Morgunblaðið - 02.03.2005, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 02.03.2005, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Anna BirnaGrímólfsdóttir fæddist í Stykkis- hólmi 21. október 1951. Hún lést á heimili sínu 21. febr- úar síðastliðinn. For- eldrar hennar eru Grímólfur Andrés- son, úr Hrappsey á Breiðarfirði, f. 23. febrúar 1909, d. 4. febrúar 2005, og Þuríður Valgerður Björnsdóttir, úr Arn- ey á Breiðarfirði, f. 18. júní 1917. Anna Birna var yngst fjögurra systkina. Anna Birna giftist 31. maí 1969 Eiríki Steinþórssyni úr Reykjavík. Foreldrar hans voru Steinþór Eiríksson, f. 8. október 1904, d. 4. mars 1994, og Guðríður Steindórs- dóttir, f. 12. október 1916, d. 26. ágúst 2001. Anna Birna og Ei- ríkur eignuðust þrjár dætur, þær eru; 1) Þuríður Val- gerður, maki Guð- rún Erla Sigurðar- dóttir, 2) Guðríður, sonur hennar Eirík- ur Jóhannsson, og 3) Þóra Björk. Útför Önnu Birnu fer fram frá Seltjarnarneskirku í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Elsku hjartans móðir mín, þetta er svo vont, ég veit ekki hvernig mér líður, ég er svo tóm. Stoð mín og stytta er farin langt fyrir aldur fram, við áttum eftir að upplifa svo margt saman. Það er svo margt sem ég vil segja en get ekki sagt heldur geymi í mínu hjarta, þú ert og verður ávallt efst í huga mínum. Elsku pabbi, Gurrý, Þóra, Eirík- ur, Guðrún og amma, Guð gefi okkur styrk til að takast á við sorgina. Elsku mamma mín, ég kveð þig með miklum söknuði. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Þín dóttir Þuríður V. Eiríksdóttir. Elsku besta fallega mamma mín. Í dag er komið að ákveðnum leiðar- lokum í lífinu en taugin á milli okkar á hana verður ekki klippt, hún er ei- líf. Hjartað er aumt og mér finnst eins og það sé búið að fjarlægja part úr líkama mínum. En á sama tíma megum við þakka fyrir að þjáning- um þínum sé lokið og þú búin að öðl- ast fyrra heilbrigði á ný. Við megum þakka fyrir allar yndislegu minning- arnar sem eftir lifa minningar um þig sem frábært foreldri og ekki síst ömmu. Þakka þér fyrir allt sem þú ert búin að kenna okkur, samheldni ykkar pabba fyrir velferð okkar og utanumhaldið um fjölskylduna. Styrkur þinn lá svo víða þú ætlaðir að sigra þetta stríð sem hjálpaði okkur hinum svo mikið í þessu langa og erfiða verkefni, þitt góða skap og gleði, greind þín og gáfur, æðruleysi þitt, baráttuandi þinn og viljastyrk- ur við þennan illvíga sjúkdóm var aðdáunarverður, þú ert hetjan mín. Ég vil þakka þér enn og aftur hvað þú varst frábært foreldri og ekki síst góður vinur, og Eiríkur litli ekki lítið heppinn að eiga ykkur að. Ég er svo glöð hvað við vorum náin, allt sem við gerðum saman í lífinu enda oft gert góðlátlegt grín að okkur að við værum eins og hirðingjar sem ferð- uðumst saman í hjörðum, oftast 7 saman og stundum fleiri. Eftirá að hyggja voru þetta örlögin, okkur var ekki úthlutaður lengri tími saman. Að lokum gastu ekki meir og kvaddir okkur í friði með örverpið þitt sofandi í fanginu, það hlýtur að vera yndislegt fyrir móður. Mig lát, Jesús, með þér deyja, minn þú dauða sigrað fékkst, stríðið, er ég átti að heyja, í það fyrir mig þú gekkst. Lát mig burt frá löstum deyja, lífs á meðan hlýt ég þreyja, lát mig deyja lífs með þér, lif þú aftur svo í mér. (Valdimar Briem.) Nú ertu komin á góðan stað í bjálkahúsið sem afi og Eggert smíð- uðu handa þér, umvafin fallegum blómum og grænum grundum og búin að hitta alla hina. Söknuðurinn er óbærilegur en við pössum hvort annað í fjölskyldunni eins og við lofuðum þér. F.h. fjölskyldunnar þakka ég göngudeild krabbameinsdeildar LSK og Helga Sigurðssyni lækni, líknardeild LSH í Kópavogi og Heimahlynningu og því yndislega starfsfólki fyrir góða umönnun. Hvíl í friði elsku mamma mín. Þín elskandi dóttir, Guðríður. Elsku mamma mín. Það er erfitt að sætta sig við að þú sért farin og komir aldrei aftur þó svo að vissum öll að þú ættir ekki mikinn tíma eftir með okkur. Þú barðist hetjulega og af miklum krafti og styrk við þennan hræðilega sjúkdóm. Þú gafst aldrei upp, leist bara á sjúkdóminn sem verkefni sem þú ætlaðir að komast í gegnum og auðvitað tókum við fjölskyldan þátt í þessu verkefni og reyndum að gera þetta auðveldara. Stundum varð ég sár út í þig þegar þú talaðir um dauðann og tímann þegar þú værir farin, líkt og þegar þú talaðir um hvaða sálma þú myndir vilja láta syngja í jarðarförinni þinni og eitt- hvað sem þú vildir kenna mér áður en þú færir. Þessum umræðum fylgdu oftast mörg tár og ég bað þig alltaf að hætta að tala um þetta en núna er ég mjög þakklát fyrir að þú skulir hafa rætt þetta því annars hefði höggið sem ég varð fyrir við fráfall þitt verið svo miklu meira, að ég held, þótt mikið væri og ég er sterkari fyrir vikið. Þú varst vön að baka smákökur fyrir jólin og þú gerðir ekki bara eina tegund heldur svona átta til tíu tegundir. Síðustu jólin þín varstu komin í hjólastól og ég vissi að þú myndir ekki getað bakað en þig sár- langaði til þess, svo að ég ákvað bara að gera það undir þinni leiðsögn. Við bökuðum saman átta tegundir og skemmtum okkur vel. Svo þegar þér fannst þú ekki vera með puttana nægilega mikið í hlutunum baðstu pabba bara að sækja göngugrindina og svo varstu bara í henni svo þú sæ- ir örugglega allt sem fram færi á borðinu. Þú vildir alltaf hafa yfirsýn yfir allt, vita að allt gengi vel og öllum liði sem best þó að þú gætir líka ver- ið ansi ströng og oft fannst mér ég ekki mega gera neitt, en eftir því sem ég eldist og þroskast sé ég alltaf betur og betur að þú varst aðeins að hugsa um velferð mína. Stundum var ég handviss um að þú værir mennskur lygamælir með augu í hnakkanum. Á hverjum degi sest ég hjá mynd- inni af þér inni í stofu við kertaljós og í gegnum huga minn þjóta ótal minningar sem enginn getur tekið frá mér og þær mun ég ávallt geyma í huga mínum og hjarta. Það er erfitt að rifja upp þessar minningar, það tekur svo sannarlega á sál og hjarta, ég ætla alltaf að geyma þær og þeg- ar ég eignast börn ætla ég endalaust að segja þeim sögur af þér og láta þau vita að þú varst og munt alltaf vera fyrirmynd mín og hetja í lífinu. Það sem mér finnst erfiðast að trúa er að þú verður ekki hjá mér þegar ég verð tvítug, ekki á keppn- inni og hjálpa mér að velja allt fyrir hana eins og allar hinar mömmu- rnar, ekki þegar ég útskrifast úr MR, ekki þegar ég gifti mig og hjálpar mér að klæða mig í kjólinn og ekki þegar ég eignast fyrsta barnið mitt en ég vona og innst inni veit ég að þú verður hjá mér allar þessar stundir, fylgist með mér, passar mig og styður mig eins og þér einni var lagið þó að þú verðir ekki þar í eigin persónu. Það er stöðugt verið að segja við mig að ég sé alveg eins og þú mamma … og veistu hvað …ég gæti ekki verið ánægðari, að líkjast þér er heiður því þú varst stórmerkileg, falleg og greind kona. Það skein af þér góðmennskan. Ég er svo þakklát fyrir þann tíma sem ég fékk að eiga með þér. Ég veit að núna líður þér miklu betur því núna ertu orðin frísk, kom- in til pabba þíns, ömmu og afa á Reyni og allra hinna. Það var ynd- islegt að fá að sofa í örmum þínum eins og ungbarn þegar þú kvaddir þennan heim, þá stund mun ég muna alla tíð. Við sjáumst aftur mamma mín, það veit ég. Elska þig óendanlega mikið. Litla stelpan þín, Þóra Björk. Elsku besta Anna mín. Enn í dag trúi ég því ekki að þú sért farin yfir móðuna miklu. Það er svo ótrúlegt að svona falleg, sterk, og gefandi kona sé tekin frá okkur. Stórt gat er á mínu hjarta en minningarnar eru svo margar og allar svo góðar og ljúfar enda mun ég varðveita þær vel um ókomna tíð. Þrátt fyrir þín veikindi þá gat ekkert stöðvað þig. Það varst þú sem réðst ferðinni en ekki sjúkdómurinn. Þar með gerðir þú það sem þú ætlaðir þér hverju sinni. Okkar síðasta fjölskylduferð sem við fórum öll saman í var til Danmerkur þar sem þú arkaðir um eins og ekkert væri að hrjá þig. Allt- af sama hetjan. Hetjan okkar. Ég hef aldrei kynnst hjónum eins og ykkur Eiríki. Ást ykkar og hjóna- band var einstakt enda varðveittuð þið það svo fallega. Alltaf voruð þið að huga að því að allir væru saman, sem ein heild, sem ein fjölskylda hvert sem farið var hvort það var til útlanda eða á ferðalög hér heima. Þegar þið voruð að hugleiða að fara í ferðalag út á land hringdir þú alltaf til okkar með þín hugljúfu orð: ,,Vilj- ið þið ekki koma með okkur það verður rosalega gaman.“ Við Rúrý vildum að sjálfsögðu ekki missa af þeim ferðum enda sáuð þið hjónin um að gera þær allar svo eftirminnilegar. Það lýsir því best þegar við fórum öll saman í Þórsmörk árið 2003. Við vorum öll 7 að sjálfsögðu saman ásamt hundin- um okkar Neró. Þá sagði Þóra við mig: ,,Guðrún, þegar þú giftist Rúrý, vissir þú þá að þú giftist allri fjöl- skyldunni?“ Þetta segir allt um hvernig þú hélst utan um alla ungana þína. En elsku Anna mín ég vil enn og aftur þakka þér fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig, allan stuðninginn, hjálpina og fyrir að fá þann heiður að ganga inn í fjölskylduna þína sem þú hélst svo mikið utan um. Nú er það í okkar verkahring að hlúa að hvert öðru og vera öll saman eins og þú varst búin að kenna okkur svo vel. Elsku tengdamamma, nú ert þú komin til föður þíns og veit ég vel að Neró minn er í góðum höndum hjá ömmu sinni. Minning um einstaka baráttu- konu, svo ljúfa, fallega og góða lifir í hjörtum okkar allra. Elsku Þuríður, Eiríkur, Rúrý, Gurrý, Þóra, Eiríkur og fjölskyldur, Guð gefi okkur styrk til að takast á við sorgina. Þín tengdadóttir Guðrún E. Sigurðardóttir. Elsku amma, þú varst frábær og góð. Ég mun alltaf muna eftir hvað þú varst góð amma og dugleg og sterk, sama hvað þú varst veik þá hafðir þú alltaf meiri áhyggjur af öðrum en þér. Ég er þakklátur fyrir það að hafa alltaf getað komið til þín á hverjum degi því þú varst alltaf til staðar, ég mun alltaf muna eftir þér, elsku amma mín. Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. (Höf. ók.) Saknaðarkveðjur, þinn ömmustrákur Eiríkur. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Anna Birna og Eiríkur bróðir minn voru ung að árum þegar þau bundust órjúfandi tryggðaböndum og stofnuðu til búskapar, nýbakaðir foreldrar. Þannig kom hún inn í líf okkar fjölskyldunnar, og þakklæti og ljúfar minningar koma upp í hug- ann þegar við kveðjum hana í dag, eftir hartnær fjögurra áratuga sam- fylgd. Hún hlaut í vöggugjöf svo ótal marga góða eiginleika og bar gæfu til að vefa þeim við lífsvef sinn. Það var ljóst í upphafi sambúðar þeirra að þar fór fædd húsmóðir og kjarnakona. Allt lék í höndum hennar svo aðdáunarvert var. Atorkusöm, áræðin, samviskusöm, hress og skemmtileg eru kannski lýsingar- orðin sem fyrst koma í hugann. Það var aldrei lognmolla í kringum hana, gengið til verka og þau afgreidd, sama hvað hún tók sér fyrir hendur. Stundum var haft á orði að þar væru breiðfirsku kjarnagenin í gangi. Sjálf var hún glæsileg kona sem eftir var tekið, og bar sig af reisn. Utan heimilis vann Anna Birna m.a. í Fellaskóla og í snyrtivörudeild Hagkaupa, þar sem hún naut sín vel og lýsti umhverfið. Einnig hafa þau Eiríkur verið með eigin atvinnu- rekstur og vann hún að honum með skörungsskap. Lífsaga Önnu Birnu og Eiríks er einstök; hamingjusöm og einstak- lega samhent, lánsöm með dætur sínar þrjár og dótturson sem alinn er upp í skjóli þeirra. Á samferð okkar í gegnum lífið höfum við átt ótalmargar samveru- stundir, margt hefur verið brallað; á Reynimelnum, í Hveragerði, í nánu sambýli í Flúðaseli. Útilegur og sumarbústaðaferðir þar sem fjöl- skyldurnar nutu sín. Þegar minningabrotunum er rað- að saman verður úr ein samfelld veisla. Anna Birna reyndist foreldrum mínum yndisleg og hugsunarsöm, ekki síður en eigin foreldrum. Sjálfri mér; góður vinur bæði í gleði jafnt sem sorg. Líklega hefur reisn hennar aldrei snortið okkur jafndjúpt og núna síð- ustu mánuði þegar ljóst var að hverju stefndi, ekki síst 15. febrúar síðastliðinn þegar hún helsjúk var við útför föður síns, aðeins sex dög- um áður en hún lést sjálf. Elsku bróðir minn, dætur, dótt- ursonur, tengdafólk þitt og aðstand- endur aðrir, megi Guð styrkja ykk- ur. Sveinbjörg Steinþórsdóttir. Elsku Anna Birna. Hetja. Stórglæsileg, falleg, það eru ekki til nógu mörg og góð lýsing- arorð til að lýsa þér því þú varst allt það besta. En þú varst bara tekin of snemma frá okkur. Afi hefur tekið vel á móti stelpunni sinni, en mjög stutt var á milli ykkar. Heppin var ég að eiga þig sem uppeldissystur. 12 ára gömul fékkst þú óvænt ungbarn inn á heimilið þitt. Og fórst þér það vel úr hendi að passa mig. Þegar stóra ástin kom inn í líf þitt þá fylgdi ég með á stefnumótunum. Ekki fannst honum Eika þínum það vera byrði þó að ég væri oft með. Þið gáfuð mér bara ís á Hressó og drösluðuð mér með. Það er mjög erfitt að nefna þig, Anna Birna, í einu orði án þess að Eiki fylgi með. Því þið voruð eitt. Þau bestu og yndislegustu hjón sem ég þekki. Ást ykkar dafnaði og óx með hverju árinu sem leið. Sam- heldnin var þvílík. Og að koma inn á ykkar heimili var yndislegt, alltaf ríkti þar gleði, glettni og ástúð. Oft fékk ég að gista hjá ykkur og þá var fjör hjá okkur dætrum þín- um. Mikill galsi og það kom oft fyrir að þú þurftir að koma og reka á eftir okkur að fara að sofa. Eitt sinn mauluðum við Rúrý kex fram eftir öllu kvöldi og allt rúmið útatað í kexi. Nokkrum sinnum komst þú inn og sagðir okkur að hætta þessu kex- áti og fara að sofa. En alltaf laum- aðist Rúrý fram og náði í meira. Ekki tókst þú kexið í burtu þó þú vissir að við myndum fá okkur meira. Þau skipti sem ég fékk að sitja í bílnum ykkar vestur í hólm voru al- veg meiriháttar. Mér fannst nefni- lega svo frábært hvernig Eiki keyrði. Afi minn keyrði alltaf miklu hægar fannst mér. Þegar ég var spurð hvort þú værir systir mín svaraði ég afar stolt ,,já,“ og nennti ekki neinum útskýringum á því. Okkar síðasta samtal var á föstu- dagseftirmiðdegi. Þá lofaði ég þér að taka mynd af leiðinu hans afa og koma með til þín og sýna þér. Mynd- in er komin en því miður tókst mér ekki að koma henni til þín. Það þykir mér afar sárt. Hvar sem þú komst var tekið eftir þér. Slíkur var glæsileikinn. Alltaf hress, alltaf kát. Elsku Anna Birna, ég sakna þín. Sakna þess að fá þig ekki lengur í af- mælin til mín, sakna þess að hitta þig ekki um jólin. Sakna alls. Megi góður Guð gefa ykkur styrk, Eiki, Rúrý, Gurrý, Þóra Björk, Ei- ríkur og Guðrún Erla. Guð styrki þig Þuríður amma (mamma). Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Guð geymi þig. Hjördís Björg Andrésdóttir. Leggur ósinn, fenna fjöll fölnar rós og stráin, vonarljósin eru öll, eins og rósin, dáin. (B.J.) Þessi litla vísa kom upp í huga minn þegar ég frétti lát Önnu Birnu Grímólfsdóttur. Hún hafði barist við ANNA BIRNA GRÍMÓLFSDÓTTIR Kársnesbraut 98 • Kópavogi 564 4566 • www.solsteinar.is 10-40% afsláttur af legsteinum þessa viku

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.