Morgunblaðið - 19.02.2005, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2005 57
MENNINGDAGBÓK
Kl. 10
Fjölskyldu- og húsdýragarð-
urinn: Vetrarratleikur. Aðgangs-
eyrir börn: 350 kr., fullorðnir 450
kr.
Kl. 12
Hallgrímskirkja: Pétur og úlf-
urinn. Örn Árnason leikari og
Mattias Wager orgelleikari flytja
hið ástsæla verk Pétur og úlfinn.
Aðgangseyrir 800 kr. fyrir full-
orðna en ókeypis fyrir börn.
Perlan: Þjóðahátíð Alþjóðahúss-
ins – Fjölbreytt menning og mann-
líf. Þátttakendur á Þjóðahátíð eru
30 í ár, þátttökuþjóðir eru 22 auk
þess sem ýmsir sem starfa að mál-
efnum innflytjenda kynna starf-
semi sína.
Ráðhús Reykjavíkur: Vestur-
farasetrið á Vetrarhátíð. Sýning
sem lýsir uppbyggingu setursins á
Hofsósi.
Kl. 12.30
Listasafn Reykjavíkur – Hafn-
arhúsi: Kokkakeppni sælkerahátíð-
arinnar Food & Fun í porti Hafn-
arhússins. Hver verður Iceland
Naturally kokkur ársins 2005?
Kl. 13
Gerðuberg: Á kvöldhimni. Fjöl-
breytt dagskrá um Ívar Björnsson
frá Steðja í Borgarfirði. M.a. verð-
ur lesið úr ritverkum hans, Sigrún
Gestsdóttir syngur lög eftir Gunn-
ar Reyni Sveinsson sérstaklega
samin við ljóð Ívars en undirleikari
er Símon Ívarsson gítarleikari.
Þorvaldur Jónsson harmonikku-
leikari ásamt dætrum flytur lög
Þorvaldar við ljóð Ívars, Gerðu-
bergskórinn syngur nokkur lög.
Kl. 14
Söngskólinn í Reykjavík, Snorra-
braut 54: Upplyfting í skammdeg-
inu. Einsöngstónleikar burtfar-
arnema. Hulda Dögg Proppé
sópran og Elín Guðmundsdóttir
píanó flytja Ljóðaflokkinn Siben
Frühe Lieder eftir Alban Berg.
Kl. 14.30
Laugavegurinn: Götusöngur –
Blikandi stjörnur.
Sönghópurinn Blikandi stjörnur
syngur valinkunna slagara ásamt
hljómsveit á Laugaveginum.
Söngnum lýkur við Hitt húsið.
Kl. 15
Háskólabíó: Sinfóníuhljómsveit
Íslands frumflytur tónverk Barða
Jóhannssonar við kvikmyndina
Häxan. Häxan þykir afar athygl-
isverð kvikmynd, en hana gerði
Benjamin Christensen árið 1922.
Myndin fjallar um galdraofsóknir,
nornir og djöflatrú og má með
sanni segja að hér sé á ferðinni ein-
stæður viðburður kvikmyndalistar
og tónlistar.
Í framhaldi af tónleikunum er
málþing á vegum Háskóla Íslands.
Hvalstöðin við Ægisgarð: Karl-
menn til prýði. Dagný Guðmunds-
dóttir opnar sýningu sína í Hval-
stöðinni við Ægisgarð í
Reykjavíkurhöfn – ofan í lest á
skipi.
Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins:
Fimmtán, bráðum tuttugu. Ungt
fólk og leikhús – ólgandi suðupott-
ur.
Kl. 15:30
Ráðhús Reykjavíkur: Böðvar
Guðmundsson rithöfundur segir
frá vesturfarasögum sínum og leik-
arar frá Leikfélagi Reykjavíkur
leika brot úr sýningunni Hýbýli
vindanna og lesa úr bréfum vest-
urfara.
Söngskólinn í Reykjavík, Snorra-
braut 54: Upplyfting í skammdeg-
inu. Einsöngstónleikar burtfar-
arnema. Dóra Steinunn Ármanns-
dóttir messó-sópran og Kolbrún
Sæmundsdóttir píanó flytja Ljóða-
flokkinn Frauen-Liebe und Leben
eftir Robert Schumann.
Kl. 16
Gallerí Tukt – Hinu húsinu: Erna
Þorbjörg Einarsdóttir opnar einka-
sýningu á verkum gerðum með
blandaðri tækni. Sýningin stendur
til 5. mars.
Hitt Húsið: Vaxtarbroddar í
rokkflóru landsins. Hljóðbrot frá
vaxtarbroddunum í rokkflóru
landsins. Fjöldi upprennandi hljóm-
sveita spilar og gefur áhugasömum
rokkunnendum innsýn í hina ýmsu
strauma og stefnur rokksenunnar í
Reykjavík nútímans.
Kl. 16.30
Skautahöllin í Laugardal: Ísálf-
arnir sýna glæsilegan skautadans í
Skautahöllinni.
Kl. 17
Ráðhús Reykjavíkur: Vest-
urfarasetrið á Vetrarhátíð. Skag-
firsk söngskemmtun. Karlakórinn
Heimir, Álftagerðisbræður o.fl.
skemmta Reykvíkingum eins og
þeim einum er lagið.
Söngskólinn í Reykjavík, Snorra-
braut 54: Upplyfting í skammdeg-
inu Svanlaug Árnadóttir messó-
sópran og Iwona Jagla píanó flytja
Ljóðasöngva eftir Richard Strauss.
Skautahöllin, Laugardal:
Skautadiskó – allir velkomnir.
Skautar leigðir á staðnum.
Kl. 17.30
Háskólabíó: Menning og galdrar.
Fræðimenn H.Í. leggja út af mynd-
inni Häxan í stuttum erindum að
sýningunni lokinni. Torfi H. Tul-
inius talar um rætur galdraofsókna
í miðaldamenningu, Terry Gunnell
um galdra og þjóðtrú, Magnús
Rafnsson um galdra á Íslandi fyrr á
öldum og Dagný Kristjánsdóttir
um nornaofsóknir frá feminísku
sjónarhorni.
Kl. 18
Ráðhússtjörnin: Dansi, dansi,
dúkkan mín eftir Þorbjörgu Þor-
valdsdóttur sýnt í glugga.
Kl. 19.30
Skautahöllin, Laugardal: Ís-
hokkí. Stórleikur milli Skauta-
félags Akureyrar og Skautafélags
Reykjavíkur.
Fjölskyldu- og húsdýragarð-
urinn: Opnað fyrir kvöldgesti. Ell-
en Kristjánsdóttir og Eyþór Gunn-
arsson flytja efni af nýjum
sálmadiski Ellenar í veitingatjald-
inu. Ljúfar veitingar.
Kl. 20
Laugardalslaug: Sundeinvígi í
Laugardalnum. Allir bestu sund-
menn Íslands taka þátt í mótinu.
550 keppendur, þar af 35 frá Dan-
mörku. 25 félagslið. Mette Jak-
obsen 10-faldur heims- og Evr-
ópumeistari. Chris Christensen
6-faldur Norðurlandameistari
2000.
Kl. 22
Nasa við Austurvöll: Hinir ást-
sælu Spaðar leika. Aðgangur kr.
1000. Dansleikir Hinna ástælu
Spaða hafa verið vel sóttir und-
anfarin ár og hafa færri komist að
en vildu.
Iðnó: Grímudansleikur í Vetr-
arhöll. Hver leynist bak við grím-
una? Vegleg verðlaun í boði fyrir
hugmyndaríkasta búninginn.
Hljómsveitin Bardukha leikur fyrir
dansi frá 23–01. Þá tekur við Andr-
ea Jónsdóttir skífuþeytari og
stjórnar veislunni af sinni alkunnu
snilld.
Dagskrá Vetrarhátíðar
Laugardagur 19. febrúar
BERGUR Thorberg mynd-
listarmaður hefur opnað
sýningu á nýjum kaffiverk-
um á Kaffi París, en hún
stendur þar í nokkrar vik-
ur.
Bergur, sem málar mynd-
ir sínar með kaffi og einnig
með kaffi- og akrýlblöndu,
kveðst hafa rambað á þessa
aðferð fyrir slysni þegar
hann var að vinna blek- og
tússteikningar. „Ég var að
vinna þarna seint um kvöld
og sullaði óvart kaffi yfir
teikningarnar. Ég fór heim
alveg hundfúll yfir að hafa
eyðilagt teikninguna, en
þegar ég kom aftur daginn
eftir sá ég að það voru ein-
hverjir töfrar í þessu,“ seg-
ir Bergur, en fyrir ellefu ár-
um, þegar hann var
búsettur úti í Portúgal, fór
hann að vinna meira með
kaffimálninguna og tileinka
sér þennan nýja stíl. „Fljótlega upp
úr því fór ég að vinna allt sem ég
mála á hvolfi án þess að ég snerti
pappírinn sem verkin eru unnin á.
Síðan sný ég verkunum við þegar
vinnuferlinu er lokið.“ Bergur
kveðst með þessari aðferð koma að
listinni frá öðru sjónarhorni og
jafnvel fá aðra útkomu ef hann er
heppinn.
Bergur verður á staðnum milli
kl. 13 og 15 næstu dagana og mun
sýna gestum hvernig hann vinnur
myndirnar. „Þá verð ég líka í Perl-
unni á sunnudag milli kl. 15 og 19 á
lokaathöfn Vetrarhátíðar, þar sem
ég sýni fólki hvernig myndirnar
eru unnar.“
Sýning Bergs Thorberg í Café
París er sölusýning og geta gestir
tekið með sér myndirnar strax ef
þeir vilja kaupa verk.
Kollvörpun með
kaffi á Café París
60 ÁRA afmæli. Í dag, 19. febrúar,er sextug Ingibjörg Stefáns-
dóttir, hjúkrunarfræðingur, Eyrar-
holti 2, Hafnarfirði. Hún er að heiman
í dag.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
50 ÁRA afmæli. Í dag, 19. febrúar,er Guðrún Linda Örlaugs-
dóttir 50 ára. Hún er að heiman á af-
mælisdaginn.
STUTT upplyfting í skammdeg-
inu,“ er yfirskrift fernra tónleika
dagskrár sem Söngskólinn í
Reykjavík stendur fyrir í samstarfi
við Vetrarhátíð.
Hér er um að ræða ferna „litla“
tónleika, rúman hálftíma að lengd
hverja, sem fjórar ungar söng-
konur stofnuðu til, en þær eru all-
ar í námi í háskóladeild Söngskól-
ans.
Fyrstu tónleikarnir fóru fram í
hádeginu í gær og söng þar Regína
Unnur Ólafsdóttir sópran við und-
irleik Kristins Arnar Kristinssonar.
Í dag kl. 14 syngur Hulda Dögg
Proppé sópran við undirleik Elínar
Guðmundsdóttur um „Ást nær og
fjær,“ austurrísk og íslensk ást-
arljóð. Kl. 15.30 syngur svo Dóra
Steinunn Ármannsdóttir mezzó-
sópran við undirleik Kolbrúnar
Sæmundsdóttur píanóleikara ljóða-
flokkinn Frauen-Liebe und Leben
eftir Robert Schumann. Að lokum
syngur svo Svanlaug Árnadóttir
mezzó-sópran Ljóðasöngva eftir
Richard Strauss við undirleik
Iwonu Jagla píanóleikara kl. 17.
Vetrardísir Söngskólans í Reykjavík, þær Regína Unnur Ólafsdóttir, Dóra
Steinunn Ármannsdóttir, Svanlaug Árnadóttir og Hulda Dögg Proppé.
Söngperlur í Söngskólanum á Vetrarhátíð
Tónleikarnir fara allir fram í Tón-
leikasal Söngskólans, Snorrabúð,
Snorrabraut 54.
OPIÐ málþing um galdra verður
haldið í sal 2 í Háskólabíói kl. 17.30
í dag í kjölfar sýningar á þöglu
kvikmyndinni Häxan við undirleik
Sinfóníuhljómsveitar Íslands á tón-
list Barða Jóhannssonar. Þar munu
fjórir fræðimenn fjalla um ýmsar
hliðar á þessu merkilega menning-
arfyrirbæri. Torfi H. Tulinius, pró-
fessor í frönsku og miðaldabók-
menntum, fjallar um breytilega
afstöðu miðaldamanna til galdra og
hvernig smám saman einn angi hins
yfirnáttúrulega, galdrar, verður
fyrir vaxandi fordæmingu. Þá mun
Terry Gunnell, dósent í þjóðfræði,
fjalla um nornir á Íslandi og segja
frá sérstöðu gandreiða hér á landi
miðað við nágrannalöndin. Magnús
Rafnsson, forsvarsmaður Stranda-
galdurs og meistaranemi við Há-
skóla Íslands, fjallar síðan um kukl
á Íslandi fyrr á öldum og veltir því
fyrir sér hvers vegna það voru
fremur karlar sem voru ofsóttir
hérlendis en konur erlendis og loks
mun Dagný Kristjánsdóttir, pró-
fessor í íslenskum bókmenntum,
fjalla um nornaofsóknir frá fem-
ínísku sjónarmiði og skýra hvernig
sá ótti við konur og kvenleika sem
braust út í nornaofsóknunum end-
urspeglaði trúarlegt og þekking-
arlegt óöryggi. Nornirnar voru not-
aðar til að staðfesta það endanlega
að djöfullinn væri til.
Galdraþing í Háskólabíói
VESTURFARASETRIÐ á Hofsósi
býður til ekta skemmtikvölds að
skagfirskum sið í Salnum kl. 20 í
kvöld í tengslum við heimsókn
Vesturfarasetursins á Vetrarhátíð í
Reykjavík. Þar munu koma fram
gleðigjafarnir Karlakórinn Heimir,
Álftagerðisbræður, Sigrún Hjálm-
týsdóttir, Anna Sigríður Helgadótt-
ir og Aðalheiður Þorsteinsdóttir,
auk kanadíska tenórsins Peters
Johns Buchans, en kynnar verða
bræðurnir Óskar og Pétur Péturs-
synir frá Álftagerði.
Skagfirskt skemmtikvöld í Salnum
BÖÐVAR Guðmundsson rithöf-
undur segir frá vesturfarasögum
sínum í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag
kl. 15.30 á vegum Vetrarhátíðar í
Reykjavík. Þá munu leikarar frá
Leikfélagi Reykjavíkur leika brot
úr sýningunni Hýbýli vindanna og
lesa úr bréfum vesturfara.
„Ég mun fjalla um hvernig bæk-
urnar mínar urðu til, hvernig ég
komst á sporið, hvernig ég fékk
hugmyndina og hvernig ég síðan
vann úr því. Þá mun ég fjalla um
kynni mín af þessu fólki fyrir vest-
an, sem eru afkomendur Íslending-
anna sem fluttu,“ segir Böðvar, sem
var upphaflega fenginn til að kenna
við háskóla í Victoria-borg í British
Columbia í Kanada. „Þar komst ég
fyrst í kynni við þetta fólk, sem eru
afkomendur íslensku landnemanna.
Einnig fór ég til Winnipeg og
kynntist þar fólki sem talaði ís-
lensku ennþá og mér fannst það
mjög skemmtilegt. Þá minntist ég
þess að langafi minn og langamma
fluttust vestur til Kanada á sínum
tíma og skrifuðu mikið af bréfum til
afa míns og þeirra börn svo til föð-
ur míns, meðan bæði lifðu. Bréfin
frá þeim voru til og þegar ég kom
heim fór ég að lesa þau og þar með
var ég seldur.“
Böðvar mun einnig flytja lengri
fyrirlestur á námskeiði um vestur-
farana hjá Mími símenntun 23.
febrúar nk.
Sögur vesturfara í Ráðhúsinu