Morgunblaðið - 02.03.2005, Page 1
STOFNAÐ 1913 59 . TBL. 93. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
HÆSTIRÉTTUR Bandaríkjanna
kvað í gær upp þann úrskurð að aftök-
ur á morðingjum, sem voru yngri en
átján ára þegar glæpurinn var fram-
inn, samræmdust ekki því ákvæði
bandarísku stjórnarskrárinnar sem
bannar grimmilegar refsingar.
Með úrskurðinum ógildast dauða-
dómar yfir um 70 föngum í nítján ríkj-
um Bandaríkjanna. Fimm af níu dóm-
urum réttarins voru samþykkir
úrskurðinum.
Dómstóllinn bannaði fyrir sautján
árum aftökur á morðingjum sem voru
fimmtán ára eða yngri þegar þeir
frömdu glæpinn. Rétturinn bannaði
ennfremur aftökur á þroskaheftu fólki
fyrir þremur árum.
Bandarískir andstæðingar dauða-
refsinga fögnuðu úrskurðinum.
„Bandaríkjamenn mega nú vera stoltir
af því að þeir eru ekki lengur á listan-
um yfir ríki sem brjóta gegn mann-
réttindum með því að taka unglinga af
lífi,“ sagði William Schulz, fram-
kvæmdastjóri Bandaríkjadeildar
Amnesty International. Á listanum
eru m.a. Íran, Sádi-Arabía og Kína.
Aftökur á
unglingum
bannaðar
Washington. AP.
VALDABRÖLT Haraldar kon-
ungs hárfagra í Noregi átti stóran
þátt í að hópur Norðmanna tók
sig upp og flutti til Íslands. Nú
eru Íslendingar búnir að búa til
Harald hárfagra og eru að selja
hann til Noregs!
Það er Ernst Backman hjá
Sögusafninu sem stendur fyrir
þessum óvenjulega útflutningi, en
Ernst hefur fengist við að búa til
sögupersónur úr sílíkoni í nokkur
ár. Hróður hans hefur nú borist út
fyrir landsteinana og er hann að
leggja lokahönd á sex gínur sem
eiga að fara á nýtt safn í Avalds-
nesi í Noregi. Auk Haraldar eru
þetta Gyða kona hans, Ólafur
Tryggvason Noregskonungur og
þrjár aðrar persónur sem tengj-
ast uppgreftri á staðnum. Í kjöl-
far fornleifarannsóknarinnar var
ákveðið að setja á stofn safn og
forráðamönnum þess leist svo vel
á verk Ernst Backmans að þeir
sömdu við hann um að kaupa af
honum sex gínur.
Ernst sagði að þetta væru
fyrstu verkefnin sem hann ynni
fyrir erlenda aðila á þessu sviði,
en söfn í Færeyjum og Þýskalandi
hefðu sýnt því áhuga að kaupa
persónur úr sílíkoni af Sögusafn-
inu. Hann sagðist því vera bjart-
sýnn á að sér tækist að selja fleiri
sögupersónur úr landi.
Ernst rekur Sögusafnið í Perl-
unni, en hann sagði að aðsókn að
því hefði verið góð. Skólar hefðu
t.d. sýnt safninu áhuga, enda væri
þar hægt að kynnast sögunni með
lifandi hætti. Á myndinni má sjá
Ernst Backman í góðum fé-
lagsskap þar sem hann leggur
lokahönd á Harald hárfagra og
Gyðu konu hans.
Haraldur hárfagri á leið til Noregs
Morgunblaðið/RAX
ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR braut reglur Kaup-
hallar Íslands með því að senda ófullnægjandi
tilkynningar til Kauphallarinnar þann 11. og 16.
febrúar síðastliðinn í tilefni af lánshæfismati
matsfyrirtækisins Standard & Poor’s. Kaup-
höllin hefur vegna þessa ákveðið að áminna
Íbúðalánasjóð opinberlega.
„Telja verður að innihald og fyrirsagnir
fréttatilkynninga frá Íbúðalánasjóði hafi verið
til þess fallnar að gefa fjárfestum ranga mynd af
efni lánshæfismatsins,“ segir í tilkynningu frá
Kauphöllinni.
Málavextir eru þeir að í tilkynningu Íbúða-
lánasjóðs til Kauphallarinnar var ekki minnst á
neikvæða þætti í umsögn Standard & Poor’s
vegna lánshæfismats fyrir sjóðinn. Íbúðalána-
sjóður sagði frá því að matsfyrirtækið hefði
staðfest gott lánshæfismat sjóðsins en ekki var
til að mynda sagt frá því að fyrirtækið teldi
horfurnar á langtíma skuldbindingum sjóðsins í
innlendri mynt vera neikvæðar.
Ekki ásetningur
Guðmundur Bjarnason, forstjóri Íbúðalána-
sjóðs, sagði í samtali við Morgunblaðið að í svari
sjóðsins til Kauphallarinnar vegna þessa máls
hefðu menn viðurkennt að þarna hefðu orðið
mistök og að fréttatilkynning sjóðsins hefði átt
að vera skýrari.
„Jafnframt lýstum við því yfir að við mundum
gera þetta með öðrum hætti og reyna að taka
tillit til athugasemda sem þarna eru settar
fram, að sjálfsögðu. Hins vegar fullyrðum við að
þetta hafi ekki verið með ásetningi gert og álít-
um ekki að þetta hafi skaðað neinn því tilkynn-
ingin í heild sinni frá Standard og Poor’s er auð-
vitað á öllum vefjum í viðskiptaheiminum. Það
var ekki það sem var málið heldur að þetta var
ónákvæmni af okkar hálfu sem við vonum að
endurtaki sig ekki,“ sagði Guðmundur.
Morgunblaðið benti á það í frétt tveimur dög-
um eftir að seinni tilkynning Íbúðalánasjóðs
birtist í Kauphöllinni, að neikvæðum þáttum í
umsögn matsfyrirtækisins hefði verið sleppt.
Íbúðalánasjóður vísaði frétt blaðsins á bug dag-
inn eftir.
Íbúðalánasjóður braut
reglur Kauphallarinnar
Kauphöll/22
CONDOLEEZZA Rice, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sakaði í gær sýrlensk stjórn-
völd um að hindra lýðræði í Mið-Austurlöndum
og styðja uppreisnarmenn í nokkrum löndum.
„Með stefnu sinni og hegðun hindra Sýr-
lendingar bætt lífskjör og lýðræðislegri fram-
tíð fyrir þjóðirnar í Mið-Austurlöndum,“ sagði
Rice í viðtali við breska sjónvarpið ITV.
„Þegar Sýrlendingar styðja uppreisn-
armenn, eða heimila þeim að nota sýrlensk
landsvæði, gera þeir vonir írösku þjóðarinnar
að engu,“ bætti Rice við. „Þegar Sýrlendingar
heimila hermönnum og öryggissveitum sínum
að starfa í Líbanon gera þeir vonir líbönsku
þjóðarinnar að engu. Þegar Sýrlendingar
styðja hryðjuverkahreyfingar, sem gera
sprengjuárásir í Landinu helga, gera þeir von-
ir palestínsku þjóðarinnar að engu.“
Sýrlenska herliðið fari á brott
Rice og Michel Barnier, utanríkisráðherra
Frakklands, gáfu í gær út yfirlýsingu þar sem
þau hvöttu til þess að sýrlenska herliðið í Líb-
anon yrði flutt þaðan þegar í stað og að haldn-
ar yrðu frjálsar og lýðræðislegar þingkosn-
ingar í landinu.
Bandaríkjamenn og Frakkar beittu sér fyrir
ályktun, sem öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
samþykkti í fyrra, þar sem þess var krafist að
allar erlendar hersveitir færu frá Líbanon.
Rice sagði ennfremur í lok ráðstefnu um
málefni Palestínumanna í London í gær að
horfurnar á friði á milli Ísraela og Palest-
ínumanna væru nú betri en þær hefðu verið í
mörg ár. Bandaríkjastjórn hygðist gera allt
sem í hennar valdi stæði til að koma á friði á
svæðinu.Reuters
Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna,
heilsar Condoleezzu Rice í London í gær.
Sakar Sýrlendinga um að hindra lýðræði
London. AFP.
Umskiptunum fagnað/15
VIKTOR Jústsjenko, forseti Úkraínu, sagði
í gær að yfirvöld hefðu handtekið menn sem
grunaðir væru um morð
á úkraínska rannsóknar-
blaðamanninum Heorhíj
Gongadze. Hann sakaði
Leoníd Kútsjma, fyrr-
verandi forseta, og
stjórn hans um að hylma
yfir með morðingjunum.
Gongadze rak vinsæla
fréttaþjónustu á Netinu
þar sem stjórnvöld voru
óspart gagnrýnd. Hon-
um var rænt í Kíev í september 2000 og 50
dögum síðar fannst höfuðlaust lík hans í
skógi nálægt höfuðborginni.
„Fyrrverandi stjórn landsins verndaði
morðingjana,“ sagði Jústsjenko og bætti við
að hún hefði neitað „að upplýsa málið“.
Segir Kútsjma
hafa hylmt
yfir morð
Kíev. AFP, AP.
Viktor Jústsjenko
Lífið breyttist
á andartaki
Á eigin vegum til Indónesíu til
að starfa við uppbyggingu | 22
Sjónarspil
á tónleikum
Hefur séð Alice Cooper
sextán sinnum | Menning
Íþróttir í dag
Ítalir bjóða heim Grindavík
fær liðsstyrk Sigurður hetja
Vals Arsenal marði sigur