Morgunblaðið - 01.03.2005, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. MARS 2005 35
MENNING
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
AFLAGRANDI 40 - F. ELDRI BORGARA
Íbúðin verður til sýnis miðvikudaginn 2. mars frá kl. 17-19
Vorum að fá í einkasölu glæsilega, um 70 fm
2ja herb. íbúð á 7. hæð í lyftuhúsi við
Aflagranda. Íbúðinni fylgir stæði í bílageymslu.
Stórglæsilegt sjávarútsýni er úr íbúðinni. Yfir-
byggðar flísalagðar svalir. Húsvörður er í hús-
inu. Ýmiss þjónusta er í húsinu en m.a. er
hægt að fá keyptan heitan mat í hádeginu.
V. 15,4 m. 4805
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Verslunarferð á morg-
un 2. mars í Hagkaup Skeifunni Rúta
frá Grandavegi og Aflagranda kl. 10,
kaffi og vínarbrauð í boði Hagkaupa.
Nýtt námskeið í jóga hefst 3. mars,
skráning í síma 864–4576.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–14, handavinna
kl. 9–16.30, leikfimi kl. 9, boccia kl.
9.30, smíði/útskurður kl. 13–16.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, böðun, hárgreiðsla, leikfimi,
vefnaður, línudans, boccia, fótaaðgerð.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Aðal-
fundur Félags eldri borgara í Kópavogi
verður laugardaginn 5. mars kl 14 í
Gullsmára 13. Venjuleg aðalfund-
arstörf. Kosinn hluti stjórnar. Kosnir
fulltrúar á landsfund LEB. Kosið í
nefndir. Önnur mál. Brids í Gjábakka í
dag kl. 13.15.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Skák
kl. 13. Miðvikudagur: Göngu–Hrólfar
ganga frá Ásgarði Glæisbæ kl. 10.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Höf-
undur Mávahláturs og Karitasar án til-
tils, Kristín Marja, er gestahöfundur
Leshóps FEBK í Félagsheimilinu Gull-
smára 13 þriðjudaginn 1. marz kl. 20.
Allir eldri borgarar velkomnir. Enginn
aðgangseyrir.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Vatnsleikfimi í Mýrinni kl. 9.10, inni–
golf á sama stað kl. 11.30, í Kirkjuhvoli
er málun kl. 9.30, karlaleikfimi og
bútasaumur kl. 13. Opið hús í safn-
aðarheimili á vegum kirkjunnar kl. 13
og kóræfing á sama stað kl. 17.Skrán-
ing stendur yfir í ferð í Iðnó í s. 820-
8553.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar m.a perlusaumur án
leiðsagnar, postulínsnámskeið eftir há-
degi, kl. 10.30 létt ganga um nágrenn-
ið. Mánudaginn 14. mars veitir Skatt-
stofan framtalsaðstoð, skráning hafin
hjá forstöðumanni á staðnum og í s.
575 7720.
Furugerði 1 | Kl. 9 aðstoð við böðun,
laus pláss í bókband sem er þrjá daga í
viku, kl. 13 spilað. Farið verður í Þjóð-
minjasafnið nk. föstudag í boði m.a.
Lögreglunnar, Hópbíla, VÍ o.fl.
Hraunbær 105 | Kl. 9 postulínsmálun,
glerskurður, hárgreiðsla, kl. 10 boccia,
kl. 11 leikfimi, kl. 12 hádegismatur, kl.
12:15 Bónus, kl. 13 myndlist, kl. 15 kaffi.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa
kl. 9–13 kortagerð o.fl. Bankaþjónusta
kl. 9.45, helgistund kl. 13.30 í umsjón
séra Ólafs Jóhannssonar. Böðun virka
daga fyrir hádegi. Fótaaðgerðir–
hársnyrting.
Norðurbrún 1, | Kl. 9–12 myndlist,
smíði, hárgreiðsla, kl. 16.30 opin vinnu-
stofa, kl. 10 boccia, kl. 13–16.30 postu-
línsmálning, kl. 14 leikfimi.
Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höf-
uðborgarsvæðinu | Spilað UNO í kvöld
kl. 19.30.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir, kl. 9.15–15.30 handa-
vinna, kl. 9.15–16 postulínsmálun, kl.
10.15–11.45 enska, kl. 11.45–12.45 há-
degisverður, kl. 13–16 bútasaumur, kl.
13–16 frjáls spil, kl. 13.–14.30 leshringur,
kl. 14.30–15.45 kaffiveitingar.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Morgunsöngur kl. 9.
Fermingarfræðsla kl. 15 (hópur 2).
Áskirkja | Opið hús milli kl. 10 og 14,
kaffi og spjall. Bænastund kl. 12.00
Boðið upp á léttan hádegisverð. Allir
velkomnir.
Breiðholtskirkja | Bænaguðsþjónusta
kl. 18:30.
Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl. 11:15.
Kl 12:00 Léttur málsverður. Sr Frank
M. Halldórsson kemur í heimsókn.
Helgistund, myndasýning. 10–12 ára
starf KFUM&K kl. 17:00– 18:15, á neðri
hæð. Bænastund kl. 17:30. Alfa nám-
skeið kl. 19:00. www. digraneskirkja.is.
Garðasókn | Opið hús í Kirkjuhvoli,
Vídalínskirkju á þriðjudögum kl. 13 til
16. Við spilum lomber, vist og bridge.
Röbbum saman og njótum þess að
eiga samfélag við aðra. Kaffi og með-
læti kl. 14:30. Helgistund í kirkjunni kl.
16:00. Akstur fyrir þá sem vilja,
upplsími: 895-0169. Allir velkomnir.
Grafarvogskirkja | Opið hús fyrir eldri
borgara, kl. 13:30–16. Helgistund,
handavinna, spil og spjall. Kaffiveit-
ingar og alltaf eitthvað gott með
kaffinu. Kirkjukrakkar fyrir 7–9 ára í
Rimaskóla kl. 17:30–18:30 Æskulýðs-
félag Grafarvogskirkju kl. 19:30, fyrir 8.
bekk.
Grensáskirkja | Hvert þriðjudagshá-
degi kl. 12.10 er kyrrðarstund með alt-
arisgöngu í Grensáskirkju. Að stund-
inni lokinni er hægt að fá heimilismat á
vægu verði í safnaðarheimili kirkj-
unnar.
Hjallakirkja | Bæna- og kyrrðarstundir
eru hvern þriðjudag í Hjallakirkju kl. 18.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Alfa 1
kl. 19:00. ATH! nýtt námskeið hefst í
aftur í haust. www.gospel.is.
KFUM og KFUK | Fundur í kvöld kl. 20.
„Mikilvægi fjölskyldunnar“. Margrét
Jóhannesdóttir hjúkrunarfræðingur
fjallar um efnið. Allar konur velkomnar.
Kópavogskirkja | Bæna- og kyrrð-
arstund í kirkjunni þriðjudaginn 1. mars
kl. 12:10.
Kvenfélag Langholtssóknar | Afmæl-
isfundur verður í kvöld kl. 20 í safn-
aðarheimili kirkjunnar. Konur úr kven-
félagi Fríkirkjunnar eru sérstakir gestir
fundarins. Kammerkór Langholtskirkju
syngur. Einnig verður einsöngur á dag-
skrá. Félagskonur eru hvattar til að
taka með sér gesti og koma í íslensk-
um búningi ef þær hafa tök á.
Laugarneskirkja | Kl. 16:00 TTT, (5. –
7. bekkur). Kl. 19:45 Trúfræðsla. Íhug-
un og umræður um guðspjall næsta
sunnudags. Kl. 20:30 kvöldsöngur í
kirkjunni. Gengið inn um aðaldyr. 12
sporahópar koma saman á kvöld-
söngnum og halda svo áfram sinni
vinnu. Fyrirbæn við altarið og kaffi-
spjall á eftir.
DAGBÓK
FEMÍNISTAFÉLAG Íslands &
Goethe Zentrum kynna Nób-
elsverðlaunahafa í bókmenntum
2004, Elfriede Jelinek frá Aust-
urríki, á efri hæð Kaffi Sólon í
kvöld kl. 20. „Hittið“, eins og dag-
skráin er kölluð, er öllum opið og
aðgangur er ókeypis.
Þorgerður E. Sigurðardóttir,
bókmenntafræðingur fjallar um
leikrit Jelinek um framhald af
Brúðuheimili Ibsens. Hvað verður
um Nóru eftir að hún skellir á eft-
ir sér og yfirgefur mann og börn?
Rætt verður um þetta verk út frá
hugmyndum Jelinek um fem-
ínisma.
Jórunn Sigurðardóttir, dag-
skrárgerðarmaður, tekur næst til
máls. „Elfriede Jelinek hefur verið
hlaðin verðlaunum og lofuð fyrir
ótrúleg tök á tungumálinu sem
tæki til að afhjúpa hvers kyns
klisjur og tilraunir til að fegra
kúgun og óréttlæti,“ segir hún.
Sólborg Erla Ingadóttir, mynd-
listakona, fjallar um rithöfundinn
Elfriede Jelinek i máli og mynd-
um.
„Hvaða áhrif hefur barátta
hennar fyrir bættum heimi haft í
gegnum árin?“ spyr hún.
Hafliði Arngrímsson, leik-
húsmaður, ræðir um leikritið Das
Werk (Verkið, Virkjunin) sem
fjallar um náttúru, tækni og vinnu
í skugga ofstækis, metnaðargirni
og fífldirfsku, um sannleikann
andspænis lygi og óréttlæti sem
líklega er rauði þráðurinn í starfi
og lífi Elfriede Jelinek.
Loks rýnir Peter Weiß hjá
Goethe-Zentrum í fjölmiðla
þýskumælandi landa: Hvernig
voru viðbrögðin, þegar tilkynnt
var að Elfriede Jelinek, sem er
þekkt fyrir nístandi gagnrýni, ekki
síst á föðurlandið, hlaut nób-
elsverðlaunin?
Á eftir fyrirlestrunum verður
opnað fyrir umræður.
Kynning á Elfriede Jelinek
FJÖLMENNT var á söng-
tónleikum Tryggva M. Baldvins-
sonar sl. laugardagssíðdegi kl. 16
þrátt fyrir fremur óvænlega tíma-
setningu, og talsvert af yngra
fólki sem lét í sér heyra þegar
bravóað var í seinni hluta.
Fyrirsögnin var „Skipt í miðju“
og vísaði til tvíeðlis höfundar í
lagagerð eins og skilja mátti á
orðum hans í tónleikaskrá. Tón-
dúalismi mun ævafornt fyrirbrigði.
Grikkir greindu milli æstrar
díonýsi og upphafins appollíns, og
m.a.s. íslenzkir áar vorir þóttust
áður fyrri kenna mun á söng álfa
úr hrosshársfiðlu og engla úr
langspili. Í ritsmíðaðri listmúsík
nú á tímum skilur e.t.v. mest á
milli hins lærða og létta, þ.e. aka-
demískrar framúrstefnu og alþýð-
legs dúrs/molls, enda eiga þónokk-
ur hámenntuð tónskáld til hvort
tveggja eins og dæmin sanna. Aft-
ur á móti virðist gamansemi
furðusjaldgæfur gestur í nútíma-
klaustri konstrúktívismans.
Hin 25 sönglög dagsins frá 1992
til 2005 sveifluðust milli beggja
skauta þegar í fyrri hálfleik (öll
með Hrefnu Eggertsdóttur við
píanóið), þannig að „miðjan“ var
ekki hléið eins og fyrst hefði
kannski mátt halda. Öllu heldur lá
hún í textavali, þ.e. milli atómljóða
og hefðbundnari kveðskapar, og
má vart kalla annað en eðlilegt.
„Úr íslendingadags ræðu“ (1994)
reyndist dulnefni Þótt þú langför-
ull legðir, og ljóðmægðist Tryggvi
þar Sigvalda Kaldalóns, Jóni Frið-
finnssyni og fleirum með látlaus-
um en góðum árangri í fallegum
flutningi Snorra Wium og Hrefnu.
Snorri söng síðan Háfjöllin heilög
(Laxness) frá sama ári í kyrr-
látum valstakti.
Marta Guðrún Halldórsdóttir
kynnti þá fyrstu tvö framsæknari
lög dagsins við órímuð ljóð Vil-
borgar Dagbjartsdóttur og Svein-
björns I. Baldvinssonar. Undur
(1995) bar espressífan keim af
hjátœnu milliskeiði Schönbergs
(fyrir tólftónabyltinguna), en
Gömul ljósmynd (1996) var im-
pressjónískara; frábært lag og
dæmigert fyrir melódísk tök
Tryggva á módernisma sem þær
Marta skiluðu af innlifun. Snorri
söng hið þegar vinsæla Krummi
(1995) þótt tvíeðli nágaglsins
blakka hjá Davíð Stefánssyni væri
mest hulið lagblíðu tónhöfundar.
Hins vegar vantaði ekki dúal-
ismann í hinu skemmtilega stíl-
blendna Aldrei flýgur hún aftur
(1998; Þórbergur Þórðarson) er
lét sig ekki muna um að tæpa
bæði á mózörzkum Alberti-bassa
og 150 ára yngri nálgun.
Þá tók Marta aftur við og frum-
flutti 4 smálög um þögnina (2005;
Duarte i Montserrat) í ofur-
huglægum japönskum anda líkt og
örfá pensilstrok á hríspappír. Tók-
ust þau vel þótt væru með erf-
iðustu lögum dagsins, en að sama
skapi miður eftirminnileg og
myndu varla gera sig í hljóðriti.
Sama ætlaði að virðast um hið
álíka sparneytna Í japönskum
þönkum (1995;
Vilborg Dag-
bjartsdóttir),
hefði fasrýrt
hugflæðið ekki
óvænt umhverfzt
við líflegan púls-
hryn í 2. versi –
og m.a.s. útvíkk-
að barokk í því
4.! E.t.v. argasta
stílbrot, en
guðsþakkarvert í stöðunni.
Snorri túlkaði frábærlega
gymnópedísku Breiðvangssæluna
Þú ein (2002; Hannes Pétursson)
og Ektamakann elskulega (1992)
Hallgríms þar sem yndisfriður
miðerindis innrammaðist kloss-
gengum sjóaravölsum. Lengsti og
kröfuharðasti ópusinn, Gegnum
skóginn (1992; Sveinbjörn I. Bald-
vinsson), lenti svo á herðum Ólafs
Kjartans Sigurðarsonar að frum-
lífga úr 12 ára dái með aukaaðstoð
Kjartans Óskarssonar á klarínett.
Nærri kortérslöng kantatan var á
köflum afar andrúmsrík, þar sem
hægferðugir kaflar skiptust á við
hraðari; allt upp í hasarspennu og
jafnvel martröð. Ólafur skilaði þar
einu af torsungnustu radd-
hlutverkum íslenzkra ljóðasöngs-
bókmennta með miklum bravúr,
og þau hjónin Kjartan og Hrefna
fóru sömuleiðis snilldarvel með
sitt.
Eftir hlé var slegið á fisléttustu
strengi dagsins þegar Marta og
Snorri ásamt efstgreindri salon-
sveit fluttu 11 lög úr gaman-
kvæðasafni Þórarins Eldjárn,
Heimskringlu (1995–2005). Þar
var víða komið við, svo vægt sé til
orða tekið. Hljómskálamúsík fagra
skeiðsins, Andrewssystur, arg-
verskur dólgatangó, glettinn Par-
ísarvals, „Hrosshár í strengjum og
holuð innan sígaunakerling“ í einu
og sama lagi (Völuspá), djass-
búlluvamp, Adams-fjölskylduvals,
wagnerskur hetjutenór, Táp og
fjör og frískir menn, ávæningur af
Dagnýju hans Fúsa – allt var það
hér að finna. Og meira til.
Lá enginn á liði sínu, enda var
mikið hlegið og klappað. Tækist
að spinna tengjandi söguþráð,
virtist því gráupplagt að gera
söngleik úr þessum mislöngu hlát-
urbombum Tryggva og Þórarins,
og koma um leið langlífu óorði af
kómík í tónlistarsambandi. Auðvit-
að með vísan til stöku Piets Hein:
Den som kun tar spøg for spøg /
og alvor kun alvorligt …
Í gamni og alvöru
TÓNLIST
Salurinn
Sönglög eftir Tryggva M. Baldvinsson.
Marta Guðrún Halldórsdóttir sópran,
Snorri Wium tenór og Ólafur Kjartan Sig-
urðarson barýton; Hrefna Eggertsdóttir
píanó, Kjartan Óskarsson klarinett auk
salonsveitar Berjadaga (Tatu Kantomaa
harmonika, Hildigunnur Halldórsdóttir
fiðla, Sigurður Halldórsson selló, Roine
Hultgren kontrabassi/túba og Örn
Magnússon píanó). Laugardaginn 26.
febrúar kl. 16.
Söngtónleikar
Tryggvi M.
Baldvinsson
Ríkarður Ö. Pálsson
FÉLAG íslenskra listdansara
(FÍLD) opnar í dag upplýsingavef
um íslenskan listdans, www.-
dance.is.
FÍLD hefur kostað gerð heima-
síðunnar og vill með þessu fram-
taki vekja athygli á því fjölbreytta
starfi sem unnið er í dag á sviði
listdansins og veita greiðan aðgang
að upplýsingum um það sem efst er
á baugi hverju sinni í dansheim-
inum.
Á vefnum er t.d. að finna upplýs-
ingar um Félag íslenskra listdans-
ara allt frá stofnun þess til dagsins
í dag og helstu markmið.
Fjölmargir listdansskólar kynna
starfsemi sína á vefnum, fram-
undan eru nemendasýningar í leik-
húsum borgarinnar þar sem nem-
endur á öllum aldri eru í
aðalhlutverki. „Hér gefst kjörið
tækifæri fyrir áhugasama að fá
innsýn í listdansnám dansskólanna
og tilvalið er fyrir tilvonandi dans-
nema að skella sér í leikhúsið,“
segir Irma Gunnarsdóttir, formað-
ur Félags íslenskra listdansara.
Hún segir að uppgangur og
gróska hafi einkennt íslenskt dans-
líf undanfarin ár og spennandi
tímar séu nú í dansheiminum.
„Íslenskum danslistamönnum
hefur fjölgað verulega og fleiri at-
vinnutækifæri eru að skapast hér
heima í kjölfarið. Íslenski dans-
flokkurinn sýnir í auknum mæli
verk eftir íslenska danshöfunda við
góðar viðtökur bæði hér heima og
erlendis. Nútímadanshátíðin
Reykjavík dansfestival hefur vaxið
og fest sig í sessi. Hátíðin er orðin
árviss viðburður, haldin á haust-
dögum.
Þá var ungt, framsækið dansleik-
hús stofnað fyrir þremur árum,
DANSleikhúsið.“
Nýr upplýsingavefur um
íslenska danslist opnaður
Morgunblaðið/Jim Smart
Úr sýningu Íslenska dansflokksins á Open Source eftir Helenu Jónsdóttur.