til þess að iðnaðurinn er orðinn aðalútflutningur Danmerkur. Þá ræðir Ingvar Kristinsson, for- maður Samtaka upplýsingatækni- fyrirtækja, um stöðu upplýs- ingatækniiðnaðar hér á landi. Einnig hyggst hann fjalla um hvort upplýs- ingatæknin sé stóra ónýtta tækifær- ið til öflugrar útrásar sem getur myndað þriðju stoðina í gjaldeyr- istekjum og verðmæta- sköpun þjóð- arinnar. Á ráðstefnunni verða settar fram tillögur um hlutverk upplýs- ingatækni- iðnaðarins í framtíð- arverðmætasköpun og gjaldeyr- istekjum. Pallborðsumræður fara fram að loknum flutningi erinda. Þátttak- endur verða: Ásdís Halla Bragadótt- ir, bæjarstjóri í Garðabæ, Ásgeir Friðgeirsson varaþingmaður, Bjarni Benediktsson þingmaður, Friðrik Sigurðsson, forstjóri TölvuMynda hf., Gunnlaugur Sigmundsson, for- stjóri Kögunar, og Ingólfur Bender, forstöðumaður greiningardeildar Ís- landsbanka. Í pallborðsumræðum verður leitað eftir viðhorfum þátt- takenda til uppbyggingar atvinnulífs í framtíðinni. Ráðstefnustjóri verður Sigmund- ur Ernir Rúnarsson fréttaritstjóri hjá Fréttablaðinu. Aukið mikilvægi Ingvar Kristinsson, formaður Samtaka upplýsingatæknifyr- irtækja, segir mikilvægi upplýs- ingatækni í afkomu og útflutningi nágrannalanda Íslands hafa aukist hratt á liðnum árum og greinin sé orðin ein meginstoð í efnahags- umhverfi margra landa. „Samtök upplýsingatæknifyrirtækja telja mikilvægt að útflutningstekjur vegna upplýsingatækni tífaldist hér á landi fram til ársins 2010 svo að greinin geti orðið raunveruleg stoð í afkomu landsins í framtíðinni. Út- flutningstekjur upplýsingatækniiðn- aðar eru um fjórir milljarðar nú en markmiðið er að útflutningurinn nemi 40–50 milljörðum króna árið 2010. Upplýsingatækni er meðal annars mikilvæg útflutningsgrein annarra Norðurlanda og stendur undir stórum hluta verðmætasköp- unar og nýrra starfa hjá háskóla- menntuðu fólki. Þekkingariðnaður, þar á meðal upplýsingatækni, er því orðinn ein af helstu stoðum atvinnu- lífs nágrannalanda okkar og því mik- ilvægt að vera ekki eftirbátar þeirra,“ segir Ingvar. Ráðstefna | Tækifæri og framtíðarsýn upplýsingatækniiðnaðarins Ingvar Kristinsson Ein meginstoð í efnahags- umhverfi margra landa Moldríkir spítalar AÐ UNDANFÖRNU hafa verið all- miklar umræður um byggingu nýs spítala Háskólasjúkrahúss og er það löngu tímabært enda alveg með ólík- indum hvað Landspítalinn hefur get- að veitt frábæra þjónustu miðað við þrengsli og sífelldar breytingar sem eru rándýrar. En það er ekki nóg að byggja stórt og mikið, ekki má gleyma hinu frábæra starfsliði spít- alans. Það þarf að búa því gott rými og starfsaðstöðu sem á að vera fyrsta flokks. Aldrei er of oft getið þess sem vel er gert, þar sem ég í tvígang hef þurft að reyna þjónustu Landspít- alans. Fyrra skiptið var fyrir sex ár- um þegar eitt barnabarnið fæddist og var vart hugað líf. Strákurinn var skorinn upp skömmu eftir fæðingu, en allt fór á besta veg og er hann hraustur og duglegur strákur í dag. Þökk sé frábæru starfsliði Barna- spítalans sem var alveg einstakt og elskulegt. Seinni kynni mín af veru á spít- alanum voru þegar ég þurfti í aðgerð hjá Guðjóni Birgissyni og starfsliði hans. Reynsla mín af því ferli var sú sama og fyrr var getið, ekkert nema elskulegheit og umhyggja. Eftir að- gerð lá ég á deild 13G og er skemmst frá því að segja að allt starfsfólk deildarinnar var með eindæmum elskulegt og hvetjandi og ávallt með bros á vör, þrátt fyrir að vinnuað- stæður séu ekki sem bestar. Því segi ég að Landspítalinn er moldríkur að eiga svona starfsfólk og í guðs bænum, stjórnendur og stjórnmálamenn, gleymið ekki mannauðnum sem við eigum í starfs- fólkinu. Um leið og þið byggið stórt, styrkið þá stoðir og starfsaðstöðu ykkar frábæra starfsfólks. Kær kveðja til starfsfólks deildar 13G og heimahjúkrunar. Sævar,010647-2749. Auglýsing frá póstinum Í sjónvarpinu birtist iðulega auglýs- ing frá póstinum sem endar á því að þar sést stór pakki og í auglýsing- unni stendur: „Allur pakkinn.“ Hvað eiga þeir við með þessari auglýs- ingu? Eru þeir að meina að póst- urinn komi öllum pökkum til skila? Og eru þeir að segja að það geri hin- ir ekki? Torfi Ólafsson. Lyklakippa fannst við Rauðavatn BÍLLYKLAR og húslyklar á kippu fundust við Rauðavatn sl. laugardag. Upplýsingar í síma 661 1429. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. O-O Be7 6. He1 b5 7. Bb3 O-O 8. c3 d5 9. exd5 Rxd5 10. Rxe5 Rxe5 11. Hxe5 c6 12. g3 Bd6 13. He1 Dd7 14. d3 Dh3 15. He4 Rf6 16. Hh4 Df5 17. Rd2 He8 18. Re4 Rxe4 19. Hxe4 Hxe4 20. dxe4 Dxe4 21. Bc2 De7 22. Bg5 f6 23. Be3 Be6 24. Df3 Dd7 25. Hd1 Hd8 26. Be4 Bxa2 27. Bb6 Bb3 28. Hd4 c5 29. Bxc5 De6 Staðan kom upp í A-flokki Corus skákhátíðarinnar sem fram fer þessa dagana í Wijk aan Zee í Hollandi. Judit Polgar (2728) hafði hvítt gegn Peter Svidler (2735). 30. c4! og svartur gafst upp enda verður hann manni undir eftir 30...Bxc4 31. Hxc4. Þetta mót er það fyrsta sem Polgar tekur þátt í síðan í nóvember 2003 þegar hún tefldi á móti í Benidorm. Ástæða þessa er sú að hún vildi geta sinnt barninu sínu sem fæddist árið 2004. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. Í UPPHAFI tónleika Kammermúsíkklúbbs- ins í Bústaðakirkju á sunnudagskvöldið var tilkynnt að eitt af atrið- um efnisskrárinnar, Veiðikvartett Mozarts, sem er í B-dúr K 458, félli niður. Í staðinn yrði flutt elegía eftir Rossini, Crisantemi strengjakvartett í ein- um þætti. Því næst gekk tónlistarfólkið inn í salinn og voru það fiðluleikararnir Greta Guðnadóttir og Zbign- iew Dubik, Jónína Auð- ur Hilmarsdóttir víólu- leikari og Hrafnkell Orri Egilsson sellóleik- ari. Síðar bættist Þór- unn Ósk Marinósdóttir víóluleikari í hópinn. Bæði verkin fyrir hlé, fyrrnefndur strengja- kvartett Rossinis og sjaldheyrður (hér á landi) strengjakvintett Beethovens, í C-dúr op. 29, ollu nokkrum von- brigðum; samhljóm- urinn í Rossini var ekki alltaf tær og fyrsta fiðl- an í Beethoven (Gréta) var heldur mjóróma og stundum ónákvæm. Rétta stemmningin ríkti þó í Rossini, sem var þrunginn trega, en dramatísku andstæðurnar voru ekki nægilega skýrt settar fram í verki Beethovens. Hægi þátt- urinn var reyndar sérlega fallega mótaður með áhrifamiklum þögnum en hinir kaflarnir voru á tíðum mátt- lausir, jafnvel fálmkenndir þegar verst lét. Strengjakvartett í G-dúr op. 111 eftir Brahms, sem var lokaatriði tón- leikanna, var á ýmsan hátt betri. Fimmmenningarnir fóru reyndar of- fari í fyrsta þættinum, sem var spilaður með þvílíkum látum að það var eins og að hlýða á fimm einleikara í keppni um það hver gæti haft hæst. Vissu- lega er þetta glaðleg, jafnvel galgopaleg tón- list, en yfirvegun þarf samt að vera til staðar til að viðkvæmur sam- hljómurinn bjagist ekki. Til allrar ham- ingju voru hinir kafl- arnir áhrifameiri, sér- staklega hægi þátturinn sem var fluttur af stakri inn- lifun og tæknilegum yfirburðum; einnig fjörlegur lokaþátt- urinn, en þar var upp- byggingin sannfær- andi og allskonar blæbrigði auðheyrð. Almennt talað voru þetta misjafnir tón- leikar. Þeir voru þó alls ekki alltaf leið- inlegir; meiriparturinn af Brahms var nokkuð góður og rétta and- rúmsloftið a.m.k. var til staðar í Rossini. Þegar það var uppi á teningnum gerðu tæknilegar mis- fellur, bæði hjá einstaka hljóðfæra- leikurum og í samspilinu í heild, minna til en ella. Oftast rétta stemmningin TÓNLIST Bústaðakirkja Tónlist eftir Rossini, Beethoven og Brahms. Flytjendur voru Greta Guðna- dóttir, Zbigniew Dubik, Jónína Auður Hilmarsdóttir, Hrafnkell Orri Egilsson og Þórunn Ósk Marinósdóttir. Sunnudagur 23. janúar. Kammermúsíkklúbburinn Jónas Sen Johannes Brahms Ludwig van Beethoven MENNING KVIKMYNDASAFN Íslands sýnir í kvöld kl. 20 myndina Andrei Rublyov frá árinu 1969 eftir rússneska kvikmynda- gerðarmanninn Andrei Tarkofsky. Myndin er þriðja og síðasta kvikmyndin sem rithöfundurinn Thor Vilhjálmsson valdi að þessu sinni á dagskrá Kvikmynda- safnsins, sem uppáhaldskvikmyndir sínar. Myndin Andrei Rublyov sýnir hinn fræga íkonmálara Rússa, Rublyov, glíma við list sína í stríðshrjáðu Rússlandi 15. aldar en á þessum tíma var landið vígvöllur endalausra átaka á milli arftaka krún- unnar auk þess að vera þjakað af innrásum tatara. Myndin er á rússnesku með enskum texta og verður end- ursýnd laugardaginn 29. janúar kl. 16. Sýningar verða í sýningarsal Kvikmyndasafnsins í Bæj- arbíói, Strandgötu 6, Hafnarfirði. Miðasala verður opnuð hálftíma fyrir sýningu og miðaverð er 500 kr. Andrei Rublyov hjá Kvikmyndasafninu Thor Vilhjálmsson er aðdáandi Rublyovs.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.