Morgunblaðið - 25.01.2005, Page 52

Morgunblaðið - 25.01.2005, Page 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Lágmúla og Smáratorgi opið kl. 8-24 alla daga MJÓAFJARÐARHREPPUR hefur í Lögbirtingablaðinu auglýst tillögu að deiliskipu- lagi sem gerir ráð fyrir átta nýjum íbúðarhúsalóðum við Þinghólsveg og einni frí- stundalóð við Brekku. Þess má geta að í firð- inum er ársbú- seta í tíu hús- um en íbúar í hreppnum eru 38 talsins. Fjölgaði þeim um einn á síðasta ári þegar barn kom í heiminn. Sigfús Vilhjálmsson, oddviti Mjóafjarðarhrepps, segir að það sé ekki svo gott að kaup- endur séu komnir að öllum þessum lóðum. Hreppurinn sé einungis að uppfylla lög með því að hafa nægt framboð af lóðum. Ekki sé búið að úthluta neinni lóð en hins vegar sé ekkert húsnæði á lausu. Und- anfarin þrjú ár hafa jafnmörg hús verið reist í hreppnum en auk tíu húsa með ársbúsetu hefur verið búseta á sumrin í sex húsum. „Þurfum að fá göt í gegn- um þessi fjárans fjöll“ „Það er ágætt að hafa aug- lýst þessar lóðir. Ef einhver sækir um þá höfum við eitt- hvað upp á að bjóða. Við vitum aldrei hvað getur gerst,“ segir Sigfús, sem telur brýnasta málið á miðsvæði Austurlands að bæta sam- göngur milli fjarðanna. „Við þurfum að fá göt í gegnum þessi fjárans fjöll. Þá myndu samskipti fólks og mannlíf gjörbreytast,“ segir Sigfús, sem er stjórn- armaður í nýstofnuðum sam- tökum, Samgöngum, sem berjast fyrir jarðgangagerð á Miðausturlandi. Fyrir Mjóafjarðarhreppi liggur að sameinast Fjarða- byggð. Kosningar um það fara fram í vor, að tillögu sameiningarnefndar félags- málaráðuneytisins. „Hvort sem okkur líkar betur eða verr, þá verðum við samein- uð,“ segir Sigfús Vilhjálmsson oddviti. Níu lóðir auglýstar í Mjóafirði Hreppurinn einungis að uppfylla lög Sigfús Vilhjálmsson LEIÐANGUR var gerður út frá Siglufirði og Ólafsfirði á sunnudag til að sækja útigangsfé í Héðinsfirði. Fyrst var talið að 22 kindur væru þar á hag- leysu í firðinum en í ferðinni fundust þrjár til við- bótar. Tíu kindur reyndust koma frá sama bænum í Ólafsfirði en hinar voru af fjórum bæjum í Fljót- um. Farið var með sauðféð sjóleiðina heim. Hér hafa Hafliði Jónsson, Jóhannes Ríkharðsson og Þor- steinn Þorsteinsson náð taki á nokkrum kindum í Héðinsfirði./19 Morgunblaðið/Örn Þórarinsson 25 kindur sóttar í Héðinsfjörð HITAMÆLINGAR norður af Ís- landi gefa til kynna að búast megi við mildu veðurfari hér á landi næstu árin, að mati Páls Bergþórs- sonar veðurfræðings og fyrrverandi veðurstofustjóra. Páll segir að hita- stigið á Svalbarða hafi undanfarin ár verið heldur hærra en tíðkaðist í hlý- indaskeiðinu frá 1930 til 1960. Síð- astliðið ár reyndist hið næsthlýjasta sem komið hefur á Jan Mayen í 80 ár. Kemur þetta heim og saman við mælingar verkfræðistofnunar bandaríska sjóhersins sem fylgist m.a. með yfirborðshita sjávar um allan heim. Á heimasíðu stofnunar- innar má sjá nýlega mynd sem sýnir m.a. óvenju hlýjan yfirborðssjó í haf- inu sunnan Svalbarða. Páll segir að í ljósi þessa þyki honum upplýsing- arnar sem fást með hitamælingum gervihnatta ekki ótrúlegar. Vindar miðla hita úr sjónum Páll segir að hlýindin í norðurhaf- inu stafi m.a. af því að óvenjumikil sunnanátt austur undan Íslandi hafi borið hlýjan sjó norður í höf. Hlýind- in í hafinu norðan Íslands koma væntanlega til með að hafa áhrif á loftslag á norðurhveli nokkuð lengi, að mati Páls. „Mér sýnist að það geti orðið eftirverkanir á norðurhveli jarðar næstu 5–7 árin. Fyrst og fremst af því að sjórinn heldur svo vel hita sínum. Vindar eiga eftir að blása um þetta svæði ár eftir ár og bera þennan hita um allt norður- hvelið, smátt og smátt. Þess vegna er mögulegt að spá útfrá þessu.“ Páll bendir á að koltvísýringur í andrúmsloftinu sé nú meiri en hann hefur nokkru sinni mælst og fari vaxandi. Þykir honum ískyggilegt hvað frávik fyrir tilverkan mannsins eru langt gengin, að því er virðist. Það stefni allt í sömu áttina og virð- ist ósköp hlýlegt fyrir Íslendinga. „Að vísu er að líkindum núna hlý- indaskeið hérna norðurfrá. Hitastig- ið gengur upp og niður þar, óháð gróðurhúsaáhrifum. Við erum á toppnum svo þetta leggst saman núna. Öfugt við það sem var á haf- ísárunum þegar kuldinn norðurfrá vann á móti gróðurhúsahlýnuninni.“ Páll segir að búast megi við því að hitastigið á norðurslóðum geti farið eitthvað niður á við, en það virðist ekki ætla að gerast næstu árin. Hann telur að álykta megi að næstu ár verði að jafnaði hlý, svipað og á góðviðrisskeiðinu 1930–1960. Vissu- lega hafi komið nokkur köld ár á því tímabili og önnur hlýrri inn á milli. „Við höfum nú fengið tvö mjög hlý ár, þau síðustu. Við getum ekki alveg búist við því saman áfram. En það verður líklega áfram milt loftslag. Hve lengi er ekki auðvelt að segja.“ Hlýindi norðan Íslands gefa fyrirheit um milt loftslag V77D  ;0 & <    $%0  0 7 WW111;5 "@WRV8,GHW " :99 ; '9<;98  & 9##&9;& X YH X X X Z YH Z Z Z ZYHZ   #  $      B   2 $  % Ætla má að næstu ár verði að jafnaði svipuð og á hlýskeiðinu 1930–1960 TÖLUVERÐ umskipti hafa orðið í veðurfarinu að undanförnu. Eft- ir langan kuldakafla eru hlýindi um mestallt land. Hitinn fór hæst í 12 gráður á Sauðanesvita og á Dalvík í gær. Jafnvel á hálendinu var frostlaust um miðjan dag í gær. Að sögn veðurfræðings á vakt á Veðurstofunni má fastlega gera ráð fyrir að snjó leysi verulega á láglendi miðað við þær hitatölur sem eru í kortunum næstu daga. Veðurstofan spáir suðvestan 8– 13 metrum á sekúndu á morgun. Það verður skýjað og súld eða dálítil rigning með köflum á Suð- vestur- og Vesturlandi. Hiti á bilinu 1 til 8 stig. Að sögn veðurfræðings má bú- ast við mildu og hlýju veðri næstu daga með hægri suðvestan- eða vestanátt. Súld eða rigning verður vestan til á landinu en bjart með köflum austanlands og þurrt. Áframhaldandi hlýindi næstu daga VINDHVIÐA feykti strætisvagni af hálum vegi og inn í garð í Kjarrholti á Ísafirði um fimmleytið í gærdag. Að sögn lögreglunnar á Ísafirði urðu engin meiðsl á fólki. Ekki urðu held- ur miklar skemmdir vegna þessa slyss, hvorki á strætisvagninum né á lóðinni. Að sögn lögreglunnar var fljúgandi hálka í hverfum bæjarins í gær. Strætisvagn endaði för í garði

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.