Morgunblaðið - 01.03.2005, Blaðsíða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 1. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 sundfuglar, 8
innt eftir, 9 kyrra, 10
dveljast, 11 mannsnafn, 13
eru ólatir við, 15 vatna-
gangs, 18 gæði, 21 guð, 22
gana, 23 vesælum, 24 ör-
lagagyðja.
Lóðrétt | 2 ásynja, 3 skipar
fyrir, 4 reiðan, 5 ilmur, 6
æsa, 7 bera illan hug til, 12
hagnað, 14 bókstafur, 15
bjálfi, 16 markleysa, 17
trébala, 18 alda, 19 snák-
ur, 20 nokkur hluti.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 fenna, 4 þarft, 7 jötna, 8 álfar, 9 nær, 11 taut, 13
bali, 14 rykki, 15 edrú, 17 koll, 20 hné, 22 dafna, 23 túðan,
24 runan, 25 ræður.
Lóðrétt | 1 fljót, 2 nýttu, 3 aðan, 4 þrár, 5 rifta, 6 torgi, 10
æskan, 12 trú, 13 bik, 15 eldur, 16 rifan, 18 orðað, 19 linur,
20 hann, 21 étur.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Reyndu að forðast rifrildi við náung-
ann í dag. Þú getur varla stillt þig um
að koma skoðunum þínum á trú-
málum og stjórnmálum á framfæri,
sem gerir lítið til þess að lægja öld-
urnar.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Líklega er farsælast að þú vinnir í
einrúmi í dag. Haltu þig til hlés og
sinntu rannsóknum. Kannski rambar
þú á lausnir við gömlum vandamálum.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Barátta við þá sem valdið hafa er lík-
legri en ekki í dag. Af hverju að efna
til illinda? Haltu skoðunum þínum
fyrir þig. Það er farsælast.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Staðfesta þín er með ólíkindum ef sá
er gállinn á þér. Þú færð einhverja
flugu í höfuðið í dag og getur hrein-
lega ekki losnað við hana. Ekki reyna
að þröngva skoðunum þínum upp á
aðra.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú hefur sterkar skoðanir á máli sem
tengist sameiginlegum eigum eða
hvernig á að deila einhverju með ein-
hverjum. Þú vilt gera skoðanir þínar
heyrinkunnar.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Fólk ætti að fara að þér með gát í
dag. Þú meinar það sem þú segir og
segir það sem þú meinar. Skoðanir
þínar eru sterkar um þessar mundir.
(Eins og það hafi farið framhjá ein-
hverjum.)
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það má segja að þú sért eins og gömul
plata í vinnunni. Þú vilt fá vilja þínum
framgengt. Til allrar hamingju ertu
manneskja málamiðlana í eðli þínu.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Ekki vera of yfirþyrmandi í sam-
skiptum þínum við smáfólkið í dag.
Sporðdrekinn er afar viljasterkur og
áttar sig ekki alltaf á því hvað hann er
öflugur.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Dagurinn í dag er kjörinn til hvers
kyns viðgerða á heimilinu. Reyndu að
forðast rifrildi við fjölskyldumeðlimi.
Fáir vilja sýna sveigjanleika um þess-
ar mundir.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú átt vont með að losna við tiltekna
hugmynd úr kollinum þessa dagana.
Annaðhvort er um að ræða eitthvað
sem skiptir þig verulegu máli eða þá
að þú ert með gamlan slagara á heil-
anum.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Stilltu þig um að rífast um peninga í
dag. Það er afar auðvelt að deila við
aðra um fjármuni og efnisleg verð-
mæti. Ætlar þú kannski að skila ein-
hverju í verslun? Sýndu mildi.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Valdabarátta í samskiptum við kenn-
ara eða foreldra er ekki óhugsandi í
dag. Það er vegna þess að báðir aðilar
standa fast á sínu. Hvernig væri að
fresta umræðunni?
Stjörnuspá
Frances Drake
Fiskar
Afmælisbarn dagsins:
Þú hefur bæði listræna hæfileika og
tæknilega þekkingu, sem gerir þér kleift
að ná árangri. Þú hefur næmt auga fyrir
útlitinu og ert því jafnan vel til fara.
Glæsibragur þinn er frá náttúrunnar
hendi og laðar fólk að þér.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Tónlist
Kaffihúsið Sogn
Dalvík | Hörður
Torfason heldur tón-
leika kl. 21. Hörður er
nýkominn til landsins
eftir tónleikaferð um
Danmörku og Sví-
þjóð og vekur athygli
á því að hann mun
ekki leika sömu efn-
isskrá og á síðustu
hausttónleikum.
Myndlist
Gallerí Sævars Karls | Ættarmót fyrir
hálfri öld. Sigurður Örlygsson sýnir olíu-
málverk – 100 andlit úr fjölskyldu sinni.
Gallerí Tukt | Erna Þorbjörg Einarsdóttir –
Verk unnin með blandaðri tækni.
Hrafnista Hafnarfirði | Steinlaug Sig-
urjónsdóttir sýnir olíu- og vatnslitamyndir í
Menningarsalnum á fyrstu hæð.
Kaffi Sólon | Óli G. Jóhannsson sýnir óhlut-
læg verk.
Listasafn Íslands | Íslensk myndlist 1930
1945 og Rúrí – Archive–endangered waters.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Blaða-
ljósmyndarafélag Íslands – Mynd ársins
2004 á efri hæð. Ragnar Axelsson – Fram-
andi heimur á neðri hæð.
Listasafn Rvk., Kjarvalsstaðir | Hörður
Ágústsson – Yfirlitssýning í vestursal. Helgi
Hjaltalín Eyjólfsson og Pétur Örn Frið-
riksson – Markmið XI Samvinnuverkefni í
miðrými. Yfirlitssýning á verkum Kjarvals í
austursal.
Thorvaldsen Bar | Ásta Ólafsdóttir – Hug-
arheimur Ástu.
Listasýning
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Bára ljós-
myndari – Heitir reitir. Stendur til 22. maí.
Bækur
Kaffi Reykjavík | Á skáldaspírukvöldi lesa
upp: Bragi Ólafsson, Aðalsteinn Ásberg
Sigurðsson lesa úr verkum sínum, Þórarinn
Kristjánsson, þýðingar, Anna Hrefnudóttir
og Sóley Þorvaldsdóttir ljóð.
Söfn
Þjóðmenningarhúsið | Hin fornu handrit
geyma einstæðar sögur, kvæði og frásagnir
sem varpa ljósi á samfélag, trúarbrögð og
hugarheim hinna norrænu þjóða í önd-
verðu. Á meðal sýningargripa eru Konungs-
bækur Eddukvæða og Snorra Eddu, Flateyj-
arbók og handrit lagabóka, kristilegra texta
og Íslendingasagna.
Þjóðmenningarhúsið | Davíð Stefánsson
frá Fagraskógi (1895–1964) er skáld mán-
aðarins en í ár eru 110 ár liðin frá fæðingu
hans. Á sýningunni eru ljóð Davíðs, skáld-
verk og leikrit. Einnig handrit að verkum og
munir úr hans eigu. Blaðaumfjöllun um
Davíð og ljósmyndir frá ævi hans prýða
sýninguna.
Á sýningunni er leitast við að skapa það
andrúmsloft sem ríkti á sýningu Þjóðminja-
safns Íslands í risi Þjóðmenningarhússins
þar sem það var til húsa á fyrri hluta 20.
aldar.
Þjóðminjasafn Íslands | Grunnsýning Þjóð-
minjasafnsins, Þjóð verður til–menning og
samfélag í 1200 ár. Ómur Landið og þjóðin í
íslenskri hönnun. Ljósmyndasýningarnar
Hér stóð bær og Átján vóru synir mínir í álf-
heimum... Opið alla daga nema mánudaga
frá kl 11–17. Fyrsta fimmtudag hvers mán-
aðar er opið til kl 21.
Fréttir
Ráðhúsið á Selfossi | Blóðbankabíllinn
verður við Ráðhúsið á Selfossi í dag kl. 10-
17. Allir velkomnir.
Mæðrastyrksnefnd Kópavogs | Mæðra-
styrksnefnd Kópavogs er opin alla þriðju-
daga kl. 16–18. Fatamóttaka og úthlutun á
sama tíma.
Tungumálamiðstöð HÍ | Alþjóðlega þýsku-
prófið TestDaF verður haldið í Tungumála-
miðstöð Háskóla Íslands 12. apríl. Próf-
gjaldið er 10.000 kr. og skráning fer fram í
Tungumálamiðstöð HÍ til 10. mars. Nánari
upplýsingar: Tungumálamiðstöð HÍ, Nýja
Garði: 525 4593, ems@hi.is og www.test-
daf.de.
Fundir
Fella- og Hólakirkja | Aðalfundur kven-
félagsins Fjallkonurnar verður þriðjudaginn
1. mars kl. 20 í Safnaðarheimili Fella- og
Hólakirkju.
Grunnskólinn í Bakkafriði | Sjálfstæð-
isflokkurinn heldur stjórnmálafund í Grunn-
skólanum á Bakkafirði í dag, kl. 16.30. Yfir-
skrift fundarins er: Með hækkandi sól –
lægri skattar – aukin hagsæld. Fram-
sögumenn: Árni M. Mathiesen sjáv-
arútvegsráðherra og Halldór Blöndal, for-
seti Alþingis.
GSA á Íslandi | Fundir fimmtudögum kl.
20.30 Tjarnargötu 20. GSA er hópur fólks
sem hefur leyst vandamál sín tengd mat.
ITC-Fífa | Ræðukeppni ITC Fífu verður á
morgun kl. 20.15, í sal Safnaðarheimilis
Hjallakirkju í Álfaheiði 17, Kópavogi. Allir
velkomnir. Uppl. www.simnet.is/itc itcfifa-
@isl.is og Guðrún í síma 6980144.
Kraftur | Kraftur stuðningsfélag ungs fólks
sem greinist með krabbamein og aðstand-
endur heldur fund í dag, kl. 20. Séra Bragi
Skúlason fjallar um karlmenn og sorg.
Fundurinn er haldinn í Skógarhlíð 8, Reykja-
vík og er öllum opinn.
Seljakirkja | Kvenfélag Seljasóknar verður
með kynningu á sambýlum fyrir fatlaða kl.
20.
FAAS |Félag aðstandenda Alzheim-
erssjúklinga (FAAS) heldur fræðslufund í
dag, kl. 20 að Roðasölum 1, Kópavogi.
Fyrirlestrar
Landbúnaðarháskóli Íslands | Dr. Carlo Lei-
fert prófessor í vistfræðilegum landbúnaði
við Newcastle háskóla flytur fyrirlestur um
umhverfis- og heilsufarsáhrif lífrænna
ræktunaraðferða í Landbúnaðarháskól-
anum á Hvanneyri 2. mars, kl. 13.15. Fund-
arstjóri, Stefán Gíslason verkefnisstjóri.
Náttúrufræðistofnun Íslands | Ólafur Egg-
ertsson jarðfræðingur á Rannsóknastöð-
inni Mógilsá, flytur erindið: Fornskógur í
Fljótshlíð, varð hann Kötlu að bráð?, kl.
12.15, í sal Möguleikhússins á Hlemmi.
Hrafnaþing eru öllum opin. Nánari uppl. á:
www.ni.is.
Málþing
Grand hótel Reykjavík | Málþing um erfða-
breytt matvæli, áhrif og áhættu ræktunar
og neyslu, verður á Grand Hóteli við Sigtún
í Reykjavík, kl. 16. Umhverfisráðherra flytur
ávarp. Steingrímur Hermannsson opnar
heimasíðu um erfðabreyttar afurðir. Dr.
Carlo Leifert frá Newcastle-háskóla flytur
erindi og tekur þátt í pallborðsumræðu
ásamt dr. Kesöru A. Jónsson og dr. Ólafi R.
Dýrmundssyni. Fundarstjóri Jónas Krist-
jánsson ritstjóri.
Námskeið
www.ljosmyndari.is | 3 daga ljósmynd-
anámskeið fyrir stafrænar myndavélar.
Fyrri hópur 7., 9. og 10. mars kl. 18–22.
Seinni hópur 14., 16. og 17. mars kl. 18–22.
Verð kr. 14. 900. Nánari uppl. og skráning á
www.ljosmyndari.is.
Útivist
Laugardalurinn | Stafgöngunámskeið í
Laugardal kl. 17.30. Skráning og nánari
upplýsingar er að finna á www.stafganga.is
og í s. 6168595 og 6943471.
Hörður Torfason
Á HÁSKÓLATÓNLEIKUM á morgun leikur Krist-
inn Árnason á gítar verk eftir Alonso Mudarra og
John Dowland. Tónleikarnir hefjast kl. 12.30.
„Alonso Mudarra (1510–1580) samdi verk sín
upphaflega fyrir hljóðfæri sem nefnt er vihuela.
Hann var Andalúsíumaður, lærði til prests og
starfaði lengst af við dómkirkjuna í Sevilla. Tón-
verk hans voru gefin út í þremur bókum hinn 7.
desember árið 1546 í Sevilla. Flest verkanna eru
fyrir vihuela en þar er einnig að finna fyrstu verk
sem vitað er til að hafi verið gefin út fyrir gítar; á
þessum tímum var gítarinn strengdur fjórum
strengjapörum,“ segir Kristinn.
„John Dowland (1562–1626) varð Shake-
speare að yrkisefni í einni af sonnettum sínum:
„Dowland to thee is dear, whose heavenly touch
upon the lute doth ravish human sense.“ Sam-
ferðamenn Dowlands álitu hann fremstan meðal
lútuleikara og eitt besta tónskáld síns tíma.
Dowland var víðsigldur. Hann tók m.a. kaþólska
trú í Frakklandi en það gat reyndar verið víð-
sjárvert á upphafsárum ensku biskupakirkjunnar.
Verkum Dowlands má skipta í þrjá flokka.
Fyrst skal nefna consort-tónlist sem er nokkurs
konar kammertónlist þess tíma. Þá eru það lútu-
söngvarnir en segja má að Dowland hafi átt stór-
an þátt í gerð þessa forvera ljóðasöngsins. Í
þriðja og síðasta lagi eru einleiksverk fyrir lútu
sem gefur að heyra dæmi um á þessum tón-
leikum. Mörg einleiksverka Dowlands bera nöfn
einstaklinga, misþekktra þó, og eru einhvers kon-
ar karakter- og mannlífsstúdíur líkt og manna-
myndir flæmsku málaranna þá en líka síðar,“
segir Kristinn.
Kristinn Árnason gítarleikari á Háskólatónleikum
Morgunblaðið/Kristinn
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
1. c4 c6 2. e4 d5 3. cxd5 cxd5 4. exd5 Rf6
5. Da4+ Rbd7 6. Rc3 g6 7. Rf3 Bg7 8.
Bc4 0–0 9. d3 a6 10. Da3 b6 11. 0–0 Bb7
12. He1 He8 13. Rg5 b5 14. Bb3 Rb6 15.
d6 e6 16. Rge4 Rxe4 17. Rxe4 Bxe4 18.
dxe4 Be5 19. Hd1 Dh4 20. g3 Dxe4 21.
Be3 Rd7 22. Hd2 Hed8 23. Had1 Rf6
24. d7 Db7 25. De7 Dc6 26. Bg5 Df3
Staðan kom upp á sterku lokuðu
skákmóti sem lauk fyrir skömmu í
Bermúda. Kúbverski stórmeistarinn
Lenier Dominguez (2.661), sem er
mikill sérfræðingur í slavneskri vörn,
svaraði tvívegis á mótinu 1. c4 með
1. … c6. Hugmyndin hefur verið sú að
leiða taflið í fyrrnefnda byrjun en í báð-
um skákunum varð hinn sterki Kúb-
verji eftir 2. e4 d5 fyrir leiftursóknum
andstæðinga sinna í Panov-árásinni í
Caro-Kann-vörn. Pólski stórmeist-
arinn Bartlomiej Macieja (2.618) hafði
hvítt í fyrri skákinni og þvingaði and-
stæðinginn til uppgjafar eftir 27. Bxe6!
Kh8 27. … fxe6 hefði verið svarað með
28. Dxe6+ Kg7 29. Dxe5 og hvítur
vinnur. 28. Hd3 og svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.