Morgunblaðið - 01.03.2005, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. MARS 2005 25
MINNINGAR
Undurfögur glitský
birtust á austurhimni í
dagrenningu 18. febr-
úar, svo mögnuð að ég
náði mér í myndavél til
að festa fyrirbærið á
filmu frá ýmsum sjón-
arhornum og var nokkurn tíma á leið
í vinnuna morguninn þann. Útvarpið
skýrði frá banaslysi. Vélsleðamaður
á leið í Landmannahelli hafði farið
fram af hengju í slæmu skyggni um
nóttina. Mér datt Baddi í hug, vissi
að hann átti þar kofa ásamt fleirum,
hratt þó frá mér hugsuninni, það
væru svo margir á ferðinni og hann
með varkárustu mönnum. Daginn
eftir gekk ég á Helgafell, rifjaði upp
jeppaferðir með Badda forðum tíð á
þeim slóðum, naut veðurblíðunnar,
renndi síðan framhjá æskuheimili
hans á Köldukinn í Hafnarfirði, og
síðan til systur minnar og mágs á
Hraunbrúninni. Þau keyptu Dag-
blaðið, þar var fréttin, nísti hjartað,
Baddi nafngreindur.
Það er nokkuð merkilegt þegar
menn bindast vinarböndum ungir,
þá er eins og þráðurinn slitni ekki þó
að ár og dagar líði og menn hittist
sjaldan. Þá menn hittast byrja sam-
tölin eins og hist hefðu í gær. Baddi
var rúmu ári eldri, skátadrengir báð-
ir, þó í sitt hvorum flokknum væru,
nágrannar. Svo fékk Baddi bílprófið
– á afmælisdaginn og búinn að festa
sér Willysinn nokkru áður – og litlu
síðar Fordinn – G-1414 – aðaltrylli-
tækið. Og það var ekið og ekið, og
slegið saman í bensín og ekið, frels-
iskennd, bíóhús borgarinnar þrædd
og rúnturinn á eftir fram eftir nóttu,
síðan út á Álftanes á leiðinni heim í
Fjörðinn, með Kanann suðandi nýj-
BJARNI
SVEINSSON
✝ Bjarni Sveinssonfæddist á Akra-
nesi 19. febrúar
1949. Hann lést af
slysförum 17. febr-
úar síðastliðinn og
var jarðsunginn frá
Hallgrímskirkju 28.
febrúar.
ustu lögin á MW, lífs-
gátan krufin til mergj-
ar fram undir morgun,
horft á dagrenninguna.
Og svo var það Búðin
og Hlégarður, og hvað
þeir nú hétu þeir stað-
ir, Jaðarsmót og Húsa-
fell, að ógleymdum
stelpunum í Efstasund-
inu. Stutt gaman
skemmtilegt. Rúnir
minninganna eins og
„graffiti“ á sálinni. Og
svo fórum við hvor sína
leið. Ný ævintýri tóku
við.
Það var merkilegt að kynnast
Badda og finna hve heilsteyptur og
vel mótaður æskumaður var þar á
ferð, með ákveðnar skoðanir, heil-
brigða og bjarta lífssýn, fylginn sér
og traustur, vinnusamur og ósérhlíf-
inn með afbrigðum, og alveg harð-
ákveðinn í því hvað hann vildi þegar
fram liðu stundir. Og hann lét
drauminn rætast. Stóð við sitt. Það
má kannski vera nokkur huggun
harmi gegn á erfiðri stund, eigin-
konu, börnum og ástvinum öllum, að
hafa átt margar góðar stundir með
góðum dreng.
Hann unni íslenskri náttúru, frelsi
og kyrrð víðáttunnar, og það ekki
síst í vetrarbúningi, hátt uppi til
fjallanna. Fögur glitský eru greypt í
huga, ljósbrot sólar í ískristöllum
heiðhvels. Far í friði. Blessuð sé
minning þín.
Samúðarkveðjur,
Guðmundur Ómar Friðleifsson.
Elsku Bjarni frændi. Þó svo að ég
sé búin að fá að kveðja þig með kossi
á ennið vil ég enn ekki trúa því að þú
verðir ekki staddur í eldhúsinu í
Þernunesinu við að matbúa eins og
þér einum var lagið næst þegar ég
kem í heimsókn. Ég var fljót að
grípa þá huggun sem yngsti gullmol-
inn þinn, hún Inga, sagði við mig:
„Ásta frænka, ég held að pabbi hafi
dáið glaður, því hann var að gera það
sem honum þótti svo vænt um að
gera.“ Allir sem þekktu þig vissu að
á þessum slóðum sem þú kvaddir
þennan heim var þitt annað lögheim-
ili. Elsku frændi ég þakka fyrir þau
ár sem við öll fengum að hafa þig að
láni, takk fyrir allt og allt.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Elsku Sigrún, Lena, Eva, Baddi,
Inga og litli Viktor Orri afastrákur
megi góður Guð vera með ykkur og
styrkja á þessum erfiðu tímum.
Kveðja
Ásta frænka og fjölskylda
í Köldukinninni.
Knúinn áfram af
miklum söknuði set ég
hér á blað nokkrar lín-
ur í minningu um vin
minn og félaga, Jó-
hannes Kr. Guðmundsson sem and-
aðist 3. febrúar sl. eftir áralanga
baráttu við erfiðan lungnasjúkdóm.
Manni bregður alltaf þegar mað-
ur fréttir af láti góðs vinar eða ná-
ins ættingja. Fréttirnar um andlát
Jóhannesar komu þó ekki alveg að
óvörum þar sem hann var búinn að
liggja inni á Landakotsspítala frá
því sl. sumar vegna sjúkdómsins
sem dró hann til dauða.
Fyrir fáum árum hafði hann
gengist undir lungnaskurð, vegna
lungnaþembu, einn fárra Íslend-
inga sem slík aðgerð hefur verið
gerð á hér á landi. Eftir þá aðgerð
var Jóhannes vistaður á Reykja-
lundi til endurhæfingar og dvaldi
hann þar langdvölum. Þetta olli því
að hann tók miklu ástfóstri við
staðinn og eignaðist þar gott vina-
fólk.
Jóhannes var mikill fé-
lagshyggjumaður og varð hann
hvatamaður að stofnun Samtaka
lungnasjúklinga ásamt eiginkonu
sinni Guðlaugu Guðlaugsdóttur og
JÓHANNES KR.
GUÐMUNDSSON
✝ Jóhannes Kr.Guðmundsson
fæddist á Raufar-
höfn hinn 13. októ-
ber 1934. Hann lést á
Landspítalanum í
Landakoti hinn 3.
febrúar síðastliðinn
og var útför hans
gerð frá Fossvogs-
kirkju 15. febrúar.
var hann kosinn fyrsti
formaður félagsins.
Voru þau hjónin mjög
ötul í þessu starfi og
stóðu fyrir fjölda-
mörgum kynningar-
og fræðslufundum, þar
sem tilkvaddir voru
þekktir fyrirlesarar á
þessu sviði og skipst á
reynslusögum sjúk-
linga. Þau gengu úr
stjórn að eigin ósk
fyrir örfáum misser-
um. Á þessum ferli
hafði Jóhannes verið
hvatamaður að því að
Lungnasamtökin hefðu mikla og
góða samvinnu við S.Í.B.S. Í fram-
haldi af því hefur Jóhannes verið í
nokkur ár í ritnefnd S.Í.B.S.-blaðs-
ins og starfaði við það alveg undir
það síðasta.
Við Jóhannes kynntumst árið
1968 og tókum tal saman yfir kaffi-
bolla. Ég hafði verið að reka lítið
umboðs- og heildsölufyrirtæki í
hjáverkum og hann hafði fengist
við sölumennsku á ýmiskonar
gjafavöru og annarri smávöru. Það
varð að samkomulagi okkar í milli
að við myndum stofna sameignar-
félag og að hann kæmi inn í félagið
sem fullgildur meðeigandi. Þannig
hófst okkar farsæla samstarf til
margra ára.
Það varð að samkomulagi að Jó-
hannes myndi alfarið sjá um rekst-
urinn frá degi til dags en undirrit-
aður sjá um erlend samskipti
ásamt því að hlaupa í skarðið með
ýmsar sendiferðir, tollafgreiðslur,
innheimtur og annað sem til féll.
Við vorum á þessum árum fullir af
áhuga og það fleytti okkur langt.
Við reyndum fyrir okkur í útflutn-
ingi á lopa og ullarvörufatnaði og
gekk það nokkuð vel framan af.
Vegna vöntunar á viðbótarfjár-
magni til rekstrarins, en eins og
menn muna þá voru aðrir tímar
með aðgang að lánsfé hjá bönk-
unum en er í dag, ákváðum við að
slíta félaginu nokkrum árum síðar.
Erfiðleikar í rekstrinum bitnuðu
mest á Jóhannesi en hann var þeim
góðu kostum gæddur að taka öllu
mótlæti af miklu æðruleysi. Þegar
betur gekk var hann hinsvegar
mjög lítillátur og vildi ekki láta
hafa hátt um það sem hann hafði
vel gert.
Aldrei nokkurn tíma í okkar
samvinnu hallaði orði hans til mín
og heyrði ég hann aldrei hallmæla
nokkrum manni. Þessi góði kostur
er því miður ekki öllum gefinn.
Aldrei kastaðist í kekki í okkar
samstarfi og var það eingöngu
vegna mannkosta Jóhannesar.
Nú skildu leiðir um nokkurn
tíma og Jóhannes og Guðlaug tóku
fyrir önnur viðfangsefni, verslunar-
rekstur og fleira. Við endurnýjuð-
um síðan vinskapinn fyrir nokkrum
árum og höfum haft gott samband
síðan. Það var alltaf yndislegt og
mikil gleði að heimsækja þessi
samrýndu hjón í Reyrengið og
óblandin ánægja þegar þau komu í
heimsókn til okkar.
Elsku Lauga og fjölskylda, við
vissum hvað Jóhannes elskaði ykk-
ur mikið og að hann lifði fyrir ykk-
ur, enda mikill fjölskyldumaður.
Við vitum líka hvað ykkar missir og
söknuður er mikill. Við sendum
ykkur öllum okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Far þú í friði á guðs vegum,
minningin um góðan dreng er
grópuð í hjarta okkar.
Halldór Marteinsson,
Anna Kristín Aradóttir.
Morgunblaðið birtir minningargrein-
ar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is (smellt á reitinn Morgunblað-
ið í fliparöndinni – þá birtist val-
kosturinn „Senda inn minningar/af-
mæli“ ásamt frekari upplýsingum).
Skilafrestur Ef birta á minningar-
grein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er
á mánudegi eða þriðjudegi). Ef út-
för hefur farið fram eða grein berst
ekki innan hins tiltekna skilafrests
er ekki unnt að lofa ákveðnum birt-
ingardegi. Þar sem pláss er tak-
markað getur birting dregist, enda
þótt grein berist áður en skilafrest-
ur rennur út.
Lengd Minningargreinar séu ekki
lengri en 2.000 slög (stafir með bil-
um - mælt í Tools/Word Count).
Ekki er unnt að senda lengri grein.
Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og
votta þeim sem kvaddur er virðingu
sína án þess að það sé gert með
langri grein. Ekki er unnt að tengja
viðhengi við síðuna.
Minningargreinar
Okkar ástkæra móðir, dóttir, unnusta, barna-
barn, systir og mágkona,
ÁGÚSTA ÞÓREY BRYNJÓLFSDÓTTIR,
lést á heimili sínu í Flórída laugardaginn
26. febrúar sl.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Apríl Rún og Michael Jr.
Valborg Fríður Níelsdóttir, Lárus S. Árnason,
Brynjólfur Magnússon, Ragnheiður Tómasdóttir,
Justin Loosvelt,
Hjörvar Örn og Guðný Björg,
Arnar Helgi og Sóley Bára,
Jón Björn og Guðrún Jóna,
Ægir Þór og Ágústa Guðný,
Aldís og Sigurjón,
Björgvin,
Ágústa Þórey Haraldsdóttir, Níels Svanholt Björgvinsson
og aðrir aðstandendur.
FINNFRÍÐUR JÓHANNSDÓTTIR
sjúkraliði,
Efstaleiti 14,
Reykjavík,
er látin.
Útförin fór fram í kyrrþey að hennar ósk.
Hörður Þorleifsson,
Jóhann Traustason,
Viðar Traustason,
Hjalti Harðarson, Ólöf Helga Guðmundsdóttir,
Egill Harðarson, Vilborg Marteinsdóttir,
Kjartan Harðarson, Svanhvít Guðmundsdóttir
og barnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
GUÐRÚN ÓLAFÍA HELGADÓTTIR,
Melteigi 7,
Garði,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja laug-
ardaginn 26. febrúar.
Jarðarförin fer fram frá Útskálakirkju föstudag-
inn 4. mars kl. 14.00.
Ólafur Sigurðsson,
Soffía Ólafsdóttir, Sæmundur Klemensson,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
HULDA GUÐLAUGSDÓTTIR,
lést á dvalarheimilinu Grund við Hringbraut
föstudaginn 25. febrúar sl.
Kolbrún Ingólfsdóttir, Ágúst Einarsson,
Ingveldur Ingólfsdóttir, Geir Torfason,
Rósa Guðrún Ingólfsdóttir,
Jón Ernst Ingólfsson, Dagný Guðmundsdóttir,
Aðalbjörg G. Ingólfsdóttir, Stefán Þór Bocchino,
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN GUÐMANN BJARNASON,
Hrafnistu í Reykjavík,
áður til heimilis
í Efstasundi 47,
lést laugardaginn 26. febrúar.
Útför hans fer fram frá Áskirkju fimmtudaginn
10. mars kl. 15.00.
Anna Björg Jónsdóttir,
Bjarni Þór Jónsson, Margrét S. Jörgensen,
Guðbjörn Jónsson, Fanný M. Clausen,
Margrét Jónsdóttir, Gunnar M. Andrésson,
afa- og langafabörn.